Morgunblaðið - 19.08.2005, Side 48

Morgunblaðið - 19.08.2005, Side 48
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. Næring ekki refsing Opið 8-24 alla daga í Lágmúla og Smáratorgi NEMENDUR Menntaskólans Hraðbrautar eru sestir á skólabekk, fyrstir allra nemenda í framhaldsskólum. Nemendur verða 140 í vetur, þar af 80 nýnemar. Busa- vígsla fór fram í gær og var þá brugðið á leik í sólskin- inu. Voru nýnemarnir fegnir að komast út í góða veðrið þótt það hafi haft í för með sér smábleytu. Moorgunblaðið/RAX Busavígsla í góða veðrinu ENN eitt sumarið er fjöldi fólks á leið heim frá Spáni tekinn með ólöglegar loft- skammbyssur í Leifsstöð. Fólk telur byssurnar leik- föng en þær eru í raun stór- hættuleg vopn. Dæmi eru um að 10 ára börn hafi haft slíkar byssur undir höndum. Að sögn Kára Gunnlaugs- sonar, aðaldeildarstjóra hjá Tollgæslunni á Keflavíkur- flugvelli, hefur innflutningur á byssunum verið mikið vandamál undanfarin sum- ur. Foreldrar ýmist kaupa byssurn- ar handa börnum sínum erlendis en átta sig ekki á að verið sé að brjóta vopnalög þegar byssurnar eru tekn- ar með heim, eða börnin sjálf kaupa byssurnar án vitneskju foreldranna, að sögn Kára. Þegar vopnin síðan finnast í farangri er niðurstaðan ávallt sú sama: 5 þúsund króna sekt og byssan er tekin af viðkomandi. Geta valdið örkumlum Hægt er að hlaða byssurnar með plastkúlum og eru vopnin nægilega kraftmikil til að valda örkumlum ef skotið er á einhvern af stuttu færi. Dæmi eru um að börn hafi skotið hvert annað og slasað með slíkum byssum hérlendis en í Bretlandi var 27 ára gamall maður nýlega hand- tekinn fyrir að skjóta tveggja ára gamalt barn til bana með loftbyssu. Einnig er hægt að hlaða byssurnar með blýhöglum og þarf þá ekki frek- ari vitnanna við til að sjá hvílík skað- ræðisvopn er um að ræða. Undanfarin ár hafa allt upp í 50 byssur verið teknar af fólki og lang- mest í júlí og ágústmánuði. Einhver fjöldi byssa virðist sleppa inn í landið því heyrst hefur af börnum leika sér með slík vopn í Reykjavík og ná- grenni. Í júní sl. voru piltar á ferð í Garðabæ með loftbyssur og skutu á börn en þeir fundust ekki þrátt fyrir leit lögreglunnar. Þá varð slys á ungu barni fyrir nokkrum misserum í Hafnarfirði þegar skotið var á það með loftbyssu. Í sumar hefur einnig heyrst af byssuæði drengja í Vest- urbæ Reykjavíkur. Þótt læknar á slysadeild Land- spítalans hafi ekki fengið alvarleg eða mörg slysatilvik vegna loftbyssa, er hættan engu að síður fyrir hendi eins og dæmin hafa sýnt. „Því miður virðist það vera raunin að foreldrar kaupa þessi vopn handa börnum sínum eða börnin kaupa þau sjálf án vitneskju foreldranna,“ segir Kári Gunnlaugsson. „Dæmi eru um að allt niður í 10 ára gömul börn hafi haft þessi vopn undir höndum.“ Kári segir fólk yfirleitt bera við þekkingarleysi þegar upp kemst um málin og segist ekki hafa gert sér grein fyrir alvöru málsins. „Þessar byssur eru stórhættuleg- ar þótt ekki sé um „alvöru“ vopn að ræða,“ segir Kári. Búið að taka tugi ólöglegra loftskot- vopna af fólki í Leifsstöð í sumar Dæmi um 10 ára börn með hættu- legar byssur Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson orsi@mbl.is Morgunblaðið/Júlíus Loftskammbyssa sem komist hefur í gegn- um tollinn en var tekin af pilti í Reykjavík fyrir skömmu. BÚIÐ er að setja upp sérstök for- gangsskilti fyrir strætisvagna á Lækjargötu án samþykkis lögregl- unnar. Um er að ræða forgang fyrir strætisvagna á einni akrein í norður- átt frá Bókhlöðustíg og frá Hafnar- stræti að Vonarstræti í suðurátt. Á umræddum svæðum er gert ráð fyrir að almenn umferð haldi sig á annarri akreininni en ekki á þeirri sem er sér- staklega ætluð strætisvögnum. Að sögn Geirs Jóns Þórissonar, yf- irlögregluþjóns í Reykjavík, barst lögreglunni samþykkt um málið frá borgaryfirvöldum. Hann bendir á að ekki hafi verið lagst gegn þessu en þó hafi ekki verið búið að ganga frá þessu máli af hálfu lögreglunnar. „Við eigum eftir að fara yfir þetta með borginni og sjá hvort við samþykkjum þetta eða ekki,“ segir Geir Jón. Aðspurður segir hann ljóst að þetta komi til með að þrengja að ökumönn- um á umræddum svæðum. „Ökutæk- in hafa þá bara eina akrein í staðinn fyrir tvær,“ segir Geir Jón. Hann bendir jafnframt á að það sé ekki fyrr en lögreglustjóri hafi auglýst viðkom- andi umferðarbreytingu að það megi taka hana upp. Hann segir að fundað verði með borginni í næstu viku og í framhaldi af því muni væntanlega ráðast hvort lögreglan samþykki þetta eður ei. Strætóforgangur ekki samþykktur af lögreglu Morgunblaðið/ÞÖK Skiltið sem segir að strætó „eigi“ aðra akgreinina í Lækjargötu. Eftir Jón Pétur Jónsson jonpetur@mbl.is MARGT bendir til þess að nú sé að rofa til í vandræðum leik- skólanna við að fá starfsfólk, og segir Gerður G. Óskarsdóttir, sviðsstjóri menntasviðs Reykjavíkurborgar, að hugsan- lega leiki umfjöllun fjölmiðla um málið stórt hlutverk. Hún segir að mikið af um- sóknum og fyrirspurnum hafi borist til leikskóla í borginni undanfarna daga. Nú sé verið að kalla eftir nýjustu upplýs- ingum frá skólastjórum svo að hægt sé að meta stöðuna, enda berist umsóknir til skólanna, ekki til menntasviðs. Hún hafi þó heyrt af nokkrum skólum þar sem vandamálið sé þegar leyst, þótt annars staðar vanti eflaust nokkuð uppá. Gerður segir að hafi vantað þrjá eða fleiri starfsmenn á 24 leikskóla af 78. Rofar til hjá leik- skólunum HANNES Hlífar Stefánsson stór- meistari sigraði Stefán Krist- jánsson í upp- gjöri efstu manna í 8. um- ferð Skákþings Íslands í gær. Skákin var tvísýn og virtist Stefán lengi hafa væn- lega stöðu. Hannes Hlífar er nú efstur með 6½ vinning og í öðru sæti er al- þjóðlegi meistarinn Jón Viktor Gunnarsson með 6 vinninga, eftir sigur á Ingvari Ásmundssyni í gær. Stefán er í þriðja sæti með 5½ vinning. Níunda umferðin verður tefld síðdegis í dag en Skákþing Íslands fer fram í Háskólanum í Reykjavík. Keppendur í landsliðsflokki eru tólf. Hannes Hlífar lagði Stefán Hannes Hlífar Stefánsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.