Tíminn - 22.05.1970, Síða 1
11®«
IGMS
HlimillSTIEKI
111. tbl. — Föstudagur 22. maí 1970. — 54. árg.
3800
HVOLPAR
HJÁ LOÐ-
DÝR H.F.
OÓ-Reykjavík, fimtudag.
3800 minkahvolpar eru nú í
minkabúi Loðdýrs h.f. Þar eru
900 læður og er goti nú lokið.
Eru hvolparnir fleiri en þeir
bjartsýnustu þorðu að vona og
þrífast þeir vel.
»egar Loðdýr h. f. gerði samn-
ing um kaup á læðunum, sem
voru hvolpafullar þegar þær
komu til landsins, á'byngðust
seljendur, að hvolparnir yrðu
ekki færri en 3150, en fjöldinn
er 10% meiri, en lágmarkstal-
an, sem samið var um. Að sögn
fróðra manna er þetta mjög
góður árangur. í nóvembermán
uði n.'k. verður fyrst slátrað
hjá Loðdýr h.f. Verður þá slátr
að miiklu af þeim hvolpum,
sem nú eru nýfæddir, og éin-
hverju af læðum. En þær sem
flest atkvæmi áttu verða látn-
ar; lifa.
f næsta mánuði verður byrj-
að á byggimgu næstu húsasam-
stæðu í minkabúinu og er
reiknað með að verkinu ijúki
í haust og verður þá hægt að
fjölga dýrunum mjög.
Nú eru 140 hluthafar að
Loðdýri h.f. og er mikil eftir-
spurn hlutabréfa og vilja marg
ir aðilar gerast hluthafar.
Umræður um kjaradeiluna í borgarstjórn Reykjavíkur í gær:
ÍHALDSMEIRIHLUTINN SKIPAR SÉR I
SVEIT VINNUVEITENDASAMBANDSINS
Neitar að samþykkja tillögu um að borgaryfirvöld beiti áhrifum sínum til að greiða fyrir samningum!
Þessi loftmynd
það er einmitt
sýnir hiuta af
þessi kafli sem
Hringbrautinni, frá Miklatorgi og vestur fyrir Landspítala og UmferSarmiðstöS, en
gera á aS bíiastæði. Nýja Hringbraut á síðan að gera við hliðina. (Tímam. Gunnar)
Hvað kostar flutningur
Hringbrautarinnar?
TK-Reykjavík, fimmtudag.
í ræðu sinni í útvarpsuniræðun-
um í fyrrakvöld, gerði Guðmund-
ur G. Þórarinsson, verkfræðingur,
er skipar baráttusætið á lista
Framsóknarflokksins í borgar-
Vaxandi deilur
Bandaríkjanna
og EBE - bls. 7
Orkunotkun (slend-
inga í dag - bls. 15
stjórnarkosningunum, hinn fyrlr-
hugaða flutning Hringbrautar við
Landsspítalann að umtalsefni.
Benti hann á, að ekki hefðu verið
lagðar fram ncinar skýrslur er
sýndu fram á nauðsyn þessarar
framkvæmdar, sem kosta mun
hvorki meira né minna en 40
milljónir króna. Sagði Guðmund-
ur, að seint mun: ganga að leggja
varanlega vegi um landið, er byrj-
að væri á því að endurbyggja þá
fáu, sem þokkalegir væru.
Um þetta niál fórust Guðmundi
Þórarinssyni svo orð:
„Svo sem flestum er kunnugt,
hafa borgaryfirvöld ákveðið að
endurbyggja Hringbrautina á kafl-
anum frá Miklatorgi og vestur fyr-
ir Umferðarmiðstöð Er hugtnynd-
in, að nýja brautin komi 50 m.
sunnaa við núverandi legu. Þessi
framkvæmd mun kosta um 40
milljónir króna, en það hygg ég,
að íslendingar muni á einu máli
um, að seint muni ganga að
byggja varanlega vegi um landið,
ef við byrjum á því að endur-
byggja þá fáu vegi sem þokkaleg-
ir eru.
Athyglisvert er jafnframt, að
ekki hafa verið lagðar fram nein-
ar skýrslur, er sýna fram á nauð-
sya þessarar framikvæmdar. Sú
röksemd, að Landspítalinn skuli
fá gömlu Hringbrautina undir
bílastæði, verður vart þung á met-
unum, og enginn efast um að unnt
sé að leysa umferðarvandamálin
við Miklatorg og aðkomuna að Um
f erðarmi'ðstöðin ni með öðrum
hætti, þótt vissulega séu þar
vandamál.
