Morgunblaðið - 15.08.2005, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. ÁGÚST 2005 33
MENNING
STURTUR & BLÖNDUNARTÆKI
Fosshálsi 1 • 110 Reykjavík
Sími 525 0800 • www.badheimar.is
9. sýn. sun. 21/8 kl. 14 nokkur sæti laus
10. sýn. sun. 28/8 kl. 16 sæti laus
11. sýn. fim. 1/9 kl. 19 sæti laus
Á LANDAREIGN Þóris Gunn-
arssonar, aðalræðismanns Íslands
í Prag, og eiginkonu hans Ingi-
bjargar Jóhannsdóttur var nýlega
opnuð aðstaða fyrir íslenska lista-
menn sem samanstendur af vinnu-
stofu og íbúð, alls 200 fermetrum.
„Fyrir sex árum keyptum við
gamlan sveitabæ í 50 km fjarlægð
frá Prag og á landareigninni eru
sjö gömul hús,“ sagði Þórir í sam-
tali við Morgunblaðið.
Aðstaðan, sem hlotið hefur nafn-
ið Leifsbúð, er nefnd í höfuðið á
Leifi Breiðfjörð glerlistamanni en
hann er tíður gestur í Tékklandi
og góðvinur Þóris og Ingibjargar.
„Einhvern tímann þegar Leifur
var hér í heimsókn sýndi ég hon-
um eitt húsið á landinu sem er
byggt yfir gamlan brunn frá 1620
og var mjög illa farið,“ lýsir Þórir.
„Hann spyr hvað ég ætli að gera
við húsið og stingur upp á því í
gríni að þar gæti hann málað þeg-
ar hann væri orðinn gamall.“
Vilja vanda val listafólks
Í fyrrahaust þegar Þórir og
Ingibjörg voru svo stödd hér á
landi í heimsókn hjá Leifi og Sig-
ríði, konu hans, var aftur farið að
gantast með gamla brunnhúsið.
Þórir leggur þá til að gera húsið
upp og breyta því í menningarhús
fyrir listamenn og að Leifur yrði
sá fyrsti til að nýta aðstöðuna í til-
efni af sextugsafmæli hans.
Það varð úr að hafist var handa
við að gera upp húsið og Leifsbúð
var svo opnuð hinn 25. júní síðast-
liðinn, daginn eftir sextugsafmæli
Leifs. Á opnuninni voru sýnd verk
eftir tékkneska listahópinn Rubi-
kon sem hélt sýningu á Kjarvals-
stöðum árið 2001.
„Aðstaðan er hugsuð til notk-
unar allan ársins hring fyrir rit-
höfunda, tónskáld og myndlist-
arfólk,“ segir Þórir. „Skipuð hefur
verið nefnd hússins og í henni
sitja Leifur og kona hans Sigríður
Jónsdóttir fyrir hönd myndlist-
arfólks, Þráinn Bertelsson fyrir
hönd rithöfunda, Kjartan Ragn-
arson fyrir hönd leiklistarfólks og
Þorkell Sigurbjörnsson fyrir hönd
tónskálda.“
Stofnfundur um Leifsbúð verður
haldinn hér á landi á næstu vikum
og þá ákveðið frekar hvernig
starfsemin mun fara fram.
„Við viljum vanda valið á því
listafólki sem mun dvelja í Leifs-
búð og koma þannig góðum
stimpli á starfsemina,“ segir Þórir.
Afraksturinn 37 verk
Leifur og Sigríður eru nýkomin
heim eftir sex vikna dvöl í Leifs-
búð og láta afar vel af aðstöðunni.
Leifur segir tilbreytinguna góða
og að í Tékklandi sé heilmikinn
innblástur að fá. Auk þess þyki
honum virkilega gaman að húsið
heiti í höfuðið á sér.
„Það var leiðinlegt að fara frá
Prag en hitt er annað mál að það
er alltaf gott að koma aftur heim
til Íslands og vinna hér,“ segir
Leifur sem hefur eignast mikið af
góðum vinum í Tékklandi í gegn-
um árin.
„Auk þess að vinna ferðuðumst
við hjónin töluvert um og skoð-
uðum listasöfn og byggingarlist.
Það er ótrúlega mikið að sjá í
Tékklandi og búið að vinna þar
feiknamikið starf undanfarin ár
við endurbyggingu og viðgerðir á
illa förnum byggingum.“
„Ég fór þangað fyrst árið 1998
þegar ég vann skírnarfont fyrir
Hallgrímskirkju en hluti af honum
var steyptur í Tékklandi. Nú
þekkjum við hjónin orðið nokkuð
vel til á þessum slóðum og eigum
þarna mikla og góða vini,“ út-
skýrir hann og segir alltaf jafn
gott að koma til Tékklands.
Á þeim sex vikum sem Leifur
dvaldi í Tékklandi vann hann 37
verk og hélt vinnustofusýningu
fyrir tékkneska vini sína daginn
áður en haldið var heim til Ís-
lands.
Listir | Leifsbúð, vinnustofa fyrir íslenska listamenn opnuð í Prag
Leifsbúð er á landareign Þóris Gunnarssonar aðalræðismanns og Ingibjargar Jóhannsdóttur í nágrenni Prag.
