Morgunblaðið - 19.08.2005, Blaðsíða 34
34 FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Atvinnuauglýsingar
Rafvirki eða nemi
Óskum eftir rafvirkja eða nema til heimilistækja-
viðgerða og raflagna.
Upplýsingar í síma 864 9345 eftir kl. 17.00.
Upplýsingar
veittar í símum
483 4694 og
893 4694
eftir kl. 14.00.
í Hveragerði
Auglýsingastjóri
Þekkt hönnunartímarit óskar að ráða auglýs-
ingstjóra sem fyrst í um hálfs dags starf við
sölu á auglýsingum o.þ.h. Frumkvæði, tölvu-
kunnátta og yfirráð yfir bíl nauðsynleg.
Upplýsingar í síma 561 6577.
„Amma óskast“
Fjölskylda í Grafarvogi leitar að barngóðri konu
(ömmu) til að passa stúlku á fyrsta ári og taka
á móti 8 ára dreng þegar hann kemur heim
úr skólanum. Vinnutími frá 8.00 til 16.00. Góð
aðstaða. Svör merkt: „Barnagæsla — 17550“
sendist til augldeildar Mbl. eða á box@mbl.is.
Raðauglýsingar 569 1100
Styrkir
Starfslaun listamanna
Hér með eru auglýst til umsóknar starfslaun
listamanna sem úthlutað verður árið 2006, í
samræmi við ákvæði laga nr. 35/1991 með
áorðnum breytingum.
Starfslaunin eru veitt úr fjórum sjóðum, þ.e.:
1. Launasjóði rithöfunda.
2. Launasjóði myndlistarmanna.
3. Tónskáldasjóði.
4. Listasjóði.
Umsóknir einstaklinga, ásamt fylgigögnum,
skulu berast skrifstofu Stjórnar listamanna-
launa, Hallveigarstöðum, Túngötu 14, 101
Reykjavík, á þar til gerðum eyðublöðum fyrir
kl. 16:00 miðvikudaginn 19. október 2005. Ef
umsókn er send í pósti gildir póststimpill. Um-
sóknir skulu auðkenndar „Starfslaun lista-
manna 2006“ og tilgreindur sá sjóður sem sótt
er um laun til.
Heimilt er að veita starfslaun úr Listasjóði til
stuðnings leikhópum enda verði þeim varið
til greiðslu starfslauna til einstakra leikhúslista-
manna.
Umsóknir leikhópa til Listasjóðs fyrir einstaka
leikhúslistamenn, ásamt fylgigögnum, skulu
berast skrifstofu Stjórnar listamannalauna,
Hallveigarstöðum, Túngötu 14, 101 Reykjavík,
á þar til gerðum eyðublöðum fyrir kl. 16.00
miðvikudaginn 19. október 2005. Ef umsókn
er send í pósti gildir póststimpill. Umsóknir
skulu auðkenndar „Starfslaun listamanna 2006
- leikhópar“.
Með umsókn skulu fylgja upplýsingar um
náms- og starfsferil, verðlaun og viðurkenning-
ar. Jafnframt skal fylgja greinargerð um verk-
efni það sem liggur til grundvallar umsókninni
ásamt upplýsingum um hve langan starfstíma
er sótt um og rökstuðningi fyrir tímalengd.
Þessir þættir skulu að jafnaði liggja til grund-
vallar ákvörðun um úthlutun starfslauna.
Athugið að hafi umsækjandi áður hlotið starfs-
laun verður umsókn hans því aðeins tekin til
umfjöllunar að hann hafi skilað Stjórn lista-
mannalauna skýrslu um störf sín í samræmi
við ákvæði 4. gr. laga um listamannalaun nr.
35/1991 með áorðnum breytingum.
Umsóknareyðublöð fást á vef Stjórnar lista-
mannalauna www.listamannalaun.is og á skrif-
stofu stjórnarinnar að Hallveigarstöðum, Tún-
götu 14, 2. hæð.
Umsóknarfrestur rennur út miðvikudaginn
19. október nk.
Stjórn listamannalauna,
19. ágúst 2005.
Tilkynningar
Mosfellsbær
Breyting
á aðalskipulagi Mosfells-
bæjar 2002-2024, vegna
stækkunar á athafnasvæði
á Tungumelum
Á fundi bæjarráðs þann 11. ágúst sl. var
samþykkt kynning á tillögu að breytingu á
aðalskipulagi Mosfellsbæjar 2002-2024, í
samræmi við 1. mgr. 21. gr. skipulags- og
byggingarlaga.
Skipulagssvæðið afmarkast af Vestulands-
vegi, Leirvogsá og Köldukvísl. Breytingin
felst í stækkun athafnasvæðis til norðurs í
átt að Leirvogsá og til austurs í átt að Helga-
felli. Stígar færast til. Auk þess er gert ráð
fyrir að mislæg gatnamót komi á Vestur-
landsveg.
Deiliskipulag athafna-
svæðis á Tungumelum
Á fundi bæjarráðs þann 11. ágúst sl. var
samþykkt kynning á tillögu að deilskipulagi
athafnasvæðis á Tungumelum í samræmi
við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga.
Skipulagssvæðið afmarkast af Vesturlands-
vegi til vesturs og Leirvogsá til norð-
urs. Svæðinu verður skipt í 22 athafnalóðir.
Nýtingarhlutfall á lóðum verður 0,3-0,5.
Tillögurnar ásamt greinargerð verða til sýnis í
Þjónustuveri Mosfellsbæjar, Þverholti 2,
fyrstu hæð, frá 19. ágúst til 17. sept. Jafn-
framt verður hægt að sjá tillögurnar á heima-
síðu Mosfellsbæjar, www.mos.is undir:
Framkvæmdir/deiliskipulag.
