Morgunblaðið - 19.08.2005, Page 25

Morgunblaðið - 19.08.2005, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 2005 25 á sam- mdum, því að 0 millj- verið virkj- á aðra - m að ur fyrir gengis m.a. af hafa fyr- lögð nið- a og tal- óna tap í inga hef- álslón, valfjörð, ki verið verðlagt. Við leggjum árlega um milljarð í landgræðslu og skóg- rækt á sama tíma og við stefnum að því að drekkja tugum ferkíló- metra af fágætum grónum svæð- um hálendisins. Svo spillist og verðlækkar ásýnd lands sem fer undir tugi kílómetra uppbyggðra vega og undir háspennumöstur, sem sum hver verða helmingur af hæð Hallgrímskirkju. Hugsanleg skaðleg áhrif af völdum tilfærslu stórfljóta á vistkerfið hafa heldur ekki verið tekin með í reikninginn – enda vitum við enn ekki hvað þau koma hugsanlega til með að kosta okkur. Bent hefur verið á að þjóð- hagsleg áhrif stóriðju hafi verið of- metin þar sem enn hefur ekki tek- ist að byggja hliðargreinar tengdar álbræðslu. Til marks um þetta má benda á að af 40% aukn- ingu hagvaxtar á árunum 1993 til 2003 var framlag nýrrar álbræðslu í Hvalfirði aðeins 0,7%. Í ljósi alls þessa hljótum við að spyrja hvort ekki sé ráð að hætta við þessa teg- und atvinnuuppbyggingar sem hefur gífurlegar skemmdir á nátt- úru landsins í för með sér og gengur á rétt komandi kynslóða. Það væri hægt að afskrifa tapið af því að hætta við virkjunina eins og hvert annað misráðið byggðaþró- unarverkefni. Fjölmörg slík verk- efni hafa verið afskrifuð með miklu tapi á undanförnum árum og áratugum. Erfiðast er að leggja mat á verðmæti þeirrar náttúru sem fer til spillis ef virkjanafram- kvæmdum verður áfram haldið. Eyðilögð verða tvö mikil jökulfljót og a.m.k. 1.000 km² svæði um- hverfis þau. Þegar gengið er inn með Jökulsá í Fljótsdal í grænum og víða skógivöxnum dal getur að sjá röð stórfenglegra fossa sem munu hverfa. Jafnvel Gullfoss má vara sig í þeim samanburði. Þegar gengið er inn með Jökulsá á Brú fer maður um gróið svæði svo skemmtilegt og fallegt að ævintýri er líkast. Frá Brúarjökli blasa við hin ósnortnu víðerni römmuð inn af Snæfelli í austri, Herðubreið í norðri og Kverkfjöllum í vestri. Þarna er stærsta gróðurlendi á hálendi Íslands, m.a. Vesturöræfin sem eru burðar- og beitarsvæði hreindýra og gæsa. Það getur varla nokkur maður sem hefur upplifað þessa fegurð viljað fórna þessu fyrir framkvæmd sem gefur ekki einu sinni af sér arð. Auglýs- ingatal Landsvirkjunar um end- urnýjanlega orku er varlega sagt vafasamt vegna þess að lónið mun hafa takmarkaðan líftíma. Það fyll- ist af aur, hugsanlega á innan við öld, og þá verður virkjunin óstarf- hæf. Eftir stendur gífurlega stórt svæði í rúst eins og eftir styrjöld, draugalegur minnisvarði um skammsýni núríkjandi ráðamanna. Frá sjónarhóli náttúruverndar er ljóst að við höfum ekki efni á að halda áfram á þessari braut. Þess vegna er haldið áfram að mót- mæla, líka vegna annarra svæða sem eru í hættu. Vegna Þjórs- árvera, fljótanna í Skagafirði og Skjálfandafljóts, Langasjós, Torfa- jökulssvæðisins og fleiri staða. Margir íbúar á Miðausturlandi fagna því að fólki fjölgar í þessum