Morgunblaðið - 19.08.2005, Qupperneq 18
18 FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
GRÆNFIRÐUNGAR hafa sent frá sér frétta-
tilkynningu þar sem hrefnuveiðum við Ísland
er mótmælt. Þar er sagt að veiðarnar séu undir
yfirskyni vísinda og að Grænfriðungar muni
halda áfram baráttu sinni gegn veiðunum og
stuðla að aukinni hvalaskoðun og ferða-
mennsku á Íslandi.
Talsmaður Norðurlandadeildar Grænfrið-
unga, Martin Norman, segir að ferðamála-
samtök og hvalaskoðunarfyrirtæki hafi gert
það ljóst að hvalveiðar spilli orðspori landsins
og hafi neikvæði áhrif á straum ferðamanna til
landsins. Á síðustu árum hafi tekjur af ferða-
mennsku aukizt gífurlega og að 82.000 manns
ungar og stærri hvalir af ýmsum ástæðum, svo
sem hlýnandi loftslagi, eyðingu ósonlagsins,
eiturefnum, hávaðamengun, ofveiði og árekstr-
um við skip. Þannig drepist ein skepna á ann-
arri hverri mínútu. Það síðasta sem maðurinn
eigi að gera til að auka á þessar hættur sé að
stunda veiðar.
Ennfremur segir í tilkynningunni að í frysti-
geymslum séu allt að 40 tonn af óseldu kjöti og
spiki frá árunum 2003 og 2004. Aðeins fjórð-
ungur af kjöti síðasta árs hafi selzt. Engu að
síður hafi Íslendingar verið við sama heygarðs-
hornið og ákveðið að veiða 39 hrefnur á þessu
ári.
hafi farið í hvalaskoðun á síðasta ári. Það hafi
skilað tekjum upp á um 1,2 milljarða króna.
Á árinu 2003 hvöttu Grænfriðungar fólk til
þess að íhuga Íslandsferð ef hvalveiðar yrðu
stöðvaðar. Í fréttatilkynningunni segir að
65.000 manns hafi svarað játandi, en koma
þeirra gæti gefið tekjur af ferðamennsku sem
næmu nærri fimm milljörðum króna, en hval-
veiðar hefðu aðeins skilað 256 milljónum króna,
þegar þær stóðu sem hæst. Því sýni tilboð
Grænfriðunga til íslenzku þjóðarinnar ótvíræð-
an efnahagslegan og umhverfisvænan ávinning
af því að kjósa ferðamennsku í stað hvalveiða.
Norman segir að árlega drepist 300.000 höfr-
Vilja ferðamennsku í stað hvalveiða
ÚR VERINU
ENDURNÝJUN varð í bátaflota Þórshafn-
arbúa nýverið þegar Sæmundur Einarsson
útgerðarmaður skipti yfir í 6 tonna Víking
800, sem smíðaður var hjá Samtaki í Hafnar-
firði. Sæmundur er reyndur sjógarpur og
hefur nær alla starfsævina stundað sjóinn,
um þrjátíu ár.
Hann lætur vel af útgerðinni og segist ekki
kvarta yfir grásleppuvertíðinni, sem hafi
komið alveg þokkalega út. Smábátaútgerð
hefur staðið á nokkuð traustum grunni gegn-
um tíðina á Þórshöfn en þetta sumar gera um
tíu smábátar út þaðan. Útgerð stærri skipa á
bolfiskveiðar er lítil, en Geir ÞH er þeirra
stærstur.
Nýr bátur til
Þórshafnar
Morgunblaðið/Líney
Sæmundur Einarsson útgerðarmaður við nýja bátinn sinn, en hann er smíðaður hjá Samtaki.
ALJÞJÓÐA dýraverndunarsjóðurinn
hvetur íslenzk stjórnvöld til að hætta
veiðum á hrefnu í vísindaskyni og segir að
um ríkisstyrktar veiðar sé að ræða.
Morgunblaðinu hefur borizt eftirfarandi
fréttatilkynning frá samtökunum:
„Hinn 17. ágúst var tilkynnt að veiðst
hefðu 39 hrefnur við Ísland eins og ís-
lensk stjórnvöld höfðu heimilað Hafrann-
sóknastofnun að drepa í sumar. Ekki
tókst að veiða þann fjölda á tilsettum tíma
en veiðunum var ætlað að standa til 15.
ágúst. IFAW-samtökin mótmæla þessum
tilgangslausu og grimmúðlegu veiðum og
lýsa því yfir að þau munu áfram halda
uppi baráttu gegn þeim bæði á Íslandi og
á alþjóðavettvangi. Sjávarútvegsráðu-
neytið áætlar að kostnaður við veiðarnar í
sumar nemi um 25 milljónum króna þegar
tillit hefur verið tekið til sölu á kjöti. Hér
er því um að ræða ríkisstyrktar hvalveið-
ar sem aldrei hafa staðið undir sér og
valdið hafa íslenskum stjórnvöldum álits-
hnekki víða um heim.
