Tíminn - 16.04.1970, Page 3
FIMMTUDAGUK 16. apríl 1970.
TÍMINN
Féiag bifreiðasmiða
segir upp samningum
Aðalfund'ur Félagis bifreiða-
E'miða var haldirm nýLega að Hótel
Sögu. Á síðssta ári g-ekk félagið
úr Landssambandi iðnaðarmanna
og gerðist aðili að Máilm- og
sikipasimíðasambandi íslands og er
félagið nú aðili að lífeyrissjóði
ímnan MSÍ. Þá er félagið búið að
segja upp núgildandi kaup- og
kja-rasamningi við yinnuveitendur
frá og með 15. maí 1970.
í stjlóm vora kosnir: Magnús
Gíslaso-n fonmaður, Ástva'ldur
Andrésson varaformaður, Hrafn-
kell Þórðarson ritari, Eiríkur Ól-
afsson gjaldkeri og Jóhannes
vararitari.
Tónleikar í dag og
á sunnudaginn
15. regluilegu tónleikar Sinfóníu
hljómsveitar íslands verða haldn-
ir í Háskólaibíói fimmtudaginn 16.
apríl kl. 21.00. Stjárnandi er Boh-
dan Wodiscako og einsöngvari
Guðmundur Jónsson, óperusöng-
ari. Á efnisikrá eru verk efltir
Britten, Cimarosa og Beethoven.
Sunnudaginn 19. apríl heldur
hljómsveitin barna- eða fjölskyldu
tónleika í Háskólabíói og hefjast
þeir kl. 15.00. Stjórnandi verður
Bohdan Wodiczko og einsöngvari
Guðmundur Jónsson.
Á þessum tónleikum verður
flutt Young Person’s Guide to
the Orchestra eftir Benjamin
Briten, II maestro di Cappella eft-
ir Cimarosa og þáttur úr 4. sin-
fóníu Beethovens.
Aðgöngumiðar að tónleikunum
eru seldir í skólanum og í bóka-
búð Lárusar Blöndal, S'kólavörðu-
stíg 2.
„Fulltrúi ungu kyn-
slóðarinnar 1970/7
kjörinn annað kvöld
SB^Reykjavík, þriðjudag.
Á skemmtun, sem haldin verður
í Austurbæjarbíói á fimtudags-
kvöldið kl. 11.30 verður kjörinn
„fulltrúi ungu kynslóðarinnar
1970“. Sex stúlkur hafa verið
valdar til keppninnar, o ghafa þær
þrjá höfuðkosti hver, fyryir utan
algjöra reglusemi á vín og tóbak.
Á það skal bent, að ekki er til
þess ætlazt, að stúlkurnar sýni
sig þarna á sundbolum, heldur að-
eins í venjulegum tízkufatnaði.
Á dagskránni er fleira en stúlk
urnar, þarna koma til dsemis
fram, margar af helztu pop-hljóm
sveitum landsins og er mikið i
húfi fyrir þær þarna. þvi danskur
umboðsmaður skemmtikrafta m-un
verða á staðnum og leggja við
hlustirnar, ti'l að athuga, hvort hér
uppi á íslandi kunni að ieynast
listamenn á pop-sviðinu.
Myndin var tekin í frystihúsi ísbjarnarins á Seltjarnar nesr í gær, þegar vinna stóð sem hæst vlð flökun og
pökkun. , (Tfmamynd Gunnar)
STÖÐUGT MIKILL AFLI
KJ—Reykjavík, miðvikudag
Þótt aðeins fáir bátar leggi nú
upp í Reykjavík, berst hingað
engu a'3 siður mikill fiskur, en bát-
arnir landa ýmist í Þorlákshöfn,
eða Grindavík, og þaðan er fisk-
inum svo ekið til frystihúsanna í
Reykjavík. í gær lönduðu þannig
aðeins fjórir bátar í Reykjavík
alls 174 lestum, en alls bárust á
land í 6 verstöðvum suð-vestan-
lands 3628 lestir.
