Tíminn - 03.07.1970, Side 8
3
TÍMINN
FÖSTUDAGUR 3. jólí 1970.
Ræða Stefáns Valgeirssonar við 40 ára afmæli Búnaðarbankans:
Veðdeildin verði efld og Bú-
stofnslánadeild komið á fót
f fyrradag voru liSin 40 ár frá
því Búnaðarbanki íslands tók
til starfa. í tilefni af því efndi
bankaráðið til hófs fyrir starfs-
fólk og gesti í húsakynnum
hans við Austurstræti og færði
starfsmannafélaginu 300 _ þús.
kr. gjöf, sem Guðmundur Árna-
son, formaður féiagsins, veitti
viðtöku. Við þetta tækifæri
fluttu ræður Friðjón Þórðar-
son, formaður bankaráðsins,
Ingólfur Jónsson Iandbúnaðar-
ráðherra, Jón Pálmason fyrrv.
alþingismaður og Stefán Val-
geirsson alþm., sem á sæti i
bankaráðinu.
Það var Tryggvi Þórhallsson,
sem hafði forgönguna um stofn
un Búnaðarbankans og var um
skeið bankastjóri hans. Hilmar
Stefánsson stjórnaði bankanum
hins vegar lengst eða á þriðja
áratug og efldisj bankinn mest
undir stjórn hans. Núverandi
bankastjórar eru þeir Stefán
Hilmarsson og Þórliallur
Tryggvason.
Ræða Stefáns Valgeirssonar
fcr hér á eftir:
Háttvirta samkoma.
Þar sem við erum hér saman
komin til að minnast þess, að 40
ár eru liðin frá þvi, að Búnaðar-
banki íslands tók til starfa, er ekki
úr vegi, að einhverjir úr bænda-
stétt segi nokkur or5 af þessu til-
efni.
Almennt er talið, að Búnaðar-
bankinn hafi byrjað starfsemi sína
1. júli 1930. Hins vegar var Rækt-
unarsjóður íslands stofnaður rétt
fyrir síðustu aldamót og Bygging-
ar- og landnámssjóður í ársbyrjun
1929.
Þessir sjóðir gengu inn í Bún-
aðarbankann við stofnun hans, og
voru þvi í senn hornsteinar og
kjarni hans frá öndverðu, og
hljóta því að verða aðaldeild bank
ans um alla framtíð, þó þeir hafi
nú verið sameinaðir og haldi ekki
sínu upprunalega nafni.
Búnaðarbankinn, og þó ekki sízt
stofnlánasjóðir landbúnaðarins,
sem hafa verið í vörzlu hans frá
Tryggvi Þórhallsson
upphafi, hafa gert mögulega þá
uppbyggingu, sem orðin er í sveit-
um landsins.
Þó skulum við líka minnast hins,
að stofnlánin hafa verið og eru of
lítill hluti þess, sem framkvæmd-
irnar kosta, lánstíminn of stuttur
og vextir of háir miða'ð við þann
stakk, sem þjóðfélagið hefur búið
þessum atvinnuvegi.
Starfsemi stofnunar eins og
Búnaðarbankans þarf alltaf að end
urskoða og aðlaga breyttum kring
umstæðum, til að þjóna sem bézt
þörfum viðskiptavinanna á hverj-
um tíma.
Við gerum okkur nú dagamun
til að þakka og gleðjast yfir þeim
árangri, sem náðst hefur á þess-
um 40 árum í vexti og viðgangi
bankans, en þó ekki síður yfir
þeirri uppbyggingu í iandbúnaði
og öðrum þáttum þjóðlífsins, sem
bankinn hefur stuðlað að með
starfsemi sinni.
Búnaðarbankinn er nú næst
stærsti banki þjóðarinnar sé mið-
að við það sparifé, sem hann hef-
ur í vörzlu sinni, og starísemi
allra banka byggist fyrst'og fremst
á.
