Morgunblaðið - 06.11.2005, Page 57
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER 2005 57
MINNINGARFRÉTTIR
MANNRÉTTINDASKRIFSTOFA
Íslands hefur sent frá sér yfirlýs-
ingu með áskorun vegna þess neyð-
arástands sem ríkir í Pakistan í kjöl-
far jarðskjálftanna.
„Samkvæmt nýjustu upplýsing-
um pakistanskra stjórnvalda er
ástandið skelfilegt,“ segir þar. „Í
Kasmírhéraði einu er áætlað að
ennþá séu um 200.000 manns sem
enn hafa ekki fengið neina aðstoð.
Mikill skortur er á hjálpargögnum
og vetur í nánd með tilheyrandi
kulda.
Treysta á utanað-
komandi aðstoð
Í Pakistan ríkir víða mikil fátækt
og því verða fórnarlömb jarðskjálft-
anna að treysta á utanaðkomandi
aðstoð. Því miður hefur alþjóðasam-
félagið ekki tekið við sér sem skyldi.
Samkvæmt nýjustu upplýsingum
frá Sameinuðu þjóðunum hefur ein-
ungis fjórðungur þeirra fjárfram-
laga, sem ríki heimsins lofuðu að
láta af hendi, skilað sér. Íslensk
stjórnvöld hafa látið fé af hendi
rakna til hjálparstarfsins sem og ís-
lenskar hjálparstofnanir, en betur
má ef duga skal. Íslendingar eru ein
ríkasta þjóð heims og er því sjálf-
sagt að gera þá siðferðilegu kröfu til
okkar að við komum til hjálpar fórn-
arlömbum jarðskjálftans. Við ætt-
um manna best að þekkja þann
skaða sem náttúruhamfarir geta
valdið og mikilvægi þess að hjálp
berist fljótt við slíkar aðstæður. Við
höfum verið þeirrar gæfu aðnjót-
andi að fá stuðning erlendis frá eftir
náttúruhamfarir, enda þótt við hefð-
um ekki líkt því sömu þörf fyrir ut-
anaðkomandi aðstoð og Pakistanar
hafa nú. Íslendingar hafa nú tæki-
færi til að sýna að þeir séu ekki bara
þiggjendur í samfélagi þjóðanna
heldur einnig gefendur.“
Leggja meira af mörkum
Bent er á að jólaundirbúningur er
nú að hefjast hér á landi og líklega
muni eyðsla landsmanna slá öll met í
ár. „Fyrir þau sem leita að hent-
ugum jólagjöfum í landi ofgnóttar-
innar er tilvalið að gefa ættingjum
og vinum kvittun fyrir greiddu
framlagi í hjálparstarfið.
Mannréttindaskrifstofa Íslands
skorar á almenning og stjórnvöld að
bregðast nú þegar við og leggja
meira af mörkum til að koma í veg
fyrir frekari hörmungar í Pakistan.
Tökum nú höndum saman því margt
smátt gerir eitt stórt,“ segir í áskor-
uninni.
Mannréttindaskrifstofa Íslands sendir frá sér áskorun
Mikill skortur og
veturinn í nánd
Lars Højlund And-
ersen var formaður
Félags löggiltra dómtúlka og skjala-
þýðenda (FLDS) í tíu ár, frá 1993 til
2003. Á þeim tíma urðu miklar
breytingar á starfsumhverfi þýð-
enda á Íslandi og var Lars virkur
þátttakandi í þeirri þróun. Honum
varð snemma ljóst að tölvur og net-
notkun myndu gerbreyta starfi ís-
lenskra þýðenda. Í stað þess að
vinna einangraðir hver frá öðrum
gætu þýðendur nú skipst á upplýs-
ingum og skoðunum með auðveldum
og fljótlegum hætti og notfært sér
nýja tækni til að efla stétt sína og
þar með sjálfa sig. Á þessu sviði var
Lars brautryðjandi og vann mikið
og óeigingjarnt starf fyrir FLDS.
