Morgunblaðið - 06.09.2005, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 06.09.2005, Qupperneq 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR STJÓRN stofnunar Leifs Eiríks- sonar hefur ákveðið að hefja veitingu styrkja til framhaldsnáms við háskóla á Íslandi og í Bandaríkjunum fyrir skólaárið 2006–2007. Þetta kom fram á blaðamannafundi sem stjórnin stóð fyrir í gær. Í máli Steingríms Her- mannssonar, fyrrverandi forsætis- ráðherra og núverandi stjórnarfor- manns stofnunarinnar, kom fram að á þessu fyrsta ári verða veittir fjórir til fimm styrkir hver að upphæð allt að 25 þúsundum bandaríkjadala, sem samsvarar rúmri einni og hálfri millj- ón íslenskra króna. Sagði hann hér um stóran styrk að ræða sem duga ætti vel fyrir allri framfærslu sem og skólagjöldum við allflesta ríkishá- skóla í Bandaríkjunum. Viljum fá fleiri Íslendinga í nám til Bandaríkjanna John T. Casteen III, forseti Virg- iníuháskóla, sagði hér um mikilvægt samstarfsverkefni landanna tveggja að ræða þar sem það opni mikla möguleika í auknum samskiptum landanna. „Við höfum í gegnum tíðina fylgst með mörgum íslenskum náms- mönnum standa sig afar vel í banda- rískum háskólum. Við myndum hins vegar vilja sjá miklu fleiri Íslendinga stunda nám í Bandaríkjunum,“ sagði Casteen og tók fram að menn væru sér vel meðvitandi um að kostnaður við nám í Bandaríkjunum væri oft á tíðum aðalþröskuldurinn. „Með námsstyrknum sem við erum hér að kynna viljum við gera okkar til þess að auka möguleika íslenskra náms- manna á að sækja sér menntun yfir hafið,“ sagði Casteen. „Ég er sann- færður um að með því að skiptast á námsmönnum frá Bandaríkjunum og Íslandi munu þau góðu tengsl sem eru nú á milli þjóðanna styrkjast enn frekar,“ sagði Steingrímur við sama tækifæri. Fyrsta sameiginlega mynt landanna tveggja Á blaðamannafundinum rifjaði Steingrímur upp tilurð stofnunar Leifs Eiríkssonar, en stofnuninni var komið á fót árið 2001 af Seðlabanka Íslands og Háskólanum í Virginíu, sem er, að sögn Steingríms, einn virt- asti og þekktasti háskóli Bandaríkj- anna. Sagði hann hugmyndina hafa þróast í framhaldi af þeirri ákvörðun Seðlabanka Íslands að gefa út silf- urmynt til að minnast þess að Leifur Eiríksson fann N-Ameríku fyrir þús- und árum. Árið 1999 samþykkti bandaríska þingið lög um að fram- leiða og selja bandarískan silfurdal til minningar um landafundinn, en bandaríska myntsláttan sló einnig þúsund króna minningarpeninginn fyrir Ísland sem Seðlabanki Íslands gaf út. Benti Casteen á að í raun hefði verið um sögulegan viðburð að ræða þar sem þetta var í fyrsta sinn sem Ísland og Bandaríkin gefa út sameig- inlega mynt. Við sölu myntarinnar var lagt á tíu bandaríkjadala aukagjald til að styrkja samskipti landanna á sviði mennta og hefur þetta gjald runnið til Stofnunar Leifs Eiríkssonar frá stofnun hennar. Að sögn Steingríms hafa nú þegar selst rúmlega 170 þús- und bandarískir minningarpeningar og 100 þúsund íslenskir peningar, sem gefið hefur af sér u.þ.b. 2,8 millj- ónir bandaríkjadala í styrktarsjóðinn. Að auki, að sögn Casteens, hefur ver- ið safnað 700 þúsund bandaríkjadöl- um í framlögum frá fyrirtækjum, stofnunum og einstaklingum, s.s. Al- coa, Stofnun Kens Peterson og Pet- ersonfjölskyldunnar, KB banka og Flugleiðum. Styrktarsjóðurinn hefur því yfir rúmlega 3,5 milljónum banda- ríkjadala að ráða í dag. Þess má að lokum geta að opnaður hefur verið vefur þar sem nálgast má allar nauðsynlegar upplýsingar og umsóknareyðublöð þegar nær dreg- ur, en umsóknum þarf að skila fyrir miðjan næsta janúar. Er slóðin: www.leifureirikssonfoundation.org. Stofnun Leifs Eiríkssonar veitir styrki til náms við háskóla á Íslandi og í Bandaríkjunum Morgunblaðið/Árni Sæberg Stjórn Stofnunar Leifs Eiríkssonar. Sigríður Dúna Kristmundsdóttir, Steingrímur Hermannsson stjórnarformað- ur, Donald Fry og Þráinn Eggertsson. Á myndina vantar John T. Casteen III. Mun styrkja tengsl þjóðanna enn frekar Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is KRISTJÁN Guðmundsson vara- borgarfulltrúi hefur ákveðið að sækjast eftir fimmta sæti í próf- kjöri Sjálfstæð- isflokksins í Reykjavík. Kristján hefur um áratuga skeið gegnt trúnaðarstörfum innan Sjálfstæð- isflokksins. Hann er formað- ur verkalýðsráðs Sjálfstæðisflokksins og situr í mið- stjórn