Morgunblaðið - 06.09.2005, Qupperneq 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Í dag væri upplagt að spjalla við vini,
maka og fólk almennt. Hrúturinn er
kraftmikill, jákvæður og bjartsýnn upp á
síðkastið. Líka einstaklega sannfærandi!
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Nautið á frábæran dag fyrir höndum í
vinnunni og er með alls konar hugmyndir
um verkefni tengd útgáfu, menntun og
ferðalögum. Þú nýtur liðsinnis annarra
núna.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
En frábær dagur fyrir daður! Viðfangs-
efni dagsins er að sletta ærlega úr klauf-
unum. Það er að segja, ef þú hefur áhuga
á slíku.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Notaðu daginn til þess að ljúka fasteigna-
samningum eða kaupa eitthvað fyrir
heimilið eða fjölskyldumeðlim. Einnig er
dagurinn upplagður fyrir heimboð.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljónið hugsar eins og sigurvegari þessa
dagana. Afstaða himintunglanna ýtir und-
ir jákvæða hugsun hjá ljóninu og það er
haldið fullvissu. Ekki síst hvað varðar
skriftir, miðlun og ferðalög.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Verslun og viðskipti eru viðfangsefni
dagsins. Hvers kyns peningaviðræður
eða stórinnkaup ganga að líkindum að
óskum og koma meyjunni til góða.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Tunglið, Venus og Júpíter eru öll í vog-
armerkinu núna. Það gerist ekki betra!
Reyndar er sólin á leið í vogina líka á
næstunni, sem er frábært. Njóttu dags-
ins.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Einvera í fögru umhverfi gleður þig í dag.
Þú nýtur þess að eiga dálítinn tíma með
sjálfum þér. Reyndu að koma því við. Þó
ekki væri nema að fara í stuttan bíltúr.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Samræður við vini eða innan hópa sem
bogmaðurinn tilheyrir verða ánægjulegar
í dag. Trúnaðarsamtal við vinkonu gæti
reynst sérstaklega jákvætt og uppörv-
andi.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú ferð létt með að ganga í augun á valda-
miklu fólki í dag án þess að leggja sér-
staklega mikið á þig. Þú hljómar og virð-
ist vera með allt á hreinu, án þess að það
ógni neinum.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Notaðu daginn til þess að bóka ferðalag
eða kynna þér og gaumgæfa nýjar hug-
myndir, óvenjulega heimspeki og marg-
vísleg trúarbrögð.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Nú er rétti tíminn til þess að sinna mik-
ilvægum samningaviðræðum. Þú átt inni
greiða hjá æðri máttarvöldum, ef svo má
að orði komast. Hlunnindi og gjafir sogast
nánast að þér.
Stjörnuspá
Frances Drake
Meyja
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert smekkmanneskja og kannt að
njóta lífsins. Þú laðast að hrífandi fólki
og ert að sama skapi aðlaðandi í augum
annarra. Lífið verður litríkara með ár-
unum hjá mörgum sem eiga þennan af-
mælisdag. Þú átt marga vini og sýnir
bæði umburðarlyndi og trúnaðartraust.
Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár
af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 festing, 8 duttu,
9 svana, 10 stórfljót, 11
undirnar, 13 konur, 15
uxann, 18 vísa, 21 bók-
stafur, 22 iðja, 23 ásýnd,
24 fasi.
Lóðrétt | 2 vondur, 3
gyðja, 4 höfuðhlíf, 5 tor-
veld, 6 eldstæðis, 7 skor-
dýr, 12 greinir, 14 kyn,
15 þyngdareining, 16
óhreinkaði, 17 minnast á,
18 stags, 19 mátturinn,
20 sigaði.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 rigsa, 4 skott, 7 forði, 8 ólmur, 9 nöf, 11 ansa,
13 hrun, 14 polli, 15 gapa, 17 kunn, 20 agg, 22 lipur, 23
Urður, 24 apana, 25 lærða.
Lóðrétt: 1 rifna, 2 garms, 3 alin, 4 skóf, 5 ormur, 6 tíran,
10 örlög, 12 apa, 13 hik, 15 gúlpa, 16 pipra, 18 urðar, 19
narta, 20 arga, 21 gull.
