Morgunblaðið - 06.09.2005, Side 20

Morgunblaðið - 06.09.2005, Side 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ MENNING Sinfóníuhljómsveit Íslands hófvetrarstarf sitt um helginameð kynningu á dagskrá vetrarins í Háskólabíói. Dagskrá vetrarins hefur verið gefin út á myndarlegri bók, og er eins og jafn- an forvitnileg og fjölbreytt. Það sem fyrst vekur eftirtekt í vetrardagskrá hljómsveitarinnar, er tónleikaröð aðalhljómsveitarstjór- ans, Rumons Gamba. Á fernum tón- leikum flytur hann með hljómsveit- inni verk frá heimahögum sínum í Bretlandi í bland við sígild stórvirki. Ensku verkin eru Sálumessa Brit- tens, Helgidansar Sir Michaels Tipp- ets, og fyrsta Sinfónía Williams Waltons. Á fyrstu tónleikum rað- arinnar, 27. október verður frum- flutt splunkunýtt verk eftir eitt af yngri tónskáldum Breta, Mark- Anthony Turnage, en verkið er að hluta kostað af Sinfóníuhljómsveit Íslands ásamt Fílharmóníusveit- unum í New York og London og Sænsku útvarpshljómsveitinni. Það er ekki oft að verk erlendra sam- tímatónskálda eru frumflutt á tón- leikum Sinfóníuhljómsveitarinnar, – hvað þá að hljómsveitin eigi þátt í til- urð þeirra, þannig að þetta er tví- mælalaust talsverður viðburður. Önnur tónskáld sem Rumon Gamba hefur valið í röðina sína eru Ravel, Debussy, Dvorak og Grieg, en á fyrstu tónleikum raðarinnar, syngur ein ástsælasta sópransöngkona heims í dag, Barbara Bonney fimm söngva eftir Grieg með hljómsveit- inni. Barbara Bonney er fyrrum eig- inkona sænska stórsöngvarans Håk- ans Hagegårds, og hefur iðulega komið fram með honum og Önnu Sofiu von Otter sem heillaði gesti Listahátíðar í vor. Hagegård söng hér síðast fyrir nokkrum árum í Gamla bíói, á hreint ógleymanlegum ljóðatónleikum. Barbara Bonney er einn besti lýríski Mozartsópran heims í dag, en jafnframt ein fárra óperusöngkvenna sem leggja mikla áherslu á að syngja ljóð, og er í mikl- um metum sem slík. Það verður því ómögulegt að sleppa þessum tón- leikum. Í hitteðfyrra hófst vegferð Rum- ons og hljómsveitarinnar með sin- fóníum Sjostakovitsj, og heldur áfram í vetur. Nokkrar sinfóníanna verða leiknar í röð Rumons. Sinfóníuhljómsveitin var gagn- rýnd í fyrra fyrir litla og lélega ræktarsemi við íslenska tónlist, en sem kunnugt er hefur hljómsveitin lögboðnu hlutverki að gegna gagn- vart íslenskri tónlist.    Þótt íslenskum verkum á dag-skránni í ár fjölgi – ja sennilega um nokkur hundruð prósent, með frumflutningi fimm íslenskra verka, – þá eru þau því miður ennþá allt of fá, og hljóma aðeins á átta tónleikum af þrjátíu og átta, ef mið er tekið af útgefnu dagskránni. Þar af eru tvennir tónleikar þar sem eingöngu verða flutt íslensk verk, tónleikar Myrkra músíkdaga, með verkum eftir Þorkel Sigurbjörnsson, Harald Vigni Sveinbjörnsson, Þorstein Hauksson og Eirík Árna Sigtryggs- son, en sveitin frumflytur verk eftir hann; og tónleikar í tilefni af áttræð- isafmæli Jóns Nordals. Þar verða flutt úrvals hljómsveitarverk Jóns og konsertar, og landslið einleikara leikur með hljómsveitinni. Þessir tónleikar eru mikið tilhlökkunar- efni, enda Jón eitt merkasta núlif- andi tónskáld okkar. Þeir Þorkell og Þorsteinn Hauksson eiga báðir verk á öðrum