Morgunblaðið - 06.11.2005, Side 56
ÞÓRÐUR Guðjónsson,
knatt-spyrnumaður frá
Akranesi, ákvað í vikunnni að
ganga til liðs við sitt gamla
félag, ÍA, fyrir næsta
keppnis-tímabil. En ÍA og
Íslands-meistarar FH höfðu
bitist um hann undan-farna
daga. Þórður skrifar undir 3
ára samning við
Skaga-menn, en seinustu 12
ár hefur hann verið í
atvinnu-mennsku erlendis.
Þórður sagði að það væri
mikill léttir að vera búinn að
taka þessa ákvörðun. „Það
hefði verið erfitt að fara ekki
til ÍA,“ sagði Þórður sem lét
hjartað ráða för.
Þórður
fer heim
Þórður Guðjónsson
í landsleik.
DAGUR Barkarson 9 ára stóð
sig hetju-lega þegar hann féll
í smábáta-höfnina í Keflavík
síðast-liðinn sunnudag. Hann
bjargaði sér nefni-lega
algerlega sjálfur. Dagur var
að renna sér á sleða í brekku
ofan við höfnina en tókst ekki
að stöðva sig. Hann kom á
fleygi-ferð niður brekkuna og
stökk á sleðanum yfir
varnar-garð við höfnina og
stakkst á kaf í sjóinn. Sjórinn
var svo ís-kaldur að
full-orðinn maður hefði varla
getað synt í honum og síðan
klifrað upp á bryggjuna. En
allt þetta gerði Dagur
hjálpar-laust. „Ég synti
skrið-sund en veit ekki hvað
þetta var langt,“ segir hann.
„Ég var að drepast úr kulda
en gat samt haldið höfðinu
upp úr.“ Dagur neitar því ekki
að hann sé góður
sund-maður og segist hafa
fengið fínar einkunnir í
skóla-sundi. „Ég vissi hvert
ég átti að synda og var alveg
með opin augun. Ég tók strax
sund-tökin og það gekk bara
vel að synda en þetta gerðist
svo hratt að ég hafði engan
tíma til að hugsa,“ segir
Dagur. Skömmu síðar kom
maður að og skutlaði
sund-garpinum heim þar sem
hann fór í heitt bað. Endaði
þetta af-rek því líkt og þegar
Grettir Ásmundarson, mesti
sund-garpur
Íslands-sögunnar, baðaði sig
í Reykja-diski eftir
Drang-eyjar-sund sitt á
Skaga-firði.
Bjargaði sér sjálfur
Ljósmynd/Hilmar Bragi
Dagur (t.h.) ásamt vini sínum Vigni Blæ.
GABRÍELA Friðriksdóttir myndlistar-kona hlaut á
mánudag heiðurs-verðlaun Mynd-stefs, samtaka
mynd-höfunda 2005. Þetta er í fyrsta sinn sem
verð-launin eru veitt, og vann hún fyrir
myndbands-verkið Vers-ations / Tetra-lógía sem
sýnt var á Fen-eyja-tví-ær-ingn-um í sumar.
Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Gríms-son afhenti
Gabríelu verð-launin við athöfn í Lista-safni
Íslands. Verðlauna-féð er 1 milljón króna, og var
Gabríela afar þakklát, sérstaklega þar sem hún
var að fara í banka og biðja um lán til að geta
komið Feneyja-verkinu heim til Íslands. Ragnar
Axelsson ljós-myndari hlaut auka-verðlaun fyrir
bók sína og sýning-una Andlit norðurs-ins.
Gabríela og Rax verð-launuð
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gabríela og Ólafur Ragnar.
