Morgunblaðið - 19.08.2005, Side 29

Morgunblaðið - 19.08.2005, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 2005 29 MINNINGAR Amalía Rut Gunnarsdóttir hóf störf hjá Bræðrunum Ormsson í ársbyrjun 2001 þar sem hún starfaði með okkur að uppbyggingu öflugrar sölu á HTH innréttingum á Íslandi næstu fimm árin. Amalía var ein- staklega ljúf manneskja sem gott var að starfa með. Í sínu fagi sem arkitekt naut hún sín til fulls við að leita uppi strauma og stefnur og miðla áfram til sam- starfsfólks og ekki síst til viðskipta- vina sem hún náði svo vel til með sínu gefandi viðmóti og útgeislun. Þeir eru ófáir sem komið hafa á framfæri þökkum fyrir góða og per- sónulega þjónustu sem Amalía átti svo auðvelt með að inna af hendi. Ég átti því láni að fagna að ferðast með Amalíu á fundi og ráð- stefnur víða um Evrópu þar sem lín- urnar voru lagðar og málin rædd. Það var ávallt vel tekið eftir því sem Amalía hafði til málanna að leggja enda var hún vinsæll fyrirlesari á fundunum – þar sem þar fór afar fær hönnuður sem hafði mikinn metnað fyrir starfi sínu. Þekkingu sinni og hugmyndum átti hún mjög auðvelt með að miðla til annarra. Í okkar hópi sem hitt- umst reglulega á fundum myndaðist sterk vinátta fólks sem nú saknar einstakrar mannesku og vinar. Fyrir hönd starfsfólks Bræðr- anna Ormsson og fyrirtækisins sendum við innilegustu samúðar- kveðjur til Jónasar og barnanna tveggja, Ómars og Eddu og annarra ástvina Megi minningin fagra lifa með ykkur um alla framtíð. Ólafur Már Sigurðsson. Þvílíkur harmur, þvílík sorg, besta blómið okkar er fallið. Erfitt er að skilja að Imma hafi verið tekin frá okkur, en hún hlýtur að hafa átt stórt erindi yfir í betri veröld. Eftir sitjum við og hlúum að minningar- brotum. Imma okkar var alveg sérstök mannkostamanneskja, ég held bara að öll góðu lýsingarorðin í íslensku tungunni hafi átt við hana. Hún var hvers manns hugljúfi og fólk lað- aðist að henni. Alltaf var svo skemmtilegt að vera með henni, hún var svo fyndin og hafði alveg ein- staka frásagnargáfu. Það var mikið hlegið þar sem Imma var. Sérstaklega kemur upp í huga mér ógleymanleg ævintýraferð okk- ar á síðasta sumri. Ferðinni var heitið austur á land þar sem við hitt- um Ingu systir hennar og fleiri ætt- ingja á fæðingarstað afa hennar. Eitt atvik úr því ferðalagi, sem lýsir Immu ágætlega, var þegar, við vor- um staddar á miðjum Hólsöræfum áttuðum okkur allt í einu á því að við vorum að verða gjörsamlega bensín- lausar. Það var búið að vera svo gaman hjá okkur að svona smáatriði eins og að setja bensín á bílinn hvörfluðu ekki að okkur. Á meðan ég byrjaði að svitna lófunum af stressi, þá sagði Imma sallaróleg: „Heyrðu, hvað er eiginlega það vesta sem gæti gerst í stöðunni?“ „Nú að við yrðum bensínlausar,“ stundi ég. „Hvað með það, auðvitað reddum við okkur.“ Þar með var spennan horfin og við renndum niður í Jök- uldal á síðasta dropanum. Imma var kjarkmikil og lét alltaf drauma sína rætast. Hún nýtti svo sannarlega þennan stutta tíma sem henni var úthlutaður. Henni var gef- in ótrúleg orka, og þessari orku beitti hún af mikilli alúð til að sinna sínum nánustu. Maður átti oft erfitt með að skilja hvernig hún færi að því að sinna öllum sínum hlutverk- um svona vel. Dásamleg börn henn- ar og eiginmaður bera vott um það. Hún tók örlögum sínum af miklu æðruleysi og megum við sem fylgd- um henni síðasta spölinn draga lær- dóm af því. Eitt af því síðasta sem hún sagði við mig var „Maður verð- ur alltaf að hafa eitthvað til að hlakka til“ svo fékk hún sér uggulít- inn vatnssopa. Við kveðjum elsku Immu okkar með mikilli eftirsjá og söknuði en minningin um einstaka konu lifir með okkur. Guð styrki ykkur Moha- med, Edda Falak, Ómar, Edda, Pét- ur, Inga og Kata í ykkar miklu