Morgunblaðið - 19.08.2005, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 19.08.2005, Qupperneq 19
Akureyri | Það er ekki hægt að segja annað en að Andri Snær Stefánsson, starfsmaður Garðs- verks, hafi lagt sig fram í vinnunni, þegar ljósmyndari Morgunblaðsins rakst á hann í gærmorgun. Hann var þá að vinna við gerð umferðareyju ásamt félaga sínum, Birgi Erni Smárasyni, á gatnamótum Langholts og Undirhlíðar. Þar er jafnan mikil bílaumferð í kringum verslun Bónuss við Langholt og þar sem einnig er boðið upp á pitsutilboð hjá Dom- ino’s við Undirhlíð er umferðin á þessum slóðum óvenjumikil þessa dagana. „Við höfum aldrei séð aðra eins bílaumferð og var hér seinni partinn í gær (mið- vikudag),“ sögðu þeir félagar. Morgunblaðið/Kristján Leggur sig fram í vinnunni Lagfæringar Akureyri | Austurland Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust- urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Styrkir til íbúðabygginga | Með auk- inni eftirspurn eftir íbúðarhúsnæði á Þórs- höfn, sem myndast hefur einkum á und- anförnum tveimur árum, er farið að bera á skorti á stórum og meðalstórum eignum, bæði til leigu og kaups. Þetta ástand getur hæglega hamlað eðlilegri fólksfjölgun í sveitarfélaginu og hefur sveitarstjórn því samþykkt að hrinda af stað tímabundnu átaki er miðar að því að styrkja þá er hyggjast ráðast í byggingu íbúðar- húsnæðis á yfirstandandi ári og því næsta. Ákveðið hefur verið að ráðstafa til þessa átaks allt að kr. 6,5 milljónum króna eða allt að 2,6 milljónum króna á árinu 2005 og allt að 3,9 milljónum króna á árinu 2006. Það er von sveitarstjórnar að þetta megi verða til þess að einkaaðilar sjái sér fært að ráðast í byggingu íbúðarhúsnæðis en á síðastliðnum 20 árum hefur aðeins eitt íbúðarhús verið byggt af einstaklingi á Þórshöfn. Framlag vegna áranna 2005–2006 nem- ur 10.000. kr. á m² íbúðar (ekki bílskúrs), þó að hámarki 1.300.000 kr. á hverja íbúð. Þetta kemur fram á vef Þórshafn- arhrepps. Úr bæjarlífinu HÉÐAN OG ÞAÐAN Atvinnuástandið | Í lok júlí voru 13 skráðir atvinnulausir á Húsavík, þar af voru 2 karlar og 11 konur. Þess ber að geta að flestir af þeim sem voru á atvinnuleysisskrá eru í hlutavinnu og fá því ekki fullar at- vinnuleysisbætur. Utan Húsavíkur í Þingeyjarsýslum voru 27 skráðir atvinnulausir, þar af 9 karlar og 18 konur. Mest er atvinnuleysið á Rauf- arhöfn, þar sem 12 voru án atvinnu um síð- ustu mánaðamót. Í lok júlí voru 304 at- vinnulausir á Akureyri. Á landsbyggðinni var atvinnuleysið mest á Norðurlandi eystra eða 2,5%. Þetta kemur fram á Skarpur.is. Safnanótt á Egilsstöðum | Í kvöld, 19. ágúst, kl. 22 mun Safnahúsið á Egils- stöðum vera opið fyrir gesti og gangandi. Draugaleg stemmning ræður ríkjum: ,,Maður er manns gaman.“ Sögumenn mæta á staðinn. Gestum er velkomið að slást í hópinn ef þeir luma á góðri sögu. Ceilich-bandið ásamt Charles Ross flytur íslenska og skoska tónlist. Félagar úr Leikfélagi Fljótsdalshéraðs flytja samlestur úr Tápi og fjöri. Rúnar Snær Reynisson les frum- samda hryllingssögu. Seiður sunginn til ársældar. Unnar Geir Unnarsson verður á staðnum. Aðgangur er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir. Nánari upplýs- ingar má nálgast á http://www.minja- safn.is. Golfklúbbur Akur-eyrar er 70 ára ídag en klúbburinn var stofnaður 19. ágúst ár- ið 1935. Í tilefni þessara tímamóta býður stjórn klúbbsins félagsmönnum til móttöku að Jaðri frá kl. 19–21 í kvöld. Þar verða flutt stutt ávörp, auk þess sem nokkrir félagsmenn verða heiðraðir. Fé- lagsmenn GA eru um 580 talsins en formaður klúbbsins er Halldór Rafnsson. GA rekur fé- lagsheimili og 18 holu golf- völl að Jaðri og hefur verið ráðist í umfangsmiklar endurbætur á vellinum í ár og í fyrra og enn frekari framkvæmdir fyrirhug- aðar. Eitt þekkasta golf- mót landsins, Arctic-open er haldið ár hvert að Jaðri. GA 70 ára Fjölmenni var á árlegu Grenivíkurgrilli nú umhelgina. Sem