Morgunblaðið - 06.09.2005, Síða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
BYRJAÐ AÐ DÆLA VATNI
Þúsundir New Orleans-manna
fengu í gær að kanna ástandið í hús-
um sínum og sækja þangað persónu-
lega muni og mynduðust langar bíla-
raðir við helstu leiðir inn í borgina.
Yfirvöld í borginni hafa hins vegar
skipað öllum íbúum sem þar hafast
enn við að yfirgefa hana. Byrjað var
í gær að dæla vatni af götunum enda
hefur tekist að loka einu af þrem
götum sem fellibylurinn Katrín
gerði á flóðgarða milli borgarinnar
og Pontchartrain-stöðuvatnsins.
Færri dauðsföll en talið var
Kjarnorkuslysið í Tsjernobýl í
Úkraínu árið 1986 hefur valdið mun
færri dauðsföllum en óttast var. Er
vitað með vissu um 56 manns sem
hafa dáið beinlínis af völdum geisl-
unar en svo gæti þó farið að á end-
anum yrðu fórnarlömbin allt að
4.000, segir í nýrri skýrslu frá
nokkrum stofnunum SÞ.
Banaslys á Vagnhöfða
Banaslys varð á Vagnhöfða í gær
þegar karlmaður á þrítugsaldri í
vinnu hjá hellusteypufyrirtæki féll
ofan í sandsíló. Var hann látinn þeg-
ar hann náðist upp.
Samningsforsendur bresta
Efling stéttarfélag telur samn-
ingsforsendur á almennum markaði
við það að bresta þar sem verðbólga
sé nú 1,2% yfir verðbólgumarkmiði
Seðlabanka Íslands sem er 2,5%.
Um helmingur 2.300 félagsmanna
Eflingar sem vinna hjá Reykjavík-
urborg starfar við leikskólana.
Landsbanki kaupir Kepler
Landsbankinn eignast á næstu 5
árum allt hlutafé í í evrópska verð-
bréfafyrirtækinu Kepler Equities
sem er metið á 7,2 milljarða króna.
Y f i r l i t
Í dag
Fréttaskýring 8 Umræðan 21/24
Úr verinu 11 Bréf 21
Viðskipti 12/13 Forystugrein 22
Erlent 14/15 Viðhorf 24
Minn staður 16 Minningar 25/29
Höfuðborgin 17 Skák 29
Landið 17 Dagbók 32
Akureyri 18 Víkverji 32
Austurland 18 Staður og stund 34
Daglegt líf 19 Ljósvakamiðlar 42
Menning 22, 36/41 Veður 43
Af listum 22 Staksteinar 43
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju-
starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
www.leikhusid.is
Þröstur Leó Gunnarsson
Leikari ársins í aukahlutverki
Gríman 2005
KARLMAÐUR sem handtekinn var í fyrrinótt vegna
gruns um íkveikju við veitingastaðinn Pravda í Austur-
stræti aðfaranótt mánudags liggur ekki lengur undir
grun. Bruninn var sá fjórði á rúmum sólarhring sem upp
kemur í Reykjavík og er sá fimmti einnig til rannsóknar.
Þar var um að ræða endurtekinn bruna í iðnaðarhús-
næði við Fiskislóð. Á sunnudagskvöld kviknaði í litlu
timburhúsi við Klapparstíg og var það þriðji bruninn í
röðinni. Ekki hefur verið leitt í ljós hverjir voru þar að
verki en málið er í rannsókn sem og hin tilvikin fjögur.
Morgunblaðið/Júlíus
Grunur um fimm íkveikjur
VEL miðaði á fundi samninganefnd-
ar Starfsmannafélags Suðurnesja
(STFS) og Launanefndar sveitarfé-
laga (LS) hjá ríkissáttasemjara í
gær, að sögn Ragnars Arnar Péturs-
sonar, formanns STFS. Hann bindur
vonir við að gengið verði frá kjara-
samningi fyrir næstu helgi. „Við höf-
um samþykkt að innleiða nýtt starfs-
mat. Það gefur að meðaltali tæplega
4% hækkun,“ sagði Ragnar Örn í
samtali við Morgunblaðið í gær.
Starfsmat forsenda samnings
Karl Björnsson, framkvæmda-
stjóri Launanefndar sveitarfélaga,
tók í sama streng og taldi að viðræð-
urnar hefðu þróast í rétta átt. „Ég á
ekki von á öðru en að þetta endi vel,
án allra átaka,“ sagði Karl. Hann
vildi ekki spá um hvenær það yrði,
en vonaði að það yrði á næstu dög-
um.
Að sögn Karls var nýlega búið að
innleiða starfsmatið hjá 40 stéttar-
félögum á grundvelli bókunar í eldri
kjarasamningi. Reykjavíkurborg er
með samskonar starfsmat svo það
nær nú til mjög margra félaga í
BSRB og ASÍ. Karl segir að kjara-
samningur við Suðurnesjamenn hafi
innihaldið samskonar bókun um
starfsmat. Síðustu vikur hafi farið í
að þróa málin áfram og skýra og
skilgreina ýmis störf betur.
