Morgunblaðið - 15.08.2005, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. ÁGÚST 2005 31
DAGBÓK
Valgerður Matthíasdóttir eða Vala Matteins og flestir landsmenn þekkjahana er að fara af stað með nýjanþátt á sjónvarpsstöðinni Sirkus í
byrjun september. Þátturinn bætist við flóru
íslenskrar þáttagerðar sem hefur blómstrað á
síðustu misserum en Sirkus byrjar að kynna
haustdagskrá sína dag. Vala segir Morg-
unblaðinu aðeins frá þættinum sínum sem ber
heitið „Veggfóður“.
„Þetta er áframhald og útvíkkun á því sem
ég hef verið að gera.
Þátturinn verður hönnunar- og lífsstílsþáttur
þar sem ég verð með hönnun, innlit, hug-
myndir og allt mögulegt sem tengist lífsstíl
fólks.
Við verðum með annan fótinn í útlöndum þar
sem við heimsækjum Íslendinga og sjáum
hvernig þeir búa en skoðum einnig hvað er að
gerast í borgunum í kringum okkur,“ segir
Vala.
Hún flutti sig um set frá sjónvarpsstöðinni
Skjá einum nýlega og yfir á Sirkus. Hvernig
hefur breytingin lagst í hana?
„Það var nauðsynlegt fyrir mig að breyta til
og víkka út efnistökin á þessum vettvangi. Ég
verð áfram með arkitektúr og innlit inn á
heimili fólks og breytingar en svo bætist ým-
islegt spennandi við.“
Um nýja vinnustaðinn hefur Vala einungis
góða hluti að segja. „Það ríkir mikil vinnugleði
hérna og áhugi. Hér er líka fullt af góðu fólki
sem gott er að vinna með aftur. Undirbúningur
hefur gengið vel og allt er að smella saman
enda mikill hugur í fólki og skemmtilegt.“
Þessi geðþekka sjónvarpskona hefur verið á
sjónvarpsskjánum í nær tuttugu ár eða frá
árinu 1986. Hvað finnst henni skemmtilegast
við sjónvarpsþáttagerð?
„Þetta er eitthvað sem ég kann mjög vel við.
Ef ég sé eitthvað sem hrífur mig þá er ég við-
þolslaus þangað til ég get miðlað því til sem
flestra.
Ég er menntuð í húsarkitektúr og er með
masterspróf frá arkitektaskólanum í Kaup-
mannahöfn. Þar lærði ég einnig innhúss-
arkitektúr og hönnun og því er það algjör
draumur fyrir mig að vera að miðla þessum
lista- og hönnunarheimi til áhorfenda heim í
stofu,“ segir hún og getur vel hugsað sér að
vera á skjánum í nokkur ár í viðbót að minnsta
kosti.
„Mér finnst ég bara nýbyrjuð,“ segir hún
hlæjandi.
Spurð um arftakana að Innlits/útlits-
þættinum á Skjá einum segir Vala að sér lítist
mjög vel á. „Mér líst mjög vel á nýja fólkið.
Það er til nóg af efni og Íslendingar eru ofvirk-
ir svo það verður bara gaman að hafa sem
flesta í þessu.“
Þátturinn Veggfóður verður á dagskrá á
mánudagskvöldum í vetur á slaginu 9 á Sirkus.
Sjónvarp| Vala Matt með nýjan lífsstílsþátt á Sirkus
Útrás og nýjar áherslur
Valgerður Matt-
híasdóttir fæddist í
Reykjavík 1953.
Hún útskrifaðist úr
Kunstakademiets-
arkitektaskólanum í
Kaupmannahöfn árið
1984 með mast-
erspróf. Hún byggði
upp menningar- og
listadeild Stöðvar 2
og hannaði meðal
annars fyrstu leik-
mynd stöðvarinnar. Hún hefur starfað í sjón-
varpsþáttagerð frá árinu 1986 hjá Stöð 2,
Ríkisútvarpinu, Skjá einum og nú Sirkus.
