Morgunblaðið - 06.11.2005, Page 34
34 SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Geisladiskur með
hátíða- og aðventutónlist kominn út.
9/05 14:06 Page 1
KarlakórinnHeimir
Óskar Pétursson, Gunnar Þórðarson og fleiri
TÓNLISTAR- & SKEMMTIDAGSKRÁ
SALNUM,Kópavogi
Föstudagskvöldið 11. nóv. kl. 20:00
Laugardag 12. nóv. kl. 16:00 og kl. 20:00
Forsala aðgöngumiða í Salnum
www.salurinn.isN
ÝP
RE
NT
Öll gild umræða er skarar listir afhinu góða, sömuleiðis fagleg ogupplýsandi rýni á einstaka við-burði, því fjölþættari og sveigjan-legri sem birtingarmyndin er
þeim mun betra. Auðvitað skiptar skoðanir um
eðli gildrar umræðu, hvað sé fagleg listrýni,
jafnframt hve lengi einn og sami maðurinn geti
leyft sér að fjalla um þessi viðkvæmu og flóknu
mál á opinberum vettvangi og hve óskeikult
vald hann er talinn hafa með skrifum sínum.
Þetta hefur skarað umræðuna og kom Þórunn
Sigurðardóttir inn á það í framsöguerindi sínu á
málþingi Lesbókar fyrir skömmu, býsnaðist
einkum yfir þrásetu nokkurra gagnrýnenda
Morgunblaðsins. Hittir mig helst sem í bráðum
fjóra áratugi hef verið virkur listrýnir, þótt svo
komið hafi ég að mestu horfið frá almennri rýni,
þótti auðsætt að einkanlega var hvati framslátt-
arins hörð gagnrýni mín á meinta einstefnu
myndlistar á síðustu listahátíð í vikulegum
Sjónspegli, taldi hana eiga höfuðsök á litlum við-
brögðum listunnenda og almennings í það heila.
Myndlistin sem átti að vera á oddinum að þessu
sinni sannast sagna mjög aftarlega ef ekki
langaftast hvað aðsókn snerti þrátt fyrir gagn-
gerðari markaðssetningu, meiri hávaða, lúðra-
þyt og trumbuslátt í upphafi en í allri sögu
listhátíðar, Picasso og Chagall sýningarnar ekki
undanskildar. Var oftar en ekki einn í sýning-
arsölunum á sunnudagsyfirferðum mínum, yfir-
litssýningar á verkum Dieter Roth þó undan-
skildar, nema í sal Orkuveitunnar. Meira mun
einnig hafa verið kostað til dagskrárliða en áður
og fleiri erlendum áhrifamönnum smalað til
landsins, þeim jafnvel boðið í flugferð á milli
sýninga úti á landi með forseta landsins innan-
borðs, telst þetta þó listahátíð höfuðborgar-
svæðisins og veit engin dæmi um að færa þann-
ig samtímis út mörk staðbundinna listahátíða.
Hlustað á það sem vísum hraut af munni sem
um véfréttina í Delfi væri að ræða, spekinni
samviskusamlega slegið upp í fjölmiðlum og
mun hafa gengið manna millum í öldurhúsum
meðan lifði nætur eftir heimkomuna, sem og
næstu daga. Nærtækt að hugleiða hvað hægt
hefði verið að styrkja marga innlenda listamenn
fyrir þá upphæð sem fór í stúss kringum útlend-
ingana, gefa þeim færi á að helga sig listinni ein-
vörðungu í fimm, tíu til fimmtán ár, sem ég teldi
stóran lið í útrás myndlistar, jafnframt koma
grafíkverkstæðinu í gagnið. Íslenskir mynd-
listarmenn sitja nefnilega alls ekki við sama
borð og til að mynda skandinavískir í þeim efn-
um né hvað almenn mannréttindi varðar.
Því miður er skrifari við gefnar aðstæður
ekki hlutgengur á málþingum hérlendis, þar
sem ekki eru til varamálstúlkar, en hyggja mín
að sljákkaði í talfærum kokhraustra ef raunin til
andsvara væri hverju sinni svo gæfuleg. Aust-
ur-Þjóðverjar leystu annars þetta vandamál
fyrir 37 árum og gerðu mig um árabil hlutgeng-
an til jafns við aðra, fullgildan á alþjóðlegum
fundum og pallborðsumræðum. Ýmislegt
mögulegt ef liðlegheit, viska og hugvit eru fyrir
hendi.