Sudoku
© Puzzles by Pappocom
Lausn síðustu gátu
Þrautin felst í því
að fylla út í reit-
ina þannig að í
hverjum 3x3-reit
birtist tölurnar
1-9. Það verður
að gerast þannig
að hver níu reita
lína bæði lárétt
og lóðrétt birti
einnig tölurnar
1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu
í röðinni.
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Tónlist
Þorlákskirkja | Svissneski sellóleikarinn
Albert Roman og Douglas Brotchie org-
elleikari halda tónleika í Þorlákskirkju,
Þorlákshöfn í tilefni 20 ára afmæl-
ishátíðar Þorlákskirkju og minning-
arathafnar um Karl Sighvatsson. Á efnis-
skránni eru m.a. verk eftir Bach og
Schumann.
Listasafn Sigurjóns | Kvöldstund með
Fritz Kreisler. Syngjandi létt tónlist með
ljúfsárum trega í anda kaffihúsa Vín-
arborgar. Hlíf Sigurjónsdóttir fiðluleikari
og Lincoln Mayorga píanóleikari leika
tónverk og útsetningar hins kunna fiðlu-
leikara frá Vín, Fritz Kreisler, kl. 20.30.
Selfosskirkja | Tónleikaröð Selfosskirkju
heldur áfram þriðjudaginn 6. sept. Kl.
20:30 með tónleikum séra Gunnars
Björnssonar, sem leikur á selló sex ljóða-
söngva eftir J. Brahms og sónötu í e
moll eftir A. Vivaldi. Undirleikari á píanó
og orgel með sr. Gunnari er Jörg Sond-
ermann, en hann leikur einnig á orgel
kirkjunnar, fjóra sálmaforleiki eftir J.S.
Bach.
Aðgangur er ókeypis.
Listasýning
Bæjarbókasafn Ölfuss | Ágústa Ágústs-
dóttir, söngkona og listamaður, sýnir verk
sín á Bæjarbókasafni Ölfuss, Þorláks-
höfn. Listaverkin eru m.a. búin til úr
hlutum sem Ágústa hefur fundið í fjör-
unni.
Myndlist
Café Karólína | Arnar Tryggvason. Húsin
í bænum. Til. 30. september.
Gallerí BOX | Darri Lorenzen. Stað sett.
Hljóðverk, ljósmyndir og teikning. Til 17.
september. Opið fim. og lau. 14 til 17.
Gallerí Sævars Karls | Sólveig Hólm-
arsdóttir. Hamskipti, til 8. sept.
Grafíksafn Íslands | Margrét Guðmunds-
dóttir. Til 11. sept.
Hafnarborg | Sýning á nýjum verkum
listmálarans Eiríks Smith. Safnið er opið
alla daga nema þriðjudaga frá kl. 11–17 til
26. september.
Hrafnista Hafnarfirði | Sesselja Hall-
dórsdóttir sýnir í Menningarsal málverk
og útsaum til 4. okt.
Iða | Guðrún Benedikta Elíasdóttir. Und-
irliggjandi.
Kaffi Sólon | Víðir Ingólfur Þrastarson.
Olíumálverk á striga. Til 24. september.
Listasafn ASÍ | Hulda Stefánsdóttir og
Kristín Reynisdóttir. Til 11. sept.
Listasafnið á Akureyri | Jón Laxdal til
23. október.
Listasafn Íslands | Íslensk myndlist
1945–1960. Frá abstrakt til raunsæis.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Meist-
ari Kjarval 120 ára. Afmælissýning úr
einkasafni Ingibjargar Guðmundsdóttur
og Þorvaldar Guðmundssonar. Til 2.
október.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn |
Maðurinn og efnið. Sýning á úrvali verka
úr safneign. Til 2006.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir |
Úrval verka frá 20. öld til 25. september.
Menningarmiðstöðin Gerðuberg |
Stefnumót við safnara II. Sýningin opnar
að nýju og stendur til 11. september. Sýn-
ing Lóu Guðjónsdóttur í Boganum á
vatnslita- og olíuverkum stendur til 11.
september. Ókeypis aðgangur. Sýningar
eru opnar virka daga frá kl. 11–17. Helgar
frá kl. 13–16.
Norræna húsið | Sýning 17 danskra lista-
kvenna á veggteppum í anddyri.
