Morgunblaðið - 15.08.2005, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. ÁGÚST 2005 37
ningartímar sambíóunum
BIE FULLY LOADED kl. 3.50 - 6 - 8.15 - 10.30
BIE FULLY LOADED VIP kl. 6 - 8.15 - 10.30
ISLAND kl. 6 - 8 - 10 - 10.40
KING AND SCREAMING kl. 4 - 6 - 8 - 10
MADAGASCAR m/ensku.tali. kl. 4 - 6 - 8 - 10
MADAGASCAR m/ísl.tali. kl. 4 - 6
SVAMPUR SVEINSSON m/ísl.tali. kl. 4
ÁLFABAKKI
„The Island, virkilega
vel heppnuð pennumynd,
skelfileg en trúleg framtíðarsýn!!“
S.U.S XFM
„The Island er fyrirtaks afþreying.
Ekta popp og kók sumarsmellur. “
-Þ.Þ. Fréttablaðið.
l i i .
ll .
- . . r tt l i .
ÞEIR VILJA EKKI AÐ ÞÚ VITIR HVAÐ ÞÚ ERT!
Hvað myndir þú gera ef þú
kæmist að því að þú værir afrit af einhverjum öðrum?
EWAN McGREGOR SCARLETT JOHANSSON
Kvikmyndir.is
S.V. Mbl.
DV
Ó.H.T. RÁS 2
erbie Bjallan sem getur allt er komin aftur
og fær hin sæta Lindsay Lohan (“Freaky
Friday”, “Mean Girls”) að keyra hana
ábær Bjölluskemmtun fyrir alla.
HERBIE FULLY LOADED kl. 4.20 - 6.30 - 8.40 - 10.40
THE ISLAND kl. 8 - 10.40 B.i. 16 ára.
THE PERFECT MAN kl. 4.20 - 6.15
MADAGASCAR m/ísl.tali. kl. 4.20-6.15
BATMAN BEGINS kl. 10 B.i. 12 ára.
HERBIE FULLY LOADED kl. 6 - 8 - 10
THE ISLAND kl. 8 - 10.30
MADAGASCAR m/ísl.tali. kl. 10.30
HERBIE FULLY LOADED kl. 8
THE ISLAND kl 10.10
FANTASTIC FOUR kl 8 - 10
KRINGLAN AKUREYRI KEFLAVÍK
EFTIR margra ára hlé hefur hin sí-
vinsæla hljómsveit, Lúdó og Stefán,
gefið út nýjan geisladisk sem nú er
verið að dreifa í verslanir um land
allt. Diskinn nefna þeir 45 Rokk ár
og sáu meðlimir hljómsveitarinnar
sjálfir um allar upptökur, útgáfu og
dreifingu á disknum.
Margir halda víst að Lúdó sé að
koma saman aftur en Stefán Jóns-
son söngvari segir að það sé mis-
skilningur. „Lúdó hefur aldrei hætt.
Við höfum að vísu verið að spila
mikið í lokuðum samkvæmum og
þess vegna verið lítið í sviðsljósinu
en sveitin hefur starfað sleitulaust í
tæpa fimm áratugi.“
Það er því ekki af því tilefni að
sveitin sé að koma aftur sem Lúdó
gefur út geisladisk.
„Nei, nei. Þetta er að vísu í fyrsta
sinn í tuttugu og sex ár sem við gef-
um út disk. Það hefur oft verið
skorað á okkur að gefa út disk og
fyrir fjórum árum var Lúdó-platan
okkar endurútgefin á diski og gekk
svona vel að við ákváðum að kýla á
annan disk. Hins vegar höfum við
tekið okkur dágóðan tíma í þetta,
menn eru í annarri vinnu meðfram
þessu.“
Á diskinum er bæði frumsamið
efni eftir meðlimi hljómsveitarinnar
auk margra sígildra rokklaga og
„standarda“ með íslenskum textum.
