Tíminn - 22.05.1970, Blaðsíða 10
TÍMINN
1
FÖSTUDAGUR 22. maí 1970.
ÚTBOÐ
Þorsteinn Sigurðsson, Vatnsleysu:
Tilboð óskast í viðgerðir á steyptum og hellulögð-
um gangstéttum víðs vegar um borgina.
Útboðsgögn eru afhent í skrifstofu vorri gegn
1.000,00 króna skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað fimmtudaginn
28. maí, n.k. kl. 11.00 f.h.
JNNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800
LOÐDVR H.F.
ADALFUNDUR
Aðalfundur Loðdýrs h.f. verður haldinn laugar-
daginn 23. maí kl. 2 e.h. í Félagsheimilinu Fólk-
vangi, Kjalarnesi.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar v. aðalfundarins,
verða afhentir á skrifstofu félagsins Tryggvagötu
8, Reykjavík.
Stjórn LoSdýrs h.f.
Auglýsing um eftirlaun
til aldraðra félaga
í stéttarfélögum
Samkvæmt lögum nr. 18 3. apríl 1970 skal greiða
eftirlaun til aldraðra félaga í stéttarfélögum inn-
an Alþýðusambands íslands að uppfylltum tiltekn-
um skilyrðum. Þeir, sem telja sig eiga rétt til eft-
irlauna samkvæmt lögunum, snúi sér sem fyrst til
stéttarfélags síns varðandi umsókn.
Umsjónarnefnd eftirlauna, sem hafa skal yfirum-
sjón með úthlutun eftirlauna og úthluta stjóm-
um lífeyrissjóða fé til greiðslu þeirra, hefur sent
stéttarfélögum eyðublöð fyrir umsóknir.
Nefndin hvetur forystumenn stéttarfélaga og
stjórnir lífeyrissjóða, er hér eiga hlut að máli, til
að kynna sér efni hinna nýju laga.
Aðsetur nefndarinnar er í Tryggingastofnun rikis-
ins, Reykjavík.
Umsjónamefnd eftirlauna.
Bréfkorn úr Biskupstungum
Sextán bændur hér í sveit hafa
gefið öllum fénaði á innistöðu
síðan Hekluhraunið gaus, vegna
öskufallsins. Átta bændur að auki
eru heldur betur settir, en þurfa
þó að gefa mun meira en venju-
lega á þessum tíma árs. Á annað
hundrað hross voru rekin af þessu
svæði suður í Skálholt, Spóastaði,
Miklaholt og Bræðratungu. Þau
stóðu í svelti í heimahögum, en
voru svo ringluð út af þessu
ástandi, að þau átu lítið sem ekk-
ert hey, þótt gefið væri. Nú una
þau hag sínum vel á góðu beitl-
landi. Nokkurt magn af heyi var
keypt, bæði s.l. haust og seinni
partinn í vetur. Fénaður er vel
framgenginn og sums staðar með
ágætum og nær allir hefðu verið
sjálfbjarga ef þetta áfelli hefði
ekki komið. Við Tungnamenn
erum í dag, 10. maí, búnir að gefa
sauðfé í 192 daga, allir sem einn.
Þetta mun vera lengsti gjafatími
hér í manna minni, og lengst af
þessum tíma gefin full innistöðu-
gjöf. Samt eru sumir enn aflögu-
færir. Ég nefni t.d. feðgana i
Gýgjarhólskoti, þá Karl og Jón.
sem eru á öskusvæðinu en eiga
þó mikið af góðheyi til að miðla
til manna í þessum vandræðum.
Fleiri hafa af nokkru að ná ,eins
og Þórarinn oddviti á Spóastöð-
um, Hermann á Galtalæk og Sig-
hvatur á Miðhúsum og kannski
fleiri. Nú veltur allt á því, hvað
nýigræðingurinn verður fljótur á
ferðinni. Upp úr öskunni verour
hann að komast.
Dagurinn í gær, laugardagurinn
9. maí, var dásamlegur, 15—18
stig í forsælu hér um slóðir. Og
nú er hitinn kominn upp í 12
stig, þegar messan byrjar í út-
varpinu. Það er því guðsbiessan
bæði úti og inni. Svona góðir dag-
ar gera kraftaverk á gróðri, enda
slær nýgrænni slikju á tún. Við
þurfum þess með. Og bezt gæti
ég trúað, að öskutúnin grænki
öllu fyrr en hin. Og þegar við
tölum um grasvöxtinn og öskuna
úr iðrum Ilekluhrauns, þá er
sannleikurinn sá, að þessi kol-
svarta örsmáa aska, brennhitnar
í sólfari eins og í gær, yljar upp
jarðveginn, svo að nýgræðingur-
inn þýtur upp eins og undrandi
barn, sem glaðvaknar við heita
morgunsól. Kannski eigum við
ekki eftir nema vikugjafatíma og
þá verða gjafadagarnir 200. það
er þægilegt að muna þá tölu.
Vegamálin eru annað vandræða-
mál hér í Biskupstungum og svo
er víðar um land. Sem betur fer
er þó óvíða annað eins sleifarlag
á vegaviðhaldi og hér í Árnes-
sýslu. Eins og stendur erum við
Tungnamenn í eins konar vega-
famgelsi. Við komumst hvorki út
úr eða inn í sveitina og ekki
nærri alls staðar á milli bæja.