Skaftfell | Listamaðurinn Carl Boutard –
„Hills and drawings“ í sýningarsal Skaft-
fells. Listamaðurinn Dodda Maggý með
sýningu sína „verk 19“ á vesturvegg
Skaftfells. Til 18. sept.
Skriðuklaustur | Helga Erlendsdóttir
sýnir 13 olíumálverk af jöklalandslagi
Hornafjarðar.
Suðsuðvestur | Gjörningaklúbburinn/
The Icelandic Love Corporation. Til. 25.
sept. Opið fim. og fös. 16–18 og helgar
14–17.
Thorvaldsen Bar | Skjöldur Eyfjörð -
„Töfragarðurinn“ til 9. sept.
Fyrirlestrar
Háskólinn á Akureyri | Á Lögfræðitorgi
fjallar Timothy Murphy um uppbyggingu
stjórnarskrár íslenska lýðveldisins út frá
kenningum um stjórnarskrár (Con-
stitutionalism) og ber hana saman við
stjórnarskrár annarra ríkja. Erindið fer
fram kl. 12, í Sólborg, stofu L101. Allir
velkomnir.
Maður lifandi | Hallgrímur Magnússon
læknir heldur fyrirlestur kl. 18 um grund-
vallarhugmyndir náttúrulæknisfræðinnar
og fjallar um eitranir og afeitranir sem
orsök fyrir heilbrigði og sjúkdómum. 12%
afsláttur af völdum vörum fyrir góða
hausthreinsun m.a. Epsom salti alla vik-
una. www.madurlifandi.is.
Opni Listaháskólinn | Johannes
Matthiessen, landslagslistamaður, fjallar
um verk sín en hann hannar nokkurs
konar garða. Með honum í för er Albert
Roman sem spilar á selló og sviðs-
listahópur. Fyrirlestur fer fram í stofu 113
í LHÍ, Skipholti 1 og hefst kl. 17.
Dans
Dansskóli Jóns Péturs og Köru | Dans-
skóli Jóns Péturs og Köru býður upp á
námskeið í barnadönsum, freestyle, sam-
kvæmisdönsum,tjútti, mambó og salsa.
Boðið verður upp á einstaklingsnámskeið
fyrir fullorðna í s-amerískum dönsum.
Innritun kl. 12–19 í síma 5536645 eða á
heimasíðu dansskólans www.dansskoli.is.
Kennsla hefst 12. sept.
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd Kópavogs | Mæðra-
styrksnefnd Kópavogs, Fannborg 5 er
opin kl. 16–18. Fatamóttaka á sama tíma.
Blóðbankinn | Blóðbankabíllinn verður í
Ólafsvík hjá Shell kl. 12–17. Í Stykkishólmi
7. sept. kl. 9.30–17. Allir velkomnir.
Söfn
Þjóðmenningarhúsið | Handritin – saga
handrita og hlutverk um aldir, Þjóðminja-
safnið – svona var það, Fyrirheitna landið
– fyrstu Vestur-Íslendingarnir, Bókminja-
safn. Auk þess veitingastofa með hádeg-
is- og kaffimatseðli og lítil en áhugaverð
safnbúð.
Fundir
Kaffi Sólon | Fyrsta Hitt Femínistafélags-
ins í vetur er um fæðingarorlofið og
reynslu af því. Ræða á málið frá ýmsum
sjónarhornum. Fyrirlesarar: Ingólfur V.
Gíslason, fæðingarorlofsgjöfin og reynsl-
an af henni. Gyða Guðjónsdóttir, reynsla
atvinnurekanda. Gunnar Páll Pálsson,
reynsla VR félaga. Á eftir fyrirlestrum
verða umræður. Aðgangur er ókeypis.
Krabbameinsfélagið | Góðir hálsar,
stuðningshópur um krabbamein í blöðru-
hálskirtli, verða með rabbfund í húsi
Krabbameinsfélagsins að Skógarhlíð 8 í
Reykjavík, 7. september kl. 17. Kaffi á
könnunni.
OA-samtökin | OA karladeild fundar á
Tjarnargötu 20, Gula húsinu, kl. 21–22.
OA (Overeaters Anonymous) er fé-
lagsskapur karla og kvenna sem hittast
til að finna lausn á sameiginlegum vanda
– hömlulausu ofáti. www.oa.is.