Jafnframt þessu hefur hún unnið við arki-
tektaráðgjöf og ritstörf.70 ÁRA afmæli. Í dag, 15. ágúst,er sjötugur Einar Þór Arason,
fyrrverandi lögreglumaður, Grænási
1, Njarðvík.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
75 ÁRA afmæli. Í dag, 15. ágúst,er sjötíu og fimm ára Adólf Sig-
urgeirsson, Suðurvör 2, Grindavík.
Hann eyðir deginum í faðmi fjölskyld-
unnar.
HM ungmenna.
Norður
♠K
♥ÁK98542 A/NS
♦KD6
♣62
Vestur Austur
♠109752 ♠863
♥G3 ♥76
♦G72 ♦108
♣K97 ♣DG10853
Suður
♠ÁDG4
♥D10
♦Á9543
♣Á4
Alslemma stendur á borðinu í NS og
rúmlega það, en leiðin þangað er síður
en svo augljós ef austur hefur leikinn
með hindrunarsögn í laufi.
Spilið kom upp á heimsmeistaramóti
ungmenna, sem nú stendur yfir í
Sydney í Ástralíu. Eins og ungra
manna er siður vöktu margir á þremur
laufum með spil austurs, þrátt fyrir til-
tölulega jafna skiptingu og einungis
sexlit.
Þannig gengu sagnir í leik Ísraela
og Bandaríkjamanna á öðru borðinu:
Vestur Norður Austur Suður
Wooldridge Hoffman Hurd Ofir
– – 3 lauf Dobl
5 lauf 6 hjörtu Allir pass
Það er erfitt að gagnrýna NS fyrir
þessa afgreiðslu, enda möguleikar til
vitrænna samskipta takmarkaðir.
Á hinu borðinu passaði austur í
byrjun svo NS fengu frítt spil í sögn-
um og rúlluðu í rólegheitum upp í sjö
grönd.
Er þá „rétt“ að vekja á þremur lauf-
um á spil austurs?
Í þessu tilviki heppnast það vel, en
málið vandast þegar makker opnara er
með góð spil á móti. Oftast er svar-
hönd að íhuga þrjú grönd, en þá
ákvörðun er erfitt að taka af skyn-
samlegu viti ef opnunin getur verið allt
frá slíku rusli og upp í ÁKG sjöunda.
Ekkert er ókeypis í þessum heimi.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
Ánægjulegt Pæjumót
á Siglufirði
NÝLEGA buðu Siglfirðingar um
1.400 stúlkum til keppni í knatt-
spyrnu.
Í jafn stórri keppni og þessari má
ekkert út af bregða til að setja
leikjaskipulag og dagskrá úr skorð-
um. Það gerðist hins vegar ekki
þrátt fyrir erfið veðurskilyrði fram-
an af móti.
Knattspyrnufélag Siglufjarðar
stóð einkar fagmannlega að fram-
kvæmd mótsins. Á það jafnt við um
aðbúnað keppenda, leikjaskipulag
og það sem meira var að allar tíma-
setningar stóðust eins og stafur á
bók. Slíkt er síður en svo sjálfgefið
sérstaklega ef mið er af því tekið að
Pæjumót KS og Þormóðs-ramma er
stærsta kvennaknattspyrnumót
landsins.
Aðbúnaði okkar foreldra stúlkn-
anna má einnig hrósa. Siglfirðingar
sýndu einkar mikla gestrisni og
þrátt fyrir stöðugt stærri bíla, fleiri
fellihýsi og húsvagna en áður var
rúm fyrir alla á Siglufirði þessa
helgi. Það verður vonandi einnig að
ári þegar Siglfirðingar bjóða eina
ferðina enn stúlkum af öllu landinu
og foreldrum þeirra til Pæjumótsins.
Með þökk.
Einar Sveinbjörnsson.
