Morgunblaðið - 19.08.2005, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 2005 41
MENNING
verið betri á dögum kommúnismans
og saknar þess tíma. Núna flæðir
fjármagn inn í landið, menn sjá tæki-
færi í hverju horni, og það tekur
tíma að byggja upp skandinavíska
líkanið, blöndu af markaðs- og vel-
ferðarkerfi, sem flestir eru orðnir
sammála um að sé besta kerfið, en
ég held að tékkneskt samfélag muni
hægt og sígandi þróast í þá átt.“
Og málarinn lét ekki listina
framhjá sér fara þar eystra. „Kom-
andi frá þjóð sem ekki á langa hefð í
myndlist var gaman að skoða tékk-
neska myndlist. Tékkar eiga glæsi-
lega sögu í listum, einkum fram að
kommúnisma en það er eins og
fjörutíu ára gat komi þá í söguna.
Enda hrökkluðust margir fremstu
listamenn þjóðarinnar þá úr landi,
ekki síst til Frakklands. Þeirra
frægastur Milan Kundera rithöf-
undur.“
Einræðisherrar virka ekki
Í þessum hugleiðingum miðjum
leitar hugur Einars skyndilega hing-
að heim aftur. „Ég er ekki frá því að
menningarstjórn Reykjavík-
urborgar hjá Stefáni Jóni Hafstein
minni dálítið á þetta. Það kann aldrei
góðri lukku að stýra að ákveða fyrir
fólk hvað sé list og hvað ekki. Það
hefur heldur aldrei virkað að ráða
einræðisherra. Látum vera að þeir
séu við völd í fjögur til fimm ár. Hér
eru þeir yfirleitt í áratug. Það segir
sig sjálft að listamaður sem ekki á
upp á pallborðið hjá einræðisherr-
anum á ekki mikla möguleika á að
láta ljós sitt skína. Og áratugur er
langur tími í lífi listamanns. Þarna
virkar lýðræðið ekki. Þegar fram í
sækir verður það ljótur blettur á
embættisfærslu þessara manna að
hafa haldið mörgum góðum lista-
mönnum úti í kuldanum.“
Þetta er ófögur mynd en Einar er
eigi að síður bjartsýnn á framtíðina.
„Það þýðir ekkert annað. Það er að
koma nýr forstöðumaður að Lista-
safni Reykjavíkur og það sem ég hef
heyrt um hann er allt gott. Það er
líka ágætt að fá utanaðkomandi
mann í þetta starf sem ekki er með
tengsl hingað og þangað í listheim-
inum hér á landi. Það er líka spor í
rétta átt að setja á laggirnar safna-
ráð enda þótt það sé valdalaust. Ég
hefði viljað sjá það með atkvæð-
isrétt. Það væri æskilegt að menn
gætu sótt um að sýna á Kjarvals-
stöðum og síbreytileg fagnefnd tæki
afstöðu til þeirra umsókna.“
Sýningin „Í grasrótinni“ stendur
til 28. ágúst og er opin daglega frá
kl. 10–22. Hún er einkaframtak Ein-
ars og nýtur hann engra styrkja við
framkvæmdina. Af þeim sökum seg-
ist hann verða að selja aðgang að
sýningunni til að hafa upp í kostnað.
Aðgangseyrir verði þó lægri en hjá
söfnum borgarinnar. „Ég verð mjög
ánægður ef Reykvíkingar koma á
sýninguna mína og kunna að meta
hana. Eins og ég segi er markmið
mitt að fólk skilji myndirnar mínar
en ég get hins vegar aldrei skýrt út
fyrir fólki hvað er list. Listin er óút-
skýranleg – eins og lífið.“
risatjaldi í Hljómskálagarðinum
Morgunblaðið/RAX
Einar Hákonarson í grasrótinni í Hljómskálagarðinum „Þessi sýning mín
er öðrum þræði tilraun til að færa listina nær almenningi á ný. Þetta er
endurreisn málverksins – einu sinni enn!“
Ljósmynd/Friðþjófur Helgason
Frá einu af námskeiðum Hauks Guðlaugssonar í Skálholti.