Morgunblaðið - 06.09.2005, Blaðsíða 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
SÝNINGAR Kvikmyndasafns Ís-
lands hefjast á ný í kvöld kl. 20 í Bæj-
arbíói með þýsku heimildarmyndinni
Das Grosse Eis. Myndin er um hinn
fræga Grænlandsleiðangur þýska
jarðfræðingsins Alfreds Wegener ár-
ið1930 en sjálfur er Wegener heims-
kunnur fyrir landrekskenningu sína,
Continental Drift.
Í kvikmyndinni er fylgst með sigl-
ingunni til Grænlands með viðkomu í
Reykjavík þar sem um borð fóru, til
þess að taka þátt í leiðangrinum, þrír
Íslendingar og 25 íslensk hross.
Brugðið er upp myndum af jöklinum,
skriðjöklar ganga í sjó fram og
brotna niður og mikið er um kort og
grafískar myndútfærslur áhorf-
endum til glöggvunar. Sjálfur verður
leiðangursstjórinn Alfred Wegener
úti í þessari ferð og er lagður til
hinstu hvílu á Grænlandsjökli. Mynd-
in verður sýnd aftur á laugardaginn.
Eins og áður verða sýningarnar á
þriðjudagskvöldum kl. 20:00 og á
laugardögum kl. 16:00 og er sýnd ný
kvikmynd í hverri viku. Dagskrá
vetrarins má nálgast á heimasíðu
Kvikmyndasafnsins www.kvik-
myndasafn.is auk þess sem bækl-
ingur liggur frammi á flestum bóka-
söfnum og í afgreiðslu Bæjarbíós.
Síðasta Grænlandsför
Alfreds Wegeners
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi yfirlýsing frá Einari
Hákonarsyni listmálara:
„Vegna yfirlýs-
ingar Eiríks Þor-
lákssonar, nú
fyrrverandi
stjórnanda Lista-
safns Reykjavík-
ur, í Morg-
unblaðinu 24.
ágúst sl. og í
sama blaði þann
20. ágúst um að-
sókn að safninu.
Hann segir að 160 þús. manns hafi
sótt safnið heim á árinu 2004 og
það efaðist ég stórlega um. Hann
tiltekur teljara sem safnið hafi not-
að frá Þjónustumiðstöð bókasafna
tölu sinni til stuðnings. Annaðhvort
er þessi teljari óvenju næmur að
hann telji eftir vindáttum eða að
skammhlaup hafi hlaupið í hann.
Aðsóknartölur Þjóðminjasafns um
að allt að 100 þús. manns hafi sótt
það safn heim frá því það opnaði
eftir árabil viðgerða og endur-
uppbyggingar eru mun sennilegri
en þær skáldtölur, sem Eiríkur set-
ur fram og krefur mig um afsök-
unarbeiðni opinberlega af því ég
rengi þær.
Ég fór fram á við Eirík að hann
birti opinberlega tölur um hve
margir hefðu greitt aðgang að
Listasafni Reykjavíkur í grein-
arkorni mínu þann 23. ágúst sl. Það
eru einu raunhæfu tölurnar sem
hægt er að styðjast við og eru not-
aðar af flestum söfnum í heiminum.
Hann varð ekki við ósk minni, þær
upplýsingar hef ég nú fengið í
tölvupósti frá sviðsstjóra menning-
ar- og ferðamálasviðs Reykjavíkur,
Svanhildi Konráðsdóttur, og eru
þær byggðar á gögnum frá Lista-
safni Reykjavíkur, enda Eiríkur
hættur að starfa þar.
Ég bað um að fá uppgefnar upp-
lýsingar um hve mikill aðgangs-
eyrir að Listasafni Reykjavíkur var
árið 2004, einnig ef til eru upplýs-
ingar um hversu margir miðar
standa á bakvið upphæðina og hvar
þeir voru seldir. Um er að ræða
Kjarvalsstaði, Hafnarhús og Ás-
mundarsafn.
Greiddur aðgangseyrir 2004.
Hafnarhús kr. 8.755.364,-
Kjarvalsstaðir kr. 2.481.454,-
Ásmundarsafn kr. 1.121.510,-
Samtals kr. 11.358.328,-
Útilokað er að reikna nákvæm-
lega fjölda seldra miða á bak við
þessar tölur þar sem kerfi að-
gangseyris er samansett úr mörg-
um þáttum og er sem hér segir:
Almennur aðgangseyrir er kr.
500,-
Aðgangseyrir fyrir öryrkja er kr.
250,-
Aðgangseyrir fyrir eldri borgara
er kr. 250,-
Aðgangseyrir fyrir einstaklinga í
hóp (10 eða fleiri ) er kr. 250,-
Aðgöngumiði greiddur á einum
stað (Hafnarhúsi, Kjarvalsstöðum
eða Ásmundarsafni) gildir einnig
sama dag sem aðgöngumiði að öðr-
um húsum Listasafns Reykjavíkur.
Aðgangur sem seldur er í gegn-
um Gestakort Reykjavíkur og gild-
ir á alla sýningarstaði og er gerður
upp skv. samningum ársfjórðungs-
lega.
