Morgunblaðið - 19.08.2005, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 19.08.2005, Blaðsíða 26
26 FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN ÉG HEF nýlega ritað tvær greinar hér í blaðið vegna hug- mynda borgarstjórnarflokks Sjálfstæðismanna um eyjabyggðina á Kolla- firði. Ég færði rök fyr- ir því að þau áform væru ekki skynsamleg en kom fram með nýja hugmynd um golfvöll og litla kirkju í Engey og vék einnig að hlut- verkum Akureyjar, Lundeyjar og Þern- eyjar. Jafnframt lét ég þess getið, að ég byggi yfir hugmyndum um aukið hlutverk Við- eyjar. Ég kem hér fram með hluta þeirra sem framlag til stefnumörkunar Sjálfstæðismanna, en einnig sem áskorun til borgaryfirvalda, hver sem þau verða á næstu árum. Ég gerði mér þess ljósa grein, meðan ég var við stjórn í Viðey, að hún má aldrei standa í stað. Hún má ekki missa neitt, án þess að eitthvað annað komi í staðinn, og í raun þarf sífellt að vera að brydda upp á einhverju nýju til að við- halda áhuga fólks á staðnum. Ég ætla ekki að tíunda hvað gert var og bera það saman við núver- andi ástand. Hitt er miklu vænlegra að horfa fram á leið. Eftir að hugmyndir um íbúðabyggð í eynni og brúarteng- ingu við Gufunes fóru að gerast ágengar, hefur mér orðið æ ljósara, að vafasamt er, að sú starfsemi, sem hefur verið rekin í Viðey síðan 1988, nægi því samfélagi sem við lifum í. Eins og ég hef rakið margsinnis, myndi brú eyði- leggja svo mikið, að hún hlýtur að vera algert bannorð. Föst byggð heimtar hins vegar brú, því þarf að skoða aðra kosti. Það er gamall draumur minn að byggja aftur á Sundbakkanum, þar sem þorpið var áður, austast á eynni. Mig hef- ur dreymt um að fá fjársterk fyr- irtæki til að byggja þar upp litla, fallega hannaða byggð, hús sem síðan yrðu lánuð lista- og fræði- mönnum til tímabundinnar notk- unar. Til að efla slíkt menning- arþorp þyrfti að endurbyggja Glaumbæ, gamla verkamannabú- staðinn, sem þarna var, 180 fer- metra hús, tvær hæðir og kjallari. Það ásamt skólahúsinu, sem þegar er búið að endurreisa, gæti skapað mikla möguleika fyrir fjölbreytt menningarstarf. Kristján Loftsson þáverandi stjórnarformaður Olíufélagsins sýndi annarri hugmynd mikinn áhuga, að félag hans endurbyggði gamla olíuhúsið, vörugeymsluhús D.D.P.A. sem var eiginlega „amma“ Olíufélagsins. Eldra félag- ið byggði á sínum tíma mikinn eldsneytisgeymi í Viðey. Hann er nú ónotaður á Akranesi. Það fylgdi hugmyndinni að flytja hann aftur út í Viðey og gera hann að þriggja hæða húsi. Þessi tvö mannvirki hefðu getað skapað mikil og góð tækifæri sem vinnustofur, sýn- ingarými og veitingaaðstaða. Ár- bæjarsafn lagðist á móti þessari hugmynd, taldi að byggingarnar, og sérstaklega tankurinn, yrðu of áberandi þarna á eyjarendanum. Þess vegna var ekki hægt að vinna að þessu áfram. Ég sé nú, að hægt er að byggja tankinn neðar en hann stóð áður, og verði hin nýja byggð hönnuð með nálægðina við þetta í huga, þá hygg ég, að áhyggjur Árbæjarsafns séu óþarf- ar. Með þessu móti risi þarna vísir að íslenskri Sveaborg, sem er frægt menningarsetur við fornt virki á eyju úti fyrir Helsinki, en þangað eru reglulegar bátsferðir. Að sjálfsögðu þarf að gera ein- hverja lendingaraðstöðu á Sund- bakkanum gegnt bryggjunni í Gufunesi og bæta aðstöðuna