Lars bryddaði upp á fjölmörgum
nýjungum í félagsstarfinu. Til að
mynda hafði hann forgöngu um út-
gáfu fréttabréfs, skírteina fyrir fé-
lagsmenn og félagatals dómtúlka og
skjalaþýðenda. Það á sannarlega við
um Lars að hann hugsaði ekki um
það sem félagið gæti gert fyrir sig,
heldur það sem hann gæti gert fyrir
félagið.
Það er ekki ýkja langt síðan nú-
verandi formaður hafði samband við
Lars vegna málefna Félags löggiltra
LARS HÖJLUND
ANDERSEN
✝ Lars HöjlundAndersen, kenn-
ari, löggiltur skjala-
þýðandi og dóm-
túlkur, fæddist í
Árósum í Danmörku
16. júlí 1952. Hann
lést á Sjúkrahúsi
Akraness 26. októ-
ber síðastliðinn og
var útför hans gerð
frá Akraneskirkju
1. nóvember.
dómtúlka og skjala-
þýðenda. Lars boðaði
formanninn þegar í
stað á sinn fund á
Landspítalann þar
sem hann lá vegna
veikinda sinna. Lars
var einstaklega fé-
lagslyndur og eins og
alltaf þegar rætt var
við Lars var margt
sem barst í tal og varð
heimsóknin því mun
lengri en ætlað var.
En allan tímann voru
Lars efstir í huga
hagsmunir þýðenda og með hvaða
hætti mætti efla þá.
Félagið hefur nú misst góðan liðs-
mann sem naut virðingar og var
mikils metinn.
Fyrir hönd Félags löggiltra dóm-
túlka og skjalaþýðenda vottum við
fjölskyldu Lars Højlund Andersen
samúð um leið og við minnumst lát-
ins formanns og félaga.
Vilhelm Steinsen.
SJÓVÁ hefur gefið mörgum leik-
skólum um land allt endurskins-
vesti en félagið hefur á síðast-
liðnum þremur árum dreift um
6.000 endurskinsvestum með þess-
um hætti.
Vestin eru ætluð börnunum sem
fara reglulega gangandi í stuttar
sem langar vettvangsferðir og eru
til þess að börnin sjáist betur hvort
sem er í skammdegi eða að degi til.
Gjöfin er liður í forvarnarstarfi Sjó-
vár en með henni vill félagið leggja
sitt af mörkum til að bæta öryggi
barna í umferðinni, að því er segir í
fréttatilkynningu.
Á myndinni má sjá drengi af leik-
skóladeildinni í Sjálandsskóla í
Garðabæ að leik í vestunum frá
Sjóvá.
Sjóvá gefur endurskinsvesti
SIGURJÓN Benediktsson, tann-
læknir á Húsavík, var kjörinn for-
maður Tannlæknafélags Íslands á
aðalfundi félagsins sl. fimmtudags-
kvöld. Formaður er kjörinn til
tveggja ára í senn.
Einnig var kjörið í stjórn félagsins
en hana skipa nú, auk Sigurjóns, þau
Ingibjörg Sara Benediktsdóttir
varaformaður, Kristín Gígja Ein-
arsdóttir gjaldkeri, Magnús Jón
Björnsson ritari og Stefán Hallur
Jónsson meðstjórnandi. Allir stjórn-
armenn eru nýir utan Stefáns Halls.
Ný stjórn Tannlæknafélagsins: F.v. Stefán Hallur Jónsson meðstjórnandi,
Kristín Gígja Einarsdóttir gjaldkeri, Sigurjón Benediktsson formaður, Ingi-
björg Sara Benediktsdóttir varaformaður og Magnús Jón Björnsson ritari.
Tannlæknafélag Íslands
Sigurjón Benediktsson
kjörinn formaður
SKÓLASKIPIÐ Dröfn RE–35 hefur
hafið hringferð sína um landið og
mun hún standa út mánuðinn. Skipið
hefur viðkomu í ýmsum höfnum
kringum landið og fer í tvær til þrjár
námsferðir á hverjum degi með nem-
endur 9. og 10. bekkjar. Fiskifélag
Íslands skipuleggur ferðir skóla-
skipsins og sér um samskiptin við
skólana og sérfræðingar frá Hafró
sem sjá um kennsluefnið og
fræðsluna um borð.
