Morgunblaðið - 06.09.2005, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 06.09.2005, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 2005 23 rætó, tekið af vefsíðu. i hjálpa á kortinu. ennings- r fáir far- sé bíla- vonlaust þessu ví og ég a við- g auðveld- kemur! Að um al- kostar kostn- tið, vinn- arana, Í raun- trætós sé sennilega ekki ósammála mínum til- lögum, og hefur einfaldlega verið of upptekið af leiðabreytingum til að geta hugsað um upplýsingahönnun. Að koma upp auðskiljanlegum tíma- töflum virðist kosta aðeins nokkra pappírspakka í A4, dálítið blek, tölvuforrit, sem Strætó á trúlega nú þegar, og vinnuna við að koma tíma- töflunum fyrir í ramma á hverri bið- stöð. Nú þegar við erum komin með gott leiðakerfi, skulum við ljúka verkinu með því að gefa fólki þær upplýsingar, sem það þarf á að halda. Nú kann einhverjum að finnast að það séu bara einhverjir furðufuglar, sem hafi áhuga á tímatöflum og upp- setningu þeirra, en á þessu sviði hafa farið fram miklar rannsóknir. Benda má á tvær, sem vert er að kynna sér: www.trg.soton.ac.uk/bpg og www.its.usyd.edu.au/ bus_and_coach_themes/BestP- ractice.pdf. Ég er að vísu ekki sérfræðingur í þessum málaflokki en hef þó lagt fram minn litla skerf til hans. Höfundur er prófessor í félagsfræði og aðjúnkt við Viðskiptaháskólann á Bifröst. menningssamgangnakerfis í Prag. TENGLAR ................................................... www.ianwatson.org. Lýst var verulegum áhyggj-um yfir þeirri stöðu semnú blasir við sjávarútveg-inum á Vestfjörðum í ályktun fjórðungsþings Vestfirð- inga, sem haldið var á Patreksfirði frá föstudegi til laugardags. „Miðað við núverandi fiskveiði- stjórnun er byggðakvótinn einn af þeim fáu möguleikum sem stjórn- völd í landinu hafa til að bregðast við þeirri röskun sem minnkandi veiði- heimildir hafa á einstökum svæðum. Fjórðungsþingið vill beina þeim tilmælum til stjórnvalda, að leita leiða til að auka nýliðun í sjávarút- vegi,“ segir í ályktun sem samþykkt var á þinginu. Fram komu áhyggjur af háu gengi íslensku krónunnar og þeim neikvæðu áhrifum sem það hefði á vestfirskt atvinnulíf. Í ályktun um áhrif hágengis segir að leiða megi líkur að því að gengi íslensku krón- unnar haldist áfram hátt. Slíkt stefni vestfirsku atvinnulífi, sem byggist að mestu leyti á útflutningi, í voða. „Stóriðjuframkvæmdum í öðrum landshlutum er hvergi nærri lokið, stækkun álversins í Grundartanga og í Straumsvík og nýtt álver í Helguvík og á Norðurlandi eru fáein dæmi. Líkur eru á því að það þenslutímabil sem boðað var í tengslum við stóriðjuframkvæmdir á Austurlandi lengist einnig veru- lega. Þá liggur fyrir mikið innstreymi erlends fjármagns á skuldabréfa- markað á Íslandi, sem auðvelt er að sýna fram á að hefur gríðarleg áhrif til styrkingar á gengi íslensku krón- unnar. Slík þróun og þær fram- kvæmdir sem nefndar eru að ofan eru að ganga afar nærri vestfirsku atvinnulífi,“ segir í ályktun sem samþykkt var á þinginu. Áskorun um fjölgun opinberra starfa í fjórðungnum Þingið samþykkti áskorun á stjórnvöld að fylgja eftir tillögu í Vaxtarsamningi Vestfjarða er varð- ar fjölgun opinberra starfa í fjórð- ungnum. Er markmiðið að störfum í opinberri þjónustu á Vestfjörðum fjölgi og þekking og reynsla núver- andi þjónustustofnana verði aukin og nýtt til fullnustu. Skoraði þingið einnig á stjórnvöld að festa í sessi starfsemi Fjölmenningarseturs og gera stofnunina að landsmiðstöð í málefnum innflytjenda á Íslandi samkvæmt tillögu í Vaxtarsamningi Vestfjarða, sem gerir ráð fyrir að Fjölmenningarsetur á Vestfjörðum verði sjálfstæð stofnun sem heyri undir félagsmálaráðuneytið. Umræður og fjöldi ályktana á fjórðungsþingi Vestfirðinga um sjávarútveg, hágengi og byggðamál Byggðakvóti einn af fáum möguleikum vegna minni veiðiheimilda Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Vestfjörðum. Þá erum við m.a. að tala um sérhæfð störf á sjúkrahús- inu og í tengslum við nýstofnað há- skólasetur. Einnig vantar tækni- menntað fólk og fólk með góða iðnmenntun,“ segir Halldór og nefn- ir í því samhengi fyrirtæki á borð við 3X-Stál og Póls hf. sem séu að gera góða hluti fyrir vestan. Brýnasta verkefnið að klára leiðina um Ísafjarðardjúp Á þinginu var lögð fram skýrsla Rann- sóknarstofnunar Há- skólans á Akureyri um samanburð á vegteng- ingar á Vestfjörðum. Að sögn Halldórs gerðu sérfræðingarnir sérstaklega að umtals- efni