Morgunblaðið - 19.08.2005, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 19.08.2005, Blaðsíða 32
32 FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Guðrún Sigríð-ur Magnúsdótt- ir fæddist í Reykja- vík 8. febrúar 1934. Hún lést á dvalar- og hjúkrunarheim- ilinu Grund sunnu- daginn 14. ágúst síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Magnús Auðuns- son, bóndi á Sól- heimum í Land- broti, f. á Eystri-Dalbæ í Landbroti 1. des- ember 1893, d. 5. mars 1966, og Kristjana Jónsdóttir kennari, f. á Steig í Mýrdal 4. ágúst 1900, d. 25. júní 1992. Bróðir Guð- rúnar er Helgi, f. 4. apríl 1946, maki (óg.) Björg Baldvinsdóttir, f. 22. september 1947. Hinn 29. nóvember 1959 gift- ist Guðrún Birni Jónssyni, kenn- ara og síðar skólastjóra í Haga- skóla. Foreldrar hans voru Jón Jóhannesson bóndi á Ytra Skörðugili í Skagafirði, f. á Völlum í Vallhólmi 27. maí 1893, d. 27. janúar 1957, og Agnes Guðfinnsdóttir húsfreyja, f. á Víghólsstöðum á Fellsströnd 5. mars 1897, d. 14. maí 1987. Guðrún og Björn fluttu árið 1966 á Skólabraut 39, nú Valhúsa- braut 13, á Sel- tjarnarnesi og hafa búið þar síðan. Börn þeirra eru: 1) Heiður Agnes, f. 30. apríl 1962. Maki (óg.) Hákon Óskarsson, f. 6. júlí 1946. Sonur þeirra er Kjartan, f. 23. nóv. 1982. 2) Magn- ús Jón, f. 14. apríl 1966. Maki Ragna Árnadóttir, f. 30. ágúst 1966. Dætur þeirra eru Brynhildur, f. 26. október 1993 og Agnes Guðrún, f. 8. septem- ber 2000. Guðrún ólst upp hjá foreldr- um sínum á Sólheimum í Land- broti. Hún sótti sér menntun til Reykjavíkur, fyrst í Kvennaskól- anum og síðan Menntaskólanum í Reykjavík. Að því loknu nam Guðrún íslensk fræði við Há- skóla Íslands og lauk Cand Mag prófi 1960. Guðrún hóf störf á Örnefnastofnun Þjóðminjasafns 1972 og vann þar fram á árið 2001. Útför Guðrúnar verður gerð frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Tengdamóðir okkar, Guðrún Magnúsdóttir, er látin um aldur fram eftir erfiðan sjúkdóm. Guðrún var mikil sómakona og margt til lista lagt. Hún var skarp- greind og lagði ríkan metnað í allt sem hún tók sér fyrir hendur. Það gilti jafnt um uppeldi, heimili, áhugamál og starf. Guðrún var sérfræðingur hjá Örnefnastofnun í áratugi og hafði mjög gaman af starfi sínu. Fólst það meðal annars í ferðum um landið þar sem hún hitti bændur og búalið til að skrá örnefni í þeirra heimabyggð. Mundi hún nafnið á annarri hverri þúfu í sveitum landsins, og var minni hennar aðdáunarvert, ekki einung- is hvað varðaði örnefni heldur einnig heiti íslenskra jurta og fugla. Þessi kunnátta hefur skilað sér til næstu kynslóða, ekki síst vegna fjölmargra ferða þeirra hjóna um landið með börn sín á ár- um áður. Við tengdabörnin höfum líka haft ómælt gagn af þeim fjár- sjóði upplýsinga sem Guðrún bjó yfir. Guðrún var menntakona, og hafði eldheitan áhuga á þjóðlegum fróðleik. Hún hafði yndi af ljóðum og lestri bóka og las hún bækur á mörgum tungumálum. Þessi bók- hneigð var henni í blóð borin; hún ólst upp í Landbrotinu þar sem móðir hennar, Kristjana Jónsdótt- ir, var annálaður kennari. Guðrún rækti nám sitt af kostgæfni, bæði það sem hún stundaði sem ung kona og það sem síðar kom. Sem dæmi um hvað hún gerði hlutina vel er að 40 árum eftir stúdents- próf gat hún leiðbeint dóttursyni sínum í þýsku. Guðrún var mikil handverks- kona. Hún tók sér fyrir hendur að vinna verk sem aðrir hefðu ekki reynt að byrja á. Hún valdi ekki auðveldustu leiðirnar. Sem dæmi má nefna þegar hún og Valgerður vinkona hennar gerðu nákvæmar eftirmyndir af flóknu, fornu alt- aristeppi frá Reykjum í Tungu- sveit sem geymt er í Þjóðminja- safninu. Sátu þær vinkonur yfir þessu verkefni svo mánuðum skipti. Matreiðsla Guðrúnar var mjög framsækin