Athugasemdir, ef einhverjar eru, skulu hafa
borist skriflega til skipulags- og byggingar-
nefndar Mosfellsbæjar fyrir 1. okt. nk.
Þeir sem ekki gera athugsemdir innan til-
skilins frests teljast samþykkir tilögunum.
Bæjarverkfræðingurinn í Mosfellsbæ.
Ýmislegt
Fylgja Kárahnjúka:
Stórvirkjun, sértæk aðgerð æðstu stjórnvalda,
tengd almenningsveitu, til orkuöflunar fyrir ál-
ver Alcoa. Valdhafarnir sáu um heildarskipulag,
létu afla rannsóknaniðurstaða, sem breytt var,
leyndu arðsemisforsendum allt umhverfismats-
ferlið, sýndu engin sjálfstæð lagaálit, höfðu yfir-
stjórn eftirlits og fólu meintum vanhæfum emb-
ættismönnun að úrskurða, (2 ráðherrar og
skipulagstjóri). Þá fylgdu sérlög fyrir álverið
um tolla, skatta og úrskurði og stjórnvaldsíviln-
un um mengun. Strax á teikniborðinu náði virkj-
unin heimsathygli fyrir náttúruspjöll og hún
stefnir í að verða risavaxinn minnisvarði um
stjórnarhætti leyndar og meintra lögbrota.
Tómas Gunnarsson, áhugamaður um opinbera stjórnarhætti.
FRÉTTIR
FERÐAFÉLAG Fjarðamanna er að
taka við skráningum í göngu á kon-
ung íslenskra fjalla, Snæfell. Það er
1.833 metrar að hæð, hæsta fjall ut-
an jökla á Íslandi og þaðan stór-
kostlegt útsýni í björtu veðri. Geng-
ið verður frá Snæfellsskála og er
gangan talin miðlungslétt og um
6–7 klst. löng. Katrín Gísladóttir
tekur við skráningum í símum 471
2443 og 895 5454. Þá er fyrirhuguð
á vegum ferðafélagsins helgi á
Karlsstöðum í Vöðlavík í byrjun
september. Ganga á frá Vöðlum í
Gerpisdal og yfir að Sandvík-
urvatni í Sandvík annan daginn, en
hinn verður farið upp með Kirkju-
bólsá að Víkurvatni og þaðan í
Karlsskálaskarð. Nánari upplýs-
ingar um Ferðafélag Fjarðamanna
má finna á vefnum www.simnet.is/
ffau/.
Ljósmynd/Arnaldur Halldórsson
Gnæfir yfir öræfin Snæfell blasir við ofan við Eyjabakkafoss.
Ganga á Snæfell
Eyþór rangfeðraður
Í FRÉTT Morgunblaðsins í gær
um leit Péturs Péturssonar þular að
veggspjaldi bandaríska hersins var
Eyþór Gunnarsson ranglega nefnd-
ur Eyþór Guðjónsson. Morgunblaðið
biðst velvirðingar á þessum mistök-
um.
Netfang
Guðríðar Öddu
Í GREIN um atferlisgreiningu og
kennsluráðgjöf Guðríðar Öddu
Ragnarsdóttur í blaðauka Morgun-
blaðsins um menntun á fimmtudag
birtist rangt netfang.
Rétt netfang er adda@ismennt.is.
Viðkomandi er beðinn velvirðingar á
þessu.
Þekkingarmiðlun
Í GREIN um starfsemi Þekking-
armiðlunar í blaðauka Morgunblaðs-
ins um menntun á fimmtudag var
nafn fyrirtækisins á einum stað ritað
rangt og er beðist velvirðingar á því.
Ingibjörg utan
kvóta 2002
VEGNA greinar í blaðinu á mið-
vikudag um sögu R-listans skal það
leiðrétt að fyrir kosningarnar 2002
var Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
ekki innan kvóta Samfylkingarinnar
heldur utan kvóta í 8. sæti sem borg-
arstjóri. Hver flokkur hafði tvö sæti
upp að 7. sæti, sem Dagur B. Egg-
ertsson sat í sem óháður. Leiðréttist
þetta hér með.
LEIÐRÉTT
Starfsmenntunarsjóður
Bandalags kvenna í Reykjavík
verður með opið hús á Hallveig-
arstöðum, Túngötu 14, laugar-
daginn 20. ágúst, í tilefni Menn-
ingarnætur. Þar verður boðið
upp á þjóðlegar veitingar frá kl.
14 og fram eftir degi og leikin
harmonikkutónlist.
Jafnframt verður kynning á
starfsemi sjóðsins, en megin-
markmið hans, er að styrkja
þær stúlkur til framhaldsnáms,
sem ekki eiga kost á námslán-
um, eða búa við erfiðar aðstæð-
ur.
Ágóði af veitingasölunni
rennur óskiptur til sjóðsins.
Opið hús
og kaffi-
sala á Hall-
veigar-
stöðum
KENÝSKIR dagar hefjast í Kaffi-
tári í dag, föstudag.
Afrísk stemmning verður alla dag-
ana og boðið verður upp á ýmislegt
til að endurskapa kenýskan anda,
bæði leikin þarlend tónlist og fram-
reitt kenýskt kaffi og matur. Einnig
verður boðið upp á smökkun á þrem-
ur tegundum af Kenýakaffi frá mis-
munandi búgörðum.
Formleg opnun verður í Kaffitári í
Bankastræti, í dag kl. 18–20.
Kenýadagar í Kaffitári