Tíminn - 11.03.1970, Side 14
14
TÍMINN
-1
MIÐVIKUDAGUR 11. marz 197»
NÝKOMIÐ
VALSAÐ BYGG
kr. 6.200 tonnið
• FÓBURBLANDAN HF. •
v »■ j
GRANDAVEGI 42
Námskeið fyrir
leiðsögumenn /
erlendra ferðamanna
Mánudaginn 16. marz hefst á vegum Ferðaskrif-
stofu ríkisins 8 vikna námskeið fyrir leiðsögu-
menn erlendra ferðamanna á íslandi. Kennt verð-
ur tvö kvöld 1 viku og fer kennslan fram í Háskóla
íslands.
Þetta er í fimmta sinn, sem Ferðaskrifstofa ríkis-
ins heldur slíkt leiðsögumannanámskeið. Að þessu
sinni verður lögð sérstök áherzla á fræðslu í
menningarsögu íslands, en auk þess verða haldnir
fyrirlestrar um jarðfræði, gróður, söfn og annað
það, er ferðamanninn fýsir að vita. Þá verða
helztu ferðamannaleiðir kynntar og fer kennsla,
er snertir Reykjavík, Suðurland og Suðurnes að
miklu leyti fram í ferðum um viðkomandi staði.
Kennsluna annast sérfræðingar, hver á sínu sviði,
og vanjr leiðsögumenn sjá um leiðbeiningar í ferð-
um.
Væntanlegir þátttakendur verða að geta tjáð sig
vel á erlendum tungumálum, og er ekki talið
nægilegt að þeir tali aðeins ensku eða eitthvert
Norðurlandamálanna, heldur skuli þar annað
tungumál einnig koma til. Hins vegar er talið
nægilegt að þátttakendur tali eitt mál, ef um
önnur tungumál er að ræða.
Eins og áður skipuleggja námskeiðið og veita því
forstöðu Björn Þorsteinsson sagnfræðingur og
Vigdís Finnbogadóttir menntaskólakennari. Inn-
ritun fer fram á Ferðaskrifstofu ríkisins næstu
daga og þar eru einnig veittar allar nánari upplýs-
ingar.
GARÐLAND
Kartöfluland óskast til leigu á suðvesturlandi,
innan 70 km. fjarlægðar frá Reykjavík.
Tilboð sendist blaðinu fyrir 20. þ.m., merkt „Garð-
land 1032“.
SkaftfeESingafélagið
b Sieykjavík og nágrenni
heldur aðalfund sinn fimmtudaginn 19. marz
kl. 20.30 að Skipholti 70.
Venjuleg aðalfundarstörf. — Önnur mál.
STJÓRNIN.
DRENGUR A SKIÐUIVI
BRUNAÐI Á MANN
OÓ—Reykjavík, þriðjudag.
Laugardagitin 14. jan. s. 1. brun
aði drengur á skíðum á mann sem
stóð neðan við Ártúnisbrekku. Ultu
þeir báðir um koll og fékk dreng
urinn igióðarauga og kúlu á höfuð
ið, en maðurinn meiddist á hand
tegg og mjöðm.
Marðist hann svo illa, að hann
hefur verið frá vinnu siðan. Mað
urinn spurði drenginn ekki að
nafni og veit ekki hvar á að
hafa samband við hann. Er þessi
drengur eða foreldrar hans vin-
samlegast beðnir að hafa sam-
íþróttir
Framhaid af bls. 12
f gærkvöldi léku SH og KR. En
í kvbld lýikur mótiau með tveim
leikjum. Fyrst leika Ægir og SH,
en síðan KR og Ármann, og verð-
ur það úrslitaleikur mótsins. KR
hefur sigrað Ármann í 3 síðustu
leikjum þeirra. Búast má við
skemmtilegum leikjum, sérstak-
lega þeim síðari, og eru íþrótta-
unnendur hvattir til að koma og
sjá þessa leiki, og kynnast um leið
sundknattleiknum, sem er bæði
skemmtileg og hörð íþrótt.
Húsbyggjendur -
Húseigendur
Tek að mér nýbyggingar,
viðbyggingar, enn fremur
breytingar inanhúss sem
utan.
FRIÐGEIR SÖRLASON,
húsasmíðameistari,
sími 35502.
Laugavegi 38
Skólavörðustíg 13
og
Vestmannaeyjum
*
Hollenzku
sokkabuxurnar úr ull
og nylon eru komnar
aftur
❖
Framúrskarandi vara,
sem reynzt hefur
afburða vel
*
band við rannsóknarlógregluna í
Reyfcjavík.