Þá vill margur steingleyma á hvaðabreiddargráðum landið er, fámenniþjóðarinnar og aðstæður þeirra semtaka að sér að rýna í listir. Langt í frá
samanburðarhæft við til að mynda Kaupmanna-
höfn, hvað þá París, London og New York. Lík-
ast til verða menn að setja sig í nýjar stellingar
á hverjum stað því enginn alþjóðlegur staðall til
annar en aðstæður og umhverfi. Einnig gefur
auga leið að önnur viðhorf þróast í 10 milljón
manna borg en 120.000 – og 250 milljón íbúa
landi en 280 þúsund og allt þar á milli. Einnig
vill mönnum yfirsjást að hér er yfirleitt um ígrip
frá öðru að ræða, starfið illa launað og óvinsælt,
gagnrýnendur án almennra réttinda á vinnu-
markaði, þar allt í lausu lofti, og því lengur sem
viðkomandi endist í starfi þeim hatramari verð-
ur undirróður óprúttinna. Sýnu lakast að þeir
sem helst eiga að geta tekið vel meintri og
ígrundaðri umfjöllun eru hér einna hörundsár-
astir eins og nefnd Þórunn sem og einsýnir
safnstjórar sem helst vilja hafa bein áhrif á
hvernig fjallað er um framkvæmdir á þeirra
vegum og hverjir veljist þar til starfa. Má vera
nokkuð ljóst að þeim minna og frumstæðara
sem þjóðfélagið er því erfiðara er að koma við
hlutlægri rýni, og um hreinar undantekningar
að ræða að einhverjir þrái sérstaklega að sitja
sem lengst í stóli listrýnis! Stórum algengara að
menn hverfi sem fyrst af hólmi er þeir átta sig á
hvað þeir hafa tekið sér fyrir hendur, eða hafi
orð Hávamála að leiðarljósi; „menn skulu mæla
þarft að þegja“. Einnig sýnu erfiðast að finna
hæfa menn sem vilja taka starfið að sér sem
gera það einvörðungu á faglegan og hlutlægan
hátt. Sjálfur er ég langtífrá í hópi sjálfskipaðra
eða fjarstýrðra langsetumanna, lét mér aldrei
detta í hug að sú staða kæmi upp að ég færi að
skrifa um starfsbræður mína opinberlega. Þeg-
ar mér þótti setan orðin helst til löng færði ég
það í tal við ritstjóra að endurnýja liðið, sem
tóku hugmyndinni vel, en það var ýmsum ann-
mörkum háð, starfið orðið langtum umfangs-
meira. Ennþá færri sem höfðu kjark í pataldur-
inn, eiga jafnvel á hættu að missa mannorðið,
gamalgróna vini og kunningja, ennfremur lifa
við símahringingar bálreiðra og hótanir um
líkamsmeiðingar líkt og starfsbróðir minn mátti
þola í gamla daga, hann eldri og ekki jafn vel á
skrokk kominn.
Að mínu viti ættu menn svo komið allsekki að sitja í starfinu lengur en 5-10ár, en bláupplagt að dagblöð og ljós-vakamiðlar nýti áfram reynslu og yf-
irsýn viðkomandi með öðrum skrifum er skara
sérgrein þeirra og umbuni betur, að á þessu
sviði tíðkist virðingarþrep upp á við sem annars
staðar. Víða erlendis hafa skrif er skara sjón-
arheiminn og myndlistina stóraukist í dagblöð-
um og tímaritum. En jafn einfalt og það er að
setja línurnar reyndist iðulega erfitt að halda
markmiðin, einkum þegar viðkomandi eru orðn-
ir ómissandi fyrir þá sök að annars legðist sá
geiri listrýni af eða missti flugið og hefur mynd-
listin haft sérstöðu.