Flugbjörgunarsveitin | Flugbjörg-
unarsveitin í Reykjavík heldur kynning-
arfund á starfi sínu, 7. september kl. 20,
í húsi sveitarinnar við Flugvallarveg, (ná-
lægt Hótel Loftleiðum). Allir velkomnir.
Nánari uppl. á heimasíðu sveitarinnar
www.fbsr.is og í síma 893 2266 (Mar-
teinn) eða 693 9317 (Kjartan).
Björgunarsveitin Ársæll | Björg-
unarsveitin Ársæll leitar að nýju fólki til
að hefja störf. Nýliðakynning verður mið-
vikudaginn 7. september kl. 19.30. Kynn-
ingin verður haldin í Gróubúð, að
Grandagarði 1 í Reykjavík. www.bjorg-
unarsveit.is.
Alþjóðahúsið | Heimspekikaffihúsið hefst
á ný eftir sumarfrí kl. 20.30-22, á Café
Cultura, Hverfisgötu 18. Samræðuefnið
er: „Er eitthvað sem ætti ekki að tala
um?“ Stjórnandi er heimspekingurinn
Róbert Jack, í samstarfi við Félag
áhugamanna um heimspeki og Alþjóða-
húsið.
Námskeið
Alþjóðahúsið | Námskeið í arabísku fyrir
byrjendur verður haldið 8. sept. til 10.
nóv. Kynnst er arabískum bókstöfum,
tekin fyrstu skref við að tala og skrifa
arabísku, og fjallað um menningu tengdri
arabískri tungu. Námskeiðið verður í Al-
þjóðahúsinu, Hverfisgötu 18, 3. hæð, á
fimmtudögum kl. 17–19. Kennari er Amal
Tamimi félagsfræðingur. Verð 25.000 kr.,
skráning: amal@ahus.is, eða í síma 530–
9308.
Gigtarfélag Íslands | Haustnámskeið í
leikfimi hjá Gigtarfélagi Íslands. Leikfimi
fyrir einstaklinga með gigt og aðra sem
vilja fá leiðsögn. Alhliða leikfimi, bakleik-
fimi fyrir karlmenn, jóga og vatnsþjálfun.
Ný námskeið: Orka og slökun og Þyngd-
arstjórnun til framtíðar. Upplýsingar og
skráning í síma 5303600.
Markaður
Kattholt | Flóamarkaður til styrktar
köttunum opinn þriðjudaga og fimmtu-
daga kl. 14–17.
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
1. c4 Rf6 2. g3 c6 3. Bg2 d5 4. Rf3 dxc4
5. Dc2 Be6 6. Rg5 Bd5 7. e4 h6 8. Rh3
Be6 9. Rf4 Bc8 10. Dxc4 e5 11. Re2 c5
12. O-O Rc6 13. Rbc3 Bd6 14. d3 O-O
15. Rd5 Rxd5 16. exd5 Re7 17. f4 exf4
18. Bxf4 b5 19. Dc1 Hb8 20. Rc3 Bxf4
21. Dxf4 Bb7 22. d6 Rg6 23. Df2 Bxg2
24. Kxg2 Dxd6 25. Re4 Dd5 26. Dxc5
Dxd3 27. Df5 Hbd8 28. Hae1 Hd5 29.
Df2 He5 30. Rc3 b4 31. Hxe5 Rxe5 32.
Hd1
Staðan kom upp á Norðurlanda-
mótinu í skák sem lauk fyrir skömmu í
Vammala í Finnlandi. Tiger Hillarp-
Persson (2511) hafði svart gegn Espen
Lie (2300). 32… bxc3! og hvítur gafst
upp þar sem eftir 33. Hxd3 Rxd3 34.
De2 leikur svartur 34…c2 og svartur
vinnur óumflýjanlega lið þar eð eftir
35. Dxc2 Re1+ tapar hvítur drottning-
unni. Tiger háði mikla baráttu við
landa sinn og kollega, Evgeny Agrest
um sigurinn en þurfti að lokum að lúta
í lægra haldi þrátt fyrir að hafa fengið
níu vinninga af ellefu mögulegum. Ag-
rest náði að verja titilinn sinn með því
að fá níu og hálfan vinning.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Svartur á leik.
flísar
Stórhöfða 21, við Gullinbrú,
sími 545 5500.
www.flis.is ● netfang: flis@flis.is
Allt fyrir baðherbergið