Tíminn - 11.03.1970, Síða 1
SIMINN
BANKI
58. tbl. — Miðvikudagur 11. marz 1970. — 54. árg.
ALUT lýst
gjaldþrota
EJ-Reykjavík, þriðjudag.
Almenna útgerðarfélagi'ð h.f.1
(ALÚT) hefur verið tekið til
skiptameðferðar sem gjald-
þrota. Er frá þessu skýrt í ný-
útkomnu Lögbirtingarblaði.
Útgerðarfélag þetta var stofn
að árið 1968 og var tilgangur
félagsins að kaupa og reka tog-
ara. Átti að safna hlutafé hjá
almenningi.
Tilraunir ALÚT mi.stókust
með öllu, og nú er fyrirtækið
orðið gjaldþrota. Segir í Lög-
birtingarblaðinu, að þeir, sem
telja til skulda í búi ALÚT,
skuli lýsa kröfum sínum innan
4 mánaða.
HEKLAN
VIÐGERÐ
NYRÐRA VEGNA GALLA
Viðbót Kísiliðjunnar
í gagnið eftir 3 vikur
EJ—Reykjavík, þriðjudag.
í næstu viku verður viðbótin við
Kísliiðjuna' tengd við núverandi
verksmiðju, en það verk tekur um
tvær vikur. Ætti framleiðsla Kísil
iðjunnar að geta hafizt að nýju
í byrjun april.
Með stækkun Kísiliðjunnar auk
ast afköst hennar um ca. helminig,
eða úr 12 þúsund tonnum á ári í
23—24 þúsund tonn.
Á síðasta ári nam framleiðsla
Eísiliðjunnar 8000 tonn-um, að
verðmæti um 80 mi'lljónir króna.
Það sem af er þessu ári hafa um
2000 tonn verið framleidd.
SMYGLAÐ ÁFENGI
í SKÓGARFOSSI
OÓ—Re.vkjavík, þriðjudag.
Tollþjónar fundu rúmlega 200,
flöskur af smygluðu áfcngi um
borð i Skógarfossi um helgina.
Langmestur hluti þessa er
75% vodka. Einnig fundust nokkr
ar flöskur af genever.
Smygl þetta var vel íalið, en
þó ekki nógu vel fyrir athugulum
augum tollvarða. Einn skipverja
játaði að eiga áfengið.
Nýr sendiherra
Tékkóslóvakíu
Nýskipaður sendiherra Tékkó-
slóvakíu, Jozef Kríz, ambassador,
afhenti í dag forseta ísilands trún
aðai'bréf sitt í skrifstofu forseta
í Alþingishúsinu, að viðstöddum
utanríkisráðherra. Síðdegis þágu
sendiherrann og kona hans heim
boð forsetahjónanna að Bessastöð
um ásamt noklkrum fleiri gestum.
Reykjavík, 10. marz 1970.
Skrifstofa forseta íslands
Fyrlr alllöngu kom upp eldur á olíuborunarpramma suður af sfrönd
Louisiana í Bandarikjunum. Stöðugt hefur verið unnið að því að reyna
að slökkva eldinn, en það gengið heldur erfiðlega. í fyrradag tókst
slölkkviliðsmönnunum að slökkva eldinn, að þvi er þeir töldu, en hann
blossaði upp aftur eftir sex mínútur.
/ r
BIOMIÐAR
HÆKKA UM
5 KRÖNUR
KJ—Reykjavík, þriðjudaig.
Verðlagsstjóri hefur auglýst,
að ákveðið hafi verið að fella
niður hámarksverð á aðgöngu
miðum að kvikmyndahúsum, og
er kvikmyndaliúsaeigendum því
héðan í frá frjálst að hækka
eða lækka verð miðanna að
vild.
Fyrst í stað rnuri almennt
miðiaverð hæfcka úr 70 krón
um í 75 krónur, og er þar að-
eins um að ræða söluskatts-
hækkunina, eða rúmlega það.
Eftir sem áður mun í fullu
gildi sú hótun nokkurra kvik
myndahúsa, að loka, fái þeir
ekki iteiðréttingu mála simna, og
eiga þá við þann mikla hluta
af miðaverðinu, sem fer í
skemmtanasikatt. Hafa kvik-
myndahúsaeigendur átt við-
ræður við men ntamátará'ðherra
um þetta mál, en sem kunnugt
er þá er nokkurt misræmi í
þessu milli kvikmyndahúsa, þar
sem sum þurfa ekki að greiða
skemmtanaskatt, en að baki
þeim standa stofnanir sem
stat'f i í þágu almennings.
