Morgunblaðið - 06.09.2005, Síða 18

Morgunblaðið - 06.09.2005, Síða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNSTAÐUR AKUREYRI AUSTURLAND Reyðarfjörður | Um helgina var haldin íþróttahátíð í Fjarða- byggð, þar sem fagnað var framkvæmdum við uppbyggingu íþróttamannvirkja í sveitarfé- laginu. Tæplega 500 manns tóku þátt í hátíðahöldunum. Fyrirsjáanleg fjölgun íbúa í Fjarðabyggð, m.a. vegna starf- semi álvers Alcoa-Fjarðaáls, skapar þörf fyrir bætta aðstöðu til heilsuræktar og íþróttaiðkun- ar á svæðinu. Eru framkvæmd- irnar liður í áætlun sveitarfélags- ins um aðgerðir til að mæta fjölguninni og stórbæta þjónustu við íbúana. Fjarðabyggðarhöllin verður fjölnotaíþróttahús en einnig á að vera hægt að nota hana sem sýn- ingarhöll. Í húsinu verður 105x68 metra knattspyrnuvöllur með gervi- grasi, 100 m hlaupabraut ásamt stökkgryfju og 450 manna áhorf- endasvæði. Það er verktakinn Sveinbjörn Sigurðsson ehf. sem byggir húsið, jarðvegsvinna er langt komin og reiknað er með að húsið verði tek- ið í notkun vorið 2006. Kostnaður er áætlaður 400 milljónir króna. Með tilkomu fjölnotahússins batn- ar aðstaða til íþróttaiðkunar á svæðinu verulega, ekki einungis í Fjarðabyggð heldur á Austur- landi öllu. Hægt verður að stunda lands, stofnunar Æskulýðs- og íþróttasjóðsins Spretts í samstarfi við ÚÍA, nemendaskipta í sam- starfi við Stofnun Leifs Eiríks- sonar, umferðarfræðslu fyrir leik- og grunnskólabörn í Fjarða- byggð, starfsþjálfunar lögreglu- þjóna í Fjarðabyggð, trjáræktar á vegum Skógræktarfélags Reyðarfjarðar og byggingar gestastofu í Ásbyrgi. stefnu að taka virkan þátt í sam- félaginu í nágrenni fyrirtækisins með fjárframlögum til ýmissa verkefna. Fyrirtækið leggur nú fram 90 milljónir króna til íþróttamannvirkja í Fjarðabyggð. Á liðnu ári lagði Alcoa-Fjarðaál fram 135 milljónir kr. m.a. vegna menningarviðburða á Austur- landi, kaupa á sérhæfðum búnaði fyrir Heilbrigðisstofnun Austur- knattspyrnu allt árið, aðstaða til iðkunar frjálsra íþrótta stórbatn- ar, auk þess sem þar verður hægt að stunda ýmsa aðra afþreyingu, svo sem göngur og golf. Einnig mun húsið nýtast til margvíslegs móta- og sýningarhalds. Ný líkamsræktarstöð Hafnar eru framkvæmdir við byggingu 210 fermetra líkams- ræktarstöðvar sem verður í við- byggingu við núverandi íþrótta- hús á Reyðarfirði. Það er fjárfest- ingafyrirtækið Landsafl hf. sem fjármagnar þá byggingu og mun leigja bæjarfélaginu. Rekstrar- aðili verður fyrirtækið Iceland- Spa&Fitness, sem m.a. rekur Sporthúsið og Baðhúsið í Reykja- vík. Áætlað er að byggingin verði tilbúin nú í nóvember. Byggingar- aðili er Austverk ehf. á Djúpavogi og áætlaður kostnaður 30–40 milljónir kr. Á Eskifirði er í byggingu úti- sundlaug með tilheyrandi renni- brautum o.fl. og einnig verður þar líkamsræktarstöð. Kostnaður við verkefnið er 350 milljónir króna. Á Norðfirði er sveitarfélagið að ljúka endurbyggingu sundlaugar- innar og byggingu nýrra búnings- klefa og líkamsræktarstöðvar. Kostnaður þar er 250 milljónir króna. Alcoa-Fjarðaál hefur þá Fjarðabyggðarhöllin gjörbreytir aðstæðum til íþróttaiðkunar í Fjarðabyggð Verður stærsta íþróttahúsið á Austurlandi Morgunblaðið/Helgi Garðarsson Klárir í skokkið Smári Geirsson, forseti bæjarstjórnar, Ellert B. Schram, forseti ÍSÍ, og Guðmundur Bjarnason bæjarstjóri. Morgunblaðið/Hallfríður Bjarnadóttir Fjarðabyggðarhöllin kynnt Íþróttakapparnir Patrekur Trostan Stef- ánsson og Kristófer Sigurðsson bíða spenntir eftir höllinni. 