Alltaf jafn gott að
koma til Tékklands
Frá vinnustofu Leifsbúðar, þar sem glerlistamaðurinn Leifur Breiðfjörð
dvaldist í sex vikur fyrr í sumar en aðstaðan heitir eftir listamanninum.
Eftir Völu Ósk Bergsveinsdóttur
valaosk@mbl.is
KORNUNG stúlka frá Akranesi,
Oddný Björgvinsdóttir, þreytti op-
inbera frumraun sína á seinni Berja-
dagatónleikum laugardagsins eftir
uppfærslu barnaóperu Mistar Þor-
kelsdóttur og Messíönu Tómasdóttur
kl. 15, Undir Drekavæng, er undirr.
fjallaði um við frumflutninginn fyrr á
árinu. „Debút“ Oddnýjar ætti þó
kannski að taka með svolitlum fyr-
irvara, enda er hún í framhaldsnámi
á hnappaharmóniku við Tónlist-
arháskólann í Ósló. Tónleikarnir
voru í minningu Jóns Árnasonar á
Syðri-Á er Oddný kynntist í sum-
ardvölum sínum á Kleifum. Léku þau
oft saman á nikkur, eins og hún lýsti í
kynningum milli atriða. Hér-
umræddir tónleikar fóru fram í full-
setinni Ólafsfjarðarkirkju og nærri
jafnþéttskipuðu safnaðarheimili að
auki, er byggt hefur verið þvert á
kirkjuskipið með opið á milli svo
rúmur þriðjungur hlustenda sá og
heyrði frá 90 gráðu horni.
Farið var hægt af stað með Þrem
sálmalögum fyrir harmóniku og selló
eftir Finnann Ahti Sonninen með
laglínuna hjá knéfiðlunni. Frekar
dimm og döpur lög, en melódískt fal-
leg. Eftir ítalska dansnikkarann
Pietro Frosini, er var í miklu uppá-
haldi hjá Jóni, lék Oddný fínlega en
stöku sinni svolítið hikandi valsinn
Ólífublómin og Belviso polka með
leiftrandi miðkafla. Í klaustrinu
Ferapontow (Hugleiðingar um dío-
nýsískar veggmyndir) eftir Wlad-
islaw Solotariov kvað við rúss-
neskulegt lagferli eftir drungalegt
upphaf og stutta en vakra tokkötu, er
var ágætlega spilað. Sneggri blettir
voru á „Sónötu í C“ eftir Domenico
Scarlatti, enda ekki hlaupið að því að
skila sembalsónötunni með „caccia“
lúðrakallastefinu kunna í sprækum
6/8 takti í harmónikuumritun. Þessa
gætti einnig á köflum í Ljóðrænum
en hljómrænt krydduðum valsi eftir
Nikolai Tschaikin, er vantaði herzl-
umuninn upp á að ná viðeigandi
gusti.
Eftir hlé lék Oddný krómatískt
flúraðan Konsertvals Jóns Árnason-
ar af hugljúfri lipurð. Þríþætt Viken-
svíta í anda norskra harðang-
ursfiðluslátta í harmónikuútsetningu
núverandi kennara Oddnýjar í Ósló,
Jon Faukstad, var gegnsætt rituð og
fáguð í túlkun, þó að truflandi hósti
úr áheyrendasal kunni að hafa sett
spilarann út af laginu miðað við hvað
sumt varð órólegt og andstutt í mót-
un. Síðan voru leikin 3 íslenzk þjóð-
lög fyrir selló og harmóniku eftir
fyrrnefndan Anders Viken; til-
tölulega lítið útfærð af höfundi en á
móti við meira jafnræði milli hljóð-
færa en í Sonninen, og komu þau
bráðfallega út.
Mun kröfuharðara var viðamesta
verk kvöldsins, hið khatsjat-
úríanskulega dúó Inngangur og
allegro eftir Mátýás Seiber; eink-
anlega til sellósins en samt skrifað af
miðilsvænu innsæi til beggja handa,
og þurftu báðar að taka vel á. Tókst
lífleg túlkun stallnanna í heild mjög
vel og var þeim launað með voldugu
klappi á fæti. Loks lék Oddný Veru
Lynn stríðssmellinn Við hittumst
heil (We’ll Meet Again) við almennan
fjöldasöng. Spámannslegur boð-
skapur, enda má trúlega vænta for-
vitnilegrar „alvöru“-frumraunar inn-
an fárra ára af þessari efnilegu ungu
dragspilsstúlku.
Morgunblaðið/Þorkell
Oddný Björgvinsdóttir: Efnileg ung dragspilsstúlka.
Fínlega þanið dragspil
TÓNLIST
Ólafsfjarðarkirkja
Tónleikar í minningu Jóns á Syðri-Á með
verkum eftir Sonninen, Frosini, Solotar-
iov, D. Scarlatti, Tschaikin, Jón Árnason,
Viken og Seiber. Oddný Björgvinsdóttir
harmónika, Ólöf Sigursveinsdóttir selló.
Laugardaginn 13. ágúst kl. 20.30.
Harmónikutónleikar
Ríkarður Ö. Pálsson