Morgunblaðið - 19.08.2005, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 19.08.2005, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Beint leiguflug* 26. febrúar í 9 nætur ÍS L E N S K A A U G L † S IN G A S T O F A N /S IA .I S U R V 2 9 2 6 3 0 8 /2 0 0 5 *Flogið til Eagle County í Colorado, millilent í Minneapolis vegna eldsneytistöku og vegabréfaskoðunar. Frægasti skíðastaður í heimi! Aspe Fáðu ferðatilhögun, nánari upplýsingar um gististaðina og reiknaðu út ferðakostnaðinn á netinu! www.urvalutsyn.is Verð frá: 139.780 kr. á mann í tvíbýli með morgunverði á Hótel Durant • Glæsilegir gististaðir miðsvæðis í Aspen • Sértilboð á skíðapössum fyrir viðskiptavini Úrvals-Útsýnar Með nýjum þjóð-kirkjulögum,sem samþykkt voru í kirkjumálaráð- herratíð Þorsteins Páls- sonar árið 1997, fékk kirkjan meira vald til að ráða eigin skipulagi en áð- ur var. Kirkjuþingi var fengin heimild til að skipa með starfsreglum flestum þeim málefnum sem áður var gert með lögum frá Al- þingi eða reglugerðum. Stefnumörkun á ýmsum sviðum kirkjunnar hefur síðan þá verið að stærst- um hluta í höndum kirkjuþings- ins. Ein afdrifaríkasta breytingin sem orðið hefur á starfi kirkjunn- ar frá gildistöku laganna er ný stefnumörkun um framtíðarskip- an sókna, prestakalla og prófasts- dæma. Á kirkjuþingi árið 2000 var samþykkt stefnumörkun þess efn- is að fækka prestsembættum í prestaköllum með undir 500 íbú- um. Framkvæmd fækkunarinnar miðast við að sameina prestaköllin þegar embættin losna. Jafnframt er stefnt að því að fjölga prests- embættum á höfuðborgarsvæð- inu. Guðmundur Þór Guðmundsson, framkvæmdastjóri kirkjuráðs, segir þessa stefnu miðast að því að jafna þjónustubyrði presta kringum landið og tryggja eðli- lega og hagkvæma nýtingu á þeim takmarkaða mannafla sem Þjóð- kirkjan hefur yfir að ráða. Flókið ferli Guðmundur segir ferlið fyrir þessar breytingar vera töluvert langt og flókið. „Biskupafundur, sem biskup Íslands og vígslubisk- uparnir tveir sitja, hefur frum- kvæðið að tillögu um sameiningu tveggja eða fleiri prestakalla. Til- lagan er þá send til umsagnar hjá aðalsafnaðarfundi prestakallanna, allra presta í prófastsdæminu og til héraðsfundar prófastsdæmis- ins.“ Guðmundur segir að algeng- ast sé að tillögunum sé mótmælt kröftuglega á aðalsafnaðarfund- unum og oft á héraðsfundum. Sóknir, prestaköll og prófastar hafa þó ekki neitunarvald heldur veita tillögunum einungis um- sögn. „Biskupafundur fær þá tillög- urnar aftur og ákveður hvort leggja eigi þær fyrir kirkjuþingið. Það er hins vegar allur gangur á því hvaða úrlausn málið fær á kirkjuþinginu. Stundum eru til- lögurnar felldar og stundum sam- þykktar og allur gangur á því. En kirkjuþingið hefur endanlegt ákvörðunarvald og ef tillögurnar eru samþykktar er það svo kirkju- ráðið sem framkvæmir samein- inguna.“ Frá því að kirkjuþingið fékk vald til að ákvarða um prestaköll og hin nýja stefnumörkun var samþykkt hefur prestaköllunum fækkað um ellefu á landsbyggð- innu en prestsembættum fjölgað um fimmtán í þéttbýli. Guðmund- ur segir hins vegar að ekki sé útlit fyrir að margar sameiningartil- lögur verði lagðar fyrir næsta kirkjuþing í haust. „Í ár hafa tvær tillögur verið til umsagnar, önnur um sameingu Raufarhafnar- og Skinnastaðar- prestakalla og hin um fækkun prófastsdæma úr sextán í tíu, en ekki er útséð um hvort þær verða lagðar fyrir þingið.