Lögin eru samtals fjórtán, og
hægt er að heyra búta úr þeim á
heimasíðu Lúdó sem er www.ludo-
.is. Þar er einnig hægt að nálgast
texta allra laganna, fræðast um
sögu bandsins og panta diskinn.
Hljómsveitin er þegar bókuð á
mörgum stöðum um landið það sem
eftir er sumars en þeir sem vilja fá
hljómsveitina til að leika á dans-
leikjum og öðrum uppákomum er
bent á heimasíðu þeirra ludo.is eða
að hafa samband við Stefán Jónsson
í síma: 540-5446 og 895-8546.
Tónlist | Lúdó og Stefán senda frá sér nýja plötu
Langlífasta hljómsveit Íslands
Lúdó og Stefán hafa leikið saman í tæp 50 ár.
JAZZTRÍÓIÐ Kind flutti lög fólksins á tíundu tón-
leikum sumartónleikaraðar veitingahússins Jómfrú-
arinnar við Lækjargötu en tónleikar hafa verið
haldnir á Jómfrúnni á hverjum laugardegi frá því í
júní. Senn líður að lokum tónleikaraðarinnar þetta
árið en síðustu tónleikarnir fara fram laugardaginn
27. ágúst.
Framtakið hefur mælst afar vel fyrir hjá djass-
geggjurum landsins sem hafa fjölmennt á tónleika
sumarsins.
Jazztríóið
Kind á
Jómfrúnni
Morgunblaðið/Þorkell
Óskar Guðjónsson lék fimlega á saxófóninn á laugardag-
inn. Auk hans skipa tríóið þeir Þórður Högnason á kontra-
bassa og Einar Valur Scheving á trommur.
Það fór vel um tónleikagesti á Jómfrúartorginu.
NÝVERIÐ fannst áður óþekkt tón-
leikahljóðritun með frumkvöðlum og
helstu stórsnillingum bíboppsins
saxófónleikaranum Charlie Parker
og trompetleikaranum Dizzy
Gillespie.
Upptakan er af tónleikum sem
haldnir voru í Town Hall í New York
22. júní 1945 og eru hljómgæðin
sögð vera merkilega góð. Það var
Robert Sunnenblick, eigandi útgáfu-
fyrirtækisins Uptown Records, sem
hafði upp á þessari hljóðritun og
verður hún gefin út á diski, sem
væntanlegur er í verslanir 23. ágúst
nk.
Á henni er að finna sex lög m.a. „A
Night In Tunesia“, „Groovin’ High“,
„Salt Peanuts“ og „Hot House“.
Með Gillespie og Parker leika m.a.
upptökunni tenórsaxófónleikarinn
Don Byas, Al Haig á píanó og Max
Roach og Sid Catlett á trommur. 30
blaðsíðna bæklingur fylgir disknum
þar sem rakin er saga þessarar
hljóðritunar og fjallað um sögulegt
gildi hennar á byltingarárum bí-
boppsins.
Fann tónleikaupptöku
með Parker og Gillespie
NYLON og Fanta
hafa tekið höndum
saman og framleitt
vinabönd til stuðn-
ings krabbameins-
sjúkum börnum á Ís-
landi. Armböndin eru
appelsínugul á litinn
með áletruninni NYL-
ON og munu einungis
fást í Select og völd-
um verslunum Shell í
ágúst- og sept-
embermánuði. Hvert
armband kostar 500
krónur og rennur féð
óskipt til Styrkt-
arfélags krabba-
meinssjúkra barna.
Í tilefni af útgáfu
vinabandanna býður Select viðskiptavinum sínum upp á sumarveislu á
stöðvum sínum um allt land þar sem Nylon-flokkurinn og Fanta halda uppi
fjörinu. Þriðja veisla sumarsins verður haldin á Select við Smáralind
fimmtudaginn 18. ágúst nk. kl. 14 og eru allir velkomnir.
Vinabönd Nylon komin í verslanir
Morgunblaðið/Þorkell
Stúlkurnar í Nylon með nýju vinaböndin.