ranghugmyndir um það hvað væru arð- bærar vegafram- kvæmdir. „Sérfræðingarnir sögðu að við værum örugglega eins og annað landsbyggðarfólk sem teldi að það þyrfti einhverjar sérstaka réttlætingu fyrir vegabótum úti á landi af því að allar vegafram- kvæmdir á höfuðborgarsvæðinu séu arðbærar en nánast engar úti á landi. Að sögn sérfræðinganna er þetta hins vegar mikill misskilning- ur, því það eru t.d. engin mislæg gatnamót á höfuðborgarsvæðinu arðbær. Tvenn mislæg gatnamót á höfuðborgarsvæðinu kosta líklega það sama og að klára að malbika hringinn á Vestfjörðum,“ segir Hall- dór og hafði eftir skýrsluhöfundum að göng milli Dýrafjarðar og Arn- arfjarðar sem og Arnkötludalsveg- ur, milli Hólmavíkur og Króksfjarð- arness, væru arðbærar framkvæmdir. Að sögn Halldórs var á þinginu gerð bókun þess efnis að litið yrði á leiðina milli Bolungarvíkur og Ísa- fjarðar, sem og milli Ísafjarðar og Súðavíkur sem öryggismál. „Við viljum láta hraða vegbótum á þess- um tveimur leiðum enda margir hræddir við grjóthrun og snjóflóð,“ segir Halldór og bendir á að vega- bætur á þessum leiðum felist í því að bora göng enda aldrei hægt að gera hlíðarnar nægilega öruggar aðeins með netum og skjólveggjum. „Göng þarna á milli er því eini almennilegi valkosturinn og mjög mikilvægt út frá öryggi.“ Spurður hvaða verkefni er snúa að vegagerð eru brýnust nú segir Halldór mikilvægast að leiðin um Ísafjarðardjúp verði kláruð. „Það er bara eitt verkefni eftir í Djúpinu og það er að byggja brú yfir Mjóafjörð og klára veginn báðum megin að þeirri brú. Þá yrði Ísafjarðardjúp eins og það leggur sig á tvíbreiðu bundnu slitlagi. Það er ekkert svo mikið eftir, en það er dýrt það sem er eftir,“ segir Halldór að lokum. Ræða úrlausnir í stað vandamála Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is Þema þingsins var ungt fólkog framtíðin, sem var aðmínu mati mjög vel tilfundið,“ segir Halldór Halldórsson, bæjar- stjóri á Ísafirði, um nýafstaðið fjórðungs- þing sem fram fór á Patreksfirði um helgina. Þingið sóttu hátt í sjötíu manns, bæði bæjarfulltrúar, alþingismenn og fulltrúar hinna ýmsu stofnana, s.s. frá Fræðslumiðstöð, Heilbrigðiseftirliti, Svæðisvinnumiðlun og Háskólasetri Vest- fjarða. Aðspurður sagðist Halldór afar ánægður með þær umræður sem fram fóru á þinginu um það hver framtíðarsýn unga fólksins væri og hvað þurfi til framtíðar. „Mér fannst unga fólkið svo jákvætt í máli sínu, en það sér hlutina greinilega öðruvísi en margir aðrir. Í máli sínu lagði unga fólkið áherslu á uppbyggingu rannsóknarseturs, en var ekkert að ræða kvóta eða fiskveiðar. Segja má að unga fólkið hafi áminnt okkur um það að við ættum að vera að ræða úrlausnir í stað þess að ræða vandamál og hvað sé hverjum að kenna.“ Að sögn Halldórs mátti ljóst vera af umræðunni að ungt fólk velur að búa á Vestfjörðum af því að það er öðruvísi, gott og þægilegt umhverfi. „Meðal þess sem kom fram var ánægja með að engar biðlistar eru í leikskóla. Einnig kom fram að í flestum tilvikum sýnist þeim að það sé ódýrara að búa hér en á höfuð- borgarsvæðinu, nema kannski helst með tilliti til matvælaverðs sem get- ur á sumum stöðum vegið ansi þungt. Raunar á það ekki við um Ísafjarðarsvæðið þar sem 60–70% Vestfirðinga búa því þeir hafa sama aðgang að lágvöruverslunum og íbúar Reykjavíkur og er verðið það sama,“ segir Halldór og tekur fram að næg atvinnutækifæri séu fyrir hendi til handa ungu fólki. „Ætli það megi ekki áætla að það vanti starfskrafta í ein 60 störf hér á Halldór Halldórsson SAMÞYKKT var á Fjórðungs- þingi Vestfirðinga á Patreksfirði um helgina ályktun þar sem segir að það sé sanngjörn krafa að samgönguverkefni á Vestfjörð- um séu sett í forgang. Enn séu viðamikil verkefni eft- ir sem kveðið er á um í sam- gönguáætlun Fjórðungssam- bandsins, s.s tengingar þéttbýlisstaða með bundnu slit- lagi, Arnkötludalsvegur (Trölla- tunguvegur), uppbygging vegar um Ísafjarðardjúp og Vestfjarða- vegar ásamt gerð jarðganga milli Dýrafjarðar og Vatnsfjarðar. „Fjórðungsþing skorar á sam- gönguyfirvöld að hefja nú þegar undirbúning að gerð tvennra jarðganga á þessari leið í sam- ræmi við samþykktir Fjórðungs- þings 2004. Litið verði á gerð ganganna sem eina framkvæmd og verði hafist handa við þau eigi síðar en árið 2008,“ segir í álykt- un þingsins. Undirbúningur verði hafinn að gerð tvennra jarðganga

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.