tónleikum; en í vor frum- flytur hljómsveitin nýtt verk eftir Þorkel undir stjórn heiðursstjórn- andans Vladimirs Ashkenazys. Ashkenazy hefur verið ötull við að flytja verk Þorkels erlendis, og viðbúið að nýja verkið eigi eftir að bera hróður Þorkels víða. Önnur ís- lensk tónskáld sem koma við sögu í vetur eru Áskell Másson, en Sigrún Eðvaldsdóttir frumflytur nýjan fiðlukonsert hans í júníbyrjun, Atli Heimir Sveinsson, en Sinfónía nr. 2 eftir þetta merka hirðtónskáld hljómsveitarinnar verður frumflutt í vor, og Anna S. Þorvaldsdóttir, en verk hennar; Raven verður flutt á tónleikum í lok mars. Í dagskrárbók- inni er engar nánari upplýsingar að finna um Önnu eða verk hennar, en hún var staðartónskáld í Skálholti í sumar. Það vekur líka spurningar hvers vegna fimm af átta tónleikum með íslenskum verkum eru utan hefðbundinna tónleikaraða; í ljósi fortíðarinnar gæti maður freistast til að halda að enn væri hljómsveitin haldin einhverri feimni við að bjóða almenningi upp á íslensk verk.    Það er þó ekki hægt að segja ann-að en að staðan í haust sé betri en í fyrrahaust, og vonandi að á síð- asta vetri hafi botninum verið náð í vanrækslu á íslenskri músík. Það er bersýnilega verið að taka á mál- unum vestur á melum og fyrir það eiga forsvarsmenn hljómsveit- arinnar hrós skilið. Það er líka áber- andi að í vetur fáum við líka að heyra ný og nýleg erlend verk, en það er ekki síður nauðsynlegt fyrir okkur og lærdómsríkt en fylgjast með erlendum samtímabók- menntum, – sem þessi þjóð gerir af miklum áhuga.    Úrval einsöngvara, einleikara,hljómsveitarstjóra og kóra sem koma fram með Sinfón- íuhljómsveitinni í vetur er glæsilegt. Víkingur Heiðar Ólafsson leikur Pí- anókonsert í G-dúr eftir Ravel á fyrstu formlegu tónleikunum næsta laugardag og síðar í mánuðinum syngur Diddú óperudagskrá með hljómsveitinni. Víkingur Heiðar leikur líka á afmælistónleikum Jóns Nordals, og verður þar í úrvals- félagsskap þeirra Einars Jóhann- essonar, Erlings Blöndals Bengts- sonar, Guðnýjar Guðmundsdóttur og Ásdísar Valdimarsdóttur. Sharon Bezaly flautuleikari og Rachel Barton fiðluleikari eru báðar miklir snillingar á sín hljóðfæri og píanóleikarans Stephens Houghs bíða sjálfsagt margir einnig með mikilli eftirvæntingu. Ole Edvard Antonten trompetleikari er einn mesti músíkant Norðmanna og spil- ar hér í mars undir stjórn básúnu- leikarans Christians Lindbergs í Trompetkonsert stjórnandans sem þykir afbragð annarra blásarakons- erta. Peter Jablonski píanóleikari frá Svíþjóð, er líka einleikari í fremstu röð og spilar hér Píanó- konsert nr. 2 eftir Sjostakovitsj á Sjostakovitsjtónleikum í mars.    Það verður gaman að heyra tón-listarstjóra Óperunnar, Kurt Kopecki spreyta sig með hljómsveit- inni á tónleikum Diddúar og aftur í vor í franskri óperu, og sá afbragðs- hljómsveitarstjóri Anne Manson verður í erfiðu hlutverki með tvö ný og eitt gamalt á tónleikum nú í sept- emberlok. Þar verða flutt Bells of Earth, magnað verk Þorsteins Haukssonar, Flautukonsert eftir eitt merkasta tónskáld Finna í dag, Kalvi Aho, og loks Fimmta sinfónía Beethovens, sem alltaf hlýtur að vera hausverkur fyrir hljómsveit- arstjóra að túlka á einhvern þann