sorg. Ingunn. ✝ Haraldur Ólafs-son fæddist í Reykjavík 25. maí 1931. Hann lést á hjartadeild Land- spítalans 14. ágúst síðastliðinn. For- eldrar hans voru Oddný Sölvadóttir af Árskógsströnd og Ólafur Kristjánsson úr Tálknafirði. Har- aldur var einn af 10 systkinahópi. Haraldur kvæntist 25. maí 1954 Gróu Ólafsdóttur frá Litla-Laugardal í Tálknafirði, f. 9. nóvember 1934. Foreldrar hennar voru Sesselja Ólafsdóttir frá Ólafsvík og Ólafur Jósua Guðmundsson frá Kvígind- isfelli í Tálknafirði. Börn Harald- ar og Gróu eru: Hrafnhildur, Að- alheiður Hagar, Þórunn, Sesselja, Ólafur, Oddur, Orri, Heimir og Bylgja sem eru öll á lífi. Um 1 árs aldur flutti Haraldur með fjölskyldu sinni til Patreksfjarðar, þar átti hann heima uns hann flutti til Reykjavíkur á efri árum. Haraldur var sjómaður til fer- tugsaldurs, byrjaði á togurum 14 ára. Gegnum árin stundaði hann flest- ar tegundir af sjó- sókn þess tíma og átti sjórinn ætíð huga hans. Hann vann við fisk- vinnslu þegar í land kom, lengst af sem verkstjóri og fiskmatsmaður. Um sextugt fór heilsan að bila og þau hjónin fluttu til Reykjavíkur og hann varð að hætta störfum eftir 1 ár. Útför Haraldar fer fram frá Grafarvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Ég lít þig Guð í ljóma sérhvers dags og leiðsögn vonar hörpu mína bærir. Ei kvíða skyldi komu sólarlags né kalli því, sem sporin til þín færir. (Bjargey frá Hofsstöðum.) Þegar lífsins leiðir skilja læðist sorg að hugum manna en þá sálir alltaf finna yl frá geislum minninganna. (Helga frá Dagverðará.) Það segir sig sjálft að þegar ungt efnalítið fólk gengur í hjónaband og eignast níu börn á tuttugu árum þá snýst lífið allt um fjölskylduna og lífsbaráttuna upp frá því. Það er eng- inn tími til að sinna sínum einkasérv- iskum en það var gæfa þeirra hjóna að vera fjölskyldufólk innan gæsa- lappa, og þess hefur stórfjölskyldan notið í ríkum mæli alla tíð. Öll vel- gengni í lífinu er að sjálfsögðu mik- ilsverð, en hlýjar samvistir við sína nánustu eru þar ofarlega á blaði, að ekki sé meira sagt. Þetta er sú arf- leifð sem Haraldur lætur eftir sig og veitir honum mesta ánægju í hinum nýju heimkynnum. Hann var sá gæfumaður að fá að umgangast hóp af barnabörnum sem nú sakna vinar í stað og samfylgdin hefði þurft að verða lengri. En það var með hann eins og fleiri að erfiði manndómsáranna sagði til sín þegar aldur hækkaði og þegar heilsan er farin er hvíldin besta lausnin. Við kveðjum hann með hjartans þökkum fyrir árin öll. Eiginkona, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Okkur mæðgurnar langar til að minnast föður okkar og afa. Minningarnar eru margar og góð- ar og munu ávallt geymast í hjörtum okkar. Amma og afi bjuggu lengst af á Patreksfirði. Alltaf var gott að koma til þeirra og alltaf var glatt á hjalla því stór var hópurinn. Afi var hjartahlýr og gaf mikið af sér. Þegar við systurnar vorum yngri var afi alltaf að kalla á okkur … Koma og kyssa afa. Hann fékk aldrei nóg af kossum og þegar mamma var ung rakaði hann sig ekki nema til að gefa rak-kossinn. Eitt sinn á Patró vorum við að fara suður og afi fann ekki pípuna sína og allir lögðust á eitt að leita að pípunni hans því án hennar ætlaði hann ekki. Eftir langa leit fór afi að hlæja og sagði; hættið að leita, pípan er fund- in. En þá hafði afi verið með pípuna í hendinni allan tíman. Það sem var hlegið að þessu. Minningarbrotin eru mörg en við látum þessi nægja. Það er svo sárt til þess að hugsa að fá ekki að sjá þig aftur, elsku pabbi okkar og afi. Þú lætur eftir þig stóra og samhenta fjölskyldu sem saman mun standa í gegnum söknuðinn og sorgina. Sé Guði þökk. Er gaf oss þetta líf Og góðar stundir allar, vernda og hlíf. Þótt treginn núna fylli flestra lund Vér frelsarann treystum