Eggerti svarað
ÞAÐ er alveg ótrúlegt, að nokkur
skuli láta sér detta í hug að skrifa
aðra eins þvælu og hann Eggert
Eyjólfsson gerir hér 8. ágúst.
Það er bara alls ekki satt, að
strætóbílstjórar aki um eins og
„brjálað fólk“. Mikið af okkar at-
hygli fer í það að passa okkur á öku-
níðingum í umferðinni, ökuníðingum
sem halda að þeir eigi göturnar hér
skuldlausar.
Ég get alveg ímyndað mér, að það
sé erfitt fyrir menn eins og Eggert
að þurfa að beygja sig fyrir því, að
almenningsvagnar eiga vissan for-
gang í umferðinni. Ekki bara út af
biðstöðvum, heldur líka á vissum
ljósum. Úff, þvílík frekja í þessum
strætóbílstjórum.
En ég get ráðlagt fólki eins og
Eggerti að leggja nú bara bílnum, og
taka strætó.
Frábær lausn, ekki satt? Þá getur
Eggert hætt að láta það fara í taug-
arnar á sér, að þessir gulu vagnar
skulu leyfa sér að hafa meiri réttindi
en hans bíll. Þá situr hann bara í
strætó með okkur hinum, og nýtur
réttindanna með okkur.
Og svo eitt að lokum. Það eru sí-
ritar í vögnunum. Kannski getur
Eggert fengið sér svoleiðis apparat í
sinn bíl?
Bílstjóri hjá Strætó bs.
Dýrt að eiga sumarbústað
HÖRÐUR Bergmann skrifaði grein
sem birtist í Morgunblaðinu nýlega
undir fyrirsögninni Sumarhús sem
tekjustofn sveitarfélaganna. Ég er
þakklát Herði fyrir það að hann veki
máls á þessu málefni, því það er allt-
af verið að plokka af okkur sum-
arbústaðaeigendum.
Ég er sjálf búin að eiga sum-
arbústað í yfir fimmtíu ár, sem var
upphaflega í skjóli tengdaforeldra
minna og við höfum orðið að sjá um
hverja einustu framkvæmd, en hið
opinbera hefur ekki gert nokkurn
skapaðan hlut sem tengist sum-
arbústaðnum. Við létum ryðja smá
vegarspotta til að við gætum ekið að
bústaðnum. Við höfum séð um
hverja einustu kostnaðarhlið við
þessa götu, en síðan gefur sveitarfé-
lagið þessum vegi nafn.
Ég spyr þá: Ber þeim ekki að
leggja eitthvað fram á móti? Maður
greiðir allt í gjöld af þessu.
Nú les ég að hækkanirnar verði
alveg geysilegar og vil aftur þakka
Herði Bergmann fyrir að vekja at-
hygli á þessu.
Ellen Stefánsdóttir.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
TÓNLISTARHÁTÍÐ Ólafsfirð-
inga, Berjadagar, heitir eins og
gefur að skilja eftir lyngbrekku-
afurð móður náttúru en ekki (eins
og undirr. hélt í fyrstu) af því að
hún fókusi á slagverk.
Hún var nú haldin í sjöunda sinn
nyrðra og hófst með veglegum tón-
leikum á föstudagskvöld í félags-
heimili bæjarins Tjarnarborg fyrir
fullu húsi.
Efst á blaði var þokkafull
strengjaserenaða Mozarts, Eine
kleine Nachtmusik – n.k. loka-
kveðja snillingsins til þeirrar
kvöldlokkugreinar sem hann hóf til
ævarandi vegs og virðingar án
þess að missa sjónar á upphaflegu
skemmtigildi hennar, enda „felur
listin listina“ að hætti Vín-
arklassíkur. Sautján manna
Strengjasveit Berjadaga (5-4-3-
4-1) lék þessa heimsfrægu ljúf-
lingsdillu af markvissri mýkt með
öllum viðeigandi híatusum og ses-
úrum á sínum stað. Hraðavöl Arn-
ar Magnússonar voru að vísu held-
ur settleg í II. og einkum IV.
