Tíminn - 03.07.1970, Blaðsíða 4
TIMINN
FÖSTUÐAGUR 3. jfflí m».
VITIÐ ÞER
— að Ros barnaskórnir uppfylla allar kröfur um
góðan skó fyrir hinn viðkvæma barnsfót.
Eru með góðu innleggi, skinnfóðraðir í hvítum lit.
Verð: no. 20—21
— 22—24
— 25—26
kr. 541,00
— 588,00
611,00
Skóverzlun Þórðar Péturssonar,
við Austurvöll, sími 14181. Pósth. 51
Landsmót hestamanna
að Skógarhólum í
Þingvallasveit
10.—12. júlí 1970
Hestamenn
Merkið hesta ykkar, sem komið verður með á
Landsmótið, með bókstöfum samkvæmt eftirfar-
andi svæðaskiptingu:
L og X Frá Skeiðará að Hellisheiði
F og Y Frá Hellisheiði í Hvalfjarðarbotn.
M og T Frá Hvalfj botni að Hrútafjarðará.
H og K Frá Hrútafjarðará að Öxnadalsheiði
A og Z Frá Öxnadal að Skeiðará.
Mælzt er til þess að stafurinn sé klipptur í vinstri
síðu undir hnakk.
Eigendur góðhesta eru minntir á að hafa góða
múla með hestum sínum.
Framkvæmdanefndin.
TOEOBAMA
MEST NOTUÐU
HJÓLBARÐAR
Á ÍSLANDI
FSesfar gerðir
ávallt
fyrirliggjandi
KAUPFÉLAG
A-SKAFTFELLINGA
HORNAFIRÐI
í DEIGLUNNI
Hreimii Ifnur
Borgarstjórnarkosningarnar á
dögunum urðu að því leyti
merkilegri en gerzt hefur og
gengið um hérlendar kosningar
um langt skeið, að þær vekja
vonir um að línurnar í flokka-
pólitíkinni taki að skýrast. Al-
þýðuflokkurinn beið slikan ósig
ur að forustumenn hans toldu
vonlaust að reyna að leyna
áverkanum eftir höggið. All-
margir flokksmenn, sumir ung-
ir og tiltölulega róttækir en
a'ðrir einfaldlega hagsýnir,
kenndu réttilega hinu langa og
nána samstarfi við Sjálfstæð-
isflokkinn, sem samkvæmt öli-
um pólitískum lögmálum hefði
átt að vera Alþýðuflokksins
grimmasti andskoti, um ófar-
irnar og kröfðust endurskoðun-
ar á viðhorfi flokksins til stjórn
arsamstarfsins. Forustumönn-
um flokksins var auðvitað ekki
um að láta draga sig úr ráð-
herrastólunum og tókst að
þvæla málinu í svæfingarnefnd,
og segir væntanlega ekki fleira
af því.
Sú rá'ðstöfun gæti, ef atvik-
in yrðu þjóðinni hliðholl, orð
ið endanlegur dauðadómur Al-
þýðuflokksins, enda ekki ann-
að hægt að sjá en kippt hafi
verið undan honum öllum til-
verugrundvelli, séð frá sjónar-
hóli einföldustu pólitískrar rök-
hyggju. Astæðan til þess hve
Iéngi flokknum tókst, þratt íyr-
ir allt, að viðhalda á sér nokkr-
um sósíaldemókratískum sýnd-
arsvip, var einkum sú að komma
grýlan, skrímsli það í Franken-
steinstíl, sem Stalín heitinn og
áróðursmiðlar vestrænnar borg
arastéttar vöktu upp í samein-
ingu, fældi margt vinstrisinnað
fólk frá Alþýðubandalaginu. En
í kosningabaráttunni nú gerði
Sósíalistafélag Reykjavikur Al-
þýðubandalaginu þann stór-
greiða að taka þann fjanda á
herðar sér, með þeim afleiðing
um að núorðið dettur engum
heilvita manni í hug að kenna
Alþýðubandalagið við kommún-
isma. Þetta er orðinn ósköp
skikkanlegur og lýðræðislegur
vinstriflokkur, sem ætti að
hafa góða möguleika á a'ð skipa
hliðstætt rúm í stjórnmálum
hérlendis og jafnaðarmanna-
flokkar hinna Norðurlandanna
í sinum föðurlöndum.
Ófarir K-listamanna urðu
hinsvegar slíkar, að varla þarf
að reikna þeim lengra líf í ís-
lenzkum stjórnmálum, enda eru
þetta gamlir menn sem trúa
löngu dauðum guði. En stjórn
málasaga annarra Norðurlanda
hefur sýnt að gott er að
hafa einhver stjórnmálasamtök
til vinstri við krataflokkana,
svo sem til að hindra að þeir
letjist og fitni og gerist borg-
aralegir um of. Á íslandi ætti.
