Morgunblaðið - 19.08.2005, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 2005 33
FRÉTTIR
GENGIÐ verður lengra í götulok-
unum af hálfu lögreglu á Menning-
arnótt í Reykjavík á laugardag, en
gert hefur verið undanfarin ár. Lög-
reglan verður með allt að 50 lög-
reglumenn á vakt, samanborið við
25–30 menn á venjulegu helg-
arkvöldi.
Geir Jón Þórisson yfirlög-
regluþjónn sagði á blaðamannafundi
aðstandenda Menningarnætur í vik-
unni að lögreglan yrði meðvituð um
nauðsyn hugsanlegrar rýmingar í
bænum ef alvarleg atvik kæmu upp.
Undanfarin ár hafa um 100 þúsund
manns verið í miðbænum á Menn-
ingarnótt og sagði Geir Jón að í
fyrra hefði tekið eina klukkustund
og 15 mínútur að hleypa bílaumferð
út úr bænum. Að þessu sinni verður
skipulag lögreglu með svipuðu sniði
og undanfarin ár og kom ekki til tals
hjá lögreglunni á undirbúningsstigi
að vera með sérstakan viðbúnað
vegna hugsanlegra ógnana á borð
við hryðjuverk eða skemmdarverka.
Sagði Geir Jón sérstaklega að-
spurður um þessi atriði að íslenska
lögreglan væri í betri stöðu en lög-
reglulið í nágrannalöndunum hvað
þetta varðaði. Sérsveit lögreglunnar
verður þó til taks eins og hún er
vanalega en engir lögreglumenn á
vakt í miðbænum verða vopnaðir.
Tóna niður tal um fjölda gesta
Af hálfu stjórnar Menning-
arnætur, sem haldin hefur verið frá
1996, verður að þessu sinni reynt að
tóna niður allt tal um fjölda vænt-
anlegra gesta því áherslan verður
ekki lögð á að fá sem flesta, heldur á
gott og öruggt umhverfi. Ágúst
Ágústsson í stjórn Menningarnætur
sagði á fundinum að allir væru að
sjálfsögðu velkomnir þrátt fyrir
áherslubreytingar að þessu leyti.
Þess má geta að fyrsta árið sem
Menningarnótt var haldin komu 15
þúsund gestir og hefur fjöldinn því
snaraukist undanfarin ár. Slökkvilið
höfuðborgarsvæðisins verður með
sérstakan viðbúnað og mun setja
áberandi slökkviliðsbíl við Ingólfs-
stræti við Sölvhólsgötu þar sem lög-
regla verður einnig með aðstöðu fyr-
ir viðbragðslið sitt. Á Menningarnótt
verður þá starfandi aðgerðamiðstöð
lögreglu, SHS og slysa- og bráða-
vaktar Landspítalans.
Ljóst er að þessi dagur verður
strembinn í samgöngum og hefur
Strætó bs. gripið til ráðstafana til að
koma fólki til og frá miðbænum á
sem bestan máta. Þannig verður
stoppistöð fyrir fólk á heimleið í út-
hverfi staðsett við Ráðhúsið og fyrir
komufarþega á Skothúsvegi.
Hlemmur verður því ekki notaður
þennan dag. Helgaráætlun Strætó
verður í gildi og allar almennar leiðir
verða eknar til miðnættis. Stofnleið-
ir fara á 60 mín. fresti til kl. 2 eftir
miðnætti.
Notið ókeypis bílastæði
Þá hvatti Kolbrún Pálsdóttir hjá
Bílastæðasjóði ökumenn til að nýta
sér ókeypis bílastæðahús í Trað-
arkoti gegnt Þjóðleikhúsinu, Kola-
portinu og Vitatorgi. Bílastæði fyrir
fatlaða verða á stæðinu við Kaffi
Reykjavík á milli Vesturgötu og
Tryggvagötu, alls 15 sérmerkt
stæði. Árni Friðleifsson lögreglu-
varðstjóri varaði við því að reyna að
svindla sér inn á stæði fatlaðra því
lögreglan mun fjarlægja alla bíla án
sérstakra P-merkinga.
Líkt og undanfarin ár verður fjöl-
mörgum götum lokað, ekki síst í
tengslum við Reykjavíkurmaraþon-
ið. Lögreglan vekur sérstaka athygli
á lokun Eiðsgranda frá Ánanaustum
og því verður aðkoma að Seltjarn-
arnesi um Nesveg. Þá hefur verið
ákveðið að loka Hverfisgötu frá kl. 9
á laugardagsmorgun. Fríkirkjuveg-
ur, Skothúsvegur og Suðurgata að
Melatorgi verða lokaðar fyrir al-
mennri umferð.
Sérstaklega er vakin á athygli á
því að dagskrá Menningarnætur
lýkur kl. 23 á laugardagskvöld. Að
þeim tíma loknum biður lögreglan
foreldra um að skilja ekki börn sín
eftir í miðbænum. Börnum og ung-
mennum sem finnast eftirlitslaus
verður ekið heim eða foreldrar beðn-
ir að sækja þau strax.
Þá verður sérstök áhersla lögð á
að hreinsa rusl af götum og verður
ruslatunnum og stórum ruslageym-
um fjölgað í borginni. Þá mun
hreinsunarlið hefja hreinsun kl. 1
eftir miðnætti sem er mun fyrr en á
venjulegum helgardegi.