í Bæj- arvörinni neðan Viðeyjarstofu. Hún yrði áfram aðalhöfn Viðeyjar, og þaðan yrðu svo reglulegar bíl- ferðir austur á Sundbakka. Hefja verður rekstur Viðeyjar- stofu til vegs á ný. Hún er nú bara veislusalur, en þarf að verða aftur vettvangur menningarviðburða, auk þess sem æskilegt er að svo sögufrægt og merkilegt hús sé al- menningi opið að staðaldri. Upp- bygging Sundbakkans myndi í senn styðja Stofuna og eflast af henni. Það á að hlynna að höfuðbólum og nýta það sem þau hafa skráð á spjöld sögunnar til að skapa nýja reisn í menningu þeirra. Þetta er nú verið að gera á Þingvöllum, í Skálholti, Reykholti og heima á Hólum, en Viðey situr eftir sem væri hún komin í öskustó. Á að fullkomna verkið á hinn ódýrasta máta með því að valta yfir hana með malbiki, steinsteypu og brúar- gerð? Eða erum við Reykvíkingar þeir menn, að við treystum okkur til að hefja hana til þess vegs sem henni ber? Framtíð Viðeyjar Þórir Stephensen fjallar um uppbyggingu í Viðey ’Það á að hlynna að höf-uðbólum og nýta það sem þau hafa skráð á spjöld sögunnar til að skapa nýja reisn í menn- ingu þeirra.‘ Þórir Stephensen Höfundur er fyrrverandi staðarhaldari í Viðey. MÁL ákæruvaldsins gegn Baugi hefur nú verið þingfest. Hinir ákærðu hafa lýst sakleysi sínu undir skæru kastljósi fjölmiðla. Málið verður nú tekið til dómsmeðferðar, en auðvitað stingur í augu ofuráhersla Baugs- feðga að reka málið ut- an dómssalar. Það er að sjálfsögðu þeirra réttur, en afskaplega er misráðið af þeim að hrista kokteil um póli- tískt samsæri við málatilbúnað ákæru- valdsins. Þar stendur, ef grannt er skoðað, ekki steinn yfir steini. Baugsfeðgar halda því fram að stjórnvöld standi á bak við innrás í Baug en hafa ekkert annað uppi en getsagnir. Til lengri tíma skaða ásakanir þeirra hags- muni Baugs að ekki sé talað um hagsmuni þeirra sjálfra. Það er skelfilegur dómgreindarbrestur að stefna sjálfum sér og Baugi í þann ófrið sem þeir hafa kosið að gera – að ekki sé talað um þjóðfélagið sem logar stafna í milli. Þeir hafa um sig her ráðgjafa, lögfræðinga og ímyndarfræðinga. Hefur enginn þeirra reynt að fá þá ofan af bábiljunni? Þeir virðast hafa afar slæma ráðgjafa. Mál þeirra er að fá miklum mun meiri athygli en ella – ekki bara á Ís- landi heldur líka á Norðurlöndum, í Bret- landi og raunar víða um lönd. Jón Ásgeir kom fram í Kastljósi á dög- unum. Þar komu fram ótrúlegar fullyrðingar og af mörgu að taka. Hæst ber ásakanir í garð Davíðs Odds- sonar. Jón Ásgeir upp- lýsti alþjóð, að eftir að Hreinn Loftsson sneri heim úr frægri ferð sinni til fundar við Davíð Oddsson í Lundúnum, hafi allt verið sett af stað innan Baugs til þess að leið- rétta hugsanleg meint lögbrot innan félagsins. Og svo sem sjá má af gögnum málsins, þá fóru fram víð- tækar „hreingerningar“ í bókhaldi Baugs í maí 2002. Davíð Oddsson með öðrum orðum varaði vin sinn Hrein Loftsson við orðrómi, sem þá fór eins og eldur í sinu um íslenskt viðskiptalíf. Innan Baugs væri maðkur í mysunni. Baugur yrði að taka til í eigin ranni. Sem var gert. Von er að spurt sé. Lyktar það af samsæri að vara fórn- arlambið við? Þetta stenst ekki skoðun. Þetta er bull. Þvert á móti standa Baugsfeðgar í þakkarskuld við Davíð Oddsson fyrir að vara þá við orðrómi í við- skiptalífinu um glannalegar aðfarir félagsins. Þeim gafst tækifæri til að grípa til aðgerða áður en félagi þeirra frá Ameríku, Jón Gerald Sul- lenberger, kom til landsins og kærði til lögreglu sumarið 2002. Baugsfeðgar standa í þakkarskuld við Davíð Hallur Hallsson fjallar um málefni Baugs ’Þvert á móti standaBaugsfeðgar í þakk- arskuld við Davíð Odds- son fyrir að vara þá við orðrómi í viðskiptalífinu um glannalegar aðfarir félagsins.