Tíminn - 11.03.1970, Side 9

Tíminn - 11.03.1970, Side 9
MIÐVIKUDAGUR 11. marz,1970. TÍMINN Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Framkvæmdastjóri: Kristján Benediktsson Ritstjórar Þórarinn Þórarinsson (áb). Andés Kristjánsson. Jón Helgason og Tómas Karisson. Auglýsingastjórl: Steingrímur Gíslason Ritstjórnar- skrifstoíur i Edduhúsinu, simar 18300—18306 Skrifstofur Bankastræti 7 — Afgreiðslusimi: 12323 Auglýsingasimi: 19523. Aðrar skrifstofur simi 18300. Áskrifargjald kr. 165.00 á mán- uði, innanlands — f lausasölu kr. 10.00 eint. Prentsm. Edda hf. Mannvirðingar og „rógur“ Er ekki eitthvað orðið bogið við „sýstemið“, þegar svo er komið, að það er talinn rógur og illmæli um mann' að telja upp mannvirðingar hans? í leiðara Alþýðublaðsins í fyrradag er Tíminn sakað- ur um siðlausa blaðamennsku og róg og illmæli í garð Tómasar Vigfússonar fyrir það eitt að telja upp nokkr- ar helztu mannvirðingar hans og segja hann vænsta mann þar að auki og í miklu áliti hjá ráðherrum Alþýðu- flokksins! Þetta er stórhneykslanlegt að dómi Alþýðu- blaðsins. En af hverju er þetta hneykslanlegt? Það getur ekki verið hneykslanlegt að telja upp mannvirðingar einstakl- ings nema að svo sé búið að hlaða embættum og trún- aðarstörfum á hann, að fjöldi embættanna sé orðinn svo mikill — einnig að dómi Alþýðublaðsins, — að það sé orðið meiðandi fyrir þá, sem hlaðið hafa þessu öllu á manninn. Önnur skýring verður vart á þessu fundin, og þar með tekur Alþýðublaðið á vissan hátt undir þá skoðun Tímans, að því séu takmörk sett, hvað hægt er að hlaða mörgum trúnaðarstörfum í almennings- þágu á einn mann. Þetta fyrirbrigði er líka orðið óþolandi og það hefur Tíminn sagt áður, að í þessu efni séu allir stjórnmála- flokkar sekir, og sú staðreynd á ekki að verða til þess að öllum fallist hendur, heldur einmitt til þess að sanna mönnum, hve rík nauðsyn er til, að allir taki höndum saman um að spyrna við fótum og setja um þessi efni skynsamlegar reglur. Vonir um það veikjast hins vegar við þessi ummæli í leiðara Alþýðublaðsins í gær: „Vissu- lega er þaS rétt, að varast ber að fela einstökum mönn- um of mikil völd, ekki sízt í litlu þjóðfélagi. En hinu má hetdur ekki gleyma, að einmitt í litlu þjóðfélagi er iðu- lega sííortur á hæfum mönnum til vandasamra starfa.. í stað „litlu þjóðfélagi“ ætti auðvitað að standa þarna „litlum flokki“ eða „Alþýðuflokknum“, en draga verður í efa, að ungir menn í Alþýðuflokknum vilji þrátt fyrir allt fallast á þá skoðun, að þar sé svo yfirþyrmandi skort- ur á hæfum mönnum, að stappi nærri neyðarástandi! Hitt skal Alþýðublaðið vita gjörla, að gefnu tilefni, að Tíminn ætlaðist ekki síður til siðbóta í Framsóknar- flokknum í þessum efnum en öðrum flokkum og mun síður en svo kveinka sér nokkuð, þótt Alþýðublaðið birti lista um mannvirðingar Framsóknarmanna. Þær verða að- eins framlag AlþýðublaCsins til að sanna fólki nauðsyn þess að spyrnt sé við fótum. Dylgjur í leiðara Alþýðublaðsins í fyrradag er einnig dylgjað um misferli í sambandi við gjaldeyrisviðskipti Sambands íslenzkra samvinnufélaga. Um það mál veit Tíminn ekk- ert, en skorar á Alþýðublaðið að leggja öll spilin á borð- ið og draga ekkert undan. Tíminn krefst þess að hvers konar misferli í fjármálalífi verði upplýst og upprætt að réttum lögum og reglum, hvar sem þau koma upp og hvaða einstaklingar eða félög sem eiga í hlut. Mun Tím- inn ekki dæma það vægar en aðrir, ef dylgjur Alþýðu- blaðsins eiga við einhver rök að styðjast. Það er hins vegar í hæsta máta ósmekklegt af málgagni banka- og viðskiptamálaráðherra, æðsta yfirmanns gjaldeyrismála, að vera með slíkar dylgjur 1 stað þess að nota hin hægu heimatök og upplýsa málið. Það eru slíkar óþarfa dylgj- ur. sem eru siðleysi í blaðamennsku, og skorar Tíminn á Alþýðublaðið að gera þar bragarbót. TK ERLENT YFIRLIT Wallace telur sigurvænlegt að láta Ijósmynda sig með Calley Tekst honum að sigra í prófkjörinu í Alabama í maímánuði? WALLACE og CALLEY A HAUSTI komanda munu fara fram fcosningar til fulltrúa- deildar Bandaríkjaþingsins og þriðj ungs öldungadeildarinnar. Þá fer fram ríkisstjórakjör í mörgum fylkingum. Það er venja, að í slíkum kosningum, sem fara fram á mdðju kjör- tímabili forsetans, að andstseð- in-gar hans vinni heldur á. Nú þykir hins ^egar ekki ólífclegt, að repuiblikanir