Morgunblaðið - 06.09.2005, Side 33

Morgunblaðið - 06.09.2005, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 2005 33 DAGBÓK Vísbendingar eru um að geðrænir erf-iðleikar og vandamál séu af svipuðumtoga hjá fólki af ólíku þjóðerni. Þettasegir Guðrún Bjarnadóttir, sálfræð- ingur hjá Miðstöð heilsuverndar barna. Föstu- daginn 9. september verður haldin opin nám- stefna í tengslum við ráðstefnu Samtaka evrópskra sérfræðilækna í barna- og unglinga- geðlækningum (UEMS) en m.a. verður fjallað um fjölmenningarsamfélagið á námstefnunni. „Það er alþjóðlegur áhugi á að skoða hvort geðrænn vandi og erfiðleikar séu ólíkir hjá fólki á mismunandi stöðum í heiminum,“ segir Guð- rún. „Áhuginn eykst væntanlega með auknum flutningum fólks á milli svæða og því að sam- félagið er stöðugt að verða fjölbreyttara.“ Fyrirlesarar á námstefnunni verða Thomas M. Achenbach, prófessor í sálfræði og geðlækn- ingum við Vermont-háskóla og Leslie A. Res- corla, prófessor í sálfræði við Bryn Mawr- háskólann í Pennsylvaníu. „Achenbach og sam- starfsfólk hans hafa samið matstæki, sem er þekktast undir nafninu CBCL eða Child Behavi- or Checklist. Þessi listi hefur verið þýddur, staðl- aður og rannsakaður um allan heim. Achenbach hefur tekið saman niðurstöður rannsókna, viðmið og fleira frá yfir 60 löndum til að sjá hver mun- urinn er og hvað sameiginlegt.“ Hún segir þessi gögn gefa til kynna að fleira sé líkt með fólki af ólíkum uppruna en ólíkt. „Við glímum við svipuð vandamál, hvort sem við erum hér eða annars staðar í heiminum, en stundum er munur á. Í ljós hefur t.d. komið að börn á stríðshrjáðum svæð- um eru oft vonlaus og finnst þau litlu geta áork- að.“ Prófessor Rescorla stýrir stofnun sem sérhæf- ir sig í barnarannsóknum. „Hennar rannsóknir beinast að geðrænum vandamálum barna. Eins hefur hún rannsakað málþroska þeirra og bætt inn í matslista Achenbachs skimun fyrir yngstu börnin á málstöðu þeirra. Málskimunarlistann væri vert að rannsaka betur hér heima.“ Aðspurð segir Guðrún matslistana gjarnan lagða fyrir börn þegar uppi eru áhyggjur af t.d. hegðan og líðan þeirra. „Kosturinn við þessa lista er að þeir skima fyrir ólíkum hlutum. Ef t.d. er um að ræða óstýrilátt barn sem fólk er að velta fyrir sér hvort sé hugsanlega með athygl- isbrest og ofvirkni þá skima þessir listar bæði fyrir slíkum hlutum en eins fyrir líðan. T.d. getur þunglyndi slegið út í óstýrilátri hegðun hjá börn- um og það þunglyndi gæti dulist ef ólík atriði eru ekki skoðuð.“ Námstefnan, fer fram á Hótel Nordica, hefst kl. 13 og stendur til kl. 16. Tekið er á móti skrán- ingum hjá Gestamóttökunni í Bankastræti í síma 551 1730. Námstefna | Barna- og unglingageðlækningar Svipuð vandamál víðast hvar  Guðrún Bjarnadóttir er sálfræðingur hjá Miðstöð heilsuverndar barna. Hún útskrifaðist frá Menntaskólanum í Reykjavík 1966, lauk kennaraprófi og námi í sérkennslu og tal- kennslu frá Statens Spesiallærerskole í Ósló árið 1971. Hún lauk BA-prófi í sálfræði frá Háskóla Íslands árið 1990 og eftir það fór hún til Bandaríkjanna í framhaldsnám við Pensylvania State Univers- ity. Þaðan lauk hún doktorsprófi árið 2003. Guðrún er gift og á einn uppkominn son. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Pennavinir í Japan VELVAKANDA hefur borist bréf frá Pennavinaklúbbi í Japan. Í klúbbnum eru meðlimir frá tán- ingsaldri og fram á miðjan aldur sem óska eftir pennavinum frá Ís- landi. Klúbburinn er stærsti penna- vinaklúbbur Japans og var hann stofnaður 1950 með það að mark- miði að koma á vinsamlegum sam- skiptum Japana við fólk í öðrum löndum. Telja þau að það sé und- irstaða friðar á jörð. Þeir sem hafa áhuga á að eignast japanskan pennavin eru beðnir að senda bréf með nafni, heimilisfangi, kyni og aldri á heimilisfangið: To Japanese friend, c/o International Friendship Club, P.O. Box 6, Hatogaya, Saitama, 334-8691, Japan. Eldri borgara til starfa UNDANFARIÐ hefur mikið verið auglýst eftir fólki í umönnunarstörf og á leikskóla. Ég er ein af þeim sem gætu hugsað sér að vinna áfram þótt ég sé komin á ellilífeyri, mér til heilsubótar og til að bæta tekj- urnar. En skattalögin eru þannig að það mundi einungis skerða líf- eyrinn. Ég hef þá hugmynd að ef eldri borgarar fengju aukaskattkort og mættu afla sér tekna fyrir t.d. 60 þús. á mánuði gætu þeir sem eru hraustir og hefðu heilsu gengið í þau störf sem erfitt er að manna. Finnst mér að formenn félaga eldri borgara ættu að beita sér fyrir því að eldri borgarar gætu unnið, þó ekki væri nema hlutastörf, eftir að þeir eru komnir á ellilífeyri. Það eru ekki allir eldri borgarar sem vilja sitja og föndra, mikið af þessu fólki er með góða heilsu og vill leggja sitt af mörkum til sam- félagsins og vinna sér til heilsubót- ar. Hvet ég formenn félaga eldri borgara og þá sem stjórna landinu til að leysa þetta mál. P.s. Svo vonast ég til að Einari takist að leysa mál Arons Pálma og vil ég koma á framfæri þakklæti til Einars og félaga. Þóra. Lifandi vísindi – gott blað MIG langar að hrósa tímaritinu Lifandi vísindi sem er mjög gott tímarit sem ég kaupi. Ég varð fyrir því að týna blaði nr. 8 við tiltekt og saknaði ég þess sáran því ég var ekki búin að lesa það. Ég hafði því samband við tímaritið og sagði þeim hvað gerst hefði og þeir sendu mér nýtt blað mér að kostn- aðarlausu. Finnst mér þetta vel gert og góð þjónusta. Gréta Mörk. Sólgleraugu týndust SÓLGLERAUGU í svörtu hulstri týndust, líklega á göngustígnum milli Síðumúla og Háaleitishverfis sl. þriðjudag. Finnandi vinsamlega hafi samband við Katrínu í síma 865 5186. ◆ ◆ ◆ ◆ ◆ ◆ ◆ ◆ ◆ ◆ ◆ ◆ ◆ ◆ ◆ ◆ ◆ Viltu læra brids? Byrjendanámskeið Bridsskólans hefst 26. september. Tíu kvöld, einu sinnu í viku. Hringdu og fáðu upplýsingar í síma 564 4247 milli kl. 13 og 18 virka daga. BRIDSSKÓLINN ♣ ♦ ♥ ♠ Málstofa Landbúnaðarháskóla Íslands Málstofan hefst kl. 14.30 í Vestursal Nýjaskóla á Hvanneyri. Allir velkomnir. Miðvikudaginn 7. September mun Þorvarður Árnason, náttúrufræðingur vera í Málstofu og ræða um niðurstöður nýlegrar viðhorfskönnunar um „Gildismat íslendinga og tengsl þess við umhverfis- og náttúrvernd“. Eignarlóðir til sölu við Þingvallavatn! Nú hefst sala á öðrum áfanga lóðanna. Tekið er á móti tilboðum í hann frá 1. til 12. september. Athygli er vakin á sölusýningum Hóls Fasteignasölu í september. Við hvetjum alla áhugasama til þess að koma og skoða lóðirnar. Nánari upplýsingar um lóðirnar eru á heimasíðu Hóls, www.holl.is. Margrét Sölvadóttir hjá Fasteignasölunni Hóli sér um sölu lóðanna. Hafðu samband við Margréti í símum 595 9032 eða 693 4490, eða í tölvupósti á margret@holl.is. klakstöðvar tenóranna. En hann er viss um að fegurð fjallanna, einstakt veðurfar og hreinleiki hins eyfirska lofts eigi eftir að efla hann og hvetja til frekari dáða. Ennfremur má segja að söngvarinn leiti til upprunans því heimsfrumsýning Tenórsins var á Berjadögum norður í Ólafsfirði í ágúst 2003,“ segir ennfremur. Leikarar í sýningunni eru Sig- ursveinn Kr. Magnússon, sem leikur Undirleikarann og Guðmundur Ólafsson í hlutverki Tenórsins. Leik- stjóri er Oddur Bjarni Þorkelsson. Þess má geta að þessir þremenn- ingar eru allir Norðlendingar – og auðvitað tenórar! Vegna annarra