Tíminn - 22.05.1970, Page 6
6
TIMINN
FÖSTUDAGUR 22. maí 1970.
(Tímamynd Gunnar)
FÚLIÍ í LISTUM
Nemendur Leikskóla Þjóðleik-
hússins sýna þrjá einþáttunga
Fyrir viku þreytti ungur
ieikari frumraun sína í aðal-
hlutverki á sviði Þjóðleikhúss-
ins. Þórhallur Sigurðsson er um
það bil að Ijúka prófi úr Leik-
skóla Þjóðleikh. og honum hef-
ur verið falið aðalhlutverkið í
leikritinu, Malcolm litli og bar-
átta hans gegn geldingunum.
Það er óvenjulegt að ieiknema
sé falið slíkt verkefni, en Þór-
hallur hefur vakið athygli fyrir
óvenjulega hæfileika, hlaut
hann m. a. námsstyrk til alð
læra leitkstjórn, á 25 ára af-
mæli Þjóðleikíhússins fyrir
skömmu.
Hlutverk Malcolms er erfitt,
jafnvel þótt aðeins væri litið
á hve mikils líkamlegs þreks
það krefst. Þórhallur er á svið-
inu nær alla sýninguna og þyl-
ur einræður milli þess sem hin-
ir leikararnir fjórir eru með
honum í leiknum.
Leikritið Malcolm litli er
frumsmíð brezks höfundar að
nafni David HalliweM. Það var
fyrst leikið fyrir fimm árum í
Bretlandi og hlaut höfundur
verðlaun fyrir. Síðan hefur það
verið sýnt á Norðurlöndum og
víðar. Leikritið f jallar um
æstan ungan manri og valdastríð
hans. Félagar Malcolms, eins
konar nytsamir sakleysingjar,
veita honum lið. Þeir eru list-
nemar og hefur Malcolm verið
rekinn úr skólanum, sem þeir
nema við. Hann ætlar sér fyrst
og fremst að bylta skóiastjóran
um, en andstaða hans færist yf-
ir á þjóðfélagið í heild, og
Malcolm ætlar sér að gera mik-
ið þegar hann hefur náð völd-
um.
ÞórhaUur hafðj sannarlega
nóg að starfa fyrir frumsýn-
inguna á Malcolm litla, þegar
ekki voru æfimgar, notaði
hann tímann til a@
búa sig undir lokapróf í Leik-
skóla Þjóðleikhússins. Einn liö-
ur í prófinu að þessu sinni er
sá, að nemendumir tíu,
sem útskrifast, leika þrjá
írska einþáttunga. Þessi
hluti prófsins fer fram í dag
22. maí, og einhvern næstu daga
verður sýning á þeim fyrir al-
menning í Þjóðleikhúsinu.
Bi-ynja Benediktsdóttir, einn af
kennurunum við Leikskóla Þjóð
leikhússins, er leikstjóri. Ein-
þáttungarnir eru Helreiðin eft-
ir Synge, Sælustaður sjúkling-
anna og Eitt pund á borðið eft-
ir O’Casey. Leikskólanemendurn
ir höfðu ekkf tök á né tíma til
að æfa þessa einþáttunga eins
mikið og tíðkast með aðrar sýn-
ingar leikhússins, en vissulega
verður skemmtilegt að fá tæki-
færi til að sjá þessi ungu leik-
araefnj spreyta sig.
Þórhaliur hefur bæði áhuga
á frekara leiknámi sem og leik-
stjómarnámi, en þessar grein-
ar telur hann samtvinnaðar.
Leikstjóri verður að hafa
reynslu á sviði. Bann hyggst
fara utan tii framhaldsnáms í
þessum greinum þegar efni
leyfa, í fyrsta lagi eftir næstu
áramót.
ÞórhaMur hefur undanfarin ár
skrifað kvikmyndaþátt í Þjóð-
viljann sem telja má það bezta
sem skrifað er um þau efni í
blöð hér. Hann hefur mikinn
áhuga á kvikmyndum og hefur
fylgzt me® þeim sem áhugamað-
ur undanfarin 2—3 ár. Hann
hefur leikið í sjónvarpi, og þeg
ar ég spyr hann, hvar hann vilji
helzt leifca: í sjónvarpi, kvik-
myndum eða á sviði, kveðst
hann ekki taka eitt fram yfir
annað, allt séu þetta án efa
skemmtileg verkefni.