landshluta, að verslanir og veit- ingahús spretta upp og atvinnu- tækifærum fjölgar. Ef við hættum við yrði að leita annarra leiða til uppbyggingar á Austurlandi. Fjár- festingar í þekkingariðnaði eru mun arðbærari vegna þess að þær gefa margfalt af sér á við störf í þungaiðnaði. Ríki sem eru komin skemmra á veg en við í iðnþróun og hafa ekki yfir menntuðu at- vinnuafli að ráða þurfa kannski á svona atvinnuuppbyggingu að halda. Hér á landi er mennt- unarstig hátt og okkur ber engin nauðsyn til að ganga á náttúru okkar með þessum hætti. Byggingarsvæði virkjunarinnar vekur óhugnað. Stóra stíflan verð- ur næstum 800 metrar á lengd og tæpir 200 metrar á hæð, enda verður þetta stærsta jarðvegsstífla Evrópu. Allt umrótið og eyðilegg- ingin minna á neðanjarðarheim Mordors í Hringadróttinssögu þar sem Orkar búa til eyðilegging- arjötun úr afurðum náttúrunnar. Þetta getur ekki vitað á gott. Svo lengi sem ekki er byrjað að fylla lónið er full ástæða til að hætta við. kavirkjun – ætta núna millj- ng ur 60 rinn sem úna kj- ð í öllu .‘ rsdóttir Sigríður er heimspekingur. Þuríður er kvikmyndagerðarmaður. ta stefnu kmið. Lít- r. 40% á sam- gum Hag- ur á bilinu 6% haust- kráðra faldast: ðir frá ur en n 2000– k hafa ndanfarin r rekstr- alli. ólaári ar af 28 fa 11 aflað tuð kom að efur á síð- öðu sína rðinga. ækin ærsti með á krá og á í dagskóla anum eru údents- úkraliða- starfs- fram kólans – ennsla fyrir nýbúa, í fyrra var hafin kennsla fyrir starfsfólk í fé- lagsþjónustu, í haust hefur göngu sína ný húsasmíðabraut sem mun útskrifa húsasmíðasveina. Miklar endurbætur hafa verið gerðar á húsakynnum og allsherjar end- urnýjun hefur orðið á tölvu- og tækjabúnaði. Skólinn gerir kröfur til starfsfólks og nemenda og fylgir markmiðssetningu sinni eftir. Hvað er í húfi? En það er ekki nóg að ná árangri, honum þarf að viðhalda og hann þarf að þróa lengra. Þetta er hvergi mikilvægara en einmitt í skóla- starfi, og kostar bæði alúð og ein- beittan vilja allra sem að því verki koma. Við skólamenn höfum ekki aðeins störfum að gegna – við höf- um hlutverk. Það er hlutverk okkar að „stuðla að alhliða þroska allra nemenda svo að þeir verði sem best búnir undir að taka virkan þátt í lýðræðisþjóðfélagi“ eins og segir í framhaldsskólalögum. Ekki ein- ungis ber okkur að búa nemendur undir störf í atvinnulífinu og frek- ara nám heldur ber okkur einnig að „efla ábyrgðarkennd, víðsýni, frumkvæði, sjálfstraust og umburð- arlyndi nemenda, þjálfa þá í ög- uðum og sjálfstæðum vinnubrögð- um og gagnrýninni hugsun, kenna þeim að njóta menningarlegra verðmæta og hvetja til stöðugrar þekkingarleitar“, eins og lög og að- alnámskrá gera ráð fyrir. Það er ekki lítil ábyrgð sem okk- ur starfsmönnum skólakerfisins er lögð á herðar með þessum orðum, og „veldur hver á heldur“ segir máltækið. Höfum hugfast að skóli – hversu stór eða lítill sem hann er, vel eða illa búinn tækjum – er aldr- ei annað en fólkið sem þar starfar. Hlutverk framhaldsskóla og mark- mið aðalnámskrár eru ekki bara orð á blaði, heldur eru þau sam- félagslegt fyrirheit og um leið áskorun til allra starfsmanna