“ Eins og kem- ur fram í máli Guðmundar er al- gengast að sameiningu presta- kalla sé mótmælt heima í héraði. Alla jafna er ástæða þess að til- laga um sameiningu er lögð fram sú að íbúum prestakallanna hefur fækkað. Sveitarfélögin eiga þá venjulega í vök að verjast og finnst mörgum það hart að missa prestinn þegar svo stendur á. Þá spila einnig tilfinningalegar ástæður inn í afstöðu sóknar- manna, t.d. hafa margir áhyggjur af krikjubyggingunum, sem fram- vegis munu standa auðar. Innan prestastéttarinnar hefur einnig gætt efasemda í garð þess- ara breytinga. Geir Waage, sókn- arprestur í Reykholti, er einn þeirra sem gagnrýnt hafa breyt- ingarnar og dregið í efa rétt kirkjuþingsins til að ráðskast með hina fornu skipan prestakallanna. Miðstýrð stofnun „Þegar kirkjan tók við þessu þá óttuðust margir – ég þar með tal- inn – að einhver vitleysa hlytist af þessu. Að menn færu að sækja prestana út á land um leið og prestaköllin væru veik, stæðu auð á milli presta eða þegar byggðin veiktist vegna atvinnumála. Nú er það hins vegar þannig að íslenska þjóðkirkjan er byggð upp af sjálfstæðum prestaköllum og embættið í hverju prestakalli er í reynd ævaforn sjálfseignarstofn- un. Laun prestanna hafa alltaf komið af kirkjueignunum. Árið 1907 fékk ríkið jarðirnar og stofn- aði prestslaunasjóð til að standa straum af launum presta, og prestaköllin fengu úthlutað í sam- ræmi við þær eignir sem teknar voru frá þeim. Nú eru menn að ganga á þetta forna skipulag sem grundvallað var á eignarrétti og virðingu fyrir hefð og lögum. Þeir nálgast þá kirkjuna eins og hverja aðra veraldlega stofnun og mið- stýra henni í samræmi við þarfa- greiningu og þjónustu.“ Fréttaskýring | Þjóðkirkjan stefnir að fækkun prestakalla í dreifbýli Þjónusta og hagkvæmni Prestsembættum hefur fjölgað verulega á höfuðborgarsvæðinu Sveitakirkjur standa nú auðar. Efasemda gætir innan prestastéttarinnar  Frá því að kirkjuþing sam- þykkti stefnumörkun um fram- tíðarskipan sókna, prestakalla og prófastsdæma árið 2000 hafa ellefu prestaköll verið sameinuð á landsbyggðinni og prófasts- dæmin í Ísafjarðarsýslu og Barðastrandarsýslu verið sam- einuð í Vestfjarðaprófastsdæmi. Á sama tíma hafa 11 prestsemb- ætti verið stofnuð í Reykjavík- urprófastsdæmunum tveimur, eitt í Eyjafjarðarprófastsdæmi og tvö í Kjalarnesprófastsdæmi. Kristján Torfi Einarsson kte@mbl.is VANTSRÖR opnaðist í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í gær með þeim af- leiðingum að 10–15 tonn af vatni láku milli hæða í suðurhluta byggingar- innar. Höskuldur Ásgeirsson, forstjóri flugstöðvarinnar, segir að starfsfólk, slökkvilið og rekstraraðilar hafi brugðist hratt og örugglega við og lekinn var stöðvaður á þremur mín- útum. Innritunin var færð yfir í norðurhluta flugstöðvarinnar en fljótt og vel gekk að hreinsa vatn út úr byggingunni. „Skemmdirnar virðast minni en á horfðist í byrjun og þetta hafði lítil áhrif á rekstur flugstöðvarinnar. Við gátum haldið áfram að innrita far- þega þótt við þyrftum að færa okkur aðeins til,“ segir Höskuldur og bætir við að lítil sem engin seinkun hafi orðið á flugi. Höskuldur segir að tryggingarfyr- irtæki sé nú að fara yfir skemmdir. Rífa þurfi klæðningar af og taka nið- ur milliveggi til að sjá hvort eitthvað hafi skemmst. Innritun flugfarþega verður með eðlilegum hætti í dag, að sögn Hösk- uldar. Víkurfréttir/Margrét Loka þurfti innritunarborðum í suðurhluta flugstöðvarinnar vegna vatnslekans og breiða plast yfir þau. Mikill vatnsleki í Leifsstöð tafði innritun

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.