Mjólkurbílarnir ösla enn í gega
um foraðið, en það er tíma-
spursmál, hvenær þeir hafna í ein
hverju hvarfinu. Vegaumsjónin
hér fylgir þeirri reglu, að gera
aldrei við hvarf í vegi, fyrr en
það er ófært, en þá kostar viðgerð-
in tíu sinnum meira, heldur en
þörf er á, ef fylgt væri þeirri
reglu, sem við viljum fá viður-
kennda, að einhverjum valinkunn
um bílstjóra í hverri sveit, sem
hefur vegavinnuréttiiidi, sé falið
að vaka yfir vegavilpunum þegar
þær eru að myndast og gera við
þær strax, áður en þær verða að
sökkvandi ófærudýki. Þetta
myndi spara Vegagerðinni stórfé.
Það eru til margar aðferðir að
spara eyrinn en kasta krónunni.
og allar jafnvitlausar. Það er ekki
von að vel fari. þegar viljann vant
ar — og kannski vit — til að
gera hið gagnstæða.
Það tilkynnist hér með, að í
þ.m.. í efri byggðum Árnesþings
er mikil óánægjualda út af sleif-
arlaginu á vegaviðhaldinu. Og
hærra mun hún rísa, ef engar við-
unandi úrbætur fást á því. Er þá
ekki að vita nema Árnesingar fari
að dæmi táninganna í kröfugöngu
og setjist á ganginn fyrir framan
dyrnar hjá samgöngumálaráðherr-
anum, ti-1 þess að fá því ófremd-
arástandi, sem nú er í viðhaldi
vega, aflétt.
Bændur í uppsveitum Sunnan-
lands bíðla tjón af Hekluösfcu,
bændur í næsta nágrenni eld-
stöðvanna verða fyrir miklum
landspjöllum af hugsunarlausum
ferðamönnum, sem kæra sig koll
ótta þótt gróður traðkist niður og
gróið land verði að flagi, en
Vega-gerðin verður þó fyrir mestu
fjárhagslegu skakkafalli á vegum
af hinum gífurlega bílafjölda, sem
engu eirir, þegar verst gegnir.
Árnesingur fór frá Selfossi á upp-
stigningardag kl. 10 mínútur yfir
2. og var kominn að Elliðaárbrú
kl. 3, Á þessum 50 mínútum
mætti hann 700 bílum eða 14 bfl-
um á hverri mínútu.
En hvað sem þessu líður, veg-
ina verðum við að fá færa. Fóður-
bæti verðum við að fá reglulega,
það er lífsnauðsyn. Mjög mikið er
óflutt <|f ábmgS , pg mjólkinni
þurfum við að koma til neytend-
anna á réttum. tíma, þáð ef þeirra
mál ekki sfður en okkar bænd-
anna. Og svo þurfa alUr að ferð-
ast. Þann straum má ekki stöðva.
Fólkið þolir illa þá röskun og
þjóðfélagið má efcki við slík-u.
Meðan ég var að ljúfca við betta
bréf, hlustaði ég með öðru eyr-
anu á fréttirnar í útvarpinu. Og
viti menn: Allt í einu segir þul-
urinn þær fréttir, að nú sé vetrar-
vertíð senn lokið, því nú séu að-
eins 5 dagar til loka, bví að loka-
dagurinn er 15. maí. Hvaðan kem-
ur útvarpinu þessi vizka? Loka-
dagurinn hefur um óralanga
tíð verið 11. maí og svo er enn,
í þ.m. í almanakinu.
Ekki þarf annað en líta í Þjóð-
vinafélags almanakið. þar stendur
við 11. maí. Vetrarvertíðarlok,
Lokadagur, og við 12. maí stend-
ur: Vorvertíð á Suðurlandi. 14.
m-aí var Vinnuhjúaskildagi meðan
vinnuhjú voru í ársvistum. 15.
maí hefur aldrei verið neinn
merkisdagur í íslenzku þjóðlífi,
en heitir í almanakinu Hallvarðs-
messa.
Vitanlega eru þessir fornu merk
isda-gar að missa gildi sitt að
rn-eira og minna leyti og unga
fólkið veit ekki skil á þeim. Samt
skulum við skipa þeim á réttan
stað í tímatali okkar, og útvarp-
ið verður að gæta virðingar sinn
ar.
Bændur
Til sölu er grind af Bed-
ford J-3, 3ja tonna, árg. ’63, !
ásamt hásingum og öllu til- !
heyrandi.
Tilvalin grind undir hey- j
vagn. I
Upplýsingcir l síma 50396. .
Frá Verzlunarskóla íslands
Inntaka nemenda sem
lokið hafa landsprófi
Ákveðið hefur verið að gefa nemendum sem ljúka
landsprófi í vor, kost á að setjast í 3. bekk Verzl-
unarskóla íslands, á hausti komanda svo framar-
lega sem þeir hafa hlotið tilskilda lágmarkseink-
unn fyrir menntaskóla.
Umsóknum ásamt prófskírteini eða staðfestu af-
riti af því ber að skila á skrifstofu skólans eins
fljótt og kostur er á, og í síðasta lagi fyrir 16. júní.
I
SKÓLASTJÓRI.
ioiqmc# oq<Pcdmi
N/l CZD □□ E= l_
kEDkchlcjhipik
BRENNT SILFUR
FERMINGARGJÖF SEM EKKI GLEYMIST
HVERFISG 16A — LAUGAV. 70