Aðgangur sem seldur er í gegn-
um ferðaþjónustufyrirtækið Kynn-
isferðir fyrir erlenda hópa er gerð-
ur upp skv. samningi árlega.
Menn sjá fljótlega þegar rýnt er
í þessar tölur, þó svo ókeypis sé inn
á mánudögum, að talan 160 þús.
manns, sem Eiríkur heldur fram að
hafi sótt Listasafn Reykjavíkur
heim getur ekki staðist. Verst þyk-
ir mér hvernig komið er fyrir Kjar-
valsstöðum, en með hógværum lík-
indareikningi eru ekki margar
manneskjur á hvern klukkutíma,
en húsin eru opin frá kl. 10–17 dag-
lega. Menn verða að gera sér grein
fyrir því að hér er ekki um nein
smáhýsi að ræða. Ef einhver ætti
að biðja listunnendur og Reykvík-
inga afsökunar á hvernig komið er
fyrir Listasafni Reykjavíkur, eftir
að hafa keyrt þrönga sýning-
arstefnu í tíu ár, haldið reyndum
myndlistarmönnum fyrir utan sali
borgarinnar og farið vísvitandi með
kolrangar tölur um aðsókn að
Listasafni Reykjavíkur, þá er það
Eiríkur Þorláksson.“
Um aðsókn að Lista-
safni Reykjavíkur
Einar Hákonarson
13. sýn. fim. 8/9 kl. 19 nokkur sæti laus
14. sýn. lau. 10/9 kl. 16 nokkur sæti laus
15. sýn. sun. 11/9 kl. 14 nokkur sæti laus
Pakkið á móti
Örfáar aukasýningar:
Fös 9.sept kl. 20
Lau 10. sept kl. 20
Lau 17. sept kl. 20
Fös. 23. sept kl. 20
Áskriftar-
kortasala
stendur
yfir
Stóra svið
Miðasalan er opin: Mánud. og þriðjud.:10:00-18:00, mið-, fim- og föstudaga: 10:00-20:00, laugar- og sunnudaga: 12:00-20:00
Miðasölusími 568 8000 - miðasala á netinu: www.borgarleikhus.is
ENDURNÝJUN ÁSKRIFTARKORTA HAFIN
Nýja svið / Litla svið
KYNNING LEIKÁRSINS
Leikur, söngur, dans og léttar veigar
Su 11/9 kl 20 - Opið hús og allir velkomnir
HÖRÐUR TORFA LENGI LIFI
Ýmsir listamenn leika lög eftir Hörð í
tilefni 60 ára afmælis listamannsins
Lau 10/9 kl. 21
KALLI Á ÞAKINU e. Astrid Lindgren
Í samstarfi við Á þakinu
Su 11/9 kl 14,
Su 18/9 kl 14,
Lau 24/9 kl. 14,
Su 25/9 kl. 14
ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR
Fi 8/9 kl. 20,
Fö 9/9 kl 20,
Lau 10/9 kl 20,
Su 11/9 kl 20 - UPPSELT,
Fi 15/9 kl. 20, Lau 17/9 kl. 20
ENDURNÝJUN ÁSKRIFTARKORTA HAFIN!
Ef þú gerist áskrifandi fyrir 20. september færð þú frítt gjafakort í Borgarleikhúsið
- Það borgar sig að vera áskrifandi -
MANNTAFL
Su 18/9 kl. 20 FRUMSÝNING - UPPSELT
Su 25/9 kl. 20,
Su 2/10 kl. 20
HÖRÐUR TORFA
Hausttónleikar
Fös 16/9 kl. 19:30,
Fös 16/9 kl. 22:00
WOYZECK – 5 FORSÝNINGAR Í SEPTEMBER
Frumsýnt í London 12. okt og á Íslandi 28. okt
Su 18/9 kl. 21,
Fö 23/9 kl. 20,
Fi 29/9 kl. 20 - UPPSELT
Fö 30/9 kl. 20
Lau 1/10 kl. 20 - Verkið flutt á ensku
Miðasalan er opin kl. 12:30-18:00 mánudaga og þriðjudaga.
Aðra daga kl.12:30- 20:00. Símapantanir frá kl. 10:00 virka daga.
midasala@leikhusid.is. Sími 551-1200. Miðasala á netinu:
www.leikhusid.is
Klaufar og kóngsdætur KoddamaðurinnGestaleikur
STÓRA SVIÐIÐ KL. 20:00 Kirsuberjagarðurinn - gestasýning fim.
8/9, fös. 9/9 Að eilífu - gestasýning lau. 10/9, sun. 11/9 Velkomin
í Þjóðleikhúsið! fös. 16/9, lau. 17/9, Klaufar og kóngsdætur
sun. 18/9 kl. 14:00, Edith Piaf sun. 18/9. LITLA SVIÐIÐ KL. 20:00
Koddamaðurinn fim. 8/9, fös. 9/9, lau. 10/9. SMÍÐAVERKSTÆÐIÐ
KL. 20:00 Rambó 7 fim. 8/9, fös. 9/9.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar,
Laugarnestanga 70, 105 Rvík.
www.lso.is - lso@lso.is
Þriðjudagstónleikar
6. september kl. 20.30
Kvöldstund með
Fritz Kreisler
Hlíf Sigurjónsdóttir fiðluleikari og
Lincoln Mayorga píanóleikari
flytja verk og útsetningar
þessa ástsæla Vínarbúa.
