Morgunblaðið - 06.11.2005, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER 2005 21
www.zendium.no
STYRKIR VARNIRNAR Í MUNNINUM
zendium inniheldur mild efni sem
vinna með náttúrulegum hreinsi-
eiginleikum munnholsins.
Nýja zendium tannkremið inniheldur
ensím, zink og colostrum
(broddmjólk) og veitir tönnunum
mjög góða vörn gegn bakteríum.
Með zendium tannkremi verður
tannhirðan hvort tveggja í senn,
mild og árangursrík.
Prófið einnig nýja
tannkremið
Fresh+White
Hvítari tennur
Frísklegt bragð
Inniheldur zink sem
vinnur gegn andremmu
zendium er milt á bragðið og freyðir
lítið en er engu að síður öflugt
tannkrem.
zendium virkar vel þótt það freyði
lítið vegna þess að góð tannhirða
snýst ekki um mikla froðu og bragð.
Getur milt tannkrem
verið árangursríkt?
Án
triclosan
fyrir fljótfærni og virðingaleysi gagn-
vart íbúum úthverfanna. Óttuðust
margir að erfitt myndi reynast fyrir
tvo valdamestu menn ríkisstjórnar-
innar að ná samkomulagi um lausn á
upplausnarástandinu. Viku eftir upp-
haf óeirðanna virðast þeir þó loksins
sjá hag sinn í því að vinna saman og
setja ágreiningsefni sín til hliðar til að
vinna á mikilvægari vandamálum.
Villepin og Sarkozy, sem báðir
koma úr hægri flokknum UMP, berj-
ast um athygli fjölmiðlanna og hafa
háð stríð um vinsældir kjósenda og
flokksmanna sinna um nokkurt skeið.
Talið er að þeir munu báðir ásælast
forsetastólinn í næstu kosningum ár-
ið 2007 og nota þeir því hvert tæki-
færi til að sanna yfirburði sína yfir
hvor öðrum. Tvær fylkingar hafa
myndast að baki þeim og hefur því
verið haldið fram að forseti landsins,
Jacques Chirac, hafi sett Villepin í
embætti gagngert til þess að koma í
veg fyrir að Sarkozy næði markmiði
sínu, að verða forseti Frakklands.
Innkoma Villepin í frönsk stjórn-
mál er óvenjuleg. Hann er virtur í við-
skiptalífinu en hefur aldrei verið kos-
inn á þing eða í embætti og hafa
sumir þingmenn bent á að hann þyki
á stundum hrokafullur. Hann er þó
frekar vinsæll meðal almennings, er
ósjaldan á síðum slúðurblaðanna og
hefur fjölskyldu hans verið líkt við
konungsfjölskyldu Frakklands.
Sarkozy á dygga stuðningsmenn í
flokknum þó forsetanum sjálfum
virðist ekki vel við hann. Harðar að-
gerðir hans í innanríkismálum hafa
hlotið góðan hljómgrunn, sérstaklega
í röðum hægrimanna. Aftur á móti
hafa vinsældir hans meðal almenn-
ings dvínað og þykir ljóst að liður í
óánægju íbúa úthverfanna séu við-
brögð innanríkisráðherrans sem þyk-
ir nokkuð harðorður og fordómafull-
ur.
Á þingflokksfundi í vikunni var
mikil spenna meðal þingmanna hægri
flokksins UMP, þar sem innkomu
Villepin inn í salinn var fálega tekið
en Sarkozy gekk inn undir dynjandi
lófataki. Villepin tók fyrir að rætt
yrði um aðför hægri handar hans,
jafnréttisráðherrans Azouz Begag,
að Sarkozy vegna umdeildra um-
mæla hins síðarnefnda fyrr í vikunni
og bað þingmenn að hætta að gagn-
rýna ríkisstjórnina og koma heldur
með uppbyggilegri lausnir. Þótti
ræða forsætisráðherrans vera í meira
lagi yfirlætisfull og virðast margir í
þingflokki UMP styðja frekar tillögu
Sarkozy um „ákveðni og hörku“
gagnvart ofbeldisseggjum óeirðanna.
Það virðist þó einnig vera samdóma
álit þeirra að málið sé vandmeðfarið
og að mikilvægt sé að setja ekki öll
ungmennin undir sama hatt. Margir
þingmannanna sýndu óánægju með
auðsjáanlega óeiningu ráðherranna
tveggja og fóru fram á að Villepin og
Sarkozy settu ágreiningsmál sín til
hliðar til að takast á við það sem gæti
annars orðið að alvarlegri stjórnar-
kreppu í landinu, enda væri enn langt
í forsetakosningar. Þeir virðast loks
hafa náð samkomulagi um að vera
sammála eftir stormasama viku og
vinna nú saman að áformum um
lausnir fyrir stöðugleika í úthverfun-
um. Áætlað er að tillögurnar verði
kynntar fyrir lok mánaðarins, að
beiðni forseta Frakklands, Jacques
Chirac.
Reuters
Vegfarandi virðir fyrir sér bifreiðar, sem kveikt var í Sevran-úthverfinu.
sara@mbl.is
Fáðu úrslitin
send í símann þinn