Morgunblaðið - 15.08.2005, Side 34

Morgunblaðið - 15.08.2005, Side 34
34 MÁNUDAGUR 15. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ Sýnd kl. 6 Miðasala opnar kl. 15.00    Sýnd kl. 8 Sýnd kl. 10.30 B.i 16 ára kl. 3.20, 5.40, 8 og 10.20 kl. 3.40 og 5.50 Í þrívídd  VINCE VAUGHN OWEN WILSONVINCE VAUGHN OWEN WILSON KVIKMYNDIR.IS  I I .I Sýnd kl. 5.20, 8 og 10.30 Sýnd kl. 8 og 10.20Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10 B.i 10 ára KVIKMYNDIR.IS  I I .I OFURHETJURNAR ERU MÆTTAR Í EINNI STÆRSTU MYND ÁRSINS WWW. XY. IS WWW. XY. IS FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA OFURHETJURNAR ERU MÆTTAR Í EINNI STÆRSTU MYND ÁRSINS FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA ÞRIÐJA STÆRSTA OPNUN ÁRSINS Í USA Sýnd kl. 3.20, 4.20, 5.40, 6.40, 8, 9, 10.20 og 11.20 B.i 10 árawww.borgarbio.is Sími 564 0000         KVIKMYNDIR.COM  RÁS 2 Ó.H.T  S.K. DV  KVIKMYNDIR.IS KVIKMYNDIR.COM  S.K. DV  BESTA GRÍNMYND SUMARSINS „FGG“ FBL. BESTA GRÍNMYND SUMARSINS „FGG“ FBL. TÓNLEIKAR Kaplakriki Alice Cooper  Tónleikar Alice Cooper og hljómsveitar í Kaplakrika, 13. ágúst 2005. Um upp- hitun sáu Dimma, Sign, Dr. Spock og Brain Police. ALICE Cooper er ein af lifandi goð- sögnum rokksins og á hið sæmi- legasta pláss á stalli flestra áhuga- manna um þungarokk. Þá stöðu tryggði Cooper sér á áttunda ára- tugnum með tvennum hætti, annars vegar með allsvakalegu sjónarspili á tónleikum, eitthvað sem ekki hafði áður sést, en hins vegar með þrusu harðrokksplötum á borð við Love it to Death, Billion Dollar Babies, Kill- er og School’s Out. Þó að nú séu þrjátíu ár síðan að Cooper gaf út virkilega góða plötu (Welcome to my Nightmare, 1975) hefur hann stýrt sirkusnum með harðri hendi allt fram á þennan dag. Síðast naut Cooper heimsathygli er hann sló óforvarandis í gegn með hinni sykurhúðuðu Trash árið 1989 en eftir það fór að halla undan fæti og síðustu tíu ár eða svo hafa ein- kennst af misvel heppnuðum og mis- tækum plötum sem út hafa komið á litlum merkjum. Þrátt fyrir þetta er eftirspurn eftir tónleikum með myrkrasprellaranum alltaf jafn mik- il og harðar fylkingar einlægra aðdá- enda eru við lýði um heim allan. Ég var búinn að gleyma því hvað Kaplakrikahúsið er í raun lítið og þegar það er rétt um hálffullt – eins og raunin var á laugardaginn – leit þetta hálf snautlega út. Ég óttaðist að Cooper og félagar gætu dottið úr stuði við þessa sjón en annað kom svo á daginn. Ljósin slokknuðu og bandið hóf að spila „Department of Youth“ af Wel- come To My Nightmare. Skyndilega var ljósum varpað á sjálfan Cooper, sem gekk grimmlyndur niður stiga, uppdubbaður með staf í hendi. Cooper rigsaði um sviðið og hann ásamt hjómsveitinni var duglegur að hvetja áhorfendur áfram og hleypa upp stuði. Og þetta tókst þeim og eitt af því sem eftir situr eftir þessa ágætu tónleika er hversu mikil fag- mennska var á ferð þetta kvöld. Það var eins og það skipti Cooper og hans fólk litlu máli hvort verið væri að spila í New York eða Njarðvík, sýningin var keyrð áfram af festu og það sem er meira um vert, af sýni- legri ástríðu og gleði. Tónleikarnir voru lokatónleikar á Evrópureisu og því var létt yfir mannskapnum og menn grínuðust hver í öðrum á milli laga og í þeim. Cooper sjálfur sýndi þá og sannaði að hann kann sitt fag upp á tíu og nálægð hans var sterk frá upphafi til enda. Þetta allt skilaði sér rækilega út í salinn sem hitnaði