Morgunblaðið - 19.08.2005, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 2005 37
DAGBÓK
Hingað til lands er kominn Dr. Huss-ein Shehadeh sem heldur á morgunfyrirlesturinn arabar og Vesturlönd– misskilningur á báða bóga. Hann
fer fram í Borgarbókasafni Reykjavíkur í
Tryggvagötu og hefst kl. 15.
„Miðausturlönd og arabaheimurinn eru ná-
grannar Vesturlanda og í gegnum tíðina hefur
verið ástar- og haturssamband þarna á milli.
Þetta mun ég ræða, sem og til dæmis þá mynd
sem arabar hafa af Vesturlandabúum og öf-
ugt,“ segir Dr. Shehadeh.
– Þú talar um misskilning þarna á milli –
hvað áttu við með því?
„Vesturlönd og arabaheimurinn eru ólík á
marga vegu. Í löndum araba er frelsi ein-
staklingsins til dæmis ekki eins í hávegum haft
og á Vesturlöndum og þar er örlagatrú jafnan
ríkjandi. Einn meginmunurinn er náttúrlega að
arabaheimurinn er undir áhrifum frá íslam. Við
getum ekki horft framhjá því,“ segir Dr.
Shehadeh en bætir við að honum sé þó illa við
að alhæfa um íslam og araba. Hvað sem því líði
hafi trúarbrögðin áhrif á arabaheiminn, dag-
legt líf og samskipti fólks við umheiminn, sér-
staklega Vesturlönd. Hann bendir á að á sama
hátt sé hinn vestræni heimur undir kristnum
áhrifum.
„Gerirðu nokkuð slæmt í löndum araba kall-
arðu skömm yfir fjölskylduna en á Vest-
urlöndum ákvarða lög og lagabálkar miklu
frekar hegðun og ýmislegt. Munur er á því
hvernig litið er á hina og þessa hegðun og því
hvaða mynd fólk hefur af henni,“ segir hann.
„Ég mun í máli mínu ekki fara mjög langt
frá kenningum fræðimannsins Samúels Hunt-
ingtons sem talaði um árekstur menningar-
heima. Það sem Huntington spáði er í raun að
gerast. Á vissan hátt má segja að þriðja heims-
styrjöldin eigi sér stað núna en hún hafi marg-
ar birtingarmyndir.“
– Þú telur þá að misskilningurinn sé að
aukast?
„Já. Hnattvæðing verður sífellt meiri og æsi-
fréttamennska sömuleiðis. Ég held þó að þetta
muni ná endimörkum sínum, þótt það taki auð-
vitað tíma. Þetta er ferli. Með hnattvæðingunni
verður heimsbyggðin nefnilega smám saman
minna trúuð. Að mínu viti er misskilningur á
báða bóga hins vegar í hámarki um þessar
mundir,“ segir hann.
Jafnframt því að ræða málin mun Dr. Sheha-
deh sýna ljósmyndir sem hann tók í Óman.
Fyrirlesturinn verður haldinn á ensku og túlk-
að verður fyrir heyrnarlausa. Eftir fyrirlest-
urinn geta áheyrendur komið með fyrirspurnir.
Aðgangur er ókeypis.
Fyrirlestur | Fyrirlestur á Menningarnótt um misskilning á milli araba og Vesturlanda
Þriðja heimsstyrjöldin háð í dag
Dr. Hussein Sheha-
deh er fæddur í Jerú-
salem en hefur búið í
Danmörku mestallt sitt
líf. Hann er með dokt-
orspróf í kvikmynda-
fræðum og starfar sem
blaðamaður, fyrirlesari
og kennari. Dr. Sheha-
deh hefur haldið fjölda
fyrirlestra um menn-
ingu og daglegt líf
araba og er einn þeirra sem gjarnan er leitað
álits hjá í dönskum fjölmiðlum þegar fjallað er
um atburði í arabaheiminum. Hann hefur unn-
ið sem ráðgjafi hjá dönsku utanríkissþjónust-
unni um arabísk málefni.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
70 ÁRA afmæli. Í tilefni af 70 áraafmæli Jónu Þorvaldsdóttur,
Spóahöfða 18, Mosfellsbæ, 23. júlí sl.
mun hún taka á móti ættingjum og vin-
um laugardaginn 20. ágúst kl. 17 í Kiw-
anishúsinu við Vesturlandsveg.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Góð og vond þjónusta
ÉG get ekki látið hjá líða að hæla af-
greiðslunni í prjónadeildinni í Hag-
kaupum, Skeifunni. Þar er kona á
miðjum aldri sem virkilega veit hvað
hún er að tala um og fyrir utan það
að hjálpa manni að finna það sem
mann vantar gefur hún manni góð
ráð og leiðbeiningar.
Fyrst ég er nú farin að skrifa ætla
ég ekki að mæla með þjónustunni hjá
DHL. Ég ætla nú ekki að rekja alla
söguna en hún var í stórum dráttum
á þá leið að ég þurfti að fá til landsins
frá Barcelona hliðartösku sem var
stolið af mér en fannst svo með öllu
nema peningaseðlum. Vil ég í leiðinni
vara fólk við þjófum erlendis. Eftir
10 daga var taskan ekki komin og ég
fór að orða við þá hvort ég fengi nú
ekki afslátt þegar og ef taskan kæmi
því þetta væri engin hraðþjónusta
lengur. Ekki að tala um. Átti að
kosta mig 10–11 þús. Öll afgreiðslan
hjá þessu fyrirtæki var með eindæm-
um og m.a. borið fyrir sig að erfitt
væri að ná sambandi við nokkurn
mann á Spáni því þeir væru að taka
„siestu“ um miðjan daginn og eitt-
hvert svona bull.
