Morgunblaðið - 19.08.2005, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 19.08.2005, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 222. TBL. 93. ÁRG. FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is Menningarnótt 2005 Menningarnótt Kynningarblaði er dreift með Morgunblaðinu í dag Hugmyndahúsið ehf. Tjaldað yfir málverkið Einar Hákonarson opnar sýningu í Hljómskálagarðinum | Menning Bílar og Íþróttir í dag Bílar | Draumur á hjólum  Meistarataktar Svía og Breta  Pirelli- rallið  Vélaver á nýjum stað Íþróttir | Þjáningarbræðurnir Kári og Messi  Eyjamenn úr fallsæti  Blikarnir komnir upp London. AFP. | Ian Blair, yfirmaður lögreglunnar í London, neitar því harðlega að hafa á nokkurn hátt reynt að koma í veg fyrir að gerð yrði opinber rannsókn á dauða Brasilíu- mannsins Jean Charles de Menezes, er lögreglumenn skutu til bana í síð- asta mánuði, eða að hafa reynt að leyna því hvernig atburðinn bar að. „Slíkar ásakanir stinga beint í hjarta lögreglunnar og gera lítið úr ráðvendni hennar … og ég hafna þeim algjörlega,“ sagði hann í gær. Blair lýsti því yfir á sínum tíma að Menezes hefði verið ráðinn bani vegna gruns um að hann ætlaði að fremja sjálfsmorðssprengjuárás. Klæðnaður hans hefði þótt grunsam- legur, en hann var sagður hafa verið í þykkum ullarfrakka á heitum sum- ardegi. Þá á hann að hafa stokkið yfir grindur á lestarstöðinni og hlaupið undan lögreglu inn í lestina. Skýrsla sérstakrar stofnunar sem rannsakað hefur dauða Menezes greinir hins vegar frá því að hann hafi verið klæddur gallajakka og ekki hlaupið, heldur gengið rólega inn í lestina og sest þar niður. Auk þess kemur fram í skýrslunni, sem lak til sjónvarpsstöðvarinnar ITV í vikunni, að Menezes hafi verið haldið af lögreglumönnum á meðan hann var skotinn ítrekað í höfuðið. Starfsmanni stofnunarinnar hefur að sögn BBC og SKY verið vikið úr starfi fyrir að leka upplýsingunum. Blair neitar ásökunum  Sagður hafa | 16 MIKILL vindur tók á móti Benedikt XVI. páfa er hann steig út úr flugvél í fæðingarlandi sínu, Þýskalandi, í gær og átti hann fullt í fangi með að reyna að halda í kollhúfu sína sem sveif yfir höfði hans. Vindurinn var ekki það eina sem tók páfanum fagnandi, en hundruð þúsunda manna fögnuðu komu hans. Er þetta fyrsta opinbera heimsókn Benedikts á erlenda grundu eftir að hann var kjörinn páfi í apríl. Reuters Páfa fagnaðTALSMENN ísraelskra öryggissveita segja alla landtökumenn hafa verið flutta brott frá stærstu gyðingabyggðinni á Gaza-svæðinu, Neve Deka- lim, alls 1.850 manns. Meira en helmingur land- tökubyggða á Gaza hafi þegar verið rýmdur í gærkvöldi, en þær eru 21 talsins. Tvær af fjórum gyðingabyggðum á Vesturbakkanum, sem til stóð að rýma, séu einnig auðar. Með brottflutningnum lýkur 38 ára búsetu landtökumanna á landi sem tekið var af Palest- ínumönnum í sex daga stríðinu árið 1967. Á öðrum degi brottreksturs Ísraela af svæðinu þurftu öryggissveitir að berjast við róttæka land- tökumenn sem höfðu lokað sig inni í bænahúsum í Neve Dekalim og Kfar Darom þar sem kom til blóðugra átaka. Yfirhöfuð var þó um staðfasta andspyrnu án ofbeldis að ræða í gær. Tilfinn- ingahitinn var þó mikill er öryggissveitir fjar- lægðu menn með valdi frá bænahúsunum og heimilum þeirra. Hundrað gyðingar teknir höndum Eftir að hafa í nokkra daga rætt við landtöku- menn á Gaza-svæðinu og reynt að ginna þá burt frá heimilum sínum með fagurmælum, rökræð- um og fortölum reyndi á þolinmæði ísraelskra her- og lögreglusveita í gær er til blóðugra átaka kom milli þeirra og róttækra landtökumanna við bænahúsið í Kfar Darom. Rúmlega hundrað rót- tækir gyðingar voru þar teknir höndum fyrir að beita ofbeldi gegn ísraelskum öryggissveitum. Í örvæntingarfullri tilraun til að hindra brott- flutning frá Gaza köstuðu reiðir landtökumenn sýru að lögreglumönnum, sem og eggjum og ljósaperum fylltum málningu er lögreglumenn reyndu að ná þaki bænahússins í Kfar Darom á sitt vald en þar höfðu tugir landtökumanna búið um sig. Að sögn ísraelsks hershöfðingja særðist að minnsta kosti 41 lögreglumaður vegna þessa sem og 17 landtökumenn. Lögreglumenn notuðust við stiga, krana og þrýstiloftsbyssur til að hemja landtökumennina. Vegna atburða gærdagsins hefur ríkissak- sóknari Ísraels í samráði við varnarmálaráðherr- ann ákveðið að ekkert umburðarlyndi verði sýnt þeim sem bregðast við brottflutningnum með of- beldi. Slái landtökumaður til að mynda til lög- reglumanns með barefli verði tekið á því sem um tilraun til morðs sé að ræða. Höfuðvígi landtöku- manna á Gaza er autt Öryggissveitir Ísraelsmanna sýna stillingu þrátt fyrir blóðug átök Eftir Jóhönnu Sesselju Erludóttur jse@mbl.is Reuters Reiðir landtökumenn öskra á lögreglumann eftir að öryggissveitir fjarlægðu félaga þeirra af þaki bænahússins í Kfar Darom.  Undanfari | 16 TÖLUVERÐ tengsl virðast vera á milli hæfni nemenda í lestri og hæfni þeirra í stærðfræði. Þetta kom fram í fyrirlestri Júl- íusar Björnssonar hjá Námsmatsstofnun sem hann flutti á málþingi um íslensku- kennslu í Kennaraháskólanum í gær. Júlíus hefur kannað niðurstöður sam- ræmdra prófa og erlendra rannsókna og sagði að ef íslenskir piltar væru jafngóðir í lestri og stærðfræði og stúlkur þá væri Ís- land á meðal allra efstu landa í alþjóðlegum samanburði. Að sögn Júlíusar eru stúlkur að jafnaði betri í hvoru tveggja og því meiri sem kynjamunurinn í lestri er þeim í hag, því betri eru þær í stærðfræði samanborið við piltana. „Eftir því sem niðurstöður samræmdra prófa og niðurstöður úr alþjóðlegum sam- anburðarrannsóknum eru skoðaðar betur verður skýrara í mínum huga að það er tungumálið sem er lykilatriði. Undirstaða bóklegs náms hlýtur að vera lestur og við vitum það að rökhugsun er illmöguleg ef einstaklingur hefur ekki gott vald á tungu- málinu.“ Tengsl milli hæfni nem- enda í lestri og stærðfræði  Tungumálið | Miðopna

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.