Frá því að veiðar þessar hófust við Ís-
land sumarið 2003 hafa IFAW-samtökin
barist gegn þeim og bent á að þær eru í
andstöðu við samtök hvalaskoðunarfyrir-
tækja sem hafa verið í örum vexti síðast-
liðinn áratug og í andstöðu við íslenska
ferðaþjónustu. IFAW hvetur íslensk
stjórnvöld til að láta hér staðar numið og
hætta við frekari hvalveiðar undir yfir-
skyni vísinda.“
Mótmæla
hvalveiðum
! " # $% %10884
7) &1 ' ' :E < *&'7
< *&'7
&'7 !
*&'7
4 *&'7
+ ( &'7
3
(1( &'7
G1( &'7
,*5 (( &'7
,(&'7
4(1( 3
(&'7
9#
&'7
3&'7
" '# (1( &'7
8&'7
>
) < : *&'7
" 3
(&'7
+"* (&'7
4' . ( ! ((&'7 "
9 E& (&'7
BC&# &'7
I' * &'7
?J:
( E?#
#"
" &'$ &7&'7
0$ (" (&'7
) ((
(&'7
+
"% %
#
@$ ' &'7 #
4(" 3
(&'7
'2
(<'7
0. '. &'7
"(! >=@K
< 7<#
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
#$ ('
'$< 7<#
- - - -
-
- -
- - -
-
- - -
-
-
-
- -
-
-
-
-
-
-
-
-
L-
MN
LMN
LMN
L-MN
L-MN
-
LMN
-
L-MN
-
L-MN
L- MN
-
-
L- MN
L-MN
-
-
-
-
L-MN
-
-
-
-
-
-
-
-
-
LMN
+#
< *
(
0
1
6
,*
7
7
7 7 7 7
-
7 -
7
7
-
7 7
-
7 -
-
7
-
7
-
7
-
-
-
-
-
7
) * 5;7 7
:0+7O: &(
< *
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
:0+7-)#('$ <"' "(('2
7
:0+7-)#('$ &' ( (7
:0+7-$ &"( 7
HAGNAÐUR FL Group á fyrri
hluta ársins nam ríflega 1,9 milljörð-
um króna eftir skatta. Á sama tíma-
bili í fyrra nam hagnaðurinn 117
milljónum króna og er því um meira
en sextánföldun hagnaðar að ræða á
milli ára.
Afkomumunurinn skýrist ein-
göngu af fjárfestingarstarfsemi FL
Group en fjármunatekjur á tíma-
bilinu námu ríflega 3 milljörðum
króna. Munar þar langmestu um
fjárfestingu í breska lággjaldaflug-
félaginu easyJet en þar á FL Group
nú 13,1% hlut.
Afkoman er undir væntingum
greiningardeilda bankanna en með-
alspá þeirra hljóðaði upp á nær 2,2
milljarða hagnað. Þó var spá KB
banka lægri og hljóðaði hún upp á
1,898 milljarða króna.
Tekjur af rekstri FL Group námu
tæplega 20,1 milljarði króna en
rekstrargjöld námu ríflega 20,7
milljörðum. Þannig varð 679 milljóna
króna tap af rekstrinum sjálfum.
Það hlýtur að teljast neikvætt fyr-
ir félag sem ekki sérhæfir sig í fjár-
festingum að rekstur þess skuli ekki
skila betri afkomu en raun ber vitni
því ekki er víst að fjárfestingar fé-
lagsins muni ávallt reynast jafn
drjúgar og á undanförnum mánuð-
um. Hækkun á eldsneytisverði spilar
þó þarna inn í enda eru flugfélög
mjög næm fyrir slíkum hækkunum.
Eignir samstæðunnar nema tæp-
lega 70 milljörðum króna og hafa
þær aukist um 60% frá áramótum en
þá námu þær ríflega 43 milljörðum.
Mestur hluti þessarar eignaaukning-
ar er falinn í skuldaaukningu en eig-
ið fé hefur aukist um 1,5 milljarða
króna. Eiginfjárhlutfall er 23,5% nú
en var 34,1% við áramót.
Mikil áhrif easyJet
sverrirth@mbl.is
Uppgjör
FL Group hf.
" !
" !*
-!*
.) ) /
'0012
'0324
40''
+3
+204
#
/
!
51465
64575
!
8 !* ) #
!* ) 5900
'496:
5((63
57010
465
0
+45
""#!
52('6
'(163
""#!
5900
4295:
!"#$ !
%&'&$ $
!"
!$"
! %%(#)$ ! !"