Þegar ég svo sagðist ætla að snúa
mér annað var svarið allt í lagi en þú
verður þá að hringja til Spánar og
segja þeim það – sem ég gerði. Ég
sneri mér til TNT. Fékk töskuna
með það sama og borgaði tæplega
helming af þessari upphæð.
Annað var ég óhress með og það
var þjónusta hjá Ormsson. Þegar ég
hringdi út af bilun í þvottavél og
spurði hvort ég gæti eitthvað reynt
að gera sjálf var mér neitað og sagt
að þeir myndu senda mann. Hann
losaði einhvern tappa sem hæglega
hefði verið hægt að segja mér í gegn-
um síma en þarna mátti ég punga út
um 6.000 kr. og blessaður maðurinn
gaf í skyn að þetta með tappann bara
vissu allir en það eru ekki allir jafn-
tæknilegir í sér!
Margrét S. Pálsdóttir.
Leiðakerfi strætós
ÉG vil láta í ljós óánægju með breyt-
ingu á leiðakerfi strætisvagna. Á
Kleppsvegi hafa verið lagðar niður
fimm biðstöðvar frá Skjóli að Holta-
vegi.
Í staðinn fáum við tvær bið-
stöðvar, aðra við Sæbraut austan
Holtavegar og hina við Sæbraut
vestan Holtavegar.
Ef ég ætla niður í bæ þarf ég að
fara yfir þrjár akbrautir, þ.e.
Kleppsveg og tvær akreinar á Sæ-
braut sem er hraðbraut. Fari ég upp
í Mjódd þarf ég líka að fara yfir þrjár
akreinar á Kleppsvegi og tvær á
Holtavegi. Þarna eru krossgötur og
mikil umferð á álagstímum. Ég kvíði
því þegar fer að snjóa og hálka
myndast. Ásgeir Eiríksson, ég tek
tek mér bessaleyfi og sendi þér
kveðju guðs og mína og bið þig að
láta leið 12 koma inn á Kleppsveginn
eins og leið 4 gerði áður.
Með vinsemd,
Tryggvina Steinsdóttir,
Kleppsvegi 134, Rvík.
Köttur í óskilum
ÞESSI fallegi og mannelski ung-
lingsfress dúkkaði upp á Umferð-
armiðstöðinni (BSÍ) mánudaginn 15.
ágúst sl. Þegar hann mætti svo aftur
daginn eftir þótti nokkuð ljóst að
hann hefði orðið viðskila við sína
nánustu.Upplýsingar gefur Hannes í
síma 591 1022.
HM ungmenna.
Norður
♠1083
♥D875 A/Enginn
♦KDG942
♣--
Vestur Austur
♠654 ♠DG92
♥9 ♥G1043
♦86 ♦Á3
♣G1098652 ♣ÁD4
Suður
♠ÁK7
♥ÁK62
♦1075
♣K73
Bandaríkjamenn eru heimsmeistarar
ungmenna (25 ára og yngri), en þeir
unnu Pólverja í æsispennandi úrslita-
leik, sem lauk á miðvikudaginn. Staðan
var jöfn upp á IMPa eftir 96 spil (194-
194) og var þá framlengt um 8 spil. Pól-
verjar höfðu haft yfirhöndina allan leik-
inn og það var fyrst í framlengingunni
sem Bandaríkjamenn komust yfir.
Sigurliðið er þannig skipað: Joe
Grue, John Kranyak, Joel Wooldridge,
John Hurd, Ari Greenberg og Justin
Lall.
Í pólska liðinu spiluðu: Konrad Aras-
kiewicz, Krzysztof Buras, Jacek Kalita,
Krzysztof Kotorowicz, Piotr Madry og
Wojciech Strzemecki. (Pólsku nöfnin
eru ekki sérlega þjál fyrir z-lausa þjóð,
en það er eins gott að venjast þeim
strax, því þetta eru menn framtíð-
arinnar.)
Spilið að ofan kom upp í síðustu lot-
unni. Á öðru borðinu spiluðu Pólverjar
þrjú grönd í NS og fengu 11 slagi (460)
eftir útspil í spaða. Það lítur út fyrir að
vera góður árangur, því slemma vinnst
varla í NS eins og hjartað liggur.
En Joe Grue er engum líkur:
Vestur Norður Austur Suður
Araskiewicz Kranyak Buras Grue
-- -- 1 lauf Dobl
2 lauf 3 lauf * Dobl 4 hjörtu
Pass 5 lauf * Pass 6 hjörtu
Pass Pass Pass
Vestur kom út með tígul, sem austur
tók með ás og skipti yfir í spaða. Grue
drap og spilaði litlu hjarta á drottningu
blinds. Fall níunnar í vestur segir ekki
mikla sögu, því hann gæti hæglega hafa
byrjað með 109 eða G9 tvíspil.
En Grue hefur augljóslega næma
borðtilfinningu, því hann spilaði næst
hjartaáttu og lét hana fara hringinn!
Eftirleikurinn var auðveldur: hjarta á
ás, lauf trompað og spaði heim til að
taka síðasta tromp austurs.
Tólf slagir, 980, og 11 IMPar til
Bandaríkjamanna.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
Hlutavelta | Þær
María Rún Björg-
vinsdóttir, Hanna
Rakel Th. Barker
og Sigga Ruth Th.
Barker héldu tom-
bólu og söfnuðu
6.000 kr. til styrkt-
ar Rauða krossi Ís-
lands.
Brúðkaup | 16. júlí sl. voru gefin sam-
an í Garðakirkju Sólveig Sigurð-
ardóttir og Jóhann Þór Hansen.
Prestur var sr. Þórhallur Heimisson.
Cranberry
juice
Tilboð kr. 139