vinnd á í full- trúadeildarkosndngiunum og jafnved í hinum kosningunum einnig. Ef niðurstaðan yrði sú, yrðd það talin mikill persónu- legur sigur fyrir Nixon forseta, þar Sem þetta yrði mest þakk- að vinsældum hans. Ef marka má skoðanakannanir nýtur Nix on nú fylgis mikils meirihluta kjósenda og Agnew varaforseti er orðinn sérstakt dálæti hœgri manna. Þrátt fyrir þetta, getur svo farið, að sitthvað gangi á móti Nixon í þessum kosningum. Ef til vill gæti það reynzt honum alvarlegast, ef George C. Wall- ace, fyrrum ríkisstjóri , Ala- {3 bama, næði endurkosningu þar sem ríkisstjóri. Wallace bauð úg fram sem frambjóðandi hægri sinnaðs flokks í forsetakosning- unum 1968 og fékk um 10 millj. atkvæða. Nái hann nú kosndngu sem ríkisstjóri í Ala- batna hefur aðstaða hans styrkzt til að bjóða sig fram aft ur í forsetakosningunum 1972. Framboð hans þá, gæti dregið að nýju mikið fylgi hægri 3 manna frá Nixon og þannig teflt endurkosningu hans í bæititu. Aðstaða Wallaces mun hiris vegar veikjast verulega, ef honum mistekst að ná endur- kosnimgu í Alabama. WALLACE var kosinn ríkis- stjóri £ Alabama 1962 og gegndi þvi starfi 1963—67. Hann vann sér þá mikla aðdáun hægri manna söbum þess, að hann bairðist harðlega fyrir aðskiln- aði hvítra manna og svartra, einfcum þó í samibandi við kennslu. Vegna stórnarskrár Alabama gait hann ebki boðið sig fram aftur 1966, því að ríkisstjóri þar má aðeins gegna embættinu 1 eitt kjörtímabil í senn. Hann tók það þá til ráfðs að bjóða fram konu sína og náði hún auðveldlega kosningu söbum vinsælda manns síns. Hún gegndi hins vegar ekki lengi embættinu, því að hún lézt af völdum kxabbameins rúmu ári síðar. Þá tók við emibættinu vararíkisstjórinn, Albert Brewer að nafni, sem var mikill aðdáandi Wallaees. Hann befur reynzt vel og gef- ur nú kost á sér sem ríkis- stjóri. Milli hans og Wallace's hefur því myndazt fullur fjand- skapur. Þeir munu nú keppa í prófkjöri hjá demókrötum, sem fer fram 5, maí næstkomandi. Sá þeirra, sem vinnur þar, er talinn eiga örugga kosningu í sjálfu rík'isstjórakjörinu, sem fer fram í nóvember næstk. FLJÖTT á litið, mætti álíta, að Wallace væri öruggur um sigur, siökum hinna miklu vin- sælda, sem hann hefur áður notið í Aiabama. Þá er þalð ekfci talið alveg víst. Kjósendur í Alabama eru 1.6 millj. og þar af eru 300 þús. svertinigjar. Það þykir víst, að þeir fylki sér um Brewer. Þá hefur Brewer stuðning þeirra hvítra demókrata, sem tilheyra frjálslyndari artni flokksins. Ef til viil mun það þó reynaast honum mikilvægast, að repu- blikanar eru taldir líklegir til að yfirgefa flokk sinn og fylkja sér um hainn í prófkjörinu. Þar þykir kenna ráða Nixons, því að tapi Wallace prófkjörinu, verður hann hættuminni and- stæðin-gur í farsetakosningun- um 1972. Annars segir Wallace nú, að hann muni gegna ríkisstjóra- embættinu allt kjörtímabilið, f hann nær kosningu. Þetta gerir hann tii þess að hnekkja þeim áróðri, að hann sé fyrst og fremst að hugsa um að skapa sé: betri aðstöðu til framboðs 1972. Þessum yfirlýs- ingum hans er hins vegar trúað varlega, þvi að Wallace hefur oft áður gefið yfirlýsingar, sem hann hefur talið sig geta vikið frá, ef honum hefur boðið svo við að horfa. WALLAGE hefur nú hafið kosningaiharáttuna af fullum krafti. Hann reynist enn sem fyrr slyngur áróðursmaður. Hann notar sér kynþáttamálin sem fyrr, en jafnframt varar hann við undanhaldi fyrir kommúnistum, einkum í Viet- nam. Þá ræðst hann á stór- kapítalismann og lýsir sig sam herja þeirra, sem ekki hafi alltaf rivítan flibha um hálsinn. Wallace er enn sem fyrr lag- ir.n við það að vekja á sér at- hygli. Nýlega átti hann t. d. viðtal við William L. Oalley, liðsforingja, sem er ásakaður fyrir fjöldaimorðin í My Lai. Blöðin birtu á eftir myndir af þeim Wallace og Calley, ásamt viðtali við Calley. Wallace sagði á eftir, að menn skyldu dæma Calley varlega, unz allir málavextir væru upplýstir, og ekiki hlaupa eftir sleggjudóm- um vinstri blaðanna. Hermenn Bandaríkjanna í Vietnam ættu hina erfiðustu aðstöðu og væri oft erfitt að þekkja í sundur samherja og fjandmenn. Og svo ólíklegt sem það kann að þykja, á þessi skoðun verulegt fylgi í Bandaríkjunum, enda hefði Wallace efcki að öðrum kosti látið ljósmynda sig rneð Oalley. ÞJ>.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.