máta að upplifun sé að. Ekkert er sagt í dagskránni um fyrirhugaða minningartónleika um Karl Sighvatsson, – verður fróðlegt að sjá hvað það verður, en þegar er hægt að spá tónleikum með gömlum íslenskum dægurperlum í útsetn- ingu Hrafnkels Orra Egilssonar miklum vinsældum, en söngkonur á þeim verða Eivør Pálsdóttir og Ragnheiður Gröndal. Eitt allra for- vitnilegasta verkefni hljómsveit- arinnar í vetur er svo flutningur óp- erunnar Föðurlandsins eftir Frakkann Guy Ropartz, en í óp- erunni er sögð saga fransks skútu- sjómanns sem kemst lífs af úr skips- skaða við Íslandsstrendur á seinni hluta 19. aldar.    Í heild má segja að dagskrá vetr-arins hjá Sinfóníuhljómsveit Ís- lands sé óvenjufjölbreytt og for- vitnileg. Föstu póstarnir verða þó flestir á sínum stað, eins og bíó- tónleikar, Vínartónleikar. Það er augljóst að hljómsveitinni er í mun að rækja hlutverk sitt gagnvart öll- um hlustendum af metnaði, og koma til móts við gagnrýnisraddir liðinna ára. Þrátt fyrir einvalalið gesta í vet- ur, verður það fyrst og síðast hljóm- sveitin sjálf sem fólk bíður eftir að heyra; – hljómsveitin okkar sem er orðin svo feiknargóð. Hún á allt það besta skilið og því enn dapurlegra að hún skuli enn einn veturinn vera að hefja starfsár í algerlega óviðunandi húsnæði sínu í Háskólabíói. Ný verk og góðir gestir hjá Sinfó í vetur ’Það er þó ekki hægt aðsegja annað en að stað- an í haust sé betri en í fyrrahaust, og vonandi að á síðasta vetri hafi botninum verið náð í vanrækslu á íslenskri músík. Það er bersýni- lega verið að taka á mál- unum vestur á melum.‘ AF LISTUM Bergþóra Jónsdóttir Einbeitt lið víóluleikara Sinfóníuhljómsveitar Íslands. begga@mbl.is SKÁLDSAGAN Bítlaávarpið eftir Einar Má Guðmundsson er nýkom- in út í Danmörku í þýðingu Erik Skyum-Nielsen og er væntanleg í Svíþjóð, Finnlandi og Noregi. Danskir dómar hafa einkennst af lofi og mörgum orðum hefur verið farið um hinn stóra og dygga les- endahóp sem Einar Már á þar í landi auk þess sem þýðingin þykir framúrskarandi. Bókin er víða bor- in saman við hina geysivinsælu skáldsögu Mikaels Niemis, Rokkað í Vittula auk bóka verðlaunahafa bókmenntaverðlauna Norð- urlandaráðs, Lars Saabye Christ- iansen. Í Politiken bendir Michael Lam- bæk Nielsen á að í Bítlaávarpinu kallist Einar Már á við rithöfunda eins og Lars Saabye Christensen, Frode Grytten og Mikael Niemi. Hann segir ennfremur að Bítla- ávarpið einkennist af örum og nú- tímalegum Íslendingasagnastíl „þar sem örlög eru ráðin á nokkr- um síðum í krafti sláandi sögu sem segir allt sem segja þarf. … Í stuttu máli: Lesið það!“ Gagnrýnandi Information, Lilian Munk Rösing, segir erfitt annað en að falla fyrir drengslegum sjarma og lygastíl höfundar og sögumanns- ins Jóhanns. „Íslendingasögurnar ganga aftur í grófum ýkjum Jó- hanns en tengdar goðsögnum nú- tímans. … Hann á hrós skilið, hinn góði Guðmundsson. Bítlaávarpið er fagmannlegt grip hins gam- alreynda tónlistarmanns á gítar frásagnarlistarinnar. Ekki risavax- ið verk en lítil skemmtileg bók sem tekst að láta Reykjavík anga af Ís- lendingasögum og Liverpool, í kokkteil lyga, húmors og ang- urværðar.