Morgunblaðið - 06.09.2005, Síða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
Laugavegi 170, 2. hæð.
Opið virka daga kl. 8-17.
Sími 552 1400 ● Fax 552 1405
www.fold.is ● fold@fold.is
Þjónustusími eftir lokun er 694 1401.
Snoturt lítið raðhús
í Breiðholtinu
Viðar Böðvarsson, viðskiptafr. og lögg. fasteignasali.
Vorum að fá í sölu huggulegt en lítið raðhús í Krummahólum í Breiðholtinu.
Í húsinu er gott anddyri, 2 svefnherbergi, þvottahús, baðherbergi, eldhús
og stofa. Á gólfum er dúkur eða plastparket. Útgengt er úr stofu út á góða
verönd, garðurinn er gróinn. Verð 23,9 millj.
LANDSBANKI Íslands hefur keypt
81% eignarhlut í franska verðbréfa-
fyrirtækinu Kepler Equities fyrir 5,8
milljarða króna og mun á næstu 5 ár-
um eignast allt hlutafé í fyrirtækinu
en það er í heildina metið á 7,2 millj-
arða króna, eða 94 milljónir evra.
Kepler Equities er með starfsemi í
sjö löndum og eykst erlend starfsemi
Landsbankans, sem er nú þegar með
starfsemi í Bretlandi og Lúxemborg,
umtalsvert við kaupin. Tekjur bank-
ans utan Íslands nema nú fjórðungi af
heildartekjum en þjónustutekjur
aukast um 33% við kaupin.
Kepler er með höfuðstöðvar í París
og er með starfsemi í Amsterdam,
Frankfurt, Madríd, Mílanó og Zürich
auk þess að reka verðbréfamiðlun í
New York samkvæmt þjónustusamn-
ingi við svissneska bankann Julius
Bär. Fyrirtækið sérhæfir sig í sölu og
miðlun hlutabréfa til yfir 800 fagfjár-
festa og rekur greiningardeild sem
greinir um 430 fyrirtæki í Evrópu.
Starfsmenn þess eru 240 talsins og
starfa allir lykilstjórnendur Kepler
áfram hjá fyrirtækinu eftir yfirtök-
una. Starfsmenn Landsbanka-
samstæðunnar eru nú orðnir 1.600
talsins, þar af starfa 200 í Bretlandi
og 300 á meginlandi Evrópu.
Bankastjórar Landsbankans, Hall-
dór J. Kristjánsson og Sigurjón Þ.
Árnason, lýstu á blaðamannafundi í
París í gær yfir ánægju með að geta
með einum kaupum greitt leið Lands-
bankans inn á svo marga verð-
bréfamarkaði í Evrópu, sem og inn á
bandarískan verðbréfamarkað. „Með
þessu eina skrefi erum við komnir inn
á meginhluta evrópska markaðarins,“
sagði Halldór. En auk þess mun
Landsbankinn bjóða litlum og með-
alstórum fyrirtækjum á starfsvæði
Kepler upp á fyrirtækja- og fjárfest-
ingarþjónustu.
Sigurjón segir starfsemi Kepler
fyrst og fremst lúta að sölu hluta-
bréfa á heimamarkaði til útlendinga,
eða um 84% teknanna, en einnig selji
fyrirtækið heimamönnum útlend
hlutabréf, sem og hlutabréf á heima-
markaði. Hlutdeild Kepler í hluta-
bréfaviðskiptum segir hann vera á
bilinu 2–4% á hverju markaðssvæði
fyrir sig.
Sagði Halldór Kepler passa full-
komlega inn í samstæðu Landsbank-
ans við hlið breska dótturfélagsins
Teather & Greenwood (T&G) sem
Landsbankinn keypti í byrjun árs.
Með þessu opnaðist leið fyrir T&G
inn á markaði á meginlandi Evrópu
og leið fyrir Kepler inn á starfsvæði
T&G í Bretlandi. Hvorum um sig
þætti að því mikill fengur.
Fyrirtækin tvö sagði Halldór að
verði þó áfram rekin undir eigin vöru-
merkjum en ekki sé ástæða til að fara
út í samruna þeirra enda starfi þau á
algjörlega aðskildum markaðs-
svæðum. „Það er hægt að samþætta
starfsemina án þess að sameina hana.
Meðan við erum að byggja upp verða
fyrirtækin ekki sameinuð en það
kemur í ljós hvað gerist þegar til
lengri tíma er litið,“ sagði hann.
Stephane Michel, aðalforstjóri
Kepler Equities, segir fyrirtækið
hafa verið að leita sér að sterkum
meirihlutaeiganda sem ekki starfaði á
sama markaði eða landsvæði. Ekki
hafi tekist að finna slíkan aðila fyrr en
Landsbanki Íslands kom til sög-
unnar. Stjórnendum Kepler hafi m.a.
verið mikið í mun að tryggja hags-
muni starfsfólks fyrirtækisins og
halda eigin vörumerki auk þess að
geta boðið upp á frekari þjónustu s.s.
fyrirtækjaráðgjöf og eignastýringu.
