Morgunblaðið - 15.08.2005, Síða 30

Morgunblaðið - 15.08.2005, Síða 30
Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn HENGIRÚM ÞETTA ER EKKI GOTT VERKFALLS- VEÐUR ÉG ÆTLA AÐ FÆRA KENNARANUM OKKAR SÚPU HÚN ÞARF EINMITTÁ SKÁL AF... ... REGNI AÐ HALDA STANGAVEIÐI ER SVO LEIÐINLEG ÍÞRÓTT VIÐ ERUM BÚNIR AÐ SITJA HÉR Í 20 MÍNUTUR OG ÞAÐ HEFUR EKKERT GERST ÓLAFUR, HVERNIG GET ÉG LÆRT AÐ LESA OG SKRIFA? ÞÚ VERÐUR AÐ SETJAST Á SKÓLABEKK ALLTAF ER ÞAÐ EITTHVAÐ! HVERNIG ER BEST FYRIR MIG AÐ NÁLGAST HUNDINN ÞINN? UNDAN VINDI! VARAÐU ÞIG! GÆTI ÉG FENGIÐ ANNAN SKAMMT BOLLURNAR ERU ÞVÍ MIÐUR BÚNAR HVAÐ MEINARÐU, ÞETTA ER VEISLA. ÞAÐ Á AÐ VERA NÓG TIL VIÐ ÁKVÁÐUM AÐ FARA HÓFLEGA Í MATINN Í ÁR ÞAÐ VIRÐIST SAMT NÓG TIL AF BRINGU Dagbók Í dag er mánudagur 15. ágúst, 227. dagur ársins 2005 Því er nú tekið aðhalla þessu sumri, sem Veðurstofan segir hafa verið vel fyrir of- an meðallag hvað hita- farið snertir, bæði fyr- ir norðan og sunnan, en þó er ekki laust við, að Víkverja finnist eitthvað upp á vanta. Sumarið byrjaði held- ur ekki vel – þrálát norðanátt með kulda og svo miklum þurrki, að gróðri fór lítið fram og jafnvel var farið að sjá á honum. Var Vík- verja, sem er mikill áhugamaður um garða og gróður, ekkert farið að lítast á blikuna um hríð en úr því rættist að lokum með langþráðri vætu. Síðan hafa skipst á skin og skúrir eins og líka vera ber en eftir hita- bylgjuna í fyrra og almennt góða sumartíð á síðustu árum er Víkverji kannski farinn að gera allt of miklar kröfur til veðurguðanna. Að vísu skein sólin hér sunnanlands í nokkra daga samfleytt í ofanverðum júlí en síðan þóknaðist þeim að senda okkur svona heldur snemmborna haust- lægð ásamt meðfylgjandi tjald- vagna- og húsbílafoki. Þeir sem ekki eiga allt sitt undir sól og regni, eiga auð- vitað ekki að vera að kvarta og víst er, að haustið býr ekki yfir minni töfrum en gró- andinn á vorin. Þá stendur allt í blóma og þá fer að hilla undir það, sem Víkverji hef- ur svo gaman af, ber- jatínsluna. Á æskuheimili Vík- verja var mikið tínt af berjum, krækiberjum, sem síðan voru söftuð og saftin meðal annars drukkin með lýsinu á morgnana. Þá var uppskeran mæld í fötum ef ekki böl- um en nú lætur Víkverji sér nægja nokkur box af krækiberjum og blá- berjum. Það er heldur ekki lengur meginmarkmiðið að tína sem mest, heldur ekki síður að njóta náttúr- unnar í sólvermdri brekku eða bala. Þegar ágúst er genginn í garð fer Víkverji að huga að sprettunni og velta því fyrir sér hvert nú skuli halda en á síðustu árum hefur hann alltaf beðið eftir áliti þess berjafróða manns, Sveins Rúnars Haukssonar læknis. Dómur hans að þessu sinni er sá, að berjaþroski sé góður og þá er bara að taka til tínurnar og halda af stað. Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is     Times-torg | Bandaríska konan Edith Shain, 86 ára, minntist þess að um helgina voru liðin sextíu ár frá því hún smellti heitum kossi á sjóliða nokkurn á Times-torgi í New York. Tilefnið var endalok síðari heimsstyrjaldarinnar og var kossinn festur á filmu. Myndin hlaut mikla frægð og varð í huga margra tákn um endalok stríðsins. Við tækifærið færði listamaðurinn Sew- ard Johnson Shain að gjöf höggmyndina „Skilyrðislaus uppgjöf“. Reuters Skilyrðislaus uppgjöf MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug- lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.600 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Látið því ekki hið góða sem þér eigið verða fyrir lasti. (Róm. 14, 16.)

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.