5.600 tonn fylliefnis | Steypuvinna hefur nú hafist við skautsmiðju, steypuskála og birgðageymslu en um leið heldur steypuvinna áfram við kerskálana. Um leið og steypuvinna eykst, eykst einnig þörfin fyrir fylliefni í steypuna. Næstu tvo mánuði munu farmar af fylliefni koma í nýju höfnina í hverri viku. Fylliefnið sem notað er í steypuna fyrir ker- skálana þarf að hafa sérstaka efniseiginleika hvað varðar leiðni og alkalívirkni. Þess vegna eru þau 180.000 tonn af fylliefni sem þarf til verksins flutt inn frá Noregi. Fylliefnið er af- fermt í nýju álvershöfninni og síðan flutt í starfsstöð Steypustöðvarinnar á fram- kvæmdasvæðinu. Meðan á framkvæmdum stendur koma um 32 skip að framkvæmda- svæðinu og mun hvert þeirra flytja um 5.600 tonn af fylliefni.    Margir í Végarð | Alls hafa liðlega tíu þúsund gestir komið í Végarð í Fljótsdal í ár til að skoða sýningu Landsvirkjunar um Kárahnjúkavirkjun. Talan miðast við lok ágústmánaðar og er ívið hærri en á sama tíma í fyrra. Gestir í Végarði voru rétt um 10.000 talsins til loka ágúst 2004 en um 10.200 á sama tíma árið 2005. Sérstaka at- hygli vekur hve útlendum gestum hefur fjölgað. Í fyrra voru skráðir um 500 útlend- ingar á gestalista Kárahnjúkasýningarinnar en í ár voru þeir um 1.200 talsins. Í þeim hópi eru Danir áberandi fjölmennastir, en þar á eftir koma Englendingar og Þjóð- verjar.    Álversframkvæmdir | Bechtel boðar til kynningarfunda þar sem gerð er grein fyrir stöðu framkvæmda við álver Fjarðaáls að Hrauni í Reyðarfirði. Fundirnir hefjast kl. 20.00 og er áformað að þeir standi í um tvo tíma. Farið verður yfir gang framkvæmd- anna, atvinnumál, innkaup á þjónustu og vörum. Fundað verður í Félagslundi, Reyðar- firði, 12. september, Egilsbúð í Neskaupstað, 13. september, Valhöll á Eskifirði, 14. septem- ber, Herðubreið á Seyðisfirði, 19. september, Skrúð á Fáskrúðsfirði, 20. september og Hótel Héraði á Egilsstöðum 21. september nk. ÞEIM fækkar óðum skemmtiferðaskipunum sem viðkomu hafa á Akureyri, það næstsíðasta, The World, hefur legið við Oddeyrarbryggju um tveggja daga skeið og einungis eitt eftir að koma, Akademik S. Vavilov sem væntan- legt er næsta sunnudagsmorgun, 11. september. Farþegum var boðið upp á ósvikið haustveður í höfuðstað Norðurlands síðari daginn, í gær, rigningar- sudda og kalsa, en þann fyrri var aftur á móti sól og blíða. Þannig gafst þeim kostur á að upplifa snögg veðrabrigði á meðan þeir skoðuðu sig um í bænum og nágrenni hans. Þessir tveir voru á bryggjunni og reyndu fyrir sér í veiðiskap, en ekki var annað að sjá en rólegt væri á þeim vettvangi. Morgunblaðið/Margrét Þóra Rólegt í veiðiskapnum BÆJARRÁÐ Dalvíkurbyggðar hef- ur samþykkt að nýta sér ekki for- kaupsrétt sinn í hlutafjáraukningu Greiðrar leiðar ehf. Á fundinum var tekið fyrir erindi frá stjórn félagsins þar sem fram kemur að á aðal- fundi Greiðrar leiðar í júní síðast- liðnum hafi verið samþykkt að heim- ila hækkun á hlutafé félagsins um allt að kr. 95.590.000 samfara því að félaginu var breytt í framkvæmda- félag sem standi fyrir gerð og rekstri jarðganga undir Vaðlaheiði. Í ljósi stjórnarsamþykktar Greiðrar leiðar var óskað eftir að þeir hluthafar sem ætla að nýta for- kaupsrétt sinn á auknu hlutafé til- kynni það skriflega fyrir 1. desem- ber nk. Bæjarráð Ólafsfjarðar tók erindið einnig fyrir á fundi nýlega en þar var afgreiðslu þess frestað. Þrjátíu hluthafar eiga hlut í Greiðri leið, Akureyrarbær er þeirra stærstur með tæplega 36% hlut þá KEA með um 23% og Þingeyjar- sveitá ríflega 11%. Aðrir hluthafar eiga allir innan við 10% hlut hver.    