Tíminn - 03.07.1970, Blaðsíða 5
/
FÖSTUDAGUR 3. júlí 1970.
TÍMINN
5
ijjtfHlÍÍÍmillH;
*p"**'"r
MEÐ MORGUN
KAFFINU
sem Paul Newman stjórnaði
reyndar, en eftir a@ sú mynd
var gerð, flutti Joanne með
öll börn þeirra til býlis fjöl-
skyldunnar í Connecticut, en
Newman er enn eftir í Holly-
wood. Fregnir herma að Jo-
hanne viilji draga mann sinn
með sér frá Hollywood, hún
álíti borgarbraginn þar spilla
honum, en hvað um það þá
velta menn því nú fyrir sér
hvort enn eitt leikarahjónabaná
ið sé að fara lönd og reið . . .
Það er hreint ekki óalgengt
að menn verzli með ýmislegt
varðandi greftrun, en William
Fulton er áreiðanlega einn af
fáum, ef ekki sá eini, sem sel-
ur grafir. Hann hefur nú safn-
að nægilega miklu fé til að
kaupa Rosebank kirkjugarðinn
í Edinborg, en verðið var 1200
kr. ísl. Fulton vann áður við
kirkjugarð þennan sem fangi,
og var svo ánægður í starfi
sínu, að hann fór þess á leit
við borgaryfirvöldin, að þau
seldu honum garðinn þegar
hann slyppi úr fangelsinu. Svar
ið var já, og Fulton flutti sæll
og glaður í litla, fallega húsið,
sem garðinum fylgdi. Þótt hann
verði að ráða garðyrkjumann,
reiknar hann með að fá dá-
góðar tekjur.
Anna Bretaprinsessa verður
stöðugt vinsælli í heimalandi
sínu. Bretum finnst hún bæði
falleg og skemmtileg, en eink-
um nýtur hún vinsælda fyrir
glaðlega framkomu sína. Um
daginn fór hún á dansleik sem
herdeild nokkur hélt fyrir
gamla hermenn og konur
þeirra. Einnig komu á ballið
15 ungir hermenn úr herdeild
Hússars kóngs. og hver einasti
hermannanna herti sig upp í
að bjóða Önnu upp í dans. Hún
þáði hvert boð og dansaði við
þá alla af hjartans lyst.
Sá er reið á vaði® og fyrst
ur bauð prinsessunni upp,
Steve Beavers, sagði að Anna
prinsessa væri það stórkost-
legasta við Bretland, merkasta
nýjungin síðan þeir fundu upp
ristaðað brauðið.
„Hún var svo kát og skemmti
leg. talaði um nýafstaðna ferð
til Ástralíu, og þegar ég sagði
henni að mér fyndist hún fal-
leg, þá sagði hún þökk fyrir“
og hermaðurinn ungi mátti
vart vatni halda af ást og drott-
inhollustu. .
★
„Hún var vinur minn“ heit-
ir lag eitt er í s.l. viku kom á
almennan markað á LP plötu.
Texti lagsins er saminn á ensku
og er eitthvað á þessa leið:
„Eg hélt hún væri einlæg/en
árans tæfan/Ætlaðist annað og
verra fyrir/hún dáðist að mín-
um eigin indæla manni/Gætið
ykkar á ungum stúlkum“.
Þetta er fremur sorglegur
söngur, og iafnvel ennþá sorg-
legri þegar þess er gætt, að
hann samdi Dory Prévin, eigin-
kona hljómsevitarstjórans
André Previn, þess er næstum
hafði lent í því að koma til
íslands, en ‘ 'dré er búinn
að fá skilnað frá Dory til að
get.a kvænzt Míu Farrow, barns-
móður sinni.
DENNI
DÆMALAUSI
— Allir reka mig út af lóöum
sínum. Heldurðu að ég sé and-
fúll?
— Svo eigið þið að muna það
böm, að það getur verið hættu
legt, að kyssa hunda og aðrar
skepnur, sagðj kennarinn.
— Frænka mín kyssti hund
inn sinn, sagði þá Jói litli.
— Og hvað gerðist? spurði
kennarinn.
— Hundurnn dó!
★
Kannski margar konur séu
tilbúnar til að fórna eigin frama
vonum gjörsamlega fyrir þa'ð
eitt að fá að halda í mann
eins og Paul Newman. en það
hefur eiginkona hans, Joanne
Woodward gcrt. Þau hafa ver
ið gift í mörg ár og hún hefur
algjörlega lagt framavonir sín
i------------------------------
★
ar til hliðar og verið honum
„góð húsmóðir“ og stutt af
mætti við bakið á sínum fræga
manni En nú virðist hún vera
að skipta um hlutverk. Joanne
er byrjuð, að halda fram sínum
áhugamálum. Það b.yrjaði með
því að hún lék aðalhlutverk i
myndinni „Rachel, Rachel",
VI
— Það gleður mig sannar-
Iega að hitta einkaritara manns-
ins míns. Ég þekkti strax vara-
litinn yðar af vasaklútnum
hans-
Námsstjórinn sneri sér þá að
öðrum nemanda.
— En þú. Veizt þú það?
—- Nei, ég gerði það ekki
heldur. Hnötturinn er lokaður
inni í frímínútunum.
Þá var námsstjóranum nóg
boðið og hann sneri sér alvar-
legur á svip að kennslukonunni:
— Mætti ég biðja frökenina
um skýringu?
Hún reyndi að vera róleg,
þegar hún svaraði:
— Ég get fullvissað yður,
herra námsstjóri, um það að
það er enginn af nemendunum,
sem hefur gert þetta. Hnatt-
líkanið var svona, þegar við
keyptum það . . .
Hér greip presturinn fram í:
— Hvað oft hef ég ekki sagt
yður, að skólinn á ekki að
kaupa notaða hluti, það á allt
sem notað er hér, að vera nýtt!
Námsstjórinn og presturinn
▼oru í heimsókn í skólanum og
voru nú staddir við kennslu í
landafræði í einum bekknum.
Námsstjórinn tók hnattlíkan
niður úr hillu, sneri sér að ein-
um nemendanna og spurði:
— Getur þú sagt mér, dreng
ur miim, hvers vegna möndull-
inn á þcssum hnétti er ekki
beinn?
— Ja, ég veit það ekki . . .
það er ekki mér að kenna . ..
ég veit ekkert um það ...
Alltaf mjólk, uff
Þótt Penny Carter líti út
fyrir að vera ósköp venjuleg
stúlka, sem piltarnir keppast
um að bjóða út aneð sér vegna
huggulegs útlits, þá verður
hún að teljast með þeitn
óvenjulegu, þótt ekki væri
nema vegna kappakstursárátt
unnar, sem heltók hana eftir að
faðir hennar gaf henni fekta
fínan kappakstursbíl. Fyrjr
skömmu tók hún þátt í mikilli
keppni, og þótt hún kæmi ekki
fyrst í mark, átti hún að
minnsta kosti heiðurinn aS
því, að vera eini kvenm..ður-
inn í keppninni, og vakti húo
ekki svo litla athygli áhorf-
enda.