Sólveig Jónsðóttir. ÞórhaJlur SigurSsson sem Malcolm litll
Björn Þ. Guðmundsson
HéraSsdómslögmaður
FORNHAGA 21
ViStalstími kl. 5.30—7
SÍMl 26216
— PÓSTSENDUM —
Ekki verður annað sagt en
að gróandi sé í íslenzku tón-
listarlífi, er nýlega hafa verið
frumflutt tvö ný hljómsyeitar-
verk ungra tónskálda. A síð-
ustu Sinfóníutónleitoum, sem
fram fóru undir stjórn Bohdan
Wodiczko, var frumflutt hljóm-
sveitarverkið „Ymur“ eftir
Þorkel Sigurbjörnsson. Hann
hefur verið drjúgur við að
semja tónwerk í ýmsu formi,
sem hljómsveitin hefur kynnt
á uadanförnum árum. — Etotoi
hafa orðið miklar stökkbreyt-
ingar á verkum Þorkels, en tón
smíðum hans miðað áfram með
farsælum og eðlilegum hætti.
Mikið málskrúð hefur aldrei
verið honum lagið, og nótna-
IH ÚTBOÐ f
Tilboð óskast í að gera aðrennslisæð frá Stekkjar-
bakka að Grensásvegi fyrir Hitaveitu Reykjavíkur.
Útboðsgögn er uafhent í skrifstofu vorri gegn
3.000,00 króna skilatryggingu.
Garðahreppur - nágrenni
Traktorsgrafa til leigu. — Amokstur — skurð
gröfur.
Astráður Valdimarsson. simi 51702
penni hans jafnan haft sem
fæst orð um hlutina. Gaman-
semi fylgir oft tónsmíðum Þor-
kels í margri mynd og getur
það einnig verið styrkur, að
vinna hlutina af alvöru en taka
þá samt ekki of hátíðlega. —
Höfundur segir í efnisskrá,
að „Ymur“ hafi margar og mis
fagrar merkingar. Er það bæði
satt og rétt, þvi fæstir hafa
mikla biðlund til að bera, þeg-
ar draga skal í dilfca og meta
„gaul og væl“ (eins og höf.
orðar það sjálfur) réttilega.
„Ymur“ Þorkels á sinn innri
róm og smjúgandi cellótóna í
fylgd lægri strengja og áleit-
inni trompet soló. Básúna með
digrum karlarómi bregður á
leik, lagrænt fiðlutema kemur
sínu að, og sla.gverkið lætur
til sín taka — f heild er verk-
ið áhayrilegt og víða skemmti-
legt. Bohdan Wodiczíko, er
sannur forsvarsmaSur á góð-
um flutningi íslenzkrar tónlist
ar, enda lagði hann mikið af
mörkum við flutning „Yms“.
Píanókonsertinn í e-moll eft-
ir Chopin, æskuverk höfundar,
á alltaf sína töfra í hljómi
og tæknilegri (pianistiskri)
sameiningu. — Ungur belgísk-
ur maður Michel Block að
nafni frá Mexíkó. túlkaði e-
moll konsertinn að þessu sinni.
Bloek, sem er liðlega þri-
tugur, hefur unnið til verð-
launa i Chopin-keppninni auk
sérlegra verðlauna frá Rubin-
stein. — Block er traustur og
hinn ágætasti pdanóleikari, sem
hefur til að bera lýtalausa
tækni og fyllingu í tón. Undir-'
ritað saknaði hins vegar þeirr- ,
ar tónmýfctar, sem oft fylgir
þéttum tón, og varð túlkun mið
kaflans, þvi ekki eins áhrifa-
mikil, en aftur sýndi Block mjög 1
faMegan leik í lokaþættinum.
Það er varla hugsanlegt að j
Symphonie Fantasttque eftir j
franska höf. Hector BerMoz,
sem frumflutt var fyrir 140 ár- j
um, hafi ekki vakið úlfaþyt, og ;
jafnvel verið úrskurðuð þeirra !
tíma gaul og væl. Þessi magn- i
aða „órahljómkviða“, sem held !
ur enn velli, vegna fullkom- !
innar hljómsveitar-raddfærslu j
;á að mála í tónum fimm há- j
dramatisk atriði. Án skýringa i
mætti alveg eins, setja efnið í !
samtoand við allt og etokert. !
Þannig kann undirrituð því i
bezt að hlýða á þetta lotoaverk •
franskrar „program" (hermi)- i
tónlistar. Wodiczko og hljóm- !
sveitin leiddu hlustanda að j
risavöxnu „tónamálverki", þar .
sem einstakir hljóðfæraleikar- '
ar áttu margvíslegutn og krefj
andi hlutverkum að gegna, sem
þeir leystu af hendi með ágæt- j
um. Stjórnandi — hljómsveit
— einleikari og höfundur
„Yms“ hlutu allir verðskuldað :
lófaklapp. !
Unnur Arnórsdóttir.