Morgunblaðið - 06.09.2005, Side 44

Morgunblaðið - 06.09.2005, Side 44
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. LANDSBANKI Íslands verður með starfsemi í 10 löndum eftir kaup á 81% hlut í evrópska verðbréfa- fyrirtækinu Kepler Equities. Kaupverðið er 5,8 millj- arðar króna og mun Landsbankinn á næstu 5 árum eignast allt hlutafé í fyrirtækinu en það er í heildina metið á 7,2 milljarða króna, eða 94 milljónir evra. Eft- ir að Landsbankinn tekur við Kepler verða starfs- menn bankans 1.610 talsins; 1.135 á Íslandi, 185 í Bretlandi, 50 í Lúxemborg og 240 hjá Kepler. Kepler Equities er með starfsemi í sjö löndum í Evrópu, auk þess að reka verðbréfamiðlun í New York. Fyrirtækið sérhæfir sig í sölu og miðlun hluta- bréfa til yfir 800 fagfjárfesta og rekur greiningar- deild sem greinir um 430 fyrirtæki í Evrópu. „Okkar markmið hvað varðar Evrópu er að ná að byggja upp fyrirtækja- og fjárfestingarbanka fyrir millistór fyrirtæki og þetta er auðvitað áfangi að því markmiði,“ segir Sigurjón Þ. Árnason, bankastjóri Landsbankans. Hann er sannfærður um að það sé til rými fyrir bankann til þess að koma sér fyrir á þeim markaði. Sigurjón segir að öll verðbréfamiðlun á Íslandi sé ekki nema einn þúsundasti af verðbréfamiðlun í Evr- ópu. Það hljóti því að vera mikill fengur að því fyrir Landsbankann að eignast verðbréfafyrirtæki, sem sé að miðla á svæði sem taki til yfir 80% af verðbréfa- miðlun í Evrópu. „Við teljum að framundan sé mikil samrunahrina fyrirtækja í Evrópu og í þeim efnum ætlum við okkur ákveðna þátttöku,“ segir Sigurjón. Landsbankinn eykur umsvif sín í Evrópu Eftir Soffíu Haraldsdóttur soffia@mbl.is  Landsbankinn | 12 GERA þarf umfangsmiklar breytingar á tímatöflum Strætó bs. og leiðbeiningum til þeirra sem bíða á biðstöðvum ef nýtt leiða- kerfi Strætó á að skila einhverjum sam- göngubótum. Þetta er mat Ians Watsons, prófessors í félagsfræði og aðjúnkts við Við- skiptaháskólann á Bifröst, en hann skrifar grein í Morgunblaðið í dag undir fyrirsögn- inni Nýtt kerfi – úrelt skilti. Watson segir núverandi upplýsingar sem notendur strætó geti nýtt sér afar ruglings- legar og ekki auðlesnar. Það að búa til al- mennilegar upplýsingar fyrir notendur strætó hljóti að kosta smáaura miðað við það fjármagn sem fari í almennan rekstur vagnanna. Segir hann Íslendinga geta litið til annarra borga í Evrópu, sem ríkari eru af reynslu af rekstri almenningssamgangna, í því samhengi. Úrelt skilti hjá Strætó bs.  Nýtt kerfi | Miðopna ÞVERÁ-Kjarrá rauf í gær 4 þúsund laxa múrinn en það er í fyrsta skipti í sögunni sem slíkur árangur næst í ís- lenskri lax- veiðiá. Fjög- urþúsundasti laxinn kom á stöng Har- aldar Lárus- sonar kl. 20 í gærkvöldi í veiðistaðnum Wilson. Lax- inn var sjö punda fiskur sem tók flugu af gerðinni svartur Francis nr. 10. Mikill spenningur var í laxveiði- mönnum í gærkvöldi þegar þeir voru að slá veiðimet í tveimur laxám til við- bótar. Þetta eru Norðurá sem rauf 3 þúsund laxa múrinn og Selá í Vopna- firði sem gert var ráð fyrir að kæmist í 2 þúsund laxa í gær. Að sögn Orra Vigfússonar, formanns Veiðiklúbbsins Strengs, staðfesta þessar tölur að sumarið 2005 verður metveiðiár þar sem reiknað er með 53–55 þúsund löx- um á land. Fyrra met er frá árinu 1978 þegar 52 þúsund laxar komu á land. Fjögur þúsund laxar á land  Yfir 4.000 | 11 ÞRÍR menn slösuðust í tveimur vinnuslys- um síðdegis í gær á vinnusvæðinu við Kára- hnjúka. Annað slysið varð með þeim hætti að tveir menn klemmdust undir steypu- styrktarjárngrind. Voru þeir að festa grindina þegar hún rann til með fyrrgreind- um afleiðingum. Þeir fótbrotnuðu báðir og voru fluttir á Fjórðungssjúkrahúsið á Akur- eyri til aðhlynningar. Hitt slysið varð þegar maður sem var við vinnu sína féll fram fyrir sig