Tíminn - 03.07.1970, Blaðsíða 2

Tíminn - 03.07.1970, Blaðsíða 2
2 TIMINN FÖSTUDAGUR 3. júlí 1970. FJÖGÖR FYRSRTÆKi FENGÖ 45 MILLJ. ÚR INÞRÓMRSJÖÐI Miðvifcidaginn 1. júlí var hald-l inn annar fundur stjórnar Iðn-1 Veggspjald Landverndar vekur athygli EE-Reykjavík, fimmtudag Eins og sagt hefur verið frá í blaðinu, sendi Land- vernd — Landgræðsla, og náttúruverndarsamtök fs- lands, frá sér glæsilegt veggspjald í tilefni náttúru verndarárs 1970, sem á að minna fólk á góða u<m- gengni um land sitt. Á fundi náttúruverndar- samtaka Evrópuráðsins er haldinn var á dögunum, sýndi Eyþór Einarsson full trúi fsdiands, veggspjaldið og vakti það svo mikla að- dáun annarra fulltrúa sam- takanna, að nú hafa samtök in pantað allmörg slíkvegg spjöld frá Landvernd til dreifingar til náttúruvemd arfulltrúa Evrópuráðsins. Er óhætt að fullyrða, að með þessu auglýsir Land- vernd fsland á góðan og sketnmtilegan hátt. þróunarsjóðs. Fundinn sátu: Frá Danmörku: Henning Aberg, for- stjóri. Frá Finnlandi: Bror Wahl- roos, ráðuneytisstjóri. Frá Nor- egi: Oluf Chr. Miiller, ráðuneytis stjóri, Ivar Stugu, framkvæmda stjóri. Frá Svíþjóð: Olof Söder- ström, forstjóri, Erik Petterson, deildarstjóri. Frá íslandi: Jóhann es Nordal, sem er formaður stj. Iðnþróunarsjóðs; Árni Snævarr, ráðuneytisstjóri, og Þorvarður Alfonsson, framkvæmdastjóri Iðn þróunarsjóðs. Á fundinum lágu fyrir tillögur frá framkvæmdastjórn sjóðsins um útlán til nokkurra fyrirtækja, svo og umsókn um lán til Iðn- lánasjóðs. Samþykktar voru út- lánaheimildir til eftirtalinna fyrir tækja: Ullarverksmiðjan Gefjun, Hampiðjan h.f., Glit h.f., ög fs- lenzkur markaður h.f. Samtals nema þessar útlánaheimildir 45 milljónum króna. Au'k þess var samþykkt að lána Iðnlánasjóði 20 milljónir króna til viðbótar þeim 50 milljónum, sem áður höfðu verið veittar. Þá fjallaði fundurinn um reglur um lán með sérstökum kjörum, og styrki til tækniaðstoðar, rann sókna og markaðsathugana. Á fundinum var gerð grein fyr- ir ráðstöfun 50 millj. kr. láns, er Iðnlánasjóði höfðu áður verið veittar. Var þar um lán til 35 iðnaðarfyrirtækja að ræða í 15 mismunandi greinum iðnaðarins. Einnig var upplýst, að óaf- greiddar lánsumsóknir, sem bíða afgreiðslu hjá framkvæmdastjórn, nema um 150 millj. kr., en ræki- legar athuganir þurfa að fara fram á mörgum þeirra, áður en ákvörðun verður tekin um af- greiðslu. í dag fóru stjórnarmenn í kynn isferð til Norðurlands og munu þeir m.a. skoða iðnfyrirtæki á Akureyri og Kísiliðjuna við Mý- vatn. Ákveðið var að næsti stjórnar- fundur yrði haldinn í lok oiktóber næstk. Réttarholtsskólanum slitið Aðalfundur Bókavarðafélagsins Bókavarðafélag íslands hélt aðalfund sinn fyrir árið 1970 fyr ir skömmu. f stjórn voru kosin: Óskar Ingimarsson, formaður, Kristín Pétursdóttir varaformað ur, og meðstjórnendur Ragnhild ur HelgadóUir, Sigríður Ámunda dóttir og Ólafur Hjartar. í vara stjórn: Ingibjörg Jónsdóttir og Else-Mia Sigursson. Félagar eru nú um 60. í haust verður efnt til fyrsta landsfundar íslenzkra bókavarða, þar sem m. a. verða rædd ýmiss hagsmunamál bókasafna, starfsað- staða bókavarða víðsvegar um landið og önnur brýn verkefni er fyrir liggja. Er þess vænzt, að sem allra flestir bókaverðir sjái sér fært að sitja fund þennan, sem haldinn verður í Hagaskólanum í Reykjavík dagana 17. — 20. sept ember n. k Réttarholtsskólanum í Reykja- vík var slitið laugardaginn 30. m aí s. 1. Undir próf gengu 742 nemendur. í fyrsta bekk voru 240 nemendur og luku allir prófi. f öðrum bekk luku 227 nemendur prófi og stóð ust það 222. r Þnðji bekkur skiptist í almenn ar deildir, verzlunardeildir og landsprófsdeildir. f almennum deildum og