Larsen vann biðskákina gegn Friðrik eftir 16 leiki:
„STAÐA MÍN REYNUIST
VERRI EN ÉG HÉLT“
EJ—Reykjavík, hriðjudag.
Bengt Larsen vann biðskákina
gegn Friðriki Ólafssyni í dag,
og er því með 6 vinninga eftir
fyrri hluta mótsins, en Friðrik
í öðru sæti með 4 og hálfan
vinning. „Biðskákin reyndist
mér mun óhagstæðari en ég
hafði talið fyrirfram“, —
sagði Friðrik i kvöld. — „Ég
tapaði snemma peði, og okkur
Larsen kom saman um að þetta
væri vonlaust. Hann hefði
þurft að leika mjög af sér til
að tapa skákinni. Ég gaf hana
því eftir 16 leiki.“
Friðrik sagði, að dagurinn í
dag hefði verið sinn fyrsti frí
dagur síðan mótið hófst, en á
morgun hefst síðari hluti móts
ins og teflir hann þá við Donn
er og hefur hvítt. 2. umferð er
á fimmtudag, en biðskákir
Framhatrt * Ols 14
2 fyrstu skákir Friðriks í Lugano — bls. 2
FriSrik Ólafsson
OÓ—Reykjavík, þriðjudag.
Gallar hafa komið fram í undlr
byggingu þriggja hjálparvéla í m.
s. Heklu. Voru gallarnir svo alvar-
legir að ekki var talið hægt að
halda áfram að sigla skipinu þvi
hætta var á að vélamar eyðilegð-
ust gjörsamlega. Uimið hefur verið
að viðgerð á skipinu í vikutímai
á Akureyri. Fer viðgerðin fram
í Slippstöðinni, en þar var skipið
smí'ðað. Jafnframt er unnið að lag
færingu á fleiri göllum, sem fram
hafa komið. Má þar nefna að frysti
lestin sem er 8 þús. rúmfet
„leiddi út“ og náðist ekki upp
frost í lestinni þótt frystivélar
væru í fullum gangi.
Guðjón Teitsson, forstjóri Skipa
útgerðar ríkisins, sagði í viðtali
vi!ð Tímano í dag, að undirbygging
hjálparvélanna hefði ekki verið
nægilega góð og hefði komið fram
óeðli'leg h'reyfing á vélunum Oig
hætta á að þær eyðilegðust hefði
ekki verið að gert, en þessir gall
ar komu fljótlega í ljós, þegar far-
ið var að sigla skipinu.
Búnaður -frystilestar og einangr
un var í óviðunandi ástandi. Hef
ur verið unnið ósleitilega áð við
gerð á þessum galla jafnframt lag
færingu á undirstöðum vélanna.
Pleiri gallar hafa komið í ljós.
Frágangur á stýrisvél var ekki
nógu góður. Þurfti að fá sendan
hlut frá Danmörku með það fyrir
augum að fá stýringu skipsins í
eðlilegt horf. Einnig er nú verið
að setja á útsláttarrofa fyrir hlið
arskrúfu og ffleLri lagfæringar hafa
farið fram.
I Slippstöðini á Akureyri er í
smíðum annað skip fyrir Skipa
útgerð ríkisins og er það smíðað
eftir sömu teikningu og Hekla.
Standa vonir til að það skip verði
tiilbúið seint á þessu ári.
Flugumferðastjórar
segja upp starfi
EJ—Reykjavík, þriðjudag.
Um 60 flugumferðarstjórar á
Keflavíkurflugjvelli, Reykjavíkur-
flugvelli og nokkrum flugvöllum
öðrum á landlnu 'iafa sagt upp
störfum sínum hjá ríkinu frá L
marz s. 1. Uppsagnarfrestur er 3
mánuðir, og eru þeir því lausir
úr störfum smum 1. júní — ef
ekki hefur náðst samkomulag milli
þeirra og ríkisins fyrir þann tima.
Deila flugumfei'ðastjóna við
ríkið snýst um óviðunandi ástand í
öryggismálum og launakjörin. Fyr-
ir skömmu sagði annar hópur ríkis
starfsmanna upp störfum vegna
óánægju nict launiafcjör, en það
voru fréttamenn hjá hljóvarps-
deild ríkisútvarpsins.