Morgunblaðið - 19.08.2005, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 19.08.2005, Qupperneq 40
40 FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ MENNING www.kringlukrain.is sími 568 0878 Geirmundur Valtýsson og hljómsveit í kvöld 9. sýn. sun. 21/8 kl. 14 nokkur sæti laus 10. sýn. sun. 28/8 kl. 16 sæti laus 11. sýn. fim. 1/9 kl. 19 sæti laus Kabarett í Íslensku óperunni Næstu sýningar Föstudaginn 19. ágúst - UPPSELT Laugardaginn 20. ágúst kl. 20.00 Föstudaginn 26. ágúst kl. 20.00 Laugardaginn 27. ágúst kl. 20.00 Sunnudaginn 28. ágúst - Örfá sæti laus Miðar í síma 511 4200, og á www.kabarett.is Leikhópurinn Á senunni í samstarfi við SPRON “Söngur Þórunnar er í einu orði sagt stórfenglegur...” SH, Mbl. KIRKJULISTAHÁTÍÐ 2005 20.–28. ÁGÚST Hallgrímskirkju í Reykjavík Matteusarpassían eftir Johann Sebastian Bach, BWV 244 Flytjendur: Markus Brutscher tenór, guðspjallamaður Andreas Schmidt bassi, Jesús Noémi Kiss sópran Robin Blaze kontratenór Gunnar Guðbjörnsson tenór Jochen Kupfer bassi Benedikt Ingólfsson bassi, Pílatus o.fl. Mótettukór Hallgrímskirkju Drengjakór Reykjavíkur, Hallgrímskirkju Unglingakór Hallgrímskirkju Alþjóðlega barokksveitin í Den Haag Stjórnandi: Hörður Áskelsson Miðaverð: 4000 kr. 21. ágúst kl.17.00 22. ágúst kl.19.00 fyrir tvo kóra, drengjakór, tvær hljómsveitir og sjö einsöngvara.Eitt af höfuðverkum vestrænnar menningar flutt í fyrsta skipti í barokkstíl hér á landi, með einsöngvurum í fremstu röð. Nánari upplýsingar á www. kirkjan.is/kirkjulistahatid og í síma 510 1000 Öll list sprettur úr jarðvegiog því ekki hér í Hljóm-skálagarðinum?“ segirEinar Hákonarson list- málari við mig þar sem við stöndum í miðjum „sýningarsalnum“ og virðum fyrir okkur málverk hans. Höfum gras undir iljum. Hvítan tjaldhimin yfir höfði. Þessi krossfari íslenska málverksins er bersýnilega ekki af baki dottinn þótt oft hafi ver- ið við ramman reip að draga. Eða eins og hann orðar það: „Enda þótt einhverjir listfræðingar traðki á list- inni sprettur hún alltaf upp aftur – listin er þannig í eðli sínu.“ Einar opnar sýninguna „Í grasrót- inni“ í risatjaldi í Hljómskálagarð- inum í kvöld kl. 20. Ætli þetta sé ekki í fyrsta sinn sem málverkasýn- ing er haldin í tjaldi hér á landi. Í það minnsta af þessari stærðargráðu. En hvers vegna að tjalda yfir listina? „Það vita það allir sem vilja vita að síðastliðin fimmtán til sautján ár hefur verið rekin hér á Íslandi mjög þröng sýningarstefna í opinberum sölum með þeim afleiðingum að margir þjóðþekktir málarar hafa ekki fengið þar inni,“ segir Einar. „Sumir hafa kosið að láta ekki nið- urlægja sig með synjun og þar af leiðandi ekki sótt um en ég hef látið reyna á þetta í tvígang frá því í nóv- ember. Sótti um annaðhvort Kjar- valsstaði eða Hafnarhúsið með treg- um svörum. Á endanum fékk ég þó höfnun. Ég tilgreindi haustið 2005 sem heppilegan tíma – eða síðar. Haustið kom greinilega ekki til álita og menn kusu að líta ekki á þetta „síðar“ sem valkost.“ Að dómi Einars er þetta hreinn og klár „menningarfasismi“. „Það er sorglegt að ein stefna skuli ráða svona ríkjum, hugmyndalistin. Menn virðast ekki skilja að þetta er bara stefna, ein af mörgum í listinni, sem er aukinheldur að renna sitt skeið alls staðar nema hér. Annars hef ég aldrei skilið þetta hugtak „hug- myndalist“. Byggist þetta ekki á hugmyndum líka?