verzlunardeildum gengu 113 nemendur undir próf og stóðust það 92. í landsprófsdeildum gengu 83 nemendur undir próf. Prófið stóð ust 81. Framhaldseinkunn hlutu 57, auk þess hafa 10 rétt til að endurtaka próf í haust. Gagnfræðaprófi luku 78 nem éndur og stóðust það allir. Hæstu einkunn í fyrsta bekk hlaut Ágústa Andrésdóttir 9,21. Hæstu einkunn í öðrum bekk hlaut Kjartan Ottósson 9,61 og var það hæsta einkunn í skólanum. í þriðja bekk hlaut Garðar Baldvins son hæstu einkunn 8.46 Á landsprófi hlutu þrdr nem endur 1. ágætiseinkunn þau Þóra Jónsdóttir 9,1 og Ragnar Sigurðs son og Vilmundur Vilhjálmsson báðir með 9,00. Á gagnfræðaprófi hlaut Elísa- bet Bjarnhéðinsdóttir hæstu eink unn 8,27. Við skólaslit voru nemendum af hent bókaverðlaun frá skólanum fyrir góðan námsárangur og störf í þágu skólans. Þá hafði bæði danska og þýzka sendiráðið gefið bækur til verðlauna fyrir góðan námsárangur í dönsku og þýzku. Við skólann störfuðu 48 kennar ar, þar af 18 stundakennarar. Skólastjóri er Ástráður Sigurstein dórsson. Þetta var 14. starfsár Réttar holtsskólans. Lélegur afli Eyrarbakkabáta OÓ—Reykjavík, miðvikudag. Þrír bátar stunda nú humarveið ar frá Eyrarbakka. Veiðin hef ur verið lítil undanfarið. en bát e 'iir eru nýbyrjaðir veiðarnar, sem hófust mun seinna í ár en áður vegna verkfallsins. Einn bát ur frá Eyrarbakka er á fiskitrolli og er sama að segja um hann og humarbátana, að hann er nýbyrjað ur veiðarnar og aflinn hefur verið tregur undanfarna daga. f fin imuiöjim i Sæmileg veiði í Blöndu Laxveiðin í Blöndu hefur geng- ið sæmileg*'. þann liðlega hálfan mánuð sem hún hefur verið opin til stangaveiði. Er nú búið að veiða úr ánni yfir 100 laxa en ytfirleitt eru 4 stengur.í henni — annars 3. Laxarnir eru sæmilegi vænir, yfirleitt frá 9—12 punda. í fjétt um veiðina j Blöndu er birtist hér í Veiðihorninu fyrir fáum dögum var sagt, að um 8 laxar hefðu þá veiðzt úr Blöndu og mun það augljóslega ekki hafa verið alls kostar rétt með farið. Ungur og efnilegur veiðimaður 15 laxar voru komnir á land úr Laxá í Dölum á sunnudagskvöldið s. 1. að því er Bjarni Júlíusson vélstjóri tjáði Veiðihorninu í gærkveldi, en hann er einn þeirra 10 manna sem nú hafa tekið ána á leigu. Var áin opnuð þann 20. júní og er það óvenjusnemma mið að við undanfarin ár. Eru laxarn ir yfirleitt 7—14 punda og allt maðkfiskar. Á sunnudaginn var Bjarni við veiðar í Laxá, og var sonur hans, Júiíus Bjarnason 13 ára gamall, með honum, og renndi einnig í ána. Er ekki annað hægt að segja en, að Júlíus sé efnilegur veiði maður, þvj að hann fékk 14 punda lax á stöng sína, og dró hann hjálparlaust á land, og er þetta annar stærsti laxinn sem veiðzt hefur ár ánni á sumrinu. Óskar Veiðihornið Júlíusi Bjarnasyni til hamingju með árangurinn með þeim óskum, að hann eigi eftir að draga þá marga og væna úr laxveiðiám landsins í framtiðinni. — EB. NTB-Belfast. — Brezkir her- menn dreifðu með táragasi hópi mótmælenda í Belfast í gær, en þeir voru að kasta grjóti. Norður-írska þingið hef ur samþykkt lög usn, að hver sá, sem reynir að skapa óróa, skuli settur í sex mánaða fang elsi óskilorðsbundið oe þeir, se<m hafa undir höndum benzín sprengjur fái allt að fimm ára fangelsi. NTB-W ashington. — Banda- rískir nazistar hafa hótað að myrða þá leiðtoga í öldunga- deildinni ,sem andvígir eru styrjöldinni í Indó-Kína. f sjálf virkutn símsvara hjá nazista- foringjanum Pierce, má hcryra m.a., að allt, sem þeir McGov- ern, Fulbright, Hatfield og öll klíkan þurfi, sé byssukúla milli augnanna! NTB-London. — Utanríkis- ráðherra Suður-Afríku, Hil- gard Muller, fór fram á það í gær við brezku stjórnina, að hún aflétti banninu um