fram- haldsskólakerfisins að vanda vel til verka og gæta þess fjöreggs sem velferð og uppeldi ungs fólks í rauninni er. Í því efni erum við ekki einungis kennarar og leiðbein- endur, heldur einnig fyrirmyndir. Við Menntaskólann á Ísafirði hefur stefnan verið sett á skýr og mælanleg markmið. Árangur hefur náðst – og hann er ekki lítill. Vest- firskt samfélag á mikið undir því að það grettistak sem lyft hefur verið í málefnum skólans velti ekki undan. Ég skora því á alla velunnara skól- ans og byggðarlagsins að standa vörð um Menntaskólann á Ísafirði og styðja vel við þá framfarasókn sem þar hefur verið blásið til. Menntaskólinn á Ísafirði er sam- félagslegur máttarstólpi, á honum veltur velferð ungmennanna okkar, sjálfra vaxtarsprotanna sem eru framtíðarvon vestfirskrar byggðar. skóli? ’Það er deginum ljós-ara að Menntaskólinn á Ísafirði hefur á síðustu fjórum árum styrkt stöðu sína sem fram- haldsskóli Vestfirð- inga.‘ Höfundur er skólameistari Menntaskólans á Ísafirði. Ef íslenskir piltar værujafngóðir í lestri ogstærðfræði og stúlkurværi Ísland á meðal allra efstu landa í alþjóðlegum samanburði en töluverð tengsl virðast vera á milli hæfni nem- enda í lestri og hæfni þeirra í stærðfræði. Þetta kom meðal annars fram í fyrirlestri Júl- íusar Björnssonar hjá Náms- matsstofnun um námsmat með hliðsjón af niðurstöðum sam- ræmdra prófa. Fyrirlesturinn var haldinn á málþingi um ís- lenskukennslu í Kennaraháskóla Íslands í gær. Að sögn Júlíusar eru stúlkur að jafnaði betri í hvoru tveggja og því meiri sem kynjamunurinn í lestri er þeim í hag, því betri eru þær í stærðfræði sam- anborið við piltana. Lestur undirstaðan „Eftir því sem niðurstöður sam- ræmdra prófa og niðurstöður úr alþjóðlegum samanburðarrann- sóknum eru skoðaðar betur verður skýrara í mínum huga að það er tungumálið sem er lyk- ilatriði. Undirstaða bóklegs náms hlýtur að vera lestur og við vitum það að rökhugsun er illmöguleg ef einstaklingur hef- ur ekki gott vald á tungumálinu. Þannig eru ekki líkur til þess að árangur náist í stærðfræði og skyldum greinum ef viðkomandi getur ekki hugsað skýrt og fært rök fyrir máli sínu.“ Í niðurstöðum PISA-rannsókn- arinnar frá árinu 2003, sem er alþjóðleg rannsókn á vegum OECD, kemur fram að hvergi á meðal þátttökuþjóða, nema hér á landi, er munur á frammistöðu pilta og stúlkna í stærðfræði, stúlkunum í vil. Þá er kynja- munurinn hvergi meiri í stærð- fræði en hér á landi og íslensk- ar stúlkur standa sig því mun betur en landsmeðaltalið segir til um. „Ef við skoðum kynjamuninn í samræmdum prófum og berum saman samræmd próf frá 1996 til 2003 bæði í íslensku og stærðfræði þá sjáum við að þeg- ar kynjamunurinn eykst í lestri eykst hann jafnframt í stærð- fræði,“ segir Júlíus en kynja- munurinn í þessum greinum jókst jafnframt í PISA-rann- sókninni árið 2003 frá því sem hann var árið 2000. „Aðalatriðið er það að þessi munur er fyrir hendi og frammistaða í lestri og stærðfræði virðist fylgjast að. Því meiri sem munurinn er í lestri því meiri verður hann í stærðfræðinni. Þessi kynjamun- ur í lestri getur því samkvæmt þessum gögnum útskýrt hvers vegna piltarnir eru svo lakir í stærðfræði.“ Júlíus segir að piltar séu að jafnaði betri í stærðfræði í þeim löndum sem tóku þátt í PISA- rannsókninni en stúlkur séu að jafnaði betri í lestri. „Kynjamunur í lestri er þrisv- ar sinnum meiri en munurinn í stærðfræði en ef hann væri helmingi minni væru piltar betri í stærðfræði en stúlkur.“ Júlíus segir að stór hópur pilta standi sig ekki nægilega vel í stærðfræði en samkvæmt þessu sé ef til vill ráðlegt að horfa á fleiri þætti en stærð- fræði ef árangur þeirra á að batna. Þannig sé betri árangur þeirra í stærðfræði ef til vill undir því kominn að þeir auki lesskilning sinn og málhæfni enda væru þeir þá betur undir það búnir að takast á við hugtök stærðfræðinnar. Töluverð tengsl virðast vera á milli hæfni nem- enda í lestri og hæfni þeirra í stærðfræði Morgunblaðið/Kristinn Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra var meðal fjölmargra ráðstefnugesta. Tungumálið lykilatriði að góðum árangri Eftir Þóri Júlíusson thorirj@mbl.is VERÐIÐ sem Reykjavíkurborg reiddi af hendi fyrir Stjörnubíósreit- inn svokallaða við Laugaveg var við- unandi, og ekkert kom fram sem gaf til kynna að ekki hafi verið farið eftir samþykktum borgarinnar við útboð- ið. Þetta kemur fram í skýrslu Innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar sem lögð var fram í borgarráði í gær. „Við útreikning [...] var stillt upp efri og neðri viðmiðum við mat á verðmæti eigna og byggingaréttar. Við samanburð á kaupverði Stjörnu- bíósreits, 140 milljónir kr., kemur í ljós að það er nær neðri viðmiðum,“ segir m.a. í skýrslunni. „Á grundvelli ofangreinds mats má ætla að um hafi verið að ræða ásættanlegt kaupverð af hálfu Reykjavíkurborgarinnar.“ Innri endurskoðun segir þó að skort hafi á formfestu við málsmeðferðina, og þá sérstaklega skjölun gagna. Þá ábendingu sögðu fulltrúar Reykja- víkurlistans að beri að taka alvar- lega í bókun sinni í ráðinu. „Úttekt Innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar á kaupunum leiðir í ljós að kaupverðið á eigninni var eðlilegt, enda leiddi útboðið til þess að Reykjavíkurborg endurseldi byggingarréttinn á lóðinni með hagnaði jafnframt því að fjölga bíla- stæðum á austari hluta Laugaveg- ar,“ segir í bókun Reykjavíkurlist- ans. „Við umræður um málið í borg- arstjórn á sínum tíma dylgjuðu sjálf- stæðismenn mikið um kaup borgar- innar á Stjörnubíósreitnum Undir forystu núverandi dómsmálaráð- herra var málið í heild sinni dregið niður á afar lágt plan. Þessi úttekt staðfestir að kaupverðið á eigninni var eðlilegt og sýnir svo ekki verði um villst að sjálfstæðismenn í borg- arstjórn fóru offari í málinu,“ segir þar ennfremur. Sjálfstæðismenn áskilja sér rétt til bókunar síðar meir Í bókun borgarráðsfulltrúa Sjálf- stæðisflokks segir að þar sem þeir hafi fyrst séð skýrsluna á fundi borgarráðs í gær, áskilji þeir sér rétt til þess að bóka síðar vegna málsins og meðferð þess, enda margt sem krefjist frekari athugunar og skýr- inga. Skýrsla Innri endurskoðunar um Stjörnubíósreitinn Kaupverðið fyrir reitinn viðunandi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.