flokksins, flokksráði og í fulltrúaráðinu í Reykjavík. Einnig hefur hann verið vara- þingmaður tvö kjörtímabil, ásamt því að starfa síðastliðin tvö kjör- tímabil sem varaborgarfulltrúi flokksins. Kristján situr nú í skipulagsráði, framkvæmdaráði og í hverfisráði Hlíða, ásamt því að vera fyrsti varamaður í vel- ferðarráði og stjórn Orkuveitu Reykjavíkur. „Ef mér verður veitt brautar- gengi mun ég halda áfram að leggja áherslu á þau málefni sem ég hef unnið hve mest að á mínum ferli, sem eru skipulags- og vel- ferðarmálefni ásamt málefnum aldraðra og ungs fólks. Ég tel að reynsla undanfarinna ára hafi ver- ið góður undirbúningur til þess að takast á við þau mörgu krefjandi verkefni sem framundan eru. Það er nauðsynlegt að snúa við þeirri slæmu þróun sem hefur átt sér stað í borgarmálum undir stjórn R-listans. Nýrri borgarstjórn bíður það verkefni að endurheimta aftur það forystuhlutverk sem Reykjavík ætti að hafa sem höfuðborg lands- ins. Önnur sveitarfélög hafa sótt á og margir íbúar Reykjavíkur hafa flúið borgina vegna þess að ekki hefur verið staðið nægilega vel að skipulags- eða velferðarmálum á síðastliðnum árum. Útgjalda- og skuldaaukning borgarinnar með meðfylgjandi aukinni gjaldheimtu á borgarbúa hefur orsakað að lífsgæði fjöl- margra Reykvíkinga hafa versnað til muna í kjölfarið,“ segir í frétta- tilkynningu frá Kristjáni. Kristján Guðmundsson sækist eftir 5. sæti LOFTUR Már Sigurðsson hefur ákveðið að gefa kost á sér í 6. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins til borgar- stjórnarkosninga. Loftur hefur setið í stjórn Félags sjálfstæðismanna í Grafarvogi í 11 ár, þar af síðustu sjö árin sem formaður félagsins. Loftur situr sem varamað- ur í hverfisráði Grafarvogs og ÍTR. Á þessum 11 árum hefur Loftur gegnt mörgum trúnaðarstörfum fyrir flokk- inn. T.d. setið í stjórn fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík og stýrt kosningabaráttunni í Grafarvogi síðustu fjórar kosningar. Loftur hefur verið í stjórn íbúa- samtaka Grafarvogs síðan 1995. Þar hefur hann starfað að ýmsum hags- munamálum Grafarvogs. Í fréttatil- kynningu frá Lofti segir að vegna sér- stöðu íbúasamtaka Grafarvogs hafi hann, í nafni samtakanna, unnið með ýmsum öðrum íbúum Reykjavíkur að baráttumálum þeirra. Á þessum ár- um hafi hann öðlast mikla reynslu og þekkingu á málefnum borgarinnar og borgarkerfinu. Loftur hefur lokið B.Sc gráðu í vörustjórnun frá Tækni- skóla Íslands og stúdentsprófi frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti. Í fréttatilkynningu segir að Loftur telji fjölskylduna vera hornstein sam- félagsins og velferð hennar sé ávallt forgangsverkefni allra stjórnmála- manna. Þar af leiðandi séu mál- efni leikskóla, grunnskóla, eldri borgara og ann- arra málefna sem tengjast fjölskyld- unni grundvallar- mál. Í fréttatilkynningu kemur einnig fram að Loftur ætli að leggja áherslu á skipulagsmál og umferðarmál. „Eft- ir að R-listinn komst til valda 1994 var sett í skipulag að umferðarrýmd skyldi ekki aukin vestan Elliðaáa. Þetta er eitt ljósasta dæmið í pólitík í dag hvernig ákvarðanir stjórnmála- manna hafa áhrif á umhverfið í ára- tugi eftir að þeir hætta störfum. Ljóst er að það á eftir að taka fjölmörg ár að leysa vandamál í borginni sem eru bein afleiðing af þessari litlu ákvörð- un,“ segir í fréttatilkynningu. Loftur kemur til með að opna vef- inn www.loftur.is innan tíðar. Loftur Már Sigurðsson sækist eftir 6. sæti FULLTRÚARÁÐSFUNDUR sjálfstæðisfélaganna í Hafnar- firði samþykkti að prófkjör skyldi fara fram um val fram- bjóðenda fyrir bæjarstjórnar- kosningarnar næstkomandi vor. Prófkjörið mun fara fram fyrir lok nóvember en kjör- nefnd er falið að ákveða end- anlega dagsetningu. Að lokn- um umræðum á fundinum, þar sem kostir uppstillingar og prófkjörs voru ræddir, fór fram atkvæðagreiðsla þar sem prófkjör hlaut afgerandi stuðning. Kjörnefnd, sem einnig var kosin á fundinum, mun á næstunni kynna og auglýsa hvernig staðið verður að próf- kjörinu í samræmi við prófkjörsreglur Sjálfstæðis- flokksins. D-listinn með próf- kjör í Hafnarfirði Verðum að rannsaka hrefnuna Úr verinu á morgun  Rætt við Gísla Víkingsson um veiðar á hrefnu í vísindaskyni undir stjórn Hafrannsókna- stofnunar í sumar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.