“ spyr hann og horfir í kringum sig á málverkin. „En það er önnur saga.“ Heilaþvottavél Listaháskólans Að áliti Einars er ábyrgð Listahá- skóla Íslands mikil. „Unga fólkið kemur inn í skólann í góðri trú en er umsvifalaust sett í eins konar heila- þvottavél og allir koma eins út. Það er búið að ryðja út af borðinu öllum hefðbundnum aðferðum í málaralist og unga fólkið þorir ekki að rísa upp gegn þessu. Og lái því hver sem vill. Það er ekkert grín fyrir ungan lista- mann að lenda upp á kant við ríkjandi öfl í listheiminum.“ Tilefni þess að Einar sótti um sal fyrir umfangsmikla sýningu nú er tvíþætt, annars vegar sextugsafmæli hans fyrr á þessu ári og hins vegar sú staðreynd að hann hefur staðið í fjörutíu ár í eldlínunni með pent- skúfinn. „Þetta er eins konar ald- arafmæli þegar maður hugsar út í það,“ segir hann og skellir upp úr. Þegar Listasafn Reykjavíkur hafnaði Einari fór hann að velta öðr- um möguleikum fyrir sér. „Mig lang- aði að halda upp á þennan áfanga og fór að velta málinu fyrir mér. Þá mundi ég eftir því að Svavar Guðna- son og félagar hans höfðu einhvern tíma, líklega á stríðsárunum, haldið sýningu í tjaldi í Danmörku þegar þeir fengu ekki inni í hinum betri sölum. Og ég hugsaði með mér: Hvers vegna ekki? Fyrst sótti ég raunar um Austurvöll, þar sem gamli Listamannaskálinn var, en fljótt kom í ljós að hann var of lítill, auk þess sem Ragnar Axelsson ljós- myndari er þar með sýningu í sum- ar. Þá stakk ég upp á Hljóm- skálagarðinum og hér eru þessi tjöld komin upp.“ Málverkið er bein tjáning Yfirskrift sýningarinnar, „Í gras- rótinni“, hefur tvenns konar merk- ingu, andlega og áþreifanlega. „Ann- ars vegar erum við í grasrótinni, í bókstaflegri merkingu,“ segir Einar hlæjandi og strýkur flötina inni í tjaldinu. „Hins vegar má segja að ég sé að fara aftur í grasrótina í and- legum skilningi. Það er nefnilega staðföst trú mín að málverkið sé alls- staðar í sókn, má þar nefna sýn- ingaröðina „Triumph of the Paint- ing“, eða „Sigur málverksins“ sem notið hefur mikillar hylli í London. Það er heldur ekki skrýtið þar sem þessi miðill passar mannskepnunni svo vel. Málverkið er bein tjáning og engin leið að fela einhverja vankunn- áttu í því.“ Þar að auki er það markmið Ein- ars – sem endranær – að mynda tengsl við hinn almenna borgara. „Málaralistin er vel til þess fallin. Ég veit að margir hafa á tilfinningunni þegar þeir skoða hugmyndalist að verið sé að gera grín að sér. Sjálfur held ég að á þeim vettvangi séu lista- menn að gera þetta hver fyrir annan – þetta komi almenningi ekkert við. Þess vegna er þessi sýning mín öðr- um þræði tilraun til að færa listina nær almenningi á ný. Þetta er end- urreisn málverksins – einu sinni enn!“ Einar er þess sinnis að lifa beri líf- inu meðan kraftar og heilsa duga. „Það sem maður gerir endurspeglar mann sjálfan. Málverkið er mín köll- un í þessari tilveru og ég hef mína sannfæringu. Það sem ég hef ekki lagt á mig fyrir þetta, maður. Reist heilan listaskála og misst hann. En þótt það blási á móti þýðir ekkert að gefast upp.