niður úr tæki á svæðinu og hafnaði í stórgrýti. Maðurinn slasaðist á hendi og var einnig fluttur á slysadeild til aðhlynningar. Tvö vinnuslys við Kárahnjúka BANASLYS varð á Vagnhöfða í gær þegar karlmaður á þrítugsaldri lést í vinnuslysi hjá hellusteypufyrirtæki. Tildrög slyssins voru þau að maðurinn féll ofan í sandsíló og var hann látinn þegar hann náðist upp. Lög- regla og sjúkralið og tækjabifreið slökkvi- liðs höfuðborgarsvæðisins fóru á vettvang ásamt fulltrúum Vinnueftirlits og rann- sóknardeildar lögreglu. Ekki er hægt að birta nafn hins látna að svo stöddu. Lést í vinnuslysi EFLING stéttarfélag telur stefna í að samn- ingsforsendur á almennum markaði bresti því verðbólga hafi farið vaxandi og sé nú 1,2% yfir verðbólgumarkmiði Seðlabanka Íslands sem er 2,5%. Sigurður Bessason, formaður Eflingar, benti á það í samtali við Morgunblaðið í gær að í ákvæðum kjarasamnings sé gert ráð fyrir launanefnd þar sem sitji fulltrúar Alþýðusam- bandsins og Samtaka atvinnulífsins. Nefndin eigi að meta stöðuna. „Það verður væntanlega vinna haustsins,“ sagði Sigurður. Samningsaðilar þurfa að koma sér saman um niðurstöður og viðbrögð við þeim fyrir 10. des- aðarmönnum og velja fólk í samninganefnd, að sögn Sigurðar. Sem kunnugt er ætlar Steinunn Valdís Ósk- arsdóttir borgarstjóri að leggja til að aukið fé verði veitt til yfirvinnu og álagsgreiðslna til starfsfólks á leikskólum og tómstundaheimilum. Vill hún fela samninganefnd að skrifa undir nýja kjarasamninga fyrir 1. október. „Borgarstjóri hefur nefnt tímasetningu fyrsta næsta mánað- ar. Það verður verkefnið sjálft sem ákvarðar hve langan tíma þetta tekur,“ sagði Sigurður um væntanlegar kjaraviðræður. „Við byrjum strax á þessari vinnu, en ég hef frekar litið svo á að borgarstjóri hafi verið að gefa út ákveðna yf- irlýsingu um það að launabreytingarnar komi frá og með næstu mánaðamótum þó vinnan sjálf taki hugsanlega lengri tíma.“ ember þegar uppsagnarfrestur kjarasamnings- ins rennur út. Ella gildir samningurinn til 31. desember 2007. Í nóvember 2006 verður aftur hægt að taka samningsforsendur til endurskoð- unar verði kjarasamningnum ekki sagt upp nú í árslok 2005. Launahækkun frá næstu mánaðamótum Hafinn er undirbúningur að gerð nýs kjara- samnings vegna félagsmanna Eflingar sem vinna hjá Reykjavíkurborg. Sigurður sagði að þeir væru um 2.300 talsins og að um helmingur þeirra starfi við leikskólana. Félagsmenn Efl- ingar vinna einnig við ræstingar og sem mat- ráðar, við sorphirðu, hjá gatnamálastjóra og við fjölmörg önnur störf. Innan Eflingar er verið að ræða væntanlega kröfugerð, funda með trún- Efling telur stefna í að samningsforsendur bresti Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is ÞEGAR féð kemur í leitirnar að hausti verður oft mikill handagangur í öskjunni, því blessuð sauðkindin er þrjósk og sjálfstæð og á það til að vilja hlaupa sínar leiðir. Þessi erlendi ferðamaður var staddur meðal leitafólks í Miðfirði þeg- ar ung stúlka þurfti að stökkva af fararskjóta sínum til að elta eina sauðþráa kind sem vildi ekki fylgja hópnum fyrir sitt litla líf. Bað stúlk- an hann um að gæta þarfasta þjónsins á meðan hún hlypi á eftir hinni villuráfandi á og gerði hann það með glöðu geði. Morgunblaðið/RAX Erlendur gestur hemur hestinn ♦♦♦ NJARÐVÍKINGURINN Halldór Gunnarsson, sem býr í Mississippi í BNA, hefur nú haft uppi á tveimur af þeim ís- lensku konum sem ekkert hafði spurst til eftir að fellibyl- urinn Katrín gekk yfir svæðið. Í gær hitti hann Karly Jónu Kristjánsdóttur Legere og í fyrradag Lilju Ólafsdóttur Hanch. Þær eru báðar búsett- ar í bænum Gulfport í Miss- issippi. Ekkert amaði að kon- unum. Hafði uppi á tveimur kon- um vestra  Var ótrúlega | 6

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.