Morgunblaðið - 19.08.2005, Page 4

Morgunblaðið - 19.08.2005, Page 4
4 FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR BISKUP Íslands, Karl Sigurbjörns- son, hefur tilkynnt sr. Hans Markúsi Hafsteinssyni, sóknarpresti í Garða- sókn, að flytja eigi hann til í starfi á næstunni. Í yfirlýsingu frá Biskupsstofu frá því í gær segir að þetta hafi verið gert í samræmi við úrskurð áfrýj- unarnefndar Þjóðkirkjunnar og með samþykki kirkjumálaráðherra, sem er Björn Bjarnason. Verður fluttur í Reykjavíkur- prófastdæmi vestra Hans Markúsi er tilkynnt um flutning í nýtt embætti héraðsprests í Reykjavíkurprófastsdæmi vestra, með aðsetur í Langholtskirkju. Lögmaður Hans Markúsar, Sveinn Andri Sveinsson hrl, segist í samtali við Morgunblaðið ekki reikna með að umbjóðandi sinn muni una niðurstöðu biskups. Ekki liggi fyrir neitt samkomulag um flutning í starfi, enda sé nýtt starf lakara í kjörum og ábyrgðarminna. Hans Markús sé embættismaður, skipaður af ráðherra, en nú sé verið að bjóða honum starf sem biskup hafi boðvald yfir. „Flutningurinn er ígildi uppsagn- ar þar sem það jafngildir brott- rekstri úr starfi að bjóða sóknar- presti stöðu að- stoðarprests,“ segir Sveinn Andri en í yfirlýs- ingu Biskups- stofu segir að í samræmi við stjórnarskrána sé Hans Markúsi veittur kostur á að kjósa um embættaskiptin eða lausn frá embætti, „með lögmæltum eftirlaunum“. Getur boðið sig fram aftur Sveinn Andri segir starfsmanna- lög ríkisins gera ráð fyrir að séu menn fluttir til í starfi verði þeim boðið sambærilegt starf. Ákvörðun biskups sé eins og að gera yfirlög- regluþjón að lögreglufulltrúa. Hann bendir á að Hans Markús sé áfram kjörgengur sem prestur og eigi kröfu um laun út skipunartím- ann. Nú verði staðan í Garðasókn væntanlega auglýst og ekkert hindri Hans Markús í að sækja um stöðuna. Ákveðinn fjöldi sóknarbarna geti þá farið fram á kosningu. Biskup flytur sr. Hans Markús Hafsteinsson til í starfi „Flutningurinn ígildi uppsagnar“ Hans Markús Hafsteinsson AÐGENGI fatlaðra að þingpöllum er meðal þess sem bætt hefur verið úr í viðamiklum endurbótum á Al- þingishúsinu í sumar. Reiknað er með því að endurbótum innanhúss ljúki um næstu mánaðamót, en setja á haustþingið laugardaginn 1. októ- ber. Helgi Bernódusson, skrifstofu- stjóri Alþingis, segir að þegar verk- inu verði lokið þetta sumarið sé næst á dagskrá að gera við þak og út- veggi, einkum á norður- og vestur- hlið hússins. Mikið lá á síðasta haust þegar þurfti að ganga frá ýmsu til bráðabirgða áður en þingið hófst, en Helgi segir að slíkt verði ekki á döf- inni í ár. „Það er verið að lagfæra og laga til, við reynum að halda þessu í eins góðu horfi og kostur er. Við reynum að vera eins trúir upprunalegri mynd hússins eins og hægt er, og höfum fengið mjög góða aðstoð frá arkitektunum Þorsteini Gunnars- syni og Sigurði Einarssyni,“ segir Helgi. Hann segir Halldór Blöndal, forseta Alþingis, hafa beitt sér af alefli fyrir því að farið væri í endur- bætur á húsinu í kjölfar þess að við- bygging við húsið var tekin í notkun árið 2002. Bolabásinn endurnýjaður Í sumar var lagt parket á gólf á jarðhæð, herbergi löguð til að skapa betri hljómburð, raflagnir á þriðju hæð og í risi lagaðar. Auk þess er verið að laga hinn svokallaða Bola- bás, en þar hafa fjölmiðlamenn, sem fylgjast með störfum Alþingis, að- stöðu. Viðamestu breytingarnar eru þó þær að verið er að koma fyrir lyftu milli annarrar og þriðju hæðar hússins, og lagfæra þingpallana. „Nú eiga fatlaðir að eiga greiðan að- gang að þingpöllum, án aðstoðar,“ segir Helgi. Morgunblaðið/RAX Verið er að gera við gólf og veggi í skrifstofum þingflokka og forseta Alþingis á neðstu hæð, við gamla aðalinnganginn sem ekki er lengur notaður. Bæta aðgengi fatlaðra að Alþingi FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ segir í vefriti sínu að bensínverð hafi oft verið hærra en nú, og ber þá verðið saman við kaupmátt launa. Með því móti megi sjá raunverð bensíns miðað við laun. Ráðuneytið segir að frá árinu 1993 til 1997 og aftur árið 2000 hafi raunverð á bensíni verið mun hærra en það sé nú, svo muni allt að fjórðungi. Frá 2000 hafi raunverð á bensíni farið lækkandi og komist árið 2003 niður í að verða ódýrara en nokkru sinni fyrr á undan- förnum 15 árum. „Síðan hefur verðið hækkað nokkuð en ekki umtalsvert,“ segja sérfræðingar fjármálaráðuneytis- ins og bæta við að hluti skýring- arinnar á því að bensín hafi lækkað að raunvirði sé að vörugjald á bens- íni hafi ekki haldið verðgildi sínu á undanförnum árum. Þannig hafi raunvirði bensíngjalda á hvern lítra verið 22% hærra árið 1997 en það sé nú. Laun í landinu hafi hækkað umtalsvert á undanförnum árum, meira en bensínverð, jafnvel á þessu ári. Ráðuneyti segir bensín- verð oft hafa verið hærra ROSKIN kona slasaðist alvarlega þegar ekið var á hana við Breiðu- mörk í Hveragerði síðdegis í gær. Hún hlaut m.a. höfuðáverka og var flutt með sjúkrabifreið á Landspít- alann í Fossvogi. Lögreglan á Sel- fossi rannsakar tildrög slyssins en sagði að hvorki væri um grun um hraðakstur né ölvun ökumanns að ræða. Skert vegsýn á þessum slóðum væri líklegri skýring en niðurstaða í rannsókninni mun varpa skýrari ljósi á tildrögin. Hin slasaða var flutt á slysadeild og þaðan á gjörgæsludeild Landspít- alans. Að sögn vaktlæknis hlaut hún beinbrot en þurfti þó ekki að tengj- ast öndunarvél. Gangandi veg- farandi slas- aðist alvarlega ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.