“ Eins og að ganga um í miðaldasafni Tjaldið í Hljómskálagarðinum er 540 fermetrar að stærð og á sýning- unni verða upp undir eitt hundrað verk, flest máluð á síðustu tveimur árum. Einar skiptir sýningunni í fernt: Trúarstef, portrett, áhrif frá landslagi og myndir frá Prag. Hann staldrar sérstaklega við síðast- nefnda flokkinn. „Mér finnst mjög gott að fara af landi brott til að vinna. Ég var ný- verið í hálft ár í Prag, þar sem sonur minn, Hjálmar, er í kvikmyndaleik- stjóranámi. Leigði mér stóra íbúð, þar sem ég gat málað, og féll strax fyrir borginni. Hún er gríðarlega fal- leg. Að vera í Prag er eins og að ganga um í miðaldasafni.“ Einar segir að það leyni sér ekki að miklar þjóðfélagsbreytingar séu að eiga sér stað í Tékklandi. Ekki endilega allar til góðs. „Ég fann fyrir hjá fólki á mínum aldri og eldra þessari þrúgun sem kommúnisminn lagði á það. „Kommúnisminn tók mín bestu ár,“ segir það. Svo er líka til fólk sem segir að lífsskilyrði hafi Myndlist | Einar Hákonarson opnar málverkasýningu í Uppspretta listarinnar Eftir Orra Pál Ormarsson orri@mbl.is KÓRA- og organistanámskeið verð- ur haldið í Skálholti um helgina, en samskonar námskeið var haldið síð- ustu helgi. Hér er á ferð hefð sem komið var á af Hauki Guðlaugssyni, fyrrverandi söngmálastjóra þjóð- kirkjunnar, fyrir um þremur ára- tugum. Nærri tveir tugir organista og yfir hundrað kórsöngvara sækja mótið og koma víða að af landinu. Farið er yfir mikið efni á nám- skeiðinu en í kvöld verður vaka með skemmtiefni þar sem þátttakendur leggja sjálfir til efni. Á laugardags- kvöld sækir Jónas Ingimundarson námskeiðsþátttakendur heim auk þess að Matthías Kormáksson mun spila. Loks mun Jörg Sonderman leika af fingrum fram tilbrigði við lög sem þátttakendur námskeiðsins leggja til. Á sunnudag hefst dagskrá kl. 13 með orgelleik og söng en messa hefst kl. 14. Dagskrá sunnudagsins verður hljóðrituð af Ríkisútvarpinu en þar munu þeir tveir tugir org- anista sem námskeiðið sækja skiptast á að spila á orgelið og stjórna kórsöng. Sr. Sigurður Sig- urðarson vígslubiskup prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Agli Hallgrímssyni. Allir eru velkomnir á viðburðina en húsrými kann að vera takmarkað. Orgel- og kóranámskeið haldið í Skálholti Skólavörðustíg 21, Reykjavík sími 551 4050 Glæsileg brúðarrúmföt í úrvali TILFINNINGATORG verður hald- ið á Menningarnótt í Reykjavík á morgun, á Víkurtorgi þar sem stytt- an af Skúla fógeta stendur. Torgið stendur opið milli kl. 17 og 22 og tek- ur Elísabet Kristín Jökulsdóttir á móti gestum, sem þar gefst kostur á að bera tilfinningar sínar á torg og tala um allt milli himins og jarðar. Nokkur atriði eru ennfremur skipulögð yfir daginn. Gísli Marteinn Baldursson, sjón- varpsmaður og borgarfulltrúi, mun ríða á vaðið og opna Tilfinn- ingatorgið með tjáningu sinni kl. 17. Guðrún Arnalds, sérfræðingur í líf- öndun, heldur fyrirlestur um kl. 17.30 sem nefnist „Öndunin tengir okkur við tilfinningarnar“, Hulda Vilhjálmsdóttir myndlistarmaður mun mála tilfinningar á staðnum og Geir Harðarson tónlistarmaður flyt- ur eigin lög og texta. Þá verður Tilfinningaskák í boði Hróksins – Hen- rik Danielssen stórmeistari og Ottó Nakapunda, Namibíumeist- ari í skák, verða á staðnum, og aldr- ei að vita nema Ottó taki lagið verði hann í til- finningalegu stuði til þess. Kristín Bjarna- dóttir, ljóðskáld og tangódansari, verður með uppákomu tengda ljóð- um og tangó, en auk þess er aldrei að vita hvað gerist meðan Tilfinn- ingatorgið stendur opið. Tilfinningar bornar á torg Elísabet Jökulsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.