og var hún óhrædd við að reyna framandi hluti þótt hefð- bundnir réttir hefðu verið á borð- um á aðfangadag og 1. desember. Á öðrum tímum var það ljúf skylda fjölskyldunnar að vera tilraunadýr og matsmenn. Þótt henni tækist ávallt vel til var hún aldrei alveg ánægð með matseldina, enda mjög nákvæm. Guðrún var róleg í fasi, hlý og kærleiksrík. Hún var mjög barn- góð og naut þess að vera með barnabörnum sínum. Það var mik- ill kostur að fá að njóta hennar leiðsagnar við uppeldi barnanna. Hún talaði mikið við þau og kenndi þeim og var ávallt reiðubú- in að gæta þeirra í frístundum sín- um, en Guðrún var útivinnandi þangað til hún veiktist. Guðrún var hlédræg að eðlisfari. Hún hafði gott skopskyn og sagði oft skondnar sögur. Það var létt yfir henni og þeir sem kynntust henni fengu að njóta hennar skemmtilegu frásagna, gjarnan frá liðinni tíð. Guðrúnu þótti ekki gam- an að tala um stjórnmál og hnuss- aði gjarnan í henni þegar þau bar á góma. Heimili tengdaforeldra okkar, þeirra Björns og Guðrúnar, var bjart og fallegt. Þau hjónin voru mjög samrýnd og miklir félagar og var heimili þeirra því aufúsustaður fyrir okkur sem og aðra sem bar að garði. Hvers kyns mál voru rædd öllum stundum og góð sígild tónlist eða djass ómaði í bak- grunni. Það var mikil sorg þegar Guðrún greindist með Alzheimer. Þá sáum við eftir að hafa ekki leitað frekar eftir visku hennar og jafnvel skráð hana niður. Síðustu þrjú árin var hún illa haldin af sjúkdómnum og það tók fjölskylduna mjög sárt að sjá hversu ört henni hnignaði. Það er með sárum söknuði að við kveðjum frábæra tengdamóður og munum við í framtíðinni ylja okkur við minningarnar um þessa góðu konu. Hákon Óskarsson, Ragna Árnadóttir. Guðrún Magnúsdóttir, móðir æskuvinkonu minnar, Heiðar Björnsdóttur, verður mér minnis- stæð og kær um ókomna tíð. Lífs- hlaup okkar Heiðar tvinnaðist saman á Seltjarnarnesinu í gegn- um barna- og gagnfræðaskóla, síð- ar í Menntaskólanum í Reykjavík og svo áfram er við stofnuðum báð- ar fjölskyldur og tókumst á við daglegt líf ungra kvenna. Þegar æskuvinir fylgjast að upp í gegnum árin þá kynnast þeir óhjákvæmilega fjölskyldu vinarins líka. Þannig kynntist ég Guðrúnu. Guðrún bjó fjölskyldu sinni gott og uppbyggilegt heimili. Hún var gegnheil og ljúf manneskja, hvatti börn sín í námi og studdi þau á all- an hátt. Þegar mér verður hugsað til Guðrúnar koma hugtökin góð- mennska og menning upp í hug- ann. Guðrún var menningarkona. Hún var vel lesin, yfirveguð og tal- aði gullfallegt mál með skýrri röddu svo unun var á að hlusta. Guðrún ólst upp á Sólheimum í Landbrotinu þar sem fjölskyldan hefur nú sinn sælureit. Á Sólheim- um hafa Guðrún og Björn ásamt fjölskyldu sinni átt saman góðar stundir við ræktun lands, en þar er nú að vaxa úr grasi tilkomumikill og glæsilegur skógur sem ber dugnaði og natni þeirra augljóst vitni. Þegar við Heiður fetuðum okkur í gegnum uppvöxtinn var mér allt- af tekið opnum örmum hjá Guð- rúnu og Birni. Þá fann maður hve samrýnd þau hjón voru og hve vel þau studdu við börn sín. Fyrir þennan tíma vil ég þakka. Hin síðustu ár mátti oft sjá Guð- rúnu og Björn á góðviðrisdögum ganga framhjá eldhúsglugganum mínum á hressingargöngu sinni upp Bakkavörina. Yfir þeim var hjúpur langrar samveru og tryggð- ar. Við vottum Birni, Heiði, Hákoni, Kjartani, Magnúsi, Rögnu, Bryn- hildi, Agnesi Guðrúnu og öðrum ástvinum Guðrúnar okkar dýpstu samúð. Megi Guð blessa minningu henn- ar. Siv Friðleifsdóttir og fjölskylda. Kveðja frá Soroptimistaklúbbi Seltjarnarness Guðrún Magnúsdóttir var meðal stofnenda Soroptimistaklúbbs Sel- tjarnarness fyrir næstum þrjátíu árum. Við fráfall hennar viljum við minnast klúbbsystur okkar í nokkrum