Meðau talað er um að færa
Hringbrautina í og með til þess að
auka rými Landsspítalans, er unn-
ið að því að framlengja Háaleit-
isbrautina að Borgarsjúkrahúsinu
og samfcvæmt aðalskipulagi
Reykjavíkur á hún að tengjast
Kópavogi.
Háaleitsbrautin mun þá af-
marka athafnasvæði Borgarsjúkra
hússins og skera því mjög þröng-
an stakk.
Hver veit nema það verði uppi
á teningum sí'ðar meir að
kaupa hana undir bílastæði fyrir
Borgarsjúkrahúsið.
Eðlilegra hefði verið, allra
hluta vegna, að tengja Grensársveg
við Kópavog, en þar eð búið er
að reisa einbýlishúsin neðst við
Eyrarland í Fossvogi, verður það
vart gert nema með auknum kostn
aði.“
TK-Reykjavík, fimmtudag.
Talsverðar umræður urðu á síð
asta fundi Borgarstjórnar Reykja-
víkur í kvöld um kjaramál, er til
afgreiðslu var tillaga um að borg-
aryfirvöld tækju upp sjálfstæðar
viðræður í kjarasamningunum og
beitti áhrifum sínum til að greiða
fyrir því að samningar tækjust á
grundvelli þeirra krafna, sem laun
þegasamtökin hafa borið fram.
Kom fram í umræðunum, að full-
trúi borgaryfirvalda í samninga-
viðræðunum á að teljast hlutlaus,
en skipar sér í sveit með Vinnu-
veiibendasambandi íslands og tek-
ur afstöðu með því gegn launþeg-
um. íhaldsmeirihlutinn felldi
þessa tillögu með frávísunartil-
lögu um það, að Reykjavíkurborg
hefði ekki afskipti af samningum
um kaup og kjör á milli atvinnu-
reikenda og launþega.
Jón Snorri Þorleifsson var flutn
ingsmaður tillögunnar og mælti
fyrir henni. Kom fram í tmáli
hans, að fulltrúi Reyfkjavíkur-
borgar situr í hópi atvinnurekenda
í kjarasamningunum. Hann eigi að
heita hlutlaus í viðræðunum en
sé það ekki heldur taki afstöðu
með atvinnurekendum gegn laun-
þegum.
Einar Ágústsson, borgarfulltrúi
Framsóknarflokksins, sagði, að
það væri ekki umdeilt nú, að laun
þegar ættu rétt á lagfæringu á
launum sínum. Launiþeigar hefðu
orðið að þola mikla kjaraskerð-
ingu af völdum hrikalegustu ^eng
islækkana í sögu landsins og
hefðu etaki fengið hana bætta upp
nema að litlu leyti. Staða atvinnu
veganna og þjóðarbúsi'ns væri nú
talin svo góð af ríkisstjórninni og
sérfræðingum hennar, að unnnt
væri að framkv. 10% gengislækkun
og samþykkja 7% kauphækkun
að auki. Þar væri í raun um að ,
ræða 15% grunnkaupshækkun og
viðurkennt að útflutningsatvinnu-
vegirnir gætu tekið á sig mikla
útgjaldaaukningu. Þetta liggur nú '
fyrir af ríkisstjórnarinnar hálfu '
og sérfræðinga hennar, en venju- .
legast hafa þó legið fyrir annars
konar útreikningar og yfirlýsingar
frá ríkisstjórninni í kjaradeilum,
sem sagt þeir, að atvinnuvegirnir
gætu enga útgjaldaauknin'gu á sig
tekið og þyldu því engar kaup-
hækikanir. Enn hafa atvinnurek-
endur ekfki boðið fram kjarabætur
sem nálgast það, sem ríkisstjórnin
og sérfræðingar hennar telja at-
vinnuvegina geta borið.
Það eru ekki síður hagsmunir
Reykvíkinga en annarra, sagði
Einar Ágústsson, að ekki komi til
verkfalla með 611u því tjóni sem
þeim fylgir. Með samþykkt þess-
arar tillögu í borgarstjórn Reykja-
víkur um jákvæða afstöðu borgar-
yfirvalda gagnvart kröfum laun-
þega og sjálfstæða þátttöku borg-
aryfirvalda í samningaviðræðum
til að greiða fyrir samningum,
væru líkurnar á þvi, að verkföll-
um verði afstýr1-, stórauknar.
Framhald á 11. síðu