Morgunblaðið - 19.08.2005, Blaðsíða 10
10 FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Hver vegur
að heiman er
vegur heim
á morgun
Björk Guðmundsdóttir talar
við Árna Matthíasson um tón-
listina við kvikmyndina Drawing
Restraint 9 eftir bandaríska
listamanninn Matthew Barney.
ÞAÐ stefnir í metþátttöku í Reykjavíkurmaraþoninu
en þegar forskráningu á Netinu lauk í gær höfðu
um 2.500 manns skráð sig til keppni. „Þetta er
mesta forskráning sem við höfum fengið. Íslend-
ingar skrá sig mikið eftir veðri svo að við búumst
við að með þessu áframhaldi sláum við metið,“ segir
Hjördís Guðmundsdóttir, kynningarstjóri Íslands-
banka Reykjavíkurmaraþons, en í fyrra tóku hátt í
fjögur þúsund manns þátt.
Hjördís segir að aldrei hafi jafn margir útlend-
ingar verið skráðir. Í fyrra voru þeir um fjögur
hundruð en í gær höfðu yfir 600 skráð sig til þátt-
töku. Af þeim eru tvö hundruð Kanadamenn komnir
til landsins gagngert til að hlaupa góðgerðar-
maraþon sem hefst klukkan níu í fyrramálið. Hjör-
dís segir að hópurinn hafi safnað 1,3 milljónum doll-
ara til styrktar samtökum sykursjúkra í Kanada.
Frá hádegi og fram til 21 í kvöld verður tekið við
skráningum í húsnæði TBR í Laugardal. Þátttöku-
gjald fyrir skemmtiskokkið er 1.500 kr. fyrir full-
orðna og 800 fyrir börn en boðið er upp á fjöl-
skylduafslátt fyrir fjögurra manna fjölskyldur og
stærri.
Þátttökugjald í 10 km hlaupi er 2.000 kr., 3.200 í
hálfmaraþon og 4.000 í heilt maraþon. Þátttak-
endum er boðið til pastaveislu í kvöld í boði Barilla
í félagsheimili Félags eldri borgara. Maraþonið
hefst svo klukkan tíu í fyrramálið en ræst verður í
hálfmaraþoni og styttri vegalengdum kl. 11.
Límborðar í stað málningar
Unnið hefur verið að því undanfarna daga að
merkja leiðirnar sem hlaupnar verða. Að sögn Haf-
steins Óskarssonar, sem stjórnað hefur því verki,
verða nú í fyrsta sinn notaðir gulir límborðar í stað
málningar. Eru þeir með afar sterku lími, svo að
engin hætta er á að þeir losni þótt bílaumferð sé
mikil.
Sem fyrr segir hefur málning verið notuð hingað
til til merkinga en það vildi brenna við að hún væri
lengi að mást af götunum að hlaupi loknu. Þurfti
nokkrum sinnum að nota hreinsibíla til að afmá
merkingarnar, að sögn Hafsteins.
#
((# 8' #$
!
Morgunblaðið/ÞÖK
Götumerkingar settar fyrir Reykjavíkurmaraþon í
gærkvöldi. Fremst er Hafsteinn Óskarsson, þá Steinn
Halldórsson og síðan Þórður Bergmann
Stefnir í
metþátttöku
í maraþoninu
BIRTING Sudoku-talnaþrauta hefst í Morgunblaðinu í
dag. Sudoku er japanskt heiti yfir talnaþrautir sem lengi
hafa verið við lýði en náð gríðarlegum vinsældum á und-
anförnum árum og birtast nú í öllum helstu dagblöðum
heims. Su Doku merkir „ein tala“ og vísar til þess að
þrautin byggist á því að tölurnar 1–9 birtast aðeins einu
sinni hver í línum og reitum samkvæmt ákveðnum reglum.
Engrar reikningskunnáttu er þörf við lausn þrautarinnar
heldur aðeins rökhugsunar og útsjónarsemi.
Alþjóðlegar vinsældir Sudoku, sem helst má líkja við
æði, eru raktar til nýsjálenska lögfræðingsins og dóm-
arans Wayne Gould sem kynntist leiknum í Hong Kong.
Hann eyddi síðan 6 árum í að þróa tölvuforrit sem býr til
Sudoku-þrautir viðstöðulaust og eru það þrautir byggðar á
kerfi hans sem birtast munu í Morgunblaðinu.
Lausn gátunnar felst í því að fylla út í reitina þannig að
í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1–9 en það verður að
gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1–9 og aldrei má tvítaka neina tölu.
Dæmið sem hér fylgir er um auðvelda þraut og má
byrja að hugsa sér að koma tölunni 7 fyrir í fyrsta 3x3
boxinu efst til vinstri. Þá sést að 7 er í efstu níu reita lín-
unni, boxið lengst til hægri og einnig í næstu níu reita línu
3x3 boxið í miðjunni. Þá kemur aðeins einn reitur til
greina sem er reiturinn á milli talnanna 9 og 2 í þriðju lá-
réttu línunni í 3x3 boxinu til vinstri. Og þannig koll af
kolli.
Þyngd þrautanna fer svo eftir því hversu margar tölur
eru gefnar upp fyrirfram en því færri tölur í upphafi, þeim
mun þyngri er þrautin.
Birting
Sudoku-
þrauta hefst í
blaðinu í dag
8 1 7 3
6 7 8
9 2 3 1 6
4 7 5 6
7 9 1 2
6 3 4 9
4 9 2 1 6
6 5 4
7 8 5 9
8 1 6 4 5 9 7 2 3
4 3 5 6 2 7 9 1 8
9 7 2 3 1 8 6 4 5
2 4 9 8 7 3 5 6 1
5 8 7 9 6 1 2 3 4
1 6 3 2 4 5 8 9 7
3 5 4 7 9 2 1 8 6
6 9 1 5 8 4 3 7 2
7 2 8 1 3 6 4 5 9
Sudoku | 38