„Við gerum okkur vonir um að ná
árangri í því, en það er hluti af fram-
kvæmd síðasta kjarasamnings,“
sagði Karl. Innleiðing starfsmatsins
hjá STFS er forsenda þess að gerður
verði samskonar kjarasamningur við
félagið og gerður hefur verið við
önnur félög. „Þá vitum við hvar við
stöndum við gerð nýs samnings, sem
við bindum vonir við að taki ekki
langan tíma,“ sagði Karl.
Meira en helmingur
hækkar í launum
Ragnar Örn sagði að á þriðja
hundrað félagsmanna STFS, eða ríf-
lega 50% allra félagsmanna, muni
hækka í launum. Þeir sem gegna
ýmsum umönnunarstörfum munu fá
mesta lagfæringu. Um 12% starfa
hjá félaginu, sem um 50 félagsmenn
gegna, verða fyrir launaskerðingu.
Hún mun ekki bitna á þeim sem
gegna störfunum nú, en þeir sem
verða nýráðnir munu þurfa að sæta
lægri grunnröðun. Enginn núver-
andi starfsmanna mun því lækka í
launum, að sögn Ragnars Arnar.
Hluti starfa er settur „í frystingu“
og verða þau tekin til skoðunar í
haust.
„Þeir sem fá launahækkun fá hana
afturvirkt frá 1. desember 2002,“
sagði Ragnar Örn. Hann sagði stefnt
að því að halda fund á fimmtudaginn
með trúnaðarmönnum STFS hjá
sveitarfélögunum. Þar verði lögð
fram drög að nýjum kjarasamningi.
Gert er ráð fyrir að samninganefnd-
irnar hittist hjá ríkissáttasemjara á
föstudaginn og gerði Ragnar Örn
sér vonir um að nýr kjarasamningur
yrði undirritaður fyrir næstu helgi.
Viðræður LN og Starfsmannafélags Suðurnesja
Vonast eftir undirritun
kjarasamnings fyrir helgi
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
STJÓRN SFR Stéttarfélags í
almannaþágu ákvað í gær að
efna til atkvæðagreiðslu 7.–12.
september nk. um verkfall
SFR-félaga sem starfa hjá Sam-
tökum fyrirtækja í heilbrigðis-
þjónustu (SFH). Samninga-
nefndir SFR og SFH hittast í
dag kl. 9.00 á samningafundi hjá
ríkissáttasemjara.
Að sögn Jens Andréssonar,
formanns SFR, var tekin
ákvörðun um boðun verkfalls í
framhaldi af ályktun frá fjöl-
mennum fundi starfsfólks hjá
SFH í síðustu viku. „Þessi hópur
heyrir undir lög um kjarasamn-
inga opinberra starfsmanna og
þar eru ákvæði um framkvæmd
kosningar um verkfallsboðun.
Við erum að undirbúa verkfall
samkvæmt ályktun félagsfund-
arins og verði ekki samið fyrr
hefst atkvæðagreiðslan 7. sept-
ember og stendur til 12. sept-
ember því það þarf að vera
tryggt að allir geti greitt at-
kvæði. Verði verkfallsboðun
samþykkt er verkfall boðað með
15 daga fyrirvara,“ sagði Jens.
Í frétt á heimasíðu SFR segir
að kosið verði um tvö þriggja
daga verkföll 3.–5. október og
10.–12. október og loks ótíma-
bundið verkfall frá og með 17.
október hafi ekki samist fyrir
þann tíma. Atkvæðagreiðslan
fer fram á hverjum vinnustað
fyrir sig eða á skrifstofu SFR.
Komi til vinnustöðvunar mun
hún ná til ríflega 200 manns á 11
vinnustöðum innan SFH.
Vinnustaðirnir eru: Sunnuhlíð,
Sjálfsbjargarheimilið, Grund,
SÁÁ, HNLFÍ, Skógarbær,
Hrafnista í Reykjavík og Hafn-
arfirði, Ás, Víðines, Vífilsstaðir.
Að sögn Jens myndi verkfallið
ná til starfsmanna sem vinna
eftir kjarasamningum BSRB,
svo sem matsveina, starfsfólks á
skrifstofum, sumra iðnaðar-
manna, aðstoðarfólks sjúkra- og
iðjuþjálfa og ráðgjafa hjá SÁÁ.
Á fundi stjórnar vinnudeilu-
sjóðs SFR í gær var gengið frá
úthlutunarreglum komi til verk-
falls en þær gera ráð fyrir að
bæta þeim sem leggja niður
vinnu reglubundin laun strax frá
fyrsta degi verkfalls.
SFR und-
irbýr
kosningu
um verk-
fallsboðun
JEPPI fauk í einni vindhviðunni í gær á Skagaströnd niður í fjöru og rann
stjórnlaus nokkra metra í stórgrýttri fjörunni.
Að sögn eiganda jeppans, Vilhelms Bjarnar Harðarsonar, skemmdist
jeppinn ekkert við þessa óvæntu ferð í fjöruna, sem má heita kraftaverk þar
sem hún er stórgrýtt. Gat Vilhelm ekið jeppanum eftir fjöruborðinu. Grafa
var svo fengin til aðstoðar við að taka stærstu steinana frá jeppanum svo
hann gæti ekið upp á veginn aftur.
Morgunblaðið/Alfons
Fauk út af veginum