Morgunblaðið - 06.11.2005, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER 2005 51
Skeifan - Verslun
Bjart og gott 250 m² verslunarrými á jarð-
hæð með mikilli lofthæð. Góðir merking-
armöguleikar, útstillingargluggar út á bíla-
plan að framan og aftan. Húsnæðið getur
nýst undir hvers konar verslun, heildversl-
un eða þjónustustarfsemi. Verð 310 þús.
á mán.
Sími 511 2900
Áhugasamir hafi samband
við sölumenn Leigulistans.
Jón G. Briem hrl. & löggiltur fasteignasali
Suðurlandsbraut - Skrifst.
Til leigu mjög vandað og gott ca 216 m²
skrifstofuhúsnæði með frábæru útsýni
norður yfir Esjuna. Húsnæði með tölvu-
lögnum, fallegu niðurlímdu parketi, stór-
um gluggum í þrjár áttir, innfelldri lýsingu
o.fl. Lyfta er í húsinu. Mánaðarleiga að-
eins kr. 250 þús.
Laugavegur - Verslun
Gott verslunarhúsnæði við Laugaveg (105
Rvík). Mikið auglýsingagildi, góðir versl-
unargluggar. Hægt að fá frá ca 100 m² til
tæpl 700 m² einingar leigðar. Sala á 416
m² kemur til greina. Nánari upplýsingar
veita sölumenn Traðar.
Bæjarlind - Verslun
234 m² verslunarhúsnæði á frábærum
stað í Lindahverfinu. Húsnæðið er bjart
og gott og skiptist í verslunarrými auk
salernis og afstúkaðs skrifstofurýmis með
glugga. Góðir verslunargluggar. Niðurtek-
ið kerfisloft með innfelldri lýsingu og há-
tölurum. Öryggiskerfi. Verð 350 þús. á
mán.
Hlíðasmári - Jarðhæð
Glæsilegt 304 m² húsnæði á jarðhæð
sem getur nýst undir verslun, skrifstofur
eða hvoru tveggja. Fallegar flísar á gólf-
um, innfelld lýsing, gott loftræstikerfi, ör-
yggiskerfi o.fl. Húsnæðið hefur mikið aug-
lýsingagildi og sést vel frá Smáralind og
Reykjanesbraut. Möguleiki er á 200 m² til
viðbótar ef óskað er. Verð fyrir 304 m²,
430 þús. á mán.
Rvík - Miðbær - Þjónustuhúsnæði
Nýinnréttað 350 m² rými vestan við mið-
bæ Reykjavíkur til leigu og afhendingar
strax. Mögul. á innkeyrsludyrum og um 4
m lofthæð ef um annars konar starfsemi
er að ræða, þ. á m. mögul. á aðg. að 200
m² geymslukjallara. Mánaðarleiga kr. 340
þús.
Lækjargata - Rvík - Til leigu
Glæsilegt 232 m² skrifstofuhúsnæði á 2.
hæð í miðbæ Reykjavíkur. Skiptist í 7
bjartar skrifstofur, fundaraðst., skjala-
geymslu, kaffist. og salerni. Loftræsting,
lagnastokkar o.fl. Mjög snyrtileg sameign.
Lyfta í húsinu. Klassa húsnæði í hjarta
miðborgarinnar. Leiguverð kr. 350 þús. á
mán.
Vesturbær - Verslun/skrifst.
Vorum að fá til leigu mjög fallegt ný inn-
réttað verslunar- og/eða skrifstofuhús-
næði á jarðhæð í þekktum verslunar-
kjarna í vesturbænum. Húsnæðið er ný-
innréttað. Vörumóttaka, hleðsludyr að aft-
anverðu. Góðir verslunargluggar. Hentar
vel undir verslun, veitingarekstur eða
hvers kyns hverfatengda þjónustustarf-
semi o.fl. Verð kr. 300 þús. á mán.
www.trod.is
Til sölu og leigu
OPIÐ HÚS Í DAG, SUNNUDAG, KL. 14-16
HRAUNBÆR 56
Lára Krisín tekur á móti áhugasömum og
sýnir íbúð sína sem er mjög björt og falleg
83,8 fm íbúð á 2. hæð. Suðursvalir,
geymsla, sameiginleg hjóla- og dekkja-
geymsla og gott þvottahús.
Sölumaður: Sigurður (898 3708)
Verð 17,5 millj.
OPIÐ HÚS Í DAG, SUNNUDAG, KL. 14-16
VESTURVANGUR 44, Hafnarfirði
Til sýnis í dag þetta glæsilega og vel hannaða 311 fm einbýli (með tveimur íbúðum) á
frábærum stað í Norðurbænum í Hafnarfirði. Efri hæð er 152,7 fm auk stofu á neðri
hæð, 36 fm og íbúð á neðri hæð, 60 fm og bílskúr 62 fm. Falleg hús á frábærum stað.
Verð 56 millj.
yfir 300 í Reykjavík, fær hvergi
rými á hjúkrunarheimili enda þótt
fólkið sé búið að greiða skatta og
skyldur til hins opinbera alla sína
tíð. Það er einnig til skammar. Það
hefði átt að taka fjármuni af síma-
peningunum til þess að leysa þetta
vandamál, reisa hjúkrunarheimili
til þess að útrýma biðlista aldraðra
eftir hjúkrunarrými.
Þá þarf að afnema það mannrétt-
indabrot að hjúkrunarheimili eða
Tryggingastofnun felli niður allar
tryggingabætur til aldraðra, þegar
þeir vistast á dvalar- eða hjúkr-
unarheimili. En síðan verði aldraðir
að fara bónarveg að Trygg-
ingastofnun og sækja um vasapen-
inga til stofnunarinnar. Segja má,
að þeir missi fjárræði sitt með
þessu fyrirkomulagi. Krafan er sú,
að aldraðir fái greiddar þær bætur,
sem þeir eiga rétt á, en síðan greiði
þeir sjálfir fyrir dvöl sína á dvalar-
eða hjúkrunarheimili og haldi eftir
ákveðnum hluta í vasapeninga.
Þannig er fyrirkomulagið í nálæg-
um löndum.
Margir tugir milljarða
hafðir af öldruðum!
Ég hefi bent á, að ríkið hefur
haft marga tugi milljarða af öldr-
uðum sl. 11 ár miðað við loforð,
sem öldruðum voru gefin af rík-
isstjórn árið 1995. Þar við bætist,
að algert öngþveiti ríkir í vist-
unarmálum aldraðra. Lög um vist-
un aldraðra eru brotin, sbr. Sól-
vang í Hafnarfirði. Ríkinu ber
skylda til þess að sjá öldruðum,
sem ekki geta búið í heimahúsum,
fyrir hjúkrunarrými. Þessa skyldu
uppfyllir ríkið ekki. Það er ekki
nóg fyrir ríkisstjórnina að guma af
„góðum fjárhag ríkisins og góðu
efnahagsástandi“, þegar rík-
isstjórnin vanrækir algerlega að
leysa mál þeirra eldri borgara sem
byggt hafa upp Ísland í dag. Enn
er unnt að bæta úr þeim málum, ef
vilji er fyrir hendi.
Það eru nógir peningar til. Þetta
er aðeins spurning um forgang.
Það mætti láta ýmis gæluverkefni
bíða.
Einn eldri borgari hringdi til mín
og sagði, að það mætti draga úr
fjárveitingum til fornleifarannsókna
en auka í staðinn fjárveitingar til
eldri borgara. Mál eldri borgara
þyldu ekki bið en fornleifarnar
mættu bíða.
Höfundur er viðskiptafræðingur.
Fréttir í
tölvupósti