alla stund. Þótt ástvin horfinn vér nú kveðjum klökk Er kær hans minning, færð sé ástarþökk. Ó, Drottinn vor nú ljá oss líkn og hlíf Vér lútum þér í trú á eilíft líf. (Höf. óþ.) Elsku amma og mamma og öll systkini, megi Guð gefa ykkur styrk á þessari sorgarstundu. Hrafnhildur Haraldsdóttir, Harpa og Elva Ýr Halldórsdætur. Mig langar að minnast með nokkr- um fátæklegum orðum Haraldar tengdaföður míns, sem ég kynntist 1982, en dóttur hans Þórunni hafði ég kynnst um áramótin ’81–’82. Frá fyrstu kynnum fann ég mig velkominn er ég kom inn í fjölskyldu Haraldar og Gróu eiginkonu hans sem og barna, og hefur það haldist óbreytt alla tíð þó svo ég hafi horfið úr fjölskyldunni um tíma og komið aftur. Það eru ekki allir svo heppnir að kynnast slíku, en það gerði ég og er þakklátur fyrir það, og að hafa aldrei þurft að líða fyrir mistök mín gagnvart fjölskyldu Haraldar sem og honum sjálfum meðan hans naut við. Megi aðrar fjölskyldur taka það sér til fyrirmyndar. Það sem er lýsandi fyrir fjölskyldu Haraldar sem og hann sjálfan var og er samheldni og sú samúð sem þau gátu og geta sýnt öðrum, hvort sem um veikindi er að ræða eða annað, því fékk ég að kynnast í mínum veik- indum. Eitt er það sem Haraldur hafði mest gaman af þegar hann heimsótti fólk sitt eða það kom til hans, en það var að taka í spil og spila kana, átti hann oft til að segja kana á óséð spil og merkilegt nokk þá vann hann yf- irleitt það spil, því fannst honum gaman að. Þó svo að hann hafi verið bridsspilari meira og átt marga verð- launapeninga fyrir það spil var það kani sem var spilað innan fjölskyld- unnar þar sem bridskunnáttan var ekki mikil hjá öðrum en Haraldi. Annað sem honum þótti mjög gaman að gera var að stunda silungsveiðar enda fiskinn mjög, þó svo að síðustu 2 til 3 ár hafi ekki verið farið eins oft og hann vildi sökum veikinda, var þetta tvennt það sem honum þótti mest gaman að gera. Synir okkar Þórunnar nutu ætíð góðmennsku og kærleika afa síns og ömmu og munu gera áfram frá ömmu sinni sem og börnum hennar, enda eitt það mik- ilvægasta sem hver og einn þarf hvað mest á að halda í lífinu og að læra að gefa öðrum. Hvíl í friði í Guðs faðmi. Kristinn. Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. Á grænum grundum lætur hann mig hvílast, leiðir mig að vötnum, þar sem ég má næðis njóta. Hann hressir sál mína, leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns síns. Jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert illt, því að þú ert hjá mér, sproti þinn og stafur hugga mig. Þú býr mér borð frammi fyrir fjendum mínum, þú smyr höfuð mitt með olíu, bikar minn er barmafullur. Já, gæfa og náð fylgja mér alla ævidaga mína, og í húsi Drottins bý ég langa ævi. (23. Davíðssálmur.) Þórunn, Róbert Már og Aron Björn. Mig langar til að minnast ná- granna míns hans Haraldar Ólafs- sonar með nokkrum orðum. Við höfum orðið samferða, búið í sama húsinu í nokkuð mörg ár, ekki alltaf í sama húsinu heldur tveim húsum. Fyrst bjuggum við í Garð- húsum en síðar flytur Haraldur og Gróa konan hans í Laufengi og við fórum þangað á eftir þeim. Lífið er stundum skrítið og einkennilegt. Fyrsti kynni okkar Haraldar voru líklega á garðdeginum í Garðhúsum. Einu sinni á hverju ári þá var garð- dagur hjá okkur í blokkinni. Þá var tekið til, málað, hreinsað og allt gert svo að garðurinn væri sem fallegast- ur. Margar hendur vinna létt verk, en sumir vinna betur en aðrir. Þann- ig var að Gróa og Haraldur voru manna fyrst á vettvang ef lá við og seinust til að fara heim til sín að kvöldi. Þau voru ónísk á tíma sinn og krafta. Eftir góðan dag, var slegið upp veislu fyrir alla og þá var nátt- úrlega grillað og spjallað um allt milli himins og jarðar. Slegið á létta strengi og þá tengdist fólk böndum