Nýta ekki forkaupsréttinn SAMNINGUR um heildarúttekt og greiningu á allri orku- og vatnsnotk- un Norðurmjólkur hefur verið undir- ritaður milli fyrirtækisins og Dexta- orkutæknilausna ehf. Markmiðið með honum er að ná umtalsverðum sparnaði í orku- og vatnsnotkun en forsvarsmenn Dexta-orkutæknilausna hafa sett sér það takmark að ná fram 15% lækkun afltopps og 50% lækkun á orkunotk- un fyrir heitt og kalt vatn í mjólk- urvinnslu. Takist það munu sparast margar milljónir króna í rekstri. Markvisst verður farið í gegnum orkubúskap Norðurmjólkur og verð- ur leitast við að ná fram hagkvæmni í rekstri fyrirtækisins, auk þess að gera hann umhverfisvænni og sam- keppnishæfari. Miðað er við að verk- efninu ljúki í lok þessa árs. Dexta Orkutæknilausnir er nýtt fyrirtæki í eigu Gauta Hallssonar orkutæknifræðings, sem sérhæfir sig í heildarúttekt á orku- og vatns- notkun fyrirtækja, ásamt sölu á varmaskiptum og öðrum orkuflutn- ingsbúnaði.    Sparnaður í orku- og vatnsnotkun Samtakamátturinn | Búið er að leggja gervigras á nýjan sparkvöll á Grenivík og er þess vænst að hann verði tilbúinn til notkunar nú fyrstu dagana í september. Þetta er svo- kallaður KSÍ völlur, en KSÍ leggur til gervigrasið en sveitarfélagið undirlag, batta, lýsingu og annað. „Á tímabili stefndi í að hætta þyrfti við völlinn þar sem sveitarfélagið stend- ur í stórframkvæmdum og kassinn orðinn tómur, en samtakamátturinn í sveitarfélaginu gerði það að verk- um að stór hluti er unninn í sjálf- boðavinnu og varð það til þess að völlurinn varð að veruleika,“ skrifar Guðný Sverrisdóttir sveitarstjóri í pistli á vef sveitarfélagsins. Íbúum fjölgar | Leikskólinn Álfa- steinn í Hörgárbyggð, sem hélt upp á 10 ára afmæli í sumar, er nú full- nýttur og hefur myndast biðlisti en svo hefur ekki verið lengi. Íbúum hefur fjölgað í sveitarfélaginu, bæði hefur fólk flust í sveitarfélagið og einnig fæðst börn. Leikskólinn rúm- ar 17 börn í einu og er nokkuð ljóst að gera þarf ráðstafanir í nánustu framtíð til að geta tekið öll þau börn inn í leikskólann sem sótt er um fyr- ir, segir á vefsíðu Hörgárbyggðar.    Lögfræðitorg | Timothy Murphy flytur fyrirlestur á Lögfræðitorgi í dag, þriðjudaginn 6. september, kl. 12.00 í stofu L101 Sólborg. Í erindinu fjallar hann um upp- byggingu stjórnarskrár íslenska lýð- veldisins með áorðnum breytingum. BÆJARRÁÐ Dalvíkurbyggðar hef- ur samþykkt að veita Fiskideginum mikla rekstrarstyrk að upphæð 700 þúsund króna. „Með tilliti til þess að umfang Fiskidagsins 2005, sem jafnframt var 5 ára afmæli atburðarins, var meira en nokkru sinni fyrr bæði fjöldi gesta og tími heimsókna sam- þykkir bæjarráð beiðni stjórnar Fiskidagsins mikla um aukafjárveit- ingu að fjárhæð 700.000 kr. Atburð- urinn hefur mjög jákvæð áhrif á ímynd byggðarlagsins og vekur samkennd meðal íbúanna,“ segir í bókun bæjarráðs. Um 30 þúsund manns lögðu leið sína til Dalvíkur og tóku þátt í dag- skrá Fiskidagsins mikla, þáðu fjöl- breyttar fiskafurðir og nutu veður- blíðunnar. Morgunblaðið/Margrét Þóra Jákvæð áhrif á ímyndina

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.