FOR-SÆTIS-RÁÐ-HERRA
Frakk-lands, lofaði á
fimmtu-daginn að koma á
lögum og reglu í út-hverfum
Parísar. Þá höfðu verið þar
miklar ó-eirðir 7 nætur í
röð. Þykir stjórn hans hafa
brugðist of seint við
vanda-málinu. Fleiri en
1000 lög-reglu-menn beittu
kylfum og tára-gasi í
á-tökum við ung-menni í að
minnsta kosti 9 út-hverfum
Parísar og þrettán bæjum
ná-lægt borginni.
Ung-menni náðu
lögreglu-stöð í einu hverfi á
sitt vald um tíma og gengu
þar berserks-gang. Kveikt
var í íþrótta-húsi og
bíla-sölu-húsi og
skemmdar-verk unnin á
verslunar-miðstöð.
Ó-eirð-irnar geis-uðu í
hverfum þar sem
inn-flytjendur og
af-komendur þeirra eru í
meiri-hluta. Glæpir eru
mikið vanda-mál í
hverf-unum, þar er mikið
atvinnu-leysi og tekjur
íbúanna um 40% minni en
annarra Frakka. Íbúar
hverfanna, sem eru margir
mús-límar, hafa kvartað yfir
harð-ræði lögreglu-manna.
Miklar óeirðir í París
Reuters
Slökkviliðs-menn berjast við elda.
VEGNA nýrrar tækni er ekki
ólík-legt, að afgreiðslu-fólk í
stór-verslunum heyri brátt sögunni
til. Kaup-endur munu einfald-lega
afgreiða sig sjálfir. Þetta
fyrir-komulag, sem er þegar komið í
sumum verslunum, hefur verið til
umræðu í sam-tökum danskra
smá-sala að undan-förnu og sýnist
sitt hverjum. Sér-fræðingar í
mál-efnum verslunarinnar spá því
hins vegar, að þessi háttur og
önnur ný tækni verði búin að ná
fótfestu í Dan-mörku eftir 2 ár.
Enginn á
kassanum
VÍS-BENDING-AR eru um, að
stjórn-völd í Pól-landi og
Rúm-eníu hafi leyft banda-rísku
leyni-þjónustunni, CIA, að koma
þar upp leynilegum fanga-búðum.
Framkvæmda-stjórn
Evrópu-sam-bandsins, ESB, hefur
ákveðið að kanna málið, en
leyni-legar fanga-búðir, þar sem
fangar eru jafnvel pyntaðir, brjóta
gegn Mann-réttinda-sáttmála
Evrópu. Alþjóða Rauði krossinn
ætlar að krefjast þess að fá að
heim-sækja fanga í búðunum og
Evrópu-ráðið stendur fyrir eigin
rannsókn. CIA og
Banda-ríkja-stjórn neita að svara
spurn-ingum um leyni-legar
fanga-búðir. Rúmenar neita öllu
og í Pól-landi segist enginn vita
neitt.
Vís-bendingar
um leyni-legar
fanga-búðir
BJÖRGUNAR-SVEITIR frá
Blöndu-ósi, Skaga-strönd,
Lauga-bakka og
Hvamms-tanga höfðu á
sunnudags-kvöld mikið að
gera við að bjarga
öku-mönnum úr bílum sínum
þegar stór-hríð skall á í
Vestur-Húna-vatnssýslu.
Veðrið varð svo vont að ekki
sást milli stikna. Fleiri en 30
bílar festust í skafla rétt hjá
Hvamms-tanga. Öku-menn
voru fluttir í félags-heimilið
þar, en björgunar-sveitir
reyndu að lóðsa marga bíla út
úr bylnum. Þeim bílum var
beint til baka í Víði-gerði eða á
Blöndu-ós, þar sem þeir biðu
eftir að veðrinu slotaði og að
vegurinn yrði ruddur. Rauði
krossinn á Hvamms-tanga
opnaði fjölda-hjálpar-stöð til
að taka á móti fólki.
Morgunblaðið/Karl Sigurgeirsson
Björgunar-sveitir við störf.
Rúm-lega 30 bílar
festust í blind-byl
56 SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
AUÐLESIÐ EFNI