Morgunblaðið - 19.08.2005, Side 23

Morgunblaðið - 19.08.2005, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 2005 23 DAGLEGT LÍF TÍMI krækiberja, aðalbláberja og bláberja er runninn upp og rétt að drífa sig í berjamó áður en næt- urfrost spillir berjunum. Jón Fann- dal í Hnífsdal er mikill náttúruunn- andi og finnst gaman að tína ber. Hann lætur ekki þar við sitja heldur sýður saft, sultar og býr til graut eft- ir uppskriftum frá góðum konum, ekki síst frá konu sinni Margréti Magnúsdóttur, sem kann þetta allt. „Það lítur mjög vel út með berja- sprettuna í ár hér fyrir vestan,“ seg- ir hann. „Hér er mikið af að- albláberjum og krækiberjum og aðeins bláber en þau eru minna not- uð. Við notum aðallega aðalbláber og svo eru það krækiberin í kræki- berjasaft. Hún er rosagóð.“ Jón segist vilja bíða nokkra daga með tínsluna og láta berin þroskast aðeins lengur. „Menn eru ekkert að flýta sér og æða í berjamó en þeir sem hafa þegar farið láta vel af sprettunni,“ segir hann. „Ég byrjaði fyrst að tína fyrir alvöru eftir að ég flutti vestur aftur fyrir tíu árum en ég er úr Djúpinu þar sem ég er fæddur.“ Jón notar tínu við tínsluna og gæt- ir þess að ganga varlega um lyngið. „Ég má ekki sjá brotið lyng,“ segir hann. „Ég tíni bara fyrir krakkana mína og aldrei meira en ég og mín fjölskylda getur notað. Því miður hefur þeim fækkað sem fara í berja- mó og ég vil gjarnan miðla af reynsl- unni og uppskriftum til næstu kyn- slóðar svo hún geti lært hvernig á að fara með berin. Bláberjagrauturinn til dæmis er rosalega góður með rjóma. Algert sælgæti.“ Krækiberjahlaup 1 l ósæt krækiberjasaft 750 g sykur 1 bréf gult gelatín (matarlím) Setjið saftina í pott og látið suðuna koma upp og sjóðið í eina mínútu. Látið sykurinn út í smátt og smátt og hrærið í. Soðið í eina mínútu. Gelatín sett út í á sama hátt og hrært vel í á meðan suðan er að koma upp. Soðið í eina mínútu. Takið pottinn af hellunni og fleytið froð- unni ofan af. Hellið strax í niðursuð- uglösin en lokið þeim ekki fyrr en eftir 12 tíma. Þetta hlaup er mjög gott t.d. á pönnukökur og vöfflur. Sulta úr aðalbláberjum 1 kg aðalbláber 800 g sykur Ber og sykurinn sett í pott og látið sjóða í 20 mínútur. Hræra í með pískara allan suðutímann. Hellið strax í heitar og þurrar krukkur. Látið kólna áður en lokið er sett á. Krækiberjagrautur eða -súpa ½ l saft 1–1½ l vatn salt og sykur eftir smekk 2–3 kúfaðar matskeiðar kartöflumjöl Suðan látin koma upp á saftinni, kartöflumjölið sett hægt út í og hrært í á meðan suðan er að koma upp aftur. Sett í skál og smásykri stráð yfir. Ljúffengur ábætisréttur með rjóma. Það ræðst af kartöflumjölinu hversu þykkur grauturinn verður og fer eftir smekk hvers og eins. Aðalbláberjagrautur 300 g aðalbláber 100 g sykur 2 kúfaðar msk. kartöflumjöl ¼ tsk. kanel salt Sett í pott og látið sjóða í 2–3 mín- útur. Kartöflumjöli bætt út í og suð- an látin koma upp á ný. Hellt í skál og sykri stráð yfir. Grauturinn látinn kólna nokkru áður en hann er borinn fram með rjóma. Krækiberjasaft Hrá saft Berin eru hreinsuð og hökkuð, hellt á grisju og saftin síuð frá hratinu. 500 g af sykri bætt í hvern lítra af saft. Sykurinn látinn leysast upp og síðan hellt á flöskur. Saft úr hrati Berjahrat sett í pott og jafnmikið magn af vatni og hreina saftin var sem síuð var frá í fyrri umferð. Látið suðuna koma upp og sjóðið í 2–3 mínútur. Sett á grisju og síað. 500 g af sykri bætt út í fyrir hvern lítra af vatni. Með þessari aðferð næst krafturinn úr fræjunum og hýðinu og er ekkert síðri en hrásaftin.  MATARKISTAN | Krækiber, aðalbláber og bláber Bláberjagrauturinn er algert sælgæti Allt svart af berjum í ár. Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörns Jón Fanndal tínir ber í saft, sultu og graut fyrir sig og fjölskylduna á hverju hausti. Eftir Kristínu Gunnarsdóttur krgu@mbl.is FAÐMLÖG eru góð fyrir heilsuna, sérstaklega fyrir konur, að því er bandarískir vísindamenn hafa komist að og greint er frá á vefnum forskning.no. Samkvæmt rannsóknum við Háskólann í Norður- Karólínu í Bandaríkjunum getur innilegt faðmlag lækk- að blóðþrýstinginn og dregið úr framleiðslu streituhorm- óna í líkamanum. Þannig minnkar einnig áhættan á hjartaáföllum. Þrjátíu og níu pör á aldrinum 20–49 ára föðmuðust í rannsókninni og vísindamennirnir fylgdust með áhrif- unum. Allir sem tóku þátt í rannsókninni byrjuðu á því að slaka á einir í tíu mínútur, því næst voru pörin saman í tíu mínútur með gott tuttugu sekúndna faðmlag sem lokapunkt. Eftir það slökuðu allir á í tíu mínútur. Blóðprufur sýndu fram á að eftir faðmlagið var meira af hormóninu oxýtósín í líkamanum en fyrir. Oxýtósín er tengt ást og nánd á milli fólks og þau pör sem voru sér- staklega ástfangin höfðu meira af hormóninu í blóðinu en hin. Rannsóknin bendir einnig til þess að konurnar hafi fengið sérstaklega mikið út úr faðmlögunum. Auk þess að hafa meira af oxýtósíni í blóðinu höfðu þær minna af kortisól-streituhormóninu í blóðinu eftir faðmlagið en fyrir. Blóðþrýstingurinn hafði einnig lækkað. Hollt að faðmast  HEILSA Morgunblaðið/ÞÖK Það er hollt að faðmast og því engin ástæða til að geyma faðmlögin eingöngu fyrir sigursæla íþróttaleiki. Fréttir á SMS Fegurð Kringlunni · sími 568 4900 í stíl og hönnun Sími 533 4040 Fax 533 4041 Ármúla 21 • Reykjavík kjoreign@kjoreign.is • www.kjoreign.is TRAUST OG ÖRUGG ÞJÓNUSTA jöreign ehf Opið mán.–fim. frá kl. 9–18, fös. frá kl. 9–17. LJÓSAVÍK - LAUS STRAX Mjög góð efri sérhæð í tvíbýli. Stærð 95,3 fm. Suðvestursvalir. Þvottahús í íbúð. Mahóní-innréttingar. Flísar og parket á gólfum. Gott útsýni. Laus. Verð 20,4 millj. Nr. 5210 Dan V.S. Wiium hdl., lögg. fasteignasali

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.