‘ Hallur Hallsson Höfundur er blaðamaður. FYRIR tveimur árum kom ég lít- illega að samingu alþýðlegs texta um áfengi. Kom þá flatt upp á mig, að höf- undum fannst sjálf- sagt að nota „edrú“ um ódrukkna, allsgáða eða með öllu gáða menn. Síðar hef ég heyrt og séð „edrú“ notað svo þráfaldlega í fjölmiðlum, að ætla má, að orðið festist í málinu og víki eldri orðum íslenskum til hliðar. Að vísu skal það nefnt, að „edrú“ var nýlega í danskri mynd í Sjónvarpinu réttilega þýtt alls- gáður. Í dönskum orðabókum er „ædru“ látið jafngilda „bes- indig“ eða „nögtern“, en þess jafnframt get- ið, að orðið sé nær ein- göngu haft um ódrukkna, allsgáða, menn. „Bes- indig“ og „nögtern“ eru sömu merk- ingar og skynsamur og gáður þann- ig, að merkingarlega munar sárlega litlu á þessum orðum. Hvernig stendur þá á því, að farið er á vit Dana, þótt góðir séu, til þess að sækja þangað orð, sem tæpast í nokkru bætir við merk- ingu velþekktra, góðra og gildra íslenskra orða? Er hér á ferðinni fordild eða for- heimskun, sem hver apar eftir öðrum? Ég hef á tilfinningunni, að mörg fleiri fordildarorð en „edru“ blómstri í fjölmiðlum, svo sem að verður vikið, þótt þau komi úr ensku og ekki úr svo ólíklegri átt og danska er nú. Eftir að ég komst á eftirlaun fyrir fáum ár- um hefur mér orðið á í ríkara mæli en áður að hlusta á útvarpsþætti, ekki síst síðdegisþætti á Rás 1. Mér hefur stundum komið í opna skjöldu, hve orðafar ýmissa viðmælenda í þessum þáttum er slettuskotið að óþörfu. Þannig er orðið „aggressíf- ur“ orðið algengt í stað óvæginn eða ágengur og „konkret“ í stað fastur eða raunhæfur eða ýmissa annarra góðra lýsingarorða, sem við kunna að eiga allt eftir efni máls eða texta. Þá hefur „koncept“ (hugmynd, hug- tak) vafist svo um tungu sumra við- mælenda, að mér finnst sem þeir hafi enga hugmynd haft um, hvað þeir ætluðu í reynd að segja! Suma viðmælendur, ekki síst skemmt- anamenn, hef ég heyrt velta sér upp úr „nostalgíu“, sem í mínu ungdæmi var þýtt söknuður, eftirsjá, heimþrá o.s.frv. Gott dæmi um slíkt „nost- algíu-fordildarbull“ er að finna í við- tali við tvo skemmtanamenn, karl og konu, í Morgunblaðinu 23.7. 2005. Mér finnst sem öll fyrrtalin orð beri vott um fordild eða hégóma- skap, sem sporna eigi gegn. Ef er- lend orð, sem eru sömu eða mjög líkrar merkingar og góð og gild ís- lensk orð, verða munntöm og ryðja burt hinum íslensku, er þar á ofan komið að sjálfri kviku málsins eða með öðrum orðum sagt, hvort málið eigi að vera til eða ekki. Nú, í upphafi nýs skólaárs, skyldu ekki síst íslenskukennarar og forsjármenn menntamála í land- inu hafa þetta fast í huga! Slangur og slett- ur í fjölmiðlum Þorkell Jóhannesson fjallar um íslenskt mál Þorkell Jóhannesson ’Er hér á ferð-inni fordild eða forheimskun, sem hver apar eftir öðrum? ‘ Höfundur er