Aflahrota, eins og sú sem nú
stendur yfir. setur ekki eins sterk-
an svip á Jsöfuðborgina, og út-
gerðarplássin annarsstaðar, þar
sem allt gengur út á fiskinn, og
ekki hefur enn heyrzt um að Geir
borgarstjó i, hafi farið að dæmi
kollega sírs Magnúsar bæjarst.ióra
i í Vestmannaeyjum, og farið í fisk-
vinnu. eftir vinnu, þótt það .gæti
■ veriið snjaillt ái jðursbragð, einmitt
I núna þegar flestir eru við vinnu í
Fyrirspurnin um
nefndirnar samþykkt
í gær
SKB—Reykjavík, miðvikudag.
f sameinuðu þingi í dag var sam-
þykkt fyrirspurnin frá Tómasi
Árnasyni um nefndir skipaðar af
ráölierrum og kosnar af Alþingi,
sem miklar umræður urðu um i
sameinuðu þingi fyrir viku. Mega
því ráðherrarnir taka til óspiltra
málanna að rannsaka -íefndafargan-
ið, þó forsætisráðherra hafi næst-
um lofað að svörin við þessari fyr-
irspurn skyKu vera ba*5i óljós og
loðin. Verður fyrirspurnin að lík-
indum til umræðu næstkomandi
miðvikudag.
| írystihúsunum.
■ Tii Vest.mannaeyja báruít í gær
1160 lestir, 459 til Þorlákshsfnar.
800 til Gríndavíkuit 588 til Kefla-
víkur Þá bárust á annað hundrað
lestir til Eyrarbalcka, mun gær-
dagurinn hafa verið bezti afladag-
urinn þar í vetur.
HS—Stokkseyri, þriðjudag
Agætur afli hefur verið hjá
Stokkseyrarbátum að undanförnu,
og eru komin um 2200 tonn þar á
| land í vetur. Eins og er, þá er
| Hásteinn afiahæstur með 470 tonn,
j en Hólmsteinn og Fróði eru með
| 450 tonn. Fiskurinn er mun drýgri
til vinnslu núna, en í fyrra, því þá
var hann fullur af loðnu. Bátarn-
ir róa stutt, eða aðeins um hálf-
tíma siglingu frá Stokkseyri, og
sjást oft úr landi. Margir bændur
Framhalci a ois 14
TRUBROT „SLÆR I GEGN“
SB—Reykjavík, miðvikudag.
Þær fréttir berast af „liljóm- j
sveilinni „Trúbrot“ í Kaupnianna
höfn, að hún „slái í gegn“. Um ;
þessar mundir leikur hljómsveit-1
in í „Revolution" klúbbnum og í j
dönsku blaði stendur, að Trúbrot'
sé hvorki meira né minna, en j
þriðja bezta hljómsveitin, sem;
komið hefur til Kaupmannahafn-1
ar. i
Hinár tvær eru sagðar „The
Beat)les“ og „Biind Faith“ og virð
ekki vera leiðum að líkjast. ís- J
lenzkir íþróttamenn höfðu við-1
komu i Revolution-klúbbnum um!
helgina og einn þeirra sagði í við-1
tali við blaðið, að starfsfóllkið þar j
væri á einu miáii um, að Trúbrot
væri bezta hljómsveitin, sem þar
hefði nokkurn tíma komið fram.
íslendinig'unum líkaði hins vegar
ekki „prógrammið“ en á því var
ekkert einasta lag sungið á is-
lenzku.
Eftir þvd sem hf.aðdð kemst
næst, mun Trúbrot skemmta a
Rewlution í þrjá mánuði, en til
mála getur koimið, að samningur-
inn verðd framlengdur, fyrst Dan-
ir eru svona ihritfnir.
í tónleikaför til
Svíþjóðar og Noregs
í dag (fimmitudag 15. apríl),
heldur Telpnakór Öldutúnsskóla
áleiðis til Sviþjóðar, til að taka
þátt í norrænni barnaskórakeppni,
sem fram fer í Stokkhólmi á
sunnudaginn, á vegutn útvarps og
sjónvarpsstöðva Norðurlanda.