orðum. Guðrún var einstaklega ljúf og prúð kona með hlýlega og góða nærveru, en um leið hrein og bein í samskiptum, og hún lét skoðun sína óhikað í ljós ef henni þótti ástæða til. Á orð Guðrúnar var ætíð hlustað, enda duldist það eng- um að þar fór skarpgreind og víð- lesin kona. Ætíð var gott að leita til hennar eftir ráðum um úrlausn- ir hinna ýmsu verkefna því legði hún til málanna var næsta öruggt að niðurstaðan yrði góð. Ómetan- legt var fyrir okkur í klúbbstarfinu að hafa í okkar hópi konu með svo mikla þekkingu á íslenskri tungu og menningu. Guðrún gegndi ýmsum trúnaðar- störfum, bæði innan klúbbsins og hjá landssambandi soroptimista. Áhugi hennar beindist mjög að uppgræðslu- og umhverfismálum og naut klúbburinn góðs af því í starfi á þeim vettvangi. Störf hennar og Björns eigin- manns hennar að skógrækt eru landsfræg og margverðlaunuð. Á Sólheimum í Landbroti, æsku- heimili Guðrúnar, áttu þau hjón sitt sumaróðal og þar sést árangur ótalinna vinnustunda í ótrúlega gróskumiklu skóglendi. Klúbbsystur minnast Guðrúnar með söknuði og virðingu og senda eiginmanni hennar og börnum samúðarkveðjur. Við kveðjum Guð- rúnu Magnúsdóttur með ljóðlínum Guðrúnar Jóhannsdóttur frá Brautarholti: Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð hjartans þakkir fyrir liðna tíð lifðu sæl á ljóssins friðar strönd, leiðir sjálfur Drottinn þig við hönd. GUÐRÚN SIGRÍÐUR MAGNÚSDÓTTIR ✝ Jóhannes Stein-þórsson fæddist á Þverá í Blöndu- hlíð í Skagafirði 27. mars 1938. Hann lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi þriðju- daginn 9. ágúst síð- astliðinn. Foreldrar Jóhannesar voru hjónin Steinþór Stefánsson, f. 8. apríl 1908, d. 4. nóvember 1977, og Margrét Jóhannes- dóttir, f. 17. maí 1916, d. 13. októ- ber 1995. Systkini Jóhannesar eru: 1) Stefán Halldór, f. 1935, 2) Björgvin, f. 1939, 3) Hjörtína, f. 1940, d. 2001, 4) Gunnar, f. 1941, 5) Magnús, f. 1944, 6) Steinþór, f. 1949, og 7) Guðrún Björg, f. 1957. Jóhannes kvæntist 31. desem- ber 1964 Guðrúnu Sigmundsdótt- ur, f. í Reykjavík 26. maí 1943. Foreldrar hennar voru Sigmund- ur Halldórsson, f. 12. mars 1903, d. 7. ágúst 1971 og Hanna Sofie Halldórsson, f. í Noregi 15. ágúst 1904, d. 6. september 1988. Börn Jóhannesar og Guðrúnar eru: 1) Kolbrún, f. 29. apríl 1965, maki Axel Gíslason, f. 1. júní 1962. Börn þeirra eru Eva Karen, f. 24. janúar 1986 og Jó- hannes, f. 20. maí 1988. 2) Sigmundur, f. 26. febrúar 1967, d. 13. ágúst 2000, maki Rannveig Grétarsdóttir, f. 6. desember 1967. Dætur þeirra eru Björg, f. 13. októ- ber 1989 og Sara, f. 14. maí 1993. Dóttir Jóhannes- ar, Dagný Jóna, f. 31. mars 1960, er búsett í Grikklandi, maki Theodoros Kagianalíus. Börn þeirra eru Marína, f. 12. septem- ber 1991, Markús, f. 4. júní 1993 og Kristbjörg Aþena, f. 25. nóv- ember 1998. Jóhannes var ungur maður sjó- maður á Blakki RE, hjá Valdimar Einarssyni skipstjóra til ársins 1974 og starfaði síðan í 30 ár hjá fyrirtæki Grétars Sveinssonar húsasmíðameistara, Steypustál, þar til hann lét af störfum vegna veikinda í október 2004. Útför Jóhannesar fer fram frá Breiðholtskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Elsku pabbi, með miklum sökn- uði kveð ég þig í dag. Margar ynd- islegar minningar streyma fram á stundu sem þessari, og mun ég geyma þær í hjarta mínu um ókom- in ár. Þú varst hæglátur maður, kvart- aðir aldrei og tókst veikindum þín- um af miklu æðruleysi, og alltaf að passa að við hefðum ekki áhyggjur af þér. Hetjulegri baráttu þinni við illvígan sjúkdóm er nú lokið. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. (Þórunn Sigurðardóttir.) Elsku mamma, guð gefi þér styrk á þessari erfiðu sorgarstund. Hvíl í friði, elsku pabbi. Þín dóttir Kolbrún. Mig langar að minnast tengda- föður míns Jóhannesar Steinþórs- sonar með nokkrum orðum. Mér er það mjög minnisstætt þegar ég kom fyrst á Eyjabakkann í júní 1984 hvað mér fannst ég vera vel- kominn inn á heimili ykkar Guríar, alltaf vel tekið á móti mér með kaffi og með því, ég ekki mjög ræð- in enda þurfti að fara varlega fannst mér í hlutina, við Kolla vor- um nú bara rétt nýbúin að kynnast. En fljótlega fundum við okkur um- talsefni sem við áttum sameiginlegt en það voru veiðar, bæði stangveiði og skotveiði var eitthvað sem við gátum talað endalaust um, enda var þetta eitthvað sem við höfðum báðir áhuga á. Mér eru minnis- stæðir veiðitúrarnir sem við fórum saman í á rjúpu upp í Efstadal rétt við Laugarvatn og upp á Dragháls þar sem þú þekktir hvern hól og hvernig þér fannst ég bruðla með skotin, þú vildir helst taka tvær eða fleiri í skoti og fór ég að þínum ráð- um með það. Og viti menn þetta gekk miklu betur þannig, fleiri fuglar, færri skot. Einnig er mér ofarlega í huga veiðiferðin sem þið Gurí buðuð mér í Blöndu með Stebba bróður þínum þar sem ég fékk minn fyrsta lax, það er ein besta veiðiferð sem ég hef farið í. Þú hafðir alltaf gaman af því að heyra góðar veiðisögur, og hafði ég því gaman af að segja þér frá þeirri síðustu sem ég fór í, en þú sagðir þá: „Svakalega eruð þið kaldir,“ en þú hafðir gaman af að heyra hvernig við fórum að við veiðarnar og sagðir því daginn eft- ir: Ert þú búinn að kíkja á þetta aftur? Barnabörnin voru þér alltaf of- arlega í huga, börnin mín fóru ekki á mis við þá væntumþykju enda er alltaf gott að koma til Guríar ömmu og Jóa afa á Eyjabakkann. Það er verst að geta ekki heyrt litlu skvísuna hennar Evu Karenar sem á að koma í heiminn í næsta mánuði kalla á langafa sinn og sjá þig síðan skríða á eftir henni eins og hinum afabörnunum. Þegar maður byrjar að skrifa virðist maður ekki geta hætt þar sem svo margs er að minnast á þeim tuttugu árum sem liðin eru frá því að við hittumst fyrst. Síðustu mánuðir voru mjög erf- iðir fyrir okkur öll, en þú stóðst þig best af öllum í þeirri baráttu og kvartaðir aldrei, manni fannst þeg- ar maður hitti þig að allt myndi fara á besta veg og maður myndi sjá þig leika á als oddi eins og þú varst vanur að vera. Ég kveð kæran tengdaföður minn með söknuði en með þakklæti fyrir allar liðnar stundir. Elsku Gurí mín og Kolla, megi Guð styrkja ykkur á þessum erfiðu tímum. Guð veri með þér, elsku Jói minn. Axel Gíslason. Og áin líður lygn og tær, og lindin sefur perluskær. Í dvala hníga djúpin hljóð og dreymir öll sín týndu ljóð. Í hafi speglast himinn blár. Sinn himin á hvert daggartár. Í hverju blómi sefur sál, hvert sandkorn á sitt leyndamál. Nú dreymir allt um dýrð og frið við dagsins þögla sálarhlið, og allt er kyrrt um fjöll og fjörð og friður drottins yfir jörð. (Davíð Stefánsson.) Elsku Gurrý, Kolla og fjölskylda, Mínar innilegustu samúðarkveðjur. Guð veri með ykkur. Kristín Þórsdóttir. JÓHANNES STEINÞÓRSSON Morgunblaðið birtir minningar- greinar alla útgáfudagana. Formáli Minningargreinum fylgir formáli, sem nánustu aðstand- endur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, fæddist, hvar og hvenær hann lést, um for- eldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin fer fram og klukkan hvað athöfnin hefst. Ætl- ast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feit- letraður, en ekki í minningargrein- unum. Myndir Ef mynd hefur birst í til- kynningu er hún sjálfkrafa notuð með minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd er ráðlegt að senda hana á myndamóttöku: pix@mbl.is og láta umsjónarmenn minningar- greina vita. Minningar- greinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.