verkefna leikaranna verða aðeins örfáar sýningar í Freyvangsleikhús- inu þ.e.a.s. 10., 16., 17. og 23. sept- ember. LEIKSÝNINGIN Tenórinn eftir Guðmund Ólafsson er nú að hefja sitt þriðja leikár og mun á næstunni verða á fjölum Freyvangsleikhúss- ins. „Það hefur lengi verið trú manna að hvergi nokkurs staðar á byggðu bóli fyrirfinnist bjartari tenóraraddir og fegurri en norðan heiða á Íslandi. Hugtakið „hjarnbjartur , norð- lenskur tenór“ er gjarnan nefnt til sögunnar þegar tal berst að fögrum og háum karlaröddum. Hafa enda margir norðlenskir tenórar gert garðinn frægan, bæði hérlendis sem á erlendri grundu að ekki sé minnst á allt að því yfirnáttúrulega háar radd- ir þegar lagið er tekið í réttum að hausti,“ segir í kynningu. „Það má því segja að Tenórinn tefli djarft með því að fara norður í þessar Tenórinn heldur á heimaslóðir Morgunblaðið/Kristinn Óvæntur ávinningur. Norður ♠Á52 ♥8432 S/NS ♦G108653 ♣-- Suður ♠3 ♥ÁK765 ♦ÁKD2 ♣ÁKD Ekki þarf að skoða þessar hendur lengi til að sjá að sjö tíglar standa á borðinu. En þrátt fyrir að NS séu með tíu tígla á milli sín eru miklar líkur á að hjartað verði fyrir valinu sem tromplit- ur. Ástæðan er einföld: suður hlýtur að nefna hjartalitinn fyrst og norður mun strax taka undir hjartað á hundana fjóra. Í hefðbundnu Standard-kerfi gætu sagnir gengið þannig fyrir sig: Vestur Norður Austur Suður -- -- -- 2 lauf Pass 2 tíglar Pass 2 hjörtu Pass 4 lauf Pass 4 grönd Pass 5 tíglar Pass 5 spaðar Pass 6 hjörtu Allir pass Suður opnar á alkröfu og norður hlerar með tveimur tíglum. Þegar suð- ur sýnir svo hjartalit stekkur norður í fjögur lauf til að sýna þar einspil eða eyðu og góðan hjartastuðning (splint- er). Og þar með er trompliturinn settur. Suður leitar eftir lykilspilum með fjór- um gröndum og fær upp spaðaásinn, en hann hefur áhyggjur af trompdrottn- ingunni og spyr með fimm spöðum (lægstum lit fyrir utan trompið). Þegar norður neitar hjartadrottningunni hef- ur suður enga ástæðu til að fara upp fyrir sex hjörtu. Sagnir myndu fara í svipaðan farveg í sterku laufkerfi, eins og Precision. Eftir opnun suðurs á sterku laufi og afmeld- ingu norðurs segði suður frá hjartalitn- um, sem norður myndi samþykkja með splinter-stökki. Sama niðurstaða. Og þá er komið að kjarna málsins. Margir Standard-spilarar láta end- ursögnina á tveimur hjörtum eftir al- kröfuna hafa tvöfalda merkingu – sýna annaðhvort hjarta eða sterk spil og grandskiptingu. Svarhönd segir þá allt- af tvo spaða til að bíða eftir nánari skil- greiningu. Fyrirfram myndi maður halda að slík tvíræðni væri ekki til bóta, en annað kemur í ljós. Bandaríska parið Gitelman og Moss sögðu þannig á spilin í sagnkeppni í The Bridge World: Vestur Norður Austur Suður Gitelman Moss -- -- -- 2 lauf Pass 2 tíglar Pass 2 hjörtu Pass 2 spaðar Pass 3 tíglar Pass 4 tíglar Pass 4 grönd Pass 6 lauf Pass 7 tíglar Pass Pass Pass Tvö hjörtu er tvíræð sögn og Gitelm- an bíður átekta með tveimur spöðum. Moss myndi segja tvö eða þrjú grönd með grandskiptingu (eftir styrk), en með þremur tíglum lofar hann hjarta og tígli til hliðar. Norður á mun betri stuðning við tígulinn og því hækkar Git- elman í fjóra tígla. Suður spyr næst um lykilspil og fær upp spaðaásinn og eyðu í laufi. Og það dugir Moss til að segja sjö tígla. Niðurstaða: Tvíræðni tveggja hjarta sagnarinnar er fyrst og fremst hugsuð til að koma fleiri grandhöndum til skila, en svo kemur á daginn að þessi hægfara byrjun hefur leynda kosti. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is Fréttasíminn 904 1100

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.