Síðustu tónleikar sumarsins.
Kabarett
í Íslensku óperunni
Miðar í síma 511 4200, og á www.kabarett.is
Leikhópurinn Á senunni í samstarfi við SPRON
“Söngur Þórunnar
er í einu orði sagt
stórfenglegur...”
SH, Mbl.
Næstu sýningar
Föstudaginn 9. september kl. 20
Laugardaginn 10. september kl. 20
Laugardaginn 17. september kl. 20
Föstudaginn 23. september kl. 20
„ÞÚ BIÐUR ekki um vald. Þú tek-
ur þér það!“ Þetta sagði Jock Ew-
ing við son sinn Bobby í einum
Dallas-þættinum. Segja má að það
hafi verið kjarni málsins í þeim
heimi sem persónurnar lifðu í, en
það var olíubransinn í Texas. Menn
tröðkuðu hver á öðrum og var svo
gaman að fylgjast með því að ég
bölvaði alltaf þegar þáttur vik-
unnar var búinn.
Þættirnir um Húsið á sléttunni
voru miklu síðri, en þeir voru sýnd-
ir á svipuðum tíma og Dallas ef ég
man rétt. Þar voru raunir amer-
ískrar sveitafjölskyldu útmálaðar
og var það allt svo væmið að þætt-
irnir voru uppnefndir Grenjað á
gresjunni.
Dallas og Grenjað á gresjunni
eiga fátt sameiginlegt annað en
einn mann, og hann var staddur í
Listasafni Sigurjóns Ólafssonar á
sunnudaginn. Þetta var píanóleik-
arinn Lincoln Mayorga, en hann
vann í Hollywood um árabil og tók
þátt í að flytja tónlistina sem var
spiluð í þessum tveimur þáttaröð-
um, auk nokkurra kvikmynda.
Mayorga var þó ekki að leika kvik-
myndatónlist á tónleikunum, a.m.k.
ekki hreina kvikmynda-
tónlist því vissulega
hafa lög eftir George
Gershwin, Scott Joplin
og Irvin Berlin hljómað
í bíómyndum. Nei, hér
var dagskráin einfald-
lega helguð Gershwin
og þeim tónskáldum
sem höfðu áhrif á tónlist
hans; Jay Roberts, Zez
Confrey, Louis Moreau
Gottschalk, James P.
Johnson, Jerome Kern,
Irvin Berlin og öðrum.
Efnisskráin var sam-
ansett þannig að hún
sagði sögu amerískrar
tónlistar fram að tíma Gershwins,
en Mayorga kynnti hvert atriði og
gerði það einstaklega vel. Hann var
skýrmæltur og afslappaður og
sagði skemmtilega frá og spilaði
auk þess prýðilega. Að vísu var
hann dálítið stífur í fyrstu lögunum
sem olli því að efri rödd píanósins
virkaði fremur litlaus, en er á leið
varð tónninn fallegri og fallegri.
Hann var líka ákaflega öruggur,
leikur hans var skýr og hreinn og
hvað sem segja má um tóninn var
flutningurinn ávallt fjörlegur.
Einhverjum kann að hafa fundist
undarlegt að sjá Clair de Lune eftir
Debussy á dagskrá sem var helguð
amerískri tónlist í léttari kantinum.
En Mayorga réttlætti það með því
að benda á að frönsk tónlist hefði
haft mikil áhrif í Bandaríkjunum;
töfrandi hljómar
Debussys lituðu
ameríska söng-
leikjatónlist og
Mayorga útskýrði
það nánar með því
að leika tóndæmi
sem fyrst var
hljómsett með
„einföldum“ hljóm-
um. Svo spilaði
hann það aftur
með hinum dæmi-
gerðu sexunda- og
níundahljómum er
einkenna tónlist
Debussys og nokk-
urra annarra
franskra tónskálda. Munurinn var
greinilegur.
Eins og sjá má voru tónleikar
Mayorga fróðlegir, en þeir voru
líka líflegir og áheyrendur skelltu
upp úr oftar en einu sinni. Í raun-
inni voru þeir eins og vandaður út-
varpsþáttur um sögu tiltekinnar
greinar í bandarískri tónlist. Eða
jafnvel sjónvarpsþáttur; Mayorga
sagði svo vel frá að maður sá þetta
allt fyrir sér; Gershwin að semja
Rapsody in Blue á elleftu stundu,
Gottschalk að ferðast með píanó
um Villta vestrið og litla kettlinga
að leika sér á hljómborði í laginu
Kitten on the Keys eftir Confrey.
Ljóst er að þeir sem heima sátu
misstu af miklu.
Kettlingar á hljómborði
TÓNLIST
Píanótónleikar
Lincoln Mayorga píanóleikari flutti tón-
list eftir Gershwin og fleiri. Sunnudagur
4. september.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar
Jónas Sen
Lincoln Mayorga