Kórinn mun einis staldra við í
Gslió, og heimsækja vinarbæ Hafn
arfjarðar þar, Berum. Ferðin tnun
taka 8 daga. Stjórnanrid kórsins er
Egill Friðleifsson. Myndin er af
kórnum og stjómanda.
„í duftinu"
Verulegur hluti af blaða-
kosti Sjálfstæðisflokksins fer
nú í það að lýsa því fyrir
þjóðinni, hvílíkum afarkostum
íhaldið verði að hlíta í sambúð
inni við kratana. Ungur Sjálf
stæðismaður, Herbert Guð-
mundsson, fyrrverandi íslend-
ingsritstjóri á Ákureyri skrif-
ar grein í Morgunblaðið í gær
og fær hún stimpilinn: „Sjón-
armið — ungir Sjálfstæðis-
menn skrifa." Greinin heitir
þessu merkilega nafni: „í
DUFTIÐ AÐ KRÖFU AL-
ÞÝÐUFLOKKSINS“. Verður
þcssi fyrirsögn og greinin sjálf
ckki skilin öðruvísi en nú sé
svo komi'ð, að íhaidið verði að
bcygja sig „í duftið að kröfu“
kratanna, og ekki sé um ann-
að að ræða, en Sjálfstæðis-
menn hefji nýtt frelsisstríð á
borð við þrælastríði'5 forðum
tii þess að losa sig úr heljar-
klónum.
„Fráleitt í alla staði"
Grein þessi er annars að
nieginmáli „fáein orð um hús-
næðismálafriimvarpið", og er
enn eitt vitni um mótmælaöld-
una innan sjálfs Sjálfstæðis-
flokksins gegn þessu ríkis-
stjórnargerræði.
í greininni segir m. a.:
„Áformið um þjóðnýtingu
lífeyris- og eftirlaunasjóðanna
að V\ hluta til að fjármagna
húsnæðismálin er andstætt
grundvailarstefnu Sjálfstæðis-
flokksins og fráleitt í alla
staði. Sú hugmynd, að sjóðirn-
ir noti hluta af ráðstöfunarfé
síiiu til útlána vegna íbúða-
bygginga er hins vegar í fullu
samræmi vi'ð núverandi starf-
semi þeirra og eðlileg af
mörgum ástæðum.“
Sök lýst á íiendur
Bjarna
Þessi ungi Sjálfstæðismaður
ræðst ekki á garðinn þar sem
hann er lægstur. Með ofan-
greindum orðum, sakar hann
formann Sjálfstæðisflokksins,
Bjarna Benediktsson, forsætis-
ráðherra, um að hafa brotið
,,grundvallarstefnu Sjálfstæðis-
flokksins" með flutningi þessa
stjórnarfrumvarps. Og aðrir
íhaldsráðherrar og þingmenn
fá einnig sína sncið um hið
sama vel mælda.
Þá hefur einnig öll stjórn
Sambands ungra Sjálfstæðis-
manna á fundi sínum 9. apríl
s.l. lýst hinni sömu sök á hend-
ur Bjarna og ráðherrum hans,
mótmælt fjártökunni úr líf-
eyrissjóðunum harðlega og tel-
ur þetta „gagnstætt grundvall-
arstefnu Sjálfstæ,ðisflokksins“.
Skorar stjórnin eindregið á
Bjarna formann, ráðherra hans
og þingflokk að hverfa frá
villu síns vegar hið bráðasta
og rísa „úr duftinu". Segir rit-
stjórinn, að þetta sé „hættu- ;
legt fordæmi, sem ungir Sjálf-
stæðismenn geti meö engu {
móti fellt sig við.“
Þannirr er nú Bjarni forma®-
ur og lið hans allt fyrir her-
rétti ungra Sjálfstæðismanna
borið þeim sökum að brjóta
„grundvall arstefnu SjáJfstseðis-
Framhaid á Ms.' 15.