Þegar ég er að vísa til faglegra skrifa og hlut-
lægni á ég við að gerandi sé ótruflaður af tilfinn-
ingum og persónulegum löngunum, raunsannur
og hlutglægur, um nokkurt annað hugtak en
hlutleysi að ræða. Menn eru þá að setja fram
markaðar skoðanir án tillits til vináttu, ættar-
banda og stjórnmálaskoðana, fari þeir út fyrir
rammann glata þeir um leið trúverðugleika sín-
um. Samkvæmt Diderot og Lessing er listrýni
huglægs eðlis hvar fróðir miðla þekkingu sinni
og yfirsýn til almennings, hvarvetna eðlismunur
á rýni í dagblöð og sérrit. Ekkert listaverk verð-
ur í sjálfu sér betra fyrir skoðanir gerandans,
frekar en að gæði tónlistar fari eftir stjórnmála-
skoðun hans! Hér gildir einungis kraftbirting-
urinn sem liggur verkinu til grundvallar. Þann-
ig standa jafnvel trúvillingar, ofbeldismenn og
morðingjar að baki nokkurra fegurstu sköpun-
arverka listasögunnar sem ratað hafa í heims-
listasöfn og guðshús, sjálft sköpunarferlið þá
guðdómurinn.
Við sem höfum ekki viljað gangast undirákveðin jarðarmen varðandi pólitík,listhópa, stíla og stefnur en treystumeigin menntunargrunni og yfirsýn
verðum eðlilega fyrir árásum hagsmunasam-
taka sem tefla fram málpípum sínum í röð list-
sögufræðinga og pennalipurra listamanna sem
viðkomandi leitast einnig við að styðja til áhrifa
í fjölmiðlum. Tekur á sig ýmsar undarlegar og
neyðarlegar myndir eins og til að mynda að við
séum að ala á fordómum í garð allrar sérfræði-
þekkingar sem tengist listum. Sérdrægari og
aumkunarverðari röksemdum er leit að undir
himinhvelfingunni, en tilgangurinn helgar með-
alið eins og slíkir bera gjarnan fyrir sig.
Það sem öðru fremur hefur haldið mér við
efnið eru í og með hinar miklu hræringar og
sveiflur í myndlistarheiminum, ekki síst síðast-
liðinn áratug, og ég alla tíð reynt að fylgjast með
eftir því sem aðstæður leyfðu. Svo komið er þró-
unin þó fjar- og handstýrðari en nokkru sinni
fyrr eins og ég hef margsinnis vakið athygli á.
Hvarvetna í Evrópu er áhugi á sjónlistum í ríf-
andi framsókn meðal hins upplýsta almennings
sem þó hafnar miðstýringu hvar sérgóðir ráða í
skjóli tímabundins valds, peninga og aðgengis í
fjölmiðla. Höfuðverkurinn þá að aðsókn fer sí-
minnkandi á sýningarsali og söfn sem þeir eru í
forsvari fyrir og gæti hér nefnt ýmis dæmi,
nefna aðeins að Tate söfnin í London eru inni í
myndinni, mikils háttar sérsýningar þó undan-
skildar. Gerist fyrir klæðskerasaumaðar lausnir
sem eru án tengsla við raunveruleikann, hinn
áþreifanlega púls dagsins sem hinir sömu eru
þó stöðugt að vísa til í hlutdrægri viðleitni sinni
við að yfirtaka skoðanamynstrið. En um leið síst
minna aðstreymi á hina stóru myndlistarvið-
burði sígildra myndmiðla í nýjum búningi en til
að mynda Airwaves hátíðina hér í borg á dög-
unum, en vel að merkja allt árið, 52. vikur. Stóra
spurningin þá af hverju angar þessara gæfu-
legu hvarfa hafa ekki náð hingað á útskerið, hér
meint öfugþróun um sjálfsprottinn áhuga og að-
streymi á söfn og sýningar.
Í ljósi þessa alls væri það klárlega að fara í
akkorð við samvisku sína, menntunargrunn og
yfirsýn að vekja ekki athygli hér á.
Umræða og listrýni
Frakkinn Denis Diderot (1713—84) og Þjóðverjinn Gotthold Efraim Lessing (1729—81) teljast frum-
kvöðlar seinni tíma listrýni. Grunnurinn huglæg og hlutlæg skoðanamyndun.