Í ferðunum fá nemendur að kynn-
ast sjávarútveginum og vinnunni um
borð í fiskiskipum. Líffræðingur frá
Hafrannsóknastofnuninni verður
með í för, fræðir þá um hinar ýmsu
sjávarlífverur og kynnir starfsemi
Hafrannsóknastofnunarinnar. Skip-
stjórinn kynnir fyrir nemendum
stjórntæki skipsins, veiðarfæri og
vinnslulínu. Siglt er úr höfn og troll-
inu kastað. Þegar búið er að toga fá
nemendur að gera að aflanum undir
handleiðslu áhafnarinnar og líffræð-
ings.
Skólaskipið
heldur í hring-
ferð um landið
Vönduð og persónuleg þjónusta
Inger Steinsson,
útfararstjóri,
s. 691 0919
Sími 551 7080
Bárugötu 4, 101 Reykjavík.
Ólafur Örn
útfararstjóri,
s. 896 6544
Inger Rós
útfararþj,
s. 691 0919
Helluhrauni 10, 220 Hf.,
sími 565 2566,
www.englasteinar.is
Englasteinar
Fallegir legsteinar
á góðu verði
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
ODDNÝ ÓLAFSDÓTTIR
kjólameistari,
frá Látrum í Aðalvík,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Eir fimmtudaginn
27. október sl., verður jarðsungin frá Hallgríms-
kirkju fimmtudaginn 10. nóvember kl. 15:00.
Guðbjörg Björnsdóttir,
Arndís H. Björnsdóttir,
Jóhanna G. Björnsdóttir, Tryggvi Eyvindsson,
Hildur Björnsdóttir,
Ólöf S. Björnsdóttir, Magnús Kristmannsson,
Arinbjörn Björnsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar alla útgáfudagana.
Lengd Minningargreinar séu ekki
lengri en 2.000 slög (stafir með
bilum - mælt í Tools/Word Count).
Ekki er unnt að senda lengri
grein. Hægt er að senda örstutta
kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15
línur, og votta þeim sem kvaddur
er virðingu sína án þess að það sé
gert með langri grein. Ekki er
unnt að tengja viðhengi við síð-
una.
Undirskrift Minningargreinahöf-
undar eru beðnir að hafa skírn-
arnöfn sín en ekki stuttnefni und-
ir greinunum.
Minningar-
greinar
JÓLAKORT Svalnanna, félags
fyrrverandi og núverandi flug-
freyja, er komin út. Erna Guðmars-
dóttir, myndlistarkona og félags-
kona í Svölunum, myndskreytti
kortið að þessu
sinni. Jólakortin
eru fimm saman
í pakka og kosta
500 kr. pk. og er
hægt að fá þau
bæði með eða án
texta.
Sala jólakort-
anna er aðal
fjáröflun félags-
ins og mun ágóðinn fara í að
styrkja MS-félagið og endurhæf-
ingarstöðina að Reykjalundi í til-
efni af 60 ára afmæli stofnunar-
innar auk annarra tilfallandi
verkefna.
Jólakortin eru til sölu hjá félags-
konum og einnig er hægt að pana
þau á netfangi Svalnanna sem er:
svolurnar@simnet. is. Þá selja eft-
irtalin fyrirtæki kortin: Kelloog
Villeroy og Boch í Kringlunni, Líf
og list í Smáralind, Ulrich Falkner í
Mjódd, Guðrún, tískuverslun, Rauð-
arárstíg, Hjá Hrafnhildi við Engja-
teig, Lífstykkjabúðin á Laugavegi,
MKM við Óðinstorg, Soldis við
Vitastíg, Runni – stúdíóblóm Graf-
arvogi og Rauða kross búðirnar á
Landspítalanum við Hringbraut og
í Fossvogi.
Jólakort
Svalnanna