„Samstarfið við Landsbankann upp-
fyllir alla þá þætti sem við leituðum
að en höfðum ekki fundið áður. Ekki
síst gefur það okkur aðgang að
breska markaðinum í gegnum T&G
og færi á að taka þátt í spennandi
uppbyggingu samstæðunnar,“ segir
Michel.
Evrópa í uppsveiflu
Evrópskur hlutabréfamarkaður er í
uppsveiflu að mati Landsbanka-
manna. Það er ein ástæða kaupanna á
Kepler auk þess sem samþættingin
við T&G er talin fela í sér einstakt
tækifæri.
Halldór sagði tækifærin á Evr-
ópumarkaði m.a. liggja í lágum lang-
tímavöxtum á svæðinu og miklu fjár-
flæði. Á viðskiptasviðinu í Evrópu
eigi enn eftir að gerast það sem hafi
gerst á pólitíska sviðinu, að samruni
fyrirtækja verði meiri á milli landa-
mæra. Tækifæri til samruna fyr-
irtækja í Evrópu eru mikil, að mati
Halldórs, og kalla á fyrirtækjaráðgjöf
og aukin umsvif á hlutabréfamarkaði.
Landsbankinn mun, að sögn Hall-
dórs, auka við eigið fé Kepler líkt og
gert var hjá T&G. „Hvorugt fyr-
irtækið hafði banka sem sterkan fjár-
hagslegan bakhjarl. Þau hafa því
bæði unnið með litla veltubók, nánast
enga. Það hamlar verðbréfafyr-
irtækjum að geta ekki byggt upp
eignarhlut í athyglisverðu fyrirtæki
og boðið það svo aftur inn á mark-
aðinn. Með því að auka fjármagn
Kepler getur Landsbankinn gert
þeim kleift að vera með hóflega veltu-
bók. Það mun auka mjög við-
skiptamöguleika þeirra.
Góð tekjudreifing
Seljendur hlutarins í Kepler eru
bandaríska fjárfestingarfyrirtækið
Lightyear (61,9%), Julius Bär bank-
inn (13,1%) auk þess sem starfsmenn
seldu Landsbankanum 6% hlutafjár í
Kepler. 19% hlutur verður áfram í
eigu stjórnenda og starfsmanna Kep-
ler en Landsbankinn mun eignast
þann hlut á næstu fimm árum sam-
kvæmt árangurstengdum kauprétt-
arsamningum. Eigið fé Kepler nemur
59,5 milljónum evra. Salan er háð
samþykki franskra, svissneskra og ís-
lenskra yfirvalda en gert er ráð fyrir
að hún verði frágengin fyrir árslok.
Áætlað er að tekjur Kepler á þessu
ári verði 6,2 milljarðar króna og vaxi í
7,2 milljarða á næsta ári en hagnaður
verði 615 milljónir. Á síðasta ári
komu 40% tekna bankans frá Frakk-
landi, 18% frá Þýskalandi, 14% frá
Sviss en hlutdeild annarra starfs-
stöðva var minni. Sigurjón Þ. Árna-
son segir það mikinn kost hversu
tekjudreifing Kepler er góð, bæði
landfræðilega og í viðskiptavinahópi
Kepler. „Við náum þarna fram
áhættudreifingu og víðtækara tekju-
streymi,“ segir Halldór jafnframt.
Landsbankinn kominn með
starfsemi í 10 löndum
Landsbanki Íslands keypti í gær evrópska verðbréfafyrirtækið Kepler Equities sem er með starfsemi í sjö löndum. Við kaupin eykst er-
lend starfsemi Landsbankans, sem er nú þegar með starfsemi í Bretlandi og Lúxemborg, umtalsvert. Eftir kaupin er um fjórðungur af
heildartekjum Landsbankans utan Íslands. Soffía Haraldsdóttir hitti forsvarsmenn fyrirtækjanna og ræddi við þá um kaupin.
Morgunblaðið/Soffía Haraldsdóttir
Höfuðstöðvarnar í París Starfsmenn Landsbankasamstæðunnar eru nú
orðnir 1.600 talsins. Þar af eru starfsmenn Kepler 240 talsins og starfa allir
lykilstjórnendur fyrirtækisins áfram hjá fyrirtækinu eftir yfirtökuna.
Morgunblaðið/Kristinn
10 Evrópulönd Sigurjón Þ. Árnason, bankastjóri Landsbanka Íslands, kynnir kaupin á Kepler Equities á kynningarfundi í gær. Halldór J. Kristjánsson
bankastjóri og Stephane Michel, aðalforstjóri Kepler Equities, fylgjast með.
soffia@mbl.is