SJÓNSPEGILL
Bragi Ásgeirsson
MIKILL stuðningur ríkir meðal
Íslendinga gagnvart nýyrðastefn-
unni þrátt fyrir að fjöldi fólks kjósi
að nota ekki sum nýyrðin þar sem
fólki þykir orðin óþjál, ekki hljóma
nógu vel eða ekki vera nægilega
lýsandi. Skýringanna á þessari
þversögn má leita í fortíðinni og
því hlutverki sem nýyrðastefnan
hefur gegnt allt frá sjálfstæðisbar-
áttunni, þar sem henni var ætlað
að gera okkur að stoltri þjóð sem
ann máli sínu hreinu af erlendum
áhrifum.
Þetta var meðal þess sem fram
kom nýverið í fyrirlestri Hönnu
Óladóttur, aðjúnkt í íslensku við
Kennaraháskóla Íslands. Yfirskrift
fyrirlestursins var: Tungan á tím-
um alþjóðavæðingar eða „þeir
sletta smoothie sem eiga það“.
Spurð um nafngift fyrirlestursins
segist Hanna að með henni hafa
hún viljað velta upp þeirri spurn-
ingu hvort íslenskan þyki það hall-
ærisleg í augum unglinga að grípa
þurfi til enskunnar til þess að
markaðssetja hið alíslenska skyr.
„Mér finnst þetta fremur öfug-
snúið, að á sama tíma og við erum
að selja útlendingum skyr og
markaðssetja skyrið undir því
nafni erlendis þá er verið að selja
Íslendingum smoothie.“
Orðmyndun mætti sinna
betur í skólum landsins
Í fyrirlestri sínum var Hanna
sérstaklega að fjalla um hvernig
íslenskt málsamfélag bregst við er-
lendum máláhrifum, með sérstöku
tilliti til aðkomuorða úr ensku.
„Heimurinn er þannig að við þurf-
um að vera góð í ensku, en við
megum ekki láta það hafa áhrif á
íslenskuna. Við hugsum jú á ís-
lensku. Við þurfum því að sinna ís-
lenskunni í skólum og gera fólk
stolt af því að vera gott í íslensku,
um leið og það getur verið stolt af
góðri enskukunnáttu. Þetta á að
hjálpa hvort öðru í stað þess að
setja þetta upp sem andstæður.“
Spurð hvernig íslenskunni verði
best sinnt segist Hanna þeirrar
skoðunar að huga þurfi sérstak-
lega að leik að orðum í íslensku-
kennslu. „Sprengikrafturinn í
tungumálinu felst í nýyrðasmíð og
orðmyndun og þeim þætti mætti
sinna betur í skólum landsins,“
segir Hanna og segir að stuðn-
ingur við nýyrði viðist fara minnk-
andi. „Að mínu mati þurfa nýyrðin
að koma miklu fyrr en nú er,“ seg-
ir Hanna og tekur fram að ekki
þýði að gera það með forræðis-
hyggju. „Það ætti frekar að setja
fjármagn í að þróa kennsluefni
sem eflir orðmyndun og nýyrða-
smíð barna, því þannig yrðu þau
sennilega sjálf móttækilegri fyrir
notkun nýyrða. “
Niðurstöðurnar hluti
af samnorrænu verkefni
Niðurstöðurnar sem Hanna
kynnti í fyrirlestri sínum byggjast
á MA-ritgerð hennar og eru hluti
af samnorrænu verkefni þar sem
til skoðunar eru nýleg aðkomuorð í
Norðurlandamálum. Nokkur fjöldi
íslenskra fræðimanna tekur þátt í
rannsókninni hérlendis og munu
þeir, ásamt norrænum samstarfs-
mönnum sínum, kynna niðurstöður
sínar á lokaráðstefnu rannsóknar-
innar sem haldin verður í Kaup-
mannahöfn í desemberbyrjun.
Sprengikraftur tungumálsins
felst í nýyrðasmíðinni
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
WWW.NOWFOODS.COM
Góð heilsa gulli betri