Æskulýðsfylkingin eða samtök,
sem hún gæti orðið vísir að,
að vera upplögð til að gegna
því hlutverki.
Á stöðu stærstu flokkanna
tveggja ættu einnig að geta
verið í vændum vissar breyt-
ingar, svo og hjá Frjálslynd-
um og vinstrimönnum. Síðast-
nefndi flokkurinn er að vísu
nógu þokukennd sveit til að
gera mætti sér vonir um að
Mrn leystist upp í icumagnir
sínar áður en langt um liði.
Varðandi Sjálfstæðisflokkinn er
sú staðreynd athyglisverðust
hve þessu bólvirki íhaldssöm-
ustu afla þjóðfélagsins hefur
lengi getað haldizt uppi að
vera langstærsti stjórnmála-
flokkur landsins og þar með
þungami'ðja íslenzkra stjórn-
mála. Aðra eins drottnunarað-
stöðu mun enginn annar vest-
ur-evrópskur íhaldsflokkur
hafa haft svo áratugum skipt-
ir, og ætti slíkt merki um póli-
tíska vanþróun Islendinga að
SAMVINNUBANKINN ÁVAXTAR SPARIFÉ YÐAR
MEÐ HÆSTU VÖXTUM
cnaO öti k UMct - ^ iIk
Æ
«ioev»«rmoi
VlK I MfROAl
0
^0
[$] SAMVINNUBANKINN
mbtÆI mmh r. w> arw
VIPPJ - BltSKÚRSHURÐIN
Atvinna
Óskum eftir að ráða nú þegar jámiðnaðarmenn
og ófaglærða menn við framleiðslustörf í jám-
iðnaði.
Hentug vinna fyrir þá sem búa í Kópavogi og
Hafnarfirði.
ifiliniWRIf
VÉLSMIÐJAN HÉÐINN H.F.
Stórás 4—6, Garðahreppi.
Lagerstærðir miðað við múrop:
Hæð: 210 sm x breidd: 240 sm
210 - x - 270sm
Aðrar stærðir.smíðaðar eftir beiðni.
GLUGGASMIÐJAN
Síðumúlo 12 -’ Sími 38220
vera þeim nokkurt umhugsum-
arefni.
Atvik stjórnmálasögunaar
hafa verið Sjálfstæðisflokknum
hliðholl að því marki að aúb
konservatívra afla sem eru eðli
lega meginkjarni hans, hefur
honum tekizt að laða til srn
fasistísk element, sem að vísn
munu varla annars staðar bet-
ur komin, og allmikið „frjáls-
lynt“ fylgi. Þetta fylgi ætti að
öllu eðlilegu frekar að eiga
heima i Framsóknarflokknum,
sem í íslenzkum stjórnmálum
hefur valið sér hliðstæða vig-
stöðu og b'ændaflokkar (sem nú
kallast yfirleitt miðflokkar) og
liberalir milliflokkar hafa á
öðrum Norðurlöndum og víð-
ar í Vestur-Evrópu.
Skipting íslendinga í stjdrn-
málaflokka hefur til þessa að
verulegu leyti byggzt á þekfe-
ingarleysi á jafnvel einföld-
ustu atriðum pólitískrar hug-
myndafræði, sem af ráðnum
hug hefur verið alið á af að
minnsta kosti sumum stjórn-
málaflokkanna. Það þarf Ifka
að lesa, segir ungi verkamaður
inn í mynd Bo Widerbergs,
Adalen 31, sem hefði þurft að
koma í Gamla bíó aðeins fyrr,
fyrir kosningarnar eða meðan
verkfallið stóð yfir. Islenzkir
kjósendur þurfa að gera sér
ljóst að aðeins með aukinni
pólitískri og samfélagslegri
þekkingu geta þeir orðið herr
ar eigin forlaga. Sú þekking
sem þeir leita sjálfir, að eigin
frumkvæði, verður þeim heilla
drýgst, gagnstætt þeirri „þel^k-
ingu“ sem fjölmiðlar valdhaf-
anna mata þá á.
Dagur Þorleifsson.
Rafgeymir
— ger« 6WT9, með
óvenjumikinn ræsikraft,
miðað við kassastærð.
12 volt — 64 ampt.
260x170x204 m/m.
SÖNNAK rafgeymar f úrvali
S M Y R I L L, Ármúla 7 — sími 84450. i