þætti, en annars gekk allt eins og í
sögu.
Hljómurinn í Tjarnarborg var
notalegur og skýr, þó að ögn lengri
ómtími hefði verið æskilegur, ekki
sízt í Holbergi Griegs og aukalag-
inu í tónleikalok.
Stefán Jón Bernharðsson var
sólisti í Konsert Haydns fyrir vald-
horn og strengi, Hob. VII:4 (tón-
tegundar ógetið) og blés af vir-
túósu öryggi með þónokkrum
persónulegum túlkunartilþrifum.
T.d. tók hann bergmálstvítekn-
ingar í fínalnum með cuivré-
handarstoppi, er gaf skemmtilega
„rifinn“ litakontrast. Sveitin lék
með viðhlítandi haydnskum húmor
og handfestu undir hnitmiðaðri
forystu Arnar, er stjórnaði sprota-
laust en engu óskýrara fyrir það.
Loks var „Frá tíma Holbergs“,
strengjasvíta er Edvard Grieg
samdi í tilefni af tveggja alda af-
mæli norsk-danska leikritaskálds-
ins. Elskulegt verk og ljóðrænt en
einnig tignarlegt á köflum, inn-
blásið frá fyrsta til síðasta tóns í
eftirminnilega heilsteyptri blöndu
af barokkstílhermu og ramm-
norskum Harðangurssláttum, enda
sló það strax í gegn og hefur hald-
ið verðugum vinsældum allt frá
frumflutningsdegi. Skemmst er frá
að segja að hér fögnuðu stjórnand-
inn og SB óvæntum stórsigri.
Alltjent minnist ég ekki að hafa
heyrt aðra eins póetískt sveigj-
anlega túlkun á þessu réttnefnda
meistaraverki hér á landi. Það var
eins og allir legðust á eitt um að
framhefja hin mörgu oft yfirséðu
snilldartök Griegs án merkj-
anlegrar fyrirhafnar, hvað þá
rembings, svo að heildarútkoman
varð ein samfelld döggtær unaðs-
upplifun. Aukalagið, strengjaum-
ritun Griegs á sönglagi sínu Morg-
unn, var sama gæðamarki brennt,
sömuleiðis þökk sé skáldlegri mót-
un og af pottþéttu tímaskyni.
Ekki amaleg byrjun hjá nýstofn-
aðri strengjasveit. Vonandi er hún
komin til að vera.
Skáldleg frumraun
TÓNLIST
Tjarnarborg, Ólafsfirði
Mozart: Lítið næturljóð. Haydn: Horn-
konsert nr. 2. Grieg: Holbergssvíta. Stef-
án Jón Bernharðsson horn; Strengjasveit
Berjadaga. Stjórnandi: Örn Magnússon.
Föstudaginn 12. ágúst kl. 20:30.
Strengjatónleikar
Ríkarður Ö. Pálsson
Stefán Jón
Bernharðsson
Örn
Magnússon
LJÓSMYNDASTOFA Reykjavíkur gefur
út bókina From the Air, Iceland Orig-
inal eftir Emil Þór.
Í bókinni gefur
að líta ljósmyndir
Emils Þórs sem
teknar hafa verið
úr lofti af íslensku
landslagi.
Formáli er rit-
aður að bókinni á íslensku, ensku,
þýsku og frönsku en að öðru leyti inni-
heldur bókin eingöngu ljósmyndir.
Myndirnar í bókinni eru tölusettar á
korti aftast í ritinu.
Umbrot annaðist Hlynur Ólafsson
FÍT og prentun var í höndum Pjaxa
ehf.
Ljósmyndabók
Rakarastofan
Klapparstíg
S: 551 3010
Hair play frá
Rakarastofan
Klapparstíg