sem áttu eftir að halda þó árin færð- ust yfir. Við þetta tækifæri þá kom í ljós hvað Haraldur gat verið skemmtilegur, hann var með mjög skemmtilegan húmor, gat skotið inn sniðugum athugasemdum og verið hrókur alls fagnaðar. Það var engin veisla almennileg nema þau væru komin helst bæði á vettvang. Haraldur var líka mjög mann- blendinn og átti gott með að lynda við alla. Hann var oft á röltinu og stoppaði oft ef einhver var úti í garði og spjallaði við fólk um hvaðeina sem bar á góma. Það var líka alltaf hægt að leita til hans ef maður var ekki viss um hvað var að gerast eða eitt- hvað utangátta. Sumir hafa góða nærveru og þannig fólki er gott að vera nálægt, þannig var Haraldur alla tíð. Ljúfur og sérstaklega barn- góður, vildi alltaf gera eitthvað gott fyrir litlu angaskinnin sín. Fjölskyldan var stór og mörg börn en alltaf var rúm fyrir alla gesti og gangandi, hvort sem það voru tvífæt- lingar eða ferfætlingar. Heimilið var líka opið fyrir öllum gæludýrum, bæði hundum eða köttum. Einn var sá sem átti heiðurssess, það var hann Hnoðri, fressköttur af eðalkattakyni, líklega kominn af Reykjavíkuraðlin- um. Loðinn og svartur og orðinn ansi stirður undir lokin. Hann lét alltaf vita ef hann vildi komast inn og kom sérstaklega og bað um hjálp þegar hann gat ekki lengur stokkið upp á silluna til að komst inn um gluggann. Haraldur og Gróa bjuggu áður á Patreksfirði en fluttu suður og efa- laust var hluti af þeim sjarma sem Haraldur bar tilkominn að vestan. Hann hafði áhuga á fólki á jákvæðan hátt vildi vita hvernig gengi og fylgj- ast með. Var ekki sama. Velvild og umhyggja tel ég hafa verið hans helsta prýði. Eitt var það sem honum þótti gott það var að dreypa á eðalvínum. Einu sinni átti ég hálfa flösku af Cognac inni í skáp, þegar mér datt allt í einu í hug að gefa nú þetta einhverjum sem kynni að meta þessar veigar. Bankaði uppá og mikið var gaman að sjá hvað þetta lítilræði gladdi Har- ald, hann varð eitt sólskinbros og mér varð hlýtt í hjarta. Föstudagkvöldin voru sérstök fjölskyldukvöld hjá Haraldi og Gróu, þá kom fjölskyldan saman til að horfa saman á ákveðna þætti í sjón- varpinu, þessi kvöld gengu undir nafninu Idol-kvöld. Það var þegar Idolið var sem vinsælast. Alltaf var nóg pláss fyrir einn í viðbót og setið í hverju sæti. Veitt af rausn og ekkert skorið við nögl. Það er mikil gæfa að eignast góða nágranna, ég og dóttir mín, hún Sal- óme Jórunn, þökkum fyrir samferð- ina og að hafa verið svo lánsamar að kynnast Haraldi og Gróu, börnum og barnabörnum. Haraldur var höfðingi heim að sækja, við óskum honum velfarnaðar á ókunnum ströndum. Blessuð sé minning hans. Dýpsta sæla og sorgin þunga, svífa hljóðlaust yfir storð. Þeirra máli ei talar tunga, tárin eru beggja orð. (Ólöf Sigurðardóttir frá Hlöðum.) Mig langar að votta Gróu, öllum börnum, barnabörnum, tengdafólki og öðrum aðstandendum innilegustu samúð okkar mæðgna á erfiðum tím- um. Megi góður Guð vernda ykkur og styrkja og vera með ykkur. Katrín Þorsteinsdóttir. HARALDUR ÓLAFSSON Elsku besti afi minn. Á hverju kvöldi mun ég alltaf hugsa til þín, og við fjölskyldan munum alltaf hugsa um þig, við elskum þig afar heitt og ég mun sakna þín voða, voða mikið og stundum á kvöldin fer ég að gráta þegar ég fer að sofa. Það var leiðinlegt að missa þig en ég vona að þér líði bet- ur hjá Guði. Guð veri með þér. Kær kveðja, barnabarnið þitt, Kristín Gunnþóra Oddsdóttir. HINSTA KVEÐJA Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför JÓHANNESAR GUNNARSSONAR OG STEINUNNAR PÁLÍNU ÞORSTEINSDÓTTUR, dvalarheimilinu Höfða, Akranesi. Sérstakar þakkir til starfsfólks Höfða fyrir góða umönnun. Fyrir hönd aðstandenda, Þóra Halldórsdóttir, Jónasína Halldórsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.