fyrr var um að ræða eina alls-herjar grillveisla fyrir alla núverandi, fyrrver- andi og tilvonandi íbúa Grýtubakkahrepps sem og vini, vandamenn og velunnara. Þessi mikla grillveisla var á Miðgörðum og hófst með dagskrá fyrir börnin um miðj- an daginn. Þegar kvölda tók var farið að kynda upp í nokkrum grillum og síðan glóðarsteiktu menn mat í gríð og erg. Og gerðu auðvitað góð skil. Ekki spillti fyr- ir að Jónsi og Systa í Jónsabúð veittu veglegan afslátt af grillkjöti og fylgdi happdrættismiði hverjum pakka. Herlegheitunum lauk með útiballi og flugeldasýningu. Morgunblaðið/Kristján Grenivíkurgleðin Sigrún Haraldsdóttirfinnur að sumri ertekið að halla og ævin styttist: Gulnar vorsins græna blað, gisnar strý í hnakkanum. Haltrandi við höldum að hálum grafarbakkanum. Á vísnavef Skagfirð- inga má finna margar ellivísur, s.s. eftir Magnús Finnsson, bónda í Stapa- seli í Stafholtstungum: Á mig sækir elli grá og því hlýt að finna að ég hef lifað alltaf á ylnum vona minna. Jón Jónsson frá Ey- vindarstöðum leit yfir farinn veg og orti: Af hún stakk mín æska fljótt, elli stakk mér færði. Ýmsu stakk hún að mér hljótt er mig stakk og særði. Af elli pebl@mbl.is Ólafsfjörður | Sameining sveitarfélaga var til umræðu á fundi bæjarstjórnar Ólafsfjarðar í vikunni. Í bókun frá fund- inum vill bæjarstjórn að gefnu tilefni minna á ítrekaðar samþykktir bæjar- stjórna Ólafsfjarðar, Siglufjarðar og Dalvíkurbyggðar um nauðsyn þess að stofnaður verði framhaldsskóli við ut- anverðan Eyjafjörð. Ekki þurfi að fjöl- yrða um mikilvægi þess að unglingar geti stundað framhaldsskólagöngu í heimabyggð. Félagsleg og fjárhagsleg rök mæli með framhaldsskóla nemendanna vegna, auk þess sem skólarnir eru byggðafestu- atriði fyrir samfélögin sem þeir starfa í og lífga upp á þau. Framhaldsskóli eflir atvinnulíf staðanna og mannlíf almennt, aukinn fjöldi vel menntaðs fólks sest að og fólk flytur síður burt þegar börn nálgast framhaldsskólaaldur eins og nú gerist á landsbyggðinni. Ljóst er að til- koma jarðganga um Héðinsfjörð rennir enn styrkari stoðum undir rekstur fram- haldsskóla. Mikill stuðningur er við stofnun fram- haldsskóla við utanverðan Eyjafjörð hjá sveitarfélögunum Dalvíkurbyggð, Ólafs- firði og Siglufirði auk þess sem könnun hefur sýnt fram á áhuga foreldra og unglinga. Fyrir Alþingi liggur þingsályktunartil- laga um stofnun framhaldsskóla við ut- anverðan Eyjafjörð sem hlaut mjög góð- ar viðtökur í umræðum á Alþingi og vert er að minna á ákvæði um stofnun fram- haldsskóla við utanverðan Eyjafjörð í byggðaáætlun fyrir Eyjafjörð sem byggðamálaráðherra hefur lagt fram og sem síðan er ítrekað í vaxtasamningi Eyjafjarðarsvæðisins. Framhaldsskóli við utanverðan Eyjafjörð styrkir enn frekar þau markmið sem sett eru fram í vinnugögnum starfshóps um skólamál – þ.e. að Eyjafjörður geti orðið leiðandi afl í skólamálum á landsvísu með Háskól- ann á Akureyri sem forystuafl, segir ennfremur í bókun bæjarstjórnar Ólafs- fjarðar. Framhalds- skóli verði stofnaður Á FUNDI skólanefndar Húsavíkur í vik- unni urðu umræður um stöðu fram- kvæmda á lóð Borgarhólsskóla og lyftu í skólahúsið. Skólanefnd gerir kröfu um að fram- kvæmdum á lóð skólans verði lokið fyrir upphaf skólastarfs í haust og lýsir yfir óánægju með þær tafir sem orðið hafa á framkvæmdum og uppsetningu lyftu. Leggja ber áherslu á að tryggja öryggi barna á skólalóð og í skólanum. Skólalóð       ♦♦♦ Fréttir á SMS Suðurlandsbraut 4a • 108 Rvk. • Fax 533 4811 • midborg@midborg.is 533 4800 Björn Þorri hdl., lögg. fastsali, Karl Georg hrl., lögg. fastsali. La gavegur 182 • 105 Rvík • Fax 53 481 • i r idborg.is Leitum að 600-900 fm skrifstofuhúsnæði á höfuð- borgarsvæðinu fyrir opinberan aðila. Nánari upplýsingar veitir Sigurður á Miðborg í síma 533 4800. 600-900 FM SKRIFSTOFUHÚSNÆÐI Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU ÓSKAST

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.