Prófkjöri jafnaðar-
manna á Akureyri
lokið
SB—Reykjavík, þriðjudag
Prófkjör jafnaðarmanna á Ak-
uireyri fór nýlega fram og var þa'ð
ráðgefandi, en ekki bindandi. Hér
fara á eftir úrslitin og eru birt
nöfn 6 efstu manna:
1. Bragi Sigurjónsson, bankastj.
2. Þorvaldur Jónsson, fulltrúi
3. Valgarður Haraldss., niámsstj.
4. Albert Sölvason, járnsmiður
5. Haukur Haraldss., tækn'ifræð.
6. Bragi Hjartarson, múrari.
Á VÍÐAVANGI
Framhald af bls. 3.
eins og viruV um eyru þjóta, af
því að við trúum því a'ð fs-
land sé gott land og að íslend-
ingar séu dugleg og tápmikil
þjóð og við vitum að núverandi
ástand jr él eitt, sem brátt
iíður hjá. Og við vitum líka
að öruggasta ráðið til að flýta
því, að aftur birti yfir lgndinu
er að efla Framsóknarflokkinn
til sjávar og sveita sem allra
mest.“ TK
Hjúkrunarkonur
Framhald af bls. 2.
ísafirði, Sigríður Kriistinsdóttir frá
Rví'k, Sigríður Birna Rockley frá
NeskaU'pstaið, Sigrún Hulda Garð-
arsdóttir frá Rvík, Stofania María
Jóhannsdóttir frá Siglufirði, Stein-
unn Eiírfksdóttir frá Hafnarfirði,
Sveinbjörg Hermannsdóttir frá
Suðureyri, Súgandafirði Vil'helm-
ína Svava Guðnadóttir frá Rvik.
Þóra Guðrún Sigurðardóttir frá
Efra-Lóni, Langanesi.
TTa ?
'ámnw
Dý nmeð augun sjö ég sá,
sextán huldi maga,\
fjórtán stóð það fófcum á,
féll því ei til baga.
Ráðning gátunnar í síðasta
blaði:
Augað í maoni.
Gáturnar eru úr „fslenzkum
gátum, skemmtun.um, vikivök-
um og þulum“, sem Jón Árna-
son og Ólafur Davíðsson söfn-
uðu og hafin var útgáfa á í
Kaupmannahöfn á vegum Hins
íslenzka bókmerintafélags 1887.
Verk þetta var endurútgefið í
heild ljósprentað árið 1964.
Larsen vann Friðrik
Fratnhald af bls. 1.
yerða fcefldar á föstudag. Mót
inu í Luganó lýkur 20. m'arz.
FrLuganó fer Friðrik beint
til Júgóslavíu, þar sem. Sovét
menn tefla gegn beztu skák
mönnum annarra landa, og er
Friðrik 1. varamaður. Ekki
er ósennilegit að hann þurfi að
tefla á þessu móti, því Larsen
er mjög óánægður með niður
röðunina í liðinu gegn Sovét
mönnum. Er Fisher frá Banda
ríkjunum á fyrsta borði en
Larsen á öðru borði. Telur
Larsen sig eiga rétt til að tefla
á fyrsta borði.
Friðrik sagði í kvöld, að reiði
Larsens beindist geign þeim,
sem völdu í liðið, en ekki gegn
Fisher sjálfum. Teldi hann
kerfi það, sem valið væri eftir
hrei. fjarstæðu, og benti á að
á síðustu þremur árunum hefði
bann unnið fleiri þýðingarmikil
mót en Fisher á allri sinni
ævi!
Mótið í Júgósliavíu hefst 29.
marz.
ÚTBOÐ
Tilboö óskast í tréverk fyrir Hótel Esju, Suður-
landsbraut 2, Reykjavík. Tréverk í þessu útboði
er eftirfarandi:
I. 69 stk. massivar hurðir með ölum dyra-
umbúnaði úr eik.
n. 83 stk. venjulegar blokkhurðir, með öll-
um dyraumbúnaði úr eik.
III. Fölsk loft, fataskápar o.fl. í 68 gistiher-
bergi, spónlagt með eik.
VI. Ljósarennur í hótelganga o.fl., spónlagt
með eik.
Heimilt er að bjóða í hvern verkþátt fyrir sig, eða
alla. Verkið þarf allt að yinnast í marz, apríl og
maí n.k. Útboðsgögn eru afhent á Teiknistof-
unni s.f., Ármúla 6, gegn 3 þúsund króna skála-
tryggingu. Tilboðin verða opnuð á skrifstofu
Byggingarstjóra Hótel Esju, Suðurlandsbraut 2,
þriðjudaginn 17. marz kl. 11 f.h.
ÚTBOD
Tilboð óskast í raflagnir í hús Sjálfsbjargar við
Hátún 12 í Reykjavík. Útboðsgögn eru afhent á
Teiknistofunni s.f., Ármúla 6, miðvikudaginn
11. marz. gegn 3 þúsund króna skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, þriðjudaginn
17. marz kl. 11 f.h.