Reykjavíkurmaraþonið verður
ræst kl. 10 á laugardag en þetta er í
22. skiptið sem hlaupið er haldið.
Heitir það nú Íslandsbanka-
Reykjavíkurmaraþon. 1.200 manns
hafa skráð sig til leiks, þar af 500 út-
lendingar að sögn Frímanns Ferdin-
andssonar eins umsjónarmanns
hlaupsins. Lögð verður áhersla á að
áhorfendur geti hvatt hlaupara til
dáða með því að leika tónlist eða
framkalla hvetjandi hljóð meðfram
brautinni. Þeim til aðstoðar verða
harmonikkuleikarar, karlakórinn
Fóstbræður og fleiri.
Mannskák og kærleikur
Á þriðja hundrað atriða verða á
dagskrá Menningarnætur að sögn
Sifjar Gunnarsdóttur verkefn-
isstjóra viðburða. Meðal nýjunga má
nefna Hlutabréfamarkað kærleik-
ans, Mannskák á Útitaflinu, kjöt-
kveðjuhátíð Alþjóðahússins, opið
hús hjá Frímúrarareglunni og fleira.
Stórtónleikar Rásar 2 verða á Mið-
bakka með þátttöku Í svörtum föt-
um, KK og Magga og Todmobile að
ógleymdum leynigesti.
Hægt er að kynna sér dagskrána í
heild á vefslóðinni www.reykjavik.is.
Búist við 60–100 þúsund gestum á Menningarnótt í Reykjavík
Morgunblaðið/Kristinn
Mikið var um dýrðir á Menningarnótt í fyrra þar sem þessi mynd var tekin
og má búast við allt að 100 þúsund manns á Menningarnótt um næstu helgi.
Áhersla á gæði og
umhverfi fremur
en fjölda gesta
50 lögreglumenn við störf ásamt sérsveit í viðbragðsstöðu
NÝR stigi upp úr Tófugjá í Ás-
byrgi verður tekinn formlega í
notkun nk. föstudag. Framkvæmd-
in bætir aðstöðu allra náttúruunn-
enda, innlendra sem erlendra, á
vinsælli gönguleið milli Vesturdals
og Ásbyrgis. Áður voru margir
sem treystu sér ekki til að fara um
Tófugjá og þurftu að fara um
lengri veg í Ásbyrgi segir í til-
kynningu frá Umhverfisstofnun.
Á sama tíma verður opnuð ný og
gjörbreytt snyrtiaðstaða fyrir
ferðamenn við Dettifoss að austan.
Um er að ræða vatnssalerni sem
kemur í stað þurrsalernis sem hef-
ur staðið ferðamönnum til boða í
nokkur ár. Um verulega fram-
kvæmd er að ræða þar sem bora
þurfti sérstaklega fyrir vatni til að
geta boðið gestum þjóðgarðsins
upp á viðunandi hreinlætisaðstöðu
á þessum vinsæla ferðamannastað.
Höskuldur Jónsson, fráfarandi
forstjóri ÁTVR, mun formlega
opna snyrtiaðstöðuna við Dettifoss
kl. 10.30. Þremur tímum síðar
verður gengið frá Vesturdal í Ás-
byrgi og farið niður stigann í Tó-
fugjá.
Umhverfisstofnun vill þakka
Höskuldi sérstaklega samstarfið á
liðnum árum, en hann hefur beitt
sér af mikilli elju fyrir að fjár-
munir hafi fengist til að bæta að-
stöðu í þjóðgörðum og á friðlýstum
svæðum, segir í tilkynningu Um-
hverfisstofnunar.
Bætt aðstaða
fyrir ferðamenn
við Dettifoss
SIÐMENNT, félag siðrænna
húmanista á Íslandi, sendi alþing-
ismönnum bréf fyrir skömmu, þar
sem farið er á leit við þingmenn-
ina að þeir breyti lögum um
skráningu trúfélaga í þá veru að
staða ólíkra lífsskoðana verði jöfn-
uð.
Siðmennt hefur í tvígang á síð-
astliðnum fjórum árum sótt um að
vera skráð sem trúfélag, en verið
hafnað. Félagið telur ójafnræði
fólgið í núgildandi lögum og segir
í bréfinu: „Þó að Siðmennt sé lífs-
skoðunarfélag en ekki trúfélag í
hefðbundinni skilgreiningu þess-
ara orða þá hefur stjórn Sið-
menntar talið á það reynandi að
félagið verði skráð sem trúfélag,
enda hlýtur að felast mikið órétt-
læti í núverandi fyrirkomulagi.“
Máli sínu til stuðnings vísar
Siðmennt til lögfræðiálits sem
Oddný Mjöll Arnardóttir hdl.
gerði fyrir félagið, en þar segir
m.a: „Það er niðurstaða undirrit-
aðrar að í ljósi framangreinds séu
Siðmennt og „eiginleg trúfélög“ í
sambærilegri aðstöðu og eigi því
lagalega kröfu til þess að njóta
sambærilegrar meðferðar.“
Þá vísar Siðmennt til laga ann-
arra Evrópuríkja þar sem ekki er
gerður greinarmunur á lífsskoð-
unum sem byggjast á trú og þeim
sem byggjast á heimspekigildum.
Og bendir Siðmennt sérstaklega á
Noreg sem fyrirmynd í þessum
efnum.
Félagið Siðmennt óskar eftir
að verða skráð sem trúfélag