Morgunblaðið - 19.08.2005, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 19.08.2005, Blaðsíða 36
Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn HVAÐ ÆTLI MAMMA SÉ AÐ BJÁSTRA LANGAR ÞIG EKKI AÐ VERÐA EINS OG HANN PABBI ÞINN, ÞEGAR ÞÚ VERÐUR STÓR? ÞEIR GETA EKKI REKIÐ KENNARANN MINN! ÉG SKRIFA MÓTMÆLA- BRÉF. ÉG MUN SVIPTA HULUNNI AF ÞESSU SAMSÆRI ÉG SKRIFA BRÉF TIL EIN- HVERS VALDAMANNS. ÉG SKRIFA TIL EINHVERS SEM GETUR GERT EITTHVAÐ HVERNIG FER ÉG AÐ ÞVÍ AÐ SETJA MIG Í SAMBAND VIÐ PÁL PÓSTULA? SJÁÐU, MEXÍKANAHATTUR NÚ ER ÉG SVALUR ÞAÐ ER EKKERT SVALT VIÐ AÐ VERA MEÐ MEXÍKANAHATT. HVERNIG DETTUR ÞÉR ÞESSI VITLEYSA Í HUG? HVÍ AÐ VERA SVALUR EF MAÐUR MÁ EKKI VERA MEÐ HATT ÉG ER ORÐINN VANUR ÞVÍ AÐ SÖLUMENN TRUFLI OKKUR Á MATMÁLSTÍMA... ... EN ÞESSI VILL FÁ MAT VOFF! ANDFÝLA ER ÁHRIFAMEIRI EN BIT MÉR FINNST ÞAÐ, EN... ... ÞAÐ ER PIRRANDI AÐ STÍGA Á ÞAÐÉG ER ORÐIN VIRKILEGALEIÐ Á MATZO ÉG HÉLT AÐ ÞÉR ÞÆTTI ÞAÐ GOTT HVAÐ KOM FYRIR? EF ÉG HEFÐI FENGIÐ AÐ RÁÐA... ... ÞÁ VÆRIR ÞÚ DAUÐUR! HVER? ÉG ER KALLAÐUR PUNISHER Dagbók Í dag er föstudagur 19. ágúst, 231. dagur ársins 2005 Gestir á Árbæj-arsafni sögðu far- ir sínar ekki sléttar eftir að hafa pantað sér kaffi og meðlæti á kaffihúsi safnsins í Dillonshúsi. Fyrst var setzt niður og beðið eftir að tekin væri niður pöntun. Stúlka, sem gekk um beina, sagðist þurfa að bregða sér úr húsi til að sækja köku. Sú sendiferð tók harla langan tíma og á með- an var engin pöntun tekin. Þegar stúlkan sneri aftur og hafði tekið niður pöntun hjá kaffiþyrstum gestum tók við önnur bið. Sumir fengu reyndar kökurnar sínar eftir drykklanga stund en síðasti gesturinn (þeir voru fjórir saman í hóp og ekki mannmargt á kaffihúsinu) varð enn að bíða eftir samlokunni sinni. Þeg- ar hann spurði hvað henni liði, fékk hann þau svör að það væri nú bara heilmikið mál að grilla samloku og tæki ekki stuttan tíma. Auk þess væru þær bara tvær að vinna þarna á kaffihúsinu og ekki hægt að ætl- ast til að þær kæmust yfir meira. Gestunum, sem sögðu Víkverja sögu sína, varð að orði að betra væri að hafa ekkert kaffihús í Árbæj- arsafni en að bjóða upp á svona seina og lélega þjónustu. Að minnsta kosti ættu þeir, sem hygðust fá sér hressingu í Dill- onshúsi, að hafa tím- ann fyrir sér og meira en næga bið- lund. x x x Hugmyndirnar umkaffihús í Hljóm- skálagarðinum eru skemmtilegar. Víða erlendis eru kaffihús í skemmti- görðum, þar sem gaman er að sitja og börnin geta leikið sér á meðan þeir fullorðnu sitja og spjalla. Nú þegar eru að minnsta kosti tvö kaffihús í almenningsgörðum í Reykjavík. Annars vegar er það Café Flóran í Grasagarðinum í Laugardal, hins vegar kaffistofan á Kjarvalsstöðum á Klambratúni. Síð- arnefnda kaffihúsið er gestum Klambratúns reyndar ekki sérlega aðgengilegt; sjaldan er sá möguleiki notaður að hafa opið út í garðinn og það þarf að borga sig inn á safnið til að nýta sér kaffihúsið. Þar mætti gera bragarbót á. Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is        Tangó | Í Norræna húsinu í kvöld munu Kristín Bjarnadóttir ljóðskáld og Carlos Quilici bandoneon-harmonikkuleikari flytja tangódagskrá sem ber yf- irskriftina „Ég halla mér að þér og flýg“. Carlos á rætur sínar að rekja til Rosario í Argentínu, fæðingarlands tangósins. Hann leikur klassísk og frum- samin lög en Kristín lýsir heimi tangófólksins í ljóðrænum textum. Kynntir eru mismunandi stílar, allt frá Arolas og Troilo til Piazzolla. Textar Kristínar eru afrakstur pílagrímsfarar hennar til Buenos Aires en hún er nú búsett í Svíþjóð. Flutningur hefst kl. 21 og fá börn, námsmenn og aldraðir afslátt. Tangóþorsti MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug- lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.600 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Vakna þú, sál mín, vakna þú harpa og gígja, ég vil vekja morgunroð- ann. (Sálm. 57, 9.)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.