vopnasölu til Suður-Afríku. — Þetta gerðist á klukkustundar fundi, sem Alec Douglas-Home átti með Muller. Ekki er vitað hvort brezka stjórnin hyggst gera eitthvað í málinu. NTB-Kaupmannahöfn. — Noregur, Danmörk, Finnland og Svíþjóð, undirrituðu í gær samning um samstarf í örygg- ismálum, þegar um er að ræða byggingu og rekstur kjarnorku vera. Fréttinni fylgdi, að ís- landi væri heimilt að gerast samningsaðili. NTB-Pnom Penh. — Forsæt- isráðherra Kambodíu, Lon Nol hershöfðingi rak í gær sex ráðherra úr ríkisstjóm sinni og skipaði átta aðra í staðinn. NTB-Casablanca — Allt út- lit er fyrir, að „Ra 2“ komist heilu og höldnu yfir Atlants- hafið. í fyrrinótt lenti papýrus báturinn í miklum stormi, en ekkert fór þó úr skorðum. — Skipsmenn eru þó ekki fylli- lega ánaégðir með hraðann, finnst hann ekki nægur. NTB-Kaupmannahöfn. — Tékkneski ambassadorinn, Ant on Vasek, sem baðst hælis í Danmörku í fyrra mánuði, hef ur nú verið veitt það. Ekki er vitað, hvað Vasek hyggst fyrir, en sagt er, að hann muni setj ast að í ensku- eða fiönsku- mælandi landi. Fyrsti fundur um undirbúning að rannsóknum á Laxá Miðvikudaginn 1. júlí var að tilhlutan iðnaðarráðherra, Jóhanns Hafstein, boðað til fyrsta fund- ar nefndar þeirrar, sem iðnaðar ráðuneytið hefur skipað í þeim tilgangi, að undirbúa og skipu- leggja sérfræðilegar rannsóknir á vatnasvæði Laxár. Samkvæmt bréfi iðnaðarráðu- neytisins, dags. 13. maí s.l., var kveðið á um nefndarskipan þessa og slíka sérfræðilega rannsókn og með þeim hætti, að heimildir til frekari virkjunarframkvæmda við Laxá en þær, sem leyfðar voru í september 1969 og fela í sér 8 Mw. virkjun, án vatnsborðs- hækkunar með stíflugerð, verði ekki teknar til ákvörðunar fyrr en fyrir liggja niðurstöður þess arar rannsóknar. Á fundinum mættu fulltrúar allra aðila, sveitarstjórna, sem hlut eiga að máli, sýslunefndar, Náttúrufræðistofnunar fslands, — Veiðimálastofnunarinnar og stj<wn ar Laxárvirkjunar. Samkomulag varð á fundinum um það, að iðnaðarráðuneytið leit aði samráðs við tiltekna innlenda og erlenda aðila til þess að gera frumtillögur um framkvæmd fyr- irhugaðrar rannsóknar. Ennfrem- ur að ráðuneytið aflaði gagna um niðurstöður hliðstæðra rannsókna á Norðurlöndum. Staða bæjarsijórans í Keflavík auglýst SB-Reykjavík, fimmtudag. Nýkjörin bæjarstjóm í Kefla- vík kom saman til fyrsta fundar í gær, 1. júlí. Þar var lögð fram yfirlýsing bæjarfulltrúa Fram- sóknarflokksins og Sjálfstæðis- flokksins um meirihlutasamstarf þeirra á yfirstandandi kjörtíma- bili, en hún felur m.a. í sér, að staða bæjarstjóra verði auglýst laus til umsóknar með umsóknar- fresti til 10. júlí. Forsetar verða á víxl frá sam- starfsflokkunum og skipt um þá árlega. Fyrsti forseti bæjarstjórn ar var kosinn Tómas Tómasson frá Sjálfstæðisflokknum. í bæjar ráð voru kosnir: Valtýr Guðjóns- son, Tómas Tómasson og Ragnar Guðleifsson. Fyrir fundinum lá bréf Starfs- mannafélags Keflavíkurbæjar, þar sem farið var fram á 15% kaup- hækkun og var hún samþykkt. Á næsta fundi bæjarstjómar verður kosið í nefndir bæjarins, en algjört samstarf verður milli meirihlutaflo'kkanna um þá kosn ingu. Þá verður einnig kosina bæjarstjóri og málefnasamningur samstarfsflokkanna lagður fram. VAR SOFANDI I BREK iANDI RÚMI EJ-Reykjavík, fimmtudag. Síðdegis í dag kviknaði í húsi einu í Kópavogi, þar sem einn miðaidra maður var sofandi. Varð njikili reykur í her- berginu og missti maðurinn með- vitund. Nágranni hans varð var við eldinn og lét lögregluna vita. Náði hún manninum út og flutti hann á Slysavarðstofuna, og í kvöld var hann kominn til með- vitundar aftur.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.