Morgunblaðið - 06.09.2005, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 2005 35
DAGBÓK
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Hárgreiðslustofa og
fótaaðgerðarstofa eru opnar alla
daga kl. 9–16. Frjáls spilamennska alla
daga. Allir velkomnir. Leikfimin byrjar
á morgun af fullum krafti hjá Guðnýju
kl. 9, allir með.
Árskógar 4 | Bað kl. 8–14. Handa-
vinna kl. 9–16.30. Leikfimi kl. 9.
Boccia kl. 9.30. Smíði/útskurður kl.
13–16.30.
Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa-
vinna, böðun, leikfimi, hárgreiðsla,
vefnaður, línudans, boccia, fótaað-
gerð.
Ferðaklúbbur eldri borgara | Haust-
litaferð Ferðaklúbbs eldri borgara í
Borgarfjörð verður 16. september.
Brottför kl. 13. Boðið verður upp á
kvöldverð í Munaðarnesi ásamt
skemmtiatriðum og dansi. Uppl. í
síma 892 3011.
Félag eldri borgara Kópavogi, ferða-
nefnd | Hrunaréttir 16. sept.: Lagt af
stað frá Gjábakka kl. 8 og Gullsmára
kl. 8.15. Eftir réttirnar verður farið í
Tungufellsdal o.fl. Boðið upp á kjöt og
kjötsúpu á Hótel Gullfossi, Brattholti.
Síðan ekið að Gullfossi og Geysi – um
Laugarvatn, Lyngdalsheiði og Þing-
velli. Skráningarlistar eru í fé-
lagsmiðstöðvunum.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Skák
hefst í dag kl. 13 í Ásgarði, Stangarhyl
4. Miðvikudagur: Göngu–Hrólfar
ganga frá Hlemmi kl. 10. Opið hús
verður í Ásgarði, Stangarhyl, 10. og 11.
september kl. 14–16. Kynningar á nýju
húsnæði og vetrardagskrá. Vin-
arbandið flytur tónlist. Veitingar. Fé-
lagsmenn hvattir til að mæta.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ |
Vatnsleikfimi kl. 9.45 í Mýri, innigolf
kl. 10.30 í Mýri, karlaleikfimi kl. 13 í
Kirkjuhvoli. Kennsla í stafgöngu frá
Kirkjuhvoli kl. 15.15. Lokað í Garða-
bergi en opið hús í safnaðarheimilinu
á vegum kirkjunnar.
Furugerði 1 | Í dag kl. 9 aðstoð við
böðun, bókband. Kl. 13 frjáls spila-
mennska.
Gigtarfélag Íslands | Fræðslufundur
áhugahóps GÍ um langvinna verki
verður haldinn þriðjudaginn 6. sept.
kl. 19.30 í húsnæði GÍ, Ármúla 5. Fag-
fólk kynnir starf verkjasviðs á Reykja-
lundi og verkjateymis á Heilsustofn-
un NLFÍ Hveragerði. Allir velkomnir.
Hraunbær 105 | Kl. 9 kaffi, spjall,
dagblöðin, kl. 9 hárgreiðsla, kl. 10
boccia, kl. 11 leikfimi, kl. 12 hádeg-
ismatur, kl. 12.15 Bónus, kl. 13 mynd-
list, kl. 15 kaffi.
Hvassaleiti 56–58 | Opin vinnustofa
hjá Sigrúnu, bútasaumur kl. 9–13.
Boccia kl. 9.30–10.30. Bankaþjónusta
kl. 9.45. Helgistund kl. 13.30 í umsjón
séra Ólafs Jóhannssonar, söngstund
á eftir. Námskeið í myndlist hjá
Ágústu kl. 13.30–16.30. Böðun fyrir
hádegi. Fótaaðgerðir s. 588 2320.
Hársnyrting s. 517 3005.
Hæðargarður 31 | Hauststarfið er
hafið. Komið við, staðfestið skráningu
og ræðið við leiðbeinendur. Fé-
lagsmiðstöðin er opin frá kl. 9 til 16.
Fastir liðir eins og venjulega. Hausti
fagnað í Salnum með hátíðarbrag
föstudaginn 9. sept. kl. 14. Spennandi
námskeið á döfinni. Sími 568 3132.
Norðurbrún 1 | Kl. 9–12 myndlist, kl. 9
smíði, kl. 9–16.30 opin vinnustofa, kl.
10 boccia, kl. 13–16.30 postulínsmáln-
ing, kl. 14 leikfimi.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla
og fótaaðgerðir. Kl. 9.15–15.30 handa-
vinna. Kl. 10.15–11.45 enska. Kl. 11.45–
12.45 hádegisverður. Kl. 13–16 postu-
línsmálun. Kl. 13–16 bútasaumur. Kl.
13–16 frjáls spil. Kl. 14.30–15.45 kaffi.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðjan kl.
9, leikfimi kl. 10, handmennt kl. 13, fé-
lagsvist kl. 14.
Kirkjustarf
Árbæjarkirkja | Sjö til níu ára starf
alla þriðjudaga kl. 15. Tíu til tólf ára
starf alla kl. 15.
Áskirkja | Opið hús milli kl. 10 og 14 í
dag. Kaffi og spjall. Bænastund kl. 12.