meir með hverju lagi. Alls kyns kúnstir voru leiknar uppi á sviði og Cooper skipti um föt a.m.k. þrisvar sinnum. Í „Billion Dollar Babies“ var dollaraseðlum fleygt um salinn og í titillagi Dirty Diamonds fóru perlufestar sömu leið. Blöðrur hoppuðu um og dóttir Cooper, í gervi Paris Hilton og fleiri tálkvenda flæktist um sviðið ásamt lifandi fuglahræðum og fleiri furðu- fyrirbærum. Undir enda tón- leikanna var löng svíta flutt þar sem brot úr lögum á borð við „The Awakening“, „Only Women Bleed“ og „Steven“ af Welcome... voru leik- in ásamt fleirum. Þessi svíta tók á sig mynd örleikrits þar sem högg- stokkurinn var færður inn á svið og Cooper afhöfðaður með glans og hausnum veifað framan í æstan múginn. Galsafengið grín sem virk- aði fínt. Tónleikunum var svo slitið með hinu eilífa uppreisnarlagi, „Scool’s Out“. Fyrsta uppklappslag var svo hið vafasama „Poison“ sem hljómaði þó bara býsna vel í þessu samhengi og lokalagið var „Under My Wheels“ af Killer. Dagskráin samanstóð annars að mestu leyti af slögurum og þannig voru aðeins tvö lög af nýjustu plöt- unni, Dirty Diamonds, leikin. Eftir því sem leið á tónleika fór bandið og salurinn að hristast saman og smæð hússins – já og smæð áhorf- endaskarans – var að vinna með tón- leikunum frekar en á móti. Andi innilegra kráartónleika heldur en „stórtónleika“ sveif yfir og allir voru með á nótunum. Ólíkt stærri tón- leikum hérlendis, þar sem margir kíkja á einhverja heimsfrægu sveit- ina af einskærri forvitni, virtust allir þeir sem voru í Kaplakrika vera Alice Cooper-aðdáendur. Þetta stuðlaði að þeirri góðu stemmningu sem fyllti húsið. Áhorfendur voru ungir sem aldnir, fullt af fólki sem hefur sýnilega upplifað Cooper frá fyrstu hendi en einnig var fullt af krökkum á aldrinum þrettán til fjór- tán ára, skrýdd Alice Cooper-bolum og máluð að hætti meistarans. Þessi hópur tók undir í hverju lagi og sannaði að rokk og ról Coopers er sí- gilt. Einhvern tíma þótti sviðs- framkoma Cooper kannski hneyksl- anleg en fátt kemur samtímamönn- um á óvart. Sýningin var fyrst og síðast fyndin, galsafengið og sak- laust grín. Alice Cooper skilur kannski manna best að rokk og ról er fyrst og fremst skemmtilegt og varasamt er að setja sig í of alvar- legar stellingar gagnvart því. Á tím- um þenkjandi rokksveita eins og To- ol, System of a Down og Korn er það hressandi áminning. Cooper og fé- lagar stóðu sína plikt í Kaplakrika með sóma og sann og segja má að Cooper hafi farið Íslandshringinn vel undir pari. Arnar Eggert Thoroddsen Martröðin rætist TÓNLEIKAR Alice Cooper hafa jafnan þótt mikið sjónarspil og tónleikar hans í Kaplakrika á laugardaginn voru þar engin und- antekning. Þannig má segja að tónleikar kappans séu jafnframt eins konar fjölleikahús þar sem tónlistarmenn og aðstoðarmenn bregða sér í ýmis hlutverk. Meðal þeirra var dóttir tónlistarmanns- ins, sem brá sér meðal annars í hlutverk Britney Spears og Paris Hilton við mikinn fögnuð við- staddra. Eins og sést á meðfylgjandi myndum voru tónleikagestir vel með á nótunum en margir þeirra voru skrýddir að hætti meistarans. Alice Cooper í fínu formi í Kaplakrika Morgunblaðið/Eggert Alice Cooper var hamrammur á sviðinu en tónleikar hans þóttu heppnast með ágætum. María Rún Baldursdóttir og Rúnar Hallgrímsson fylgdust með af innlifun. Ragnar Zolberg, söngvari og gítarleikari Sign.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.