“ Innreið nútímans Í fyrirsögn Jyllands-Posten bendir Jon Helt Haarder á sameig- inleg atriði Bítlaávarpsins og skáld- sögu Niems, Rokkað í Vittula. „… það eru stöðugt hækkandi tón- ar af missi, sorg og sársauka gegn- um allan strákalega ruddaskapinn. … Innreið nútímans í Reykjavík Einars Más eða Pajala Niemis með hinum fjóru frá Liverpool sem spá- mönnum er frelsun neðan beltis og frelsun meðvitundar. En eitthvað tapast og liggur eins og brakandi tónn undir hinum glöðu popp- smellum, svallandi hormónum og syngjandi gíturum. Svo þegar allt kemur til alls má líta á bókina bæði sem athugasemd við alheimsvæð- inguna og sem einskonar innlegg í hina stöðnuðu dönsku umræðu um yfirlýst einræði menningarvita og vinstrisinna yfir menningunni.“ Gagnrýnandi Fyns Stifstidende, Mogens Damgaard, viðurkennir að hafa hlegið upphátt við lestur sög- unnar, jafnvel þótt slíkt athæfi ann- arra fari jafnan í taugarnar á sér. Hann gefur sögunni fjórar stjörnur af sex mögulegum og segir textann úa og grúa „af sérvitrum og létt- geggjuðum persónum, eins og mað- ur gerir ráð fyrir þeim á sögueyj- unni. Guðmundsson … hefur næmt auga fyrir sérstöðu landa sinna, og honum tekst að lýsa þeim á gagn- rýninin en kærleiksríkan hátt. “ Margit Andersen hjá Dagbladet Arbejderen segir fáa aðra en Einar Má kunna þá kúnst „að ganga inn í drengshöfuðið og lýsa heiminum þaðan, á sama tíma og hið fullorðna höfuð hans stýrir pennanum, þann- ig að niðurstaðan verður heillandi og fyndin skáldsaga um börn fyrir fullorðna.“ Í sama streng tekur Christa Leve Poulsen, gagnrýnandi Børsen, sem bendir á að í henni sé að finna hina sömu kátu nostalgíu og í Rokkað í Vittula eftir Mikael Niemi. Einar Már er um þessar mundir staddur í Danmörku á upplestr- arferðalagi vegna útkomu Bítla- ávarpsins. Meðal borga sem hann mun lesa upp í eru Kaupmanna- höfn, Álaborg, Horsens og Árósir. Bókmenntir | Danskir fjölmiðlar hrifnir af Bítlaávarpinu eftir Einar Má „Grip á gítar frásagnarlistarinnar“ Morgunblaðið/Sverrir Einar Már Guðmundsson les upp úr bók sinni Bítlaávarpinu. Weimar | Nýfundin aría eftir Johann Seb- astian Bach var frumflutt í hátíðarsal hallarinnar í Weimar í Þýskalandi á laugardaginn. Verkið sem um ræðir, Alles mit Gott und nichts ohń Ihn, aría fyrir sópran og fylgibassa með strengjamillispili, fannst í maí í ár, eins og sagt var frá í Morg- unblaðinu. Engar heimildir um verkið voru áður þekktar og það hafði að öllum líkindum ekki hljómað síðan það var frumflutt á afmælisdegi vinnuveit- anda Bachs, Wilhelms Ernsts hertoga af Saxlandi-Weimar 30. október 1713. Flytjendur verksins nú á laugardaginn voru Juliane Banse sópran, András Schiff semball, André Kassel orgel og strengjakvartettinn Quatuor Mosaiques. Tónleikarnir voru hluti af Listahátíð- inni í Weimar sem nú stendur yfir. Auk flutnings aríunnar var sagt frá fundi verksins og hlaut Michael Maul, sem fyrstur kom auga á handritið, mikið lof í lófa. Hið nýfundna verk Bachs, sem hefur fengið númerið 1127 í Bach-verkaskránni (BWV) kemur út á nótum hjá Bärenrei- ter-útgáfufélaginu í dag, 5. september, og á geisladiski undir stjórn Johns Eliots Gardiners. Nýfundin aría Bachs frumflutt J.S. Bach

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.