Boðið upp á léttan hádegisverð. Allir
velkomnir.
Breiðholtskirkja | Bænaguðsþjón-
usta kl. 18.30.
Garðasókn | Opið hús í Kirkjuhvoli,
Vídalínskirkju, á þriðjudögum kl. 13 til
16. Við spilum lomber, vist og brids.
Röbbum saman og njótum þess að
eiga samfélag við aðra. Kaffi og með-
læti kl. 14.30. Helgistund í kirkjunni kl.
16. Akstur fyrir þá sem vilja, upplýs-
ingar í síma 895 0169. Allir velkomn-
ir.
Hallgrímskirkja | Fyrirbænaguðs-
þjónusta alla þriðjudaga kl. 10.30.
Beðið fyrir sjúkum. Opið hús fyrir
aldraða alla þriðjudaga og föstudaga
kl. 11–14. Leikfimi, súpa, kaffi og spjall.
Hjallakirkja | Bæna- og kyrrðarstund
þriðjudaga kl. 18.
Laugarneskirkja | Kl. 17 KMS (14–20
ára) Æfingar fara fram í Félagshúsi
KFUM & K við Holtaveg. Mannrækt-
arkvöld Laugarneskirkju: Kl. 20
kvöldsöngur. Kl. 20.30 trúfræðsla á
nýjum nótum. Fjallað er um kristna
trú og heilbrigða skynsemi. Á sama
tíma ganga 12 sporahópar til verka
(sjá laugarneskirkja.is).
MENNINGARRÁÐ Austurlands
og Stofnun Gunnars Gunnarssonar
hafa endurnýjað samning um þjón-
ustu stofnunarinnar við menningar-
starf á Austurlandi. Nýr samningur
gildir til ársloka 2007.
Tilgangurinn með samningnum
er að fela Gunnarsstofnun ákveðin
verkefni á vegum Menningarráðs
Austurlands er tengjast samstarfi
um menningarmál í fjórðungnum og
samningi ríkis og sveitarfélaga um
menningarsamstarf á Austurlandi.
Verkefnin eru meðal annars: þróun-
arstarf, efling samstarfs, fagleg ráð-
gjöf og verkefnastjórnun, umsýsla
vegna menningarstyrkja og dagleg
umsýsla vegna starfsemi menning-
arráðsins.
Sérstakur starfsmaður Gunn-
arsstofnunar annast ofangreind
verkefni og er um leið eins konar
menningarfulltrúi fjórðungsins. Frá
1. janúar 2002 hefur Signý Orm-
arsdóttir gegnt þessu starfi og verð-
ur svo áfram.
Fyrir þjónustu Gunnarsstofnunar
greiðir Menningarráð Austurlands
6 m.kr. á ársgrundvelli. Samninginn
undirrituðu Óðinn Gunnar Óð-
insson, formaður Menningarráðs
Austurlands, og Skúli Björn Gunn-
arsson, forstöðumaður Gunn-
arsstofnunar.
Endurnýjar þjónustusamn-
ing við Gunnarsstofnun
Ljósmynd/Signý Ormarsdóttir
Skúli Björn Gunnarsson, forstöðumaður Gunnarsstofnunar, og Óðinn Gunn-
ar Óðinsson, formaður Menningarráðs Austurlands, innsigla samninginn.
ÍMYNDIR kynjanna í fjölmiðlum eru meðal
þeirra námskeiða sem Opni listaháskólinn býður
upp á á haustmisseri. Það stendur þrjú kvöld í húsi
Listaháskóla Íslands í Laugarnesi, dagana 29.
september, 6. og 13. október, klukkan 20.15–22.
Gunnar Hersveinn blaðamaður og heimspekingur
hefur umsjón með námskeiðinu.
„Ímyndir beggja kynja í auglýsingum og öðru
myndefni fjölmiðla hafa orðið æ meira áberandi í
umræðunni. Bæði fjölmiðla- og auglýsingafólk
hefur legið undir gagnrýni fyrir að draga upp
ímyndir af körlum t.d. sem hetjum eða vitleys-
ingjum og af konum sem gálum eða gribbum.
Markmið þessa námskeiðs er að miðla aðferðum
sem gera þeim sem hanna ímyndir fært að greina,
nota og forðast tákn og klisjur í fjölmiðlum með
því að flokka og rekja efni þeirra.
Námskeiðið er hagnýtt því farið er yfir hugtök
og greiningaraðferðir við notkun ímynda
kynjanna í auglýsingum, fjölmiðlum og öðrum
samfélagsþáttum. Glímt verður við spurningar á
borð við: Hverjar eru arfmyndir kynjanna í aug-
lýsingum? Hverjar eru helstu ímyndir kvenna í
auglýsingum og fjölmiðlum og hverjar karla?
Hvernig eru þessar ímyndir greindar?“ segir í
kynningu.
Á námskeiðið kostar 5.500 kr. fyrir einstaklinga,
en 10–20% afsláttur er fyrir hópa. Skráning er á
netfangið lhi@lhi.is eða í síma 552 4000.
Námskeið | Opni listaháskólinn á haustmisseri
Ímyndir kynjanna í fjölmiðlum
Venus er sígild ímynd kvenna.