Hins vegar hefur hann verið
afskiptur að því leyti. að hann hef
ur ekki öðlazt réttindi til að ann-
Hilmar Stefánsson
ast sölu á erlendum gjaldeyri,
þrátt fyrir það, að fast hafi verið
eftir því leitað við stjórnarvöld.
Verður að vænta þess, að sú
tregða, sem verið hefur í þessu
máli, standi ekki öllu lengur, því
að hér er um að ræða réttlætis-
mál, sem erfitt ætti að vera að
standa gegn, og engin sýniieg rök
eru fyrir.
Vöxtur Búnaðarbankans á liðn-
um árum er gleggsti vitnisburður
um starfsfólk hang. Þó að hann
hafi verið eini viðskiptabankinn,
sem ekki hefur haft gjaldeyrisvið-
skipti, og gat því ekki veitt sams
konar þjónustu og hinir viðskipta-
bankarnir, þá hefur hann haldið
fyllilega sínum hlut.
Þetta gat ekki gerzt, nema vegna
hins góða starfsliðs bankans. Ég
hefi haft allnáin kynni af mörgu
þessu fólki bæði hér í Reykjavík
og á Akureyri á liðnum árum, og
ég sé fulla ástæðu, einmitt við
þetta tækifæri, að þakka fyrir þau
kynni og fyrir mjög ánægjulegt
samstarf.
Ég vil ennfremur færa því
starfsfólki þakkir mínar, sem fór
austur að Heklu í vor til að græða
þau sár, sem kærulausir ferðalang-
ai- ollu þar. Ég var búinn að sjá
þá eyðileggingu, sem þar var fram
Stefán Hilmarsson
in, og veit því að það var þarft
verk og gott, að bæta þar um, og
það var mér sérstakt ánægjuefni,
að það var starfsfólk Búnaðarbank
ans, sem það gerði og hafði þar
frumkvæði.
Á tímamótam sem þessum ber
að gera fleira en að horfa til baka
og hælast vfir og þakka það sem
unnizt hefur.
Það þarf líka að horfa fram og
gera sér grein fyrir næstu verk-
efnum, sem leysa þarf. Þessi verk
efni eru að sjálfsögðu mörg og
margvíslegj og Kv'orkf st'áður' né
stund nú til að ræða þau til hlít-
ar.
Hins vegar vil ég minnast á tvö
aðkallandi verkefni til viðbótar
því, sem þegar hefúr verið minnzt
á.
Veðdeildin hefur engan starfs-
grundvöll. Því verður að breyta
og útvega henni fjármagn svo að
hún geti innt hlutverk sitt af hendi
á eðlilegan hátt. Þetta mál er
brýnt og aðkallandi.
Gert var ráð fyrir því í upphafi,
að stofna Bústofnslánadeild við
bankann. Sú starfsemi hefur ekki
enn komizt í framkvæmd. Þessi
lánastarfsemi er algeng hjá öðr-
um þjóðum og þykir sjálfsögð.
Þórhaliur Tryggvason
Vegna breyttra aðstæðna í land-
búnaiði er það orðið mjög aðkall-
andi að þessi lánadeild taki til
starfa.
Aður fyrr var það algengt að
menn byrjuðu búskap með eina
kú og örfáar ær. Engum dytti
slíkt í hug nú. Þessar breyttu að-
stæður krefjast breytingar á starf
semi bankans. Hafa menn gert sér
grein fyrir hvað bústofn kostar
nú, sem byrjendur gætu komizt
af með, til að standa undir vél-
væðingu ásamt öðrum stofnkostn
£'ði? Er það°ekki hlutverk Bún-
aðarbankans að fiima lausn á þessu
máli og öðrum, sem snerta á ein-
hvern hátt landbúnaðinn og hans
starfsemi.
Þótt fleira mætti nefna, læt ég
hér staðar numið.
Að endingu vil ég vænta þess,
að Búnaðarbankinn verði um alla
framtíð aflgjafi landbúnaðarins,
að hann venði frjálslyndur og víð-
sýnn í allri starfsemi sinni, og að
hans forusta verði jafnan sjálf-
stæð og vökul og honum takist allt-
af að hafa jafngott starfsfólk og
hann nú hefur. Bankaráðsmönnum,
bankastjórum og þeirn útibússtjór
um, sem ég hefi haft samstarf við,
þakka ég gott samstarf.
Neír«uakn?níngar í borgarstjóm
EJ—Reykjavík, fimmtudag.
Á síðustu tveimur fundum borg
arstjórnar — í gær og fyrir hálf
um mánuði — var kjörið í ýmsar
nefndir á vegum borgarinnar. Eins
og fram hefur komið áður, var
samstarf milli minnihlutaflokk-
anna — nema Samtaka frjáls-
íyndra og vinstri manna — um
nefndakjör.
Hér á eftir fara þær nefndir,
sem í hefur verið kjörið, og nöfn
þeirra sem kjörnir voru:
Bygginganefnd: Af Ddista
Hilmar Guðlaugsson, Hilmar Ólafs
son. Af B-lista Guðmundur G.
Þórarinsson. Varamenn: Af D-
lista Páll Flygenring. Ingólfur
Finnbogason. Af B-lista Ormar
Þór Guðmundsson.
Hafnarstjórn: Af D-lista Albert
Guðmundsson, Ólafur B. Thors.
Af B-lista Einar Ágústsson. Vara
menn: Af D-lista Geir Hallgríms
.on, Markús Örn Antonsson, af
R-lista Guðmundur G. Þórarins
son. T''Mr rnBnn voru kjömir í
haínaistjorn utan borgarstjómar,
þessir: Af D-lista Haraldur Ágústs
son, af B-lista Guðmundur J
Guðmundsson. Varamenn: Af D-
Jista Gunnar Helgason, af B-lista
Guðjón Jónsson.
Stjórn Innkaupastofnunar Rvík
, urborgar: Af D-lista Albert Guð
i mundsson, Ólafur Jónsson. Af B-
lista Guðmundur G. Þórarinsson,
ISigurjón Pé'tursson. Varamenn:
Af D-lista Magnús L. Sveinsson,
Sveinn Björnsson, af B-lista Kristj
án Benediktsson, Svavar Gestsson.
Stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna
Reykjavíkurborgar: Af D-lista
Birgir ísleifur Gunnarsson, Ólaf
ur B. Thors. af B-lista Sigurjón
Pétursson. Varamenn: Af D-lista
Kristján J. Gunnarsson, Markús
Örn Antonsson, af B-lista Adda
Bára Slgfúsdóttir.
Ferðamálanefnd: Af D-lista
Markús Örn Antonsson, Elin
Pálmadóttir, Baldvin Tryggvason,
Magnús L. Sveinsson. Af B-lista
Örlygur Hálfdánarson, Jón Snorri
Þorleifsson. Arni Gunnarsson.
Varamenn: Af D-lista Albert Guð
mundsson, Haraldur J. Hamar,
Ragnar Kjartansson, Páll Bragi
Kristjónsson. Af B-lista Pétur
Sturluson, Svavar Gestsson. Pét-
urSigurðsson.
I Stjórn Fiskiinannasjóðs Kjal
srnessþings: Gunnar Friðriksson.
Endurskcðandi Styrktarsjóðs
sjómanna- og vjrkamannafélag-
arnia í Reykjavík: Alfreð Guð-
mundsson.
Útgerðarráð: Af D-lista Svelnn
Benediktsson, Ei::_r Thoroddsen.
IHaraldur Ágústsson, af B-lista
Hörður Helgason, Guðmundur Vig
fússon. Varamenn: Af D-lista Pét
ur Sigurðsson, Jónas Jónsson,
Karl Bjarnason, af B-l-sta Skúli
Þorleifsson, Jóhann Kúld.
í allar ofangreindar nefndir og
stöður var kosið til eins árs.
Kosið var til fjögurra ára í
eftirtaldar nefndir:
Heilbrigðismálaráð: Af D-lista
Birgir