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
● HEILDARVELTA í Kauphöll Íslands í
gær nam ríflega 4 milljörðum króna,
þar af voru viðskipti með hlutabréf
fyrir tæplega 2,8 milljarða. Mest við-
skipti voru með bréf Íslandsbanka,
882 milljónir króna.
Mest hækkun varð á bréfum
Hampiðjunnar, 3%, en mest lækkun
varð á bréfum Össurar, 2,2%.
Úrvalsvísitala aðallista lækkaði
um 0,12% og er hún nú 4.491 stig.
Gengi FL Group lækkaði um 1,9% í
gær og er nú 15,5 krónur/hlut. Fyrir
hækkunina í fyrradag var það 15,2.
Hampiðjan
hækkaði mest
YFIRTÖKUNEFND Kauphallar Ís-
lands telur ekki hafa stofnast yf-
irtökuskylda hjá Eignarhaldsfélag-
inu Oddaflugi ehf. í FL Group við
þær breytingar sem urðu á eignar-
haldi í félaginu í byrjun síðasta
mánaðar. Þetta kemur fram í álits-
gerð nefndarinnar sem birt var í
gær.
Hinn 1. júlí sl. var tilkynnt um
verulegar breytingar á eignar-
haldi/atkvæðisrétti á hlutum í FL
Group hf. Eftir viðskiptin réði
Eignarhaldsfélagið Oddaflug
35,46% hlut í FL Group en vegna
framvirkra samninga við Lands-
bankann réði Baugur Group 12,4%
og Katla Investment 17,68.
Segir í álitsgerð yfirtökunefndar
að nefndin hafi ákveðið að taka við-
skiptin til athugunar vegna þess að
einn hluthafi, Eignarhaldsfélagið
Oddaflug, hafi eftir viðskiptin verið
nálægt 40% eignarhlut en það eru
þau mörk sem yfirtökuskylda mið-
ast við. Samtímis hafi orðið aðrar
breytingar á hlutafjáreign í FL
Group. Kannaði nefndin hvort að
Oddaflug hefði haft samstarf við
Kötlu Investment og/eða Baug
Group um að ná yfirráðum í félag-
inu. Ef svo væri, lægi ljóst fyrir, að
til yfirtökuskyldu hefði stofnast.
Einnig kannaði nefndin hvort að
slík viðskiptaleg tengsl væru milli
Oddaflugs og Katla Investment og/
eða Baugs að þau teldust samstarf í
skilningi ákvæði laga um verð-
bréfaviðskipti.
Er það niðurstaða nefndarinnar
að ekki hafi komið fram haldbærar
upplýsingar um að ótvírætt sam-
komulag hafi verið gert milli
stjórnarformanns FL Group, Hann-
esar Smárasonar, og eiganda Odda-
flugs, og hinna nýju hluthafa um að
ná yfirráðum yfir félaginu. Þá telur
nefndin ekki að fyrir hendi séu per-
sónuleg og/eða viðskiptatengsl sem
leiði til þess að telja megi að um
samstarf hafi verið að ræða.
Ekki
tilefni til
yfirtöku
ÞÓRÐUR Friðjónsson, forstjóri
Kauphallar Íslands, tilkynnti í gær að
Kauphöllin myndi taka til athugunar
viðskipti með hlutabréf í FL Group í
fyrradag. Markmiðið er að kanna
hvort um innherjaviðskipti hafi verið
að ræða.
Í samtali við Morgunblaðið segir
Þórður það vera vinnureglu hjá
Kauphöllinni að kanna viðskipti með
hlutabréf félaga þegar óvenjumiklar
breytingar verða á gengi þeirra, sér-
staklega þegar breytingarnar verða
svo stuttu fyrir birtingu uppgjörs.
„Þá förum við rækilega í gegnum við-
skiptin til þess að athuga hvort breyt-
ingarnar hafi verið knúnar áfram með
innherjaviðskiptum,“ segir Þórður.
Hann segir að breytingar sem þær
sem áttu sér stað
á gengi FL Group
geti átt sér eðli-
legar skýringar,
Kauphöllin sé ein-
ungis að fylgja
sinni stefnu.
Afkoma FL
Group var undir
væntingum og
lækkaði gengi
bréfa félagsins
verulega í gær. Er ekki ankannalegt
að einhver með vitneskju um afkom-
una skyldi kaupa bréf á svo háu gengi
sem raun bar vitni?
„Þess vegna segi ég að það sé
mögulegt að á þessu séu eðlilegar
skýringar. Það má vel vera að einhver
hafi tekið áhættu án þess að hafa hug-
mynd um hver afkoman yrði,“ segir
Þórður Friðjónsson.
Vinnuregla að kanna
miklar breytingar
Eftir Guðmund Sverri Þór
sverrirth@mbl.is
Þórður
Friðjónsson
BP
Q?
M
M
0@
H:R
M
M
=:= I9R
M
M
,R
B #
M
M
>=@R HSG(#
M
M