læknir, dr. med., prófessor úr embætti. „ÞEGAR ég er spurð að því hvaða staður mér finnist fallegastur á Ís- landi kemur Reykjavíkurtjörn og umhverfi hennar á fal- legu síðsumri upp í hugann: Fríkirkjan og Listasafnið, Iðnó og andabrauðið, virðuleg timburhúsin við Tjarn- argötu með grósku- miklum trjágróðri, styttur bæjarins og síðast en ekki síst Hljómskálagarðurinn og Hallargarðurinn sem með friðsemd sinni eru athvarf fjöl- skyldna og barna, skokkara og sveimhuga í leik og hvíld frá áreiti borgarlífsins sem þó er svo skammt undan. Það er ekkert nýtt að stórhuga og framkvæmdaglaðir menn ásælist þessa garða og jafnvel Tjörnina sjálfa til að reisa það sem tískusveifl- an býður hverju sinni. Reykvíkingar hafa borið gæfu til að koma í veg fyr- ir það flest. Flest segi ég, því Ráð- húsinu og himinmigunni var troðið ofan í Tjörnina þrátt fyrir mótmæli borgarbúa. Í 10-fréttum sjón- varps í liðinni viku sagði Dagur B. Eggertsson, formaður skipulags- ráðs, frá tillögu sinni þann sama dag í skipu- lagsráði um byggingu kaffihúss með útiveit- ingapalli í Hljóm- skálagarðinum. Í Morg- unblaðsgrein sl. fimmtudag undrast hann reyndar að slíkri tillögu hafi ekki þegar verið hrint í fram- kvæmd og vísar til þar hugmyndar Hrafns Gunnlaugssonar um sama efni fyrir fimmtán til tutt- ugu árum. Hugmyndin hefur reynst lífseig og kom síðast upp í umhverfisráði borgarinnar 2001. Þegar Hrafn setti fram tillögu um kaffihús í Hljómskálagarðinn voru nær engin kaffihús í Kvosinni; Hótel Borg, Tröð, Mokka og Hressó. Ég held að þá sé allt upptalið. Nú er öld- in önnur og í Kvosinni er fyrir gnægð kaffihúsa, þar á meðal þrjú á Tjarn- arbakkanum norðanverðum: í Lista- safninu, Iðnó og Ráðhúsinu. Við sunnanverða Tjörnina er svo Nor- ræna húsið og kaffistofa Þjóðminja- safnsins. Það er því vart skortur á kaffihúsum heldur einhverju öðru sem hér er á ferð. Tillaga Dags en tímaskekkja En af hverju á kaffihús og útiveit- ingastaður ekki erindi í Hljóm- skálagarðinn? Kaffihús og útiveit- ingapallur krefjast aðkomu sendibíla með vörur, öskubíla að sækja úr- gang, bílastæða fyrir gesti og starfs- fólk. Hugmyndin um kaffihús í miðjum skrúðgarði snýst því um meira en kaffihúsið eitt og litla sæta kaffihúsið verður þannig fljótt að skrímsli sem hrekur burtu friðsæld Hljómskálagarðsins. Eða ætlar Dag- ur B. Eggertsson að láta gesti, starfsmenn og birgja leggja í Bjark- argötunni? Hljómskálagarðurinn er vin í bíla- þvögu og stressi Kvosarinnar – vin þar sem ekkert söluáreiti, engin bíla- stæði eða akbrautir skapa óöryggi og truflun. Á 220 ára afmæli Reykjavík- ur væri nær að styrkja garðinn eins og hann er, fjölga bekkjum, setja upp fuglakíki og ítarlegar upplýsingar um gróður og fuglalíf við Tjörnina í Reykjavík. Hljómskálagarðurinn er ásamt öðrum grænum svæðum lungu borgarinnar, hvíldarstaður fyrir aug- að og andann. Látið Hljómskálagarð- inn í friði! Tjörnin lifi! Látið Hljómskálagarðinn í friði Álfheiður Ingadóttir andmælir tillögu Dags B. Eggertssonar um kaffihús í Hljómskála- garðinum ’Hljómskálagarðurinner ásamt öðrum græn- um svæðum lungu borg- arinnar, hvíldarstaður fyrir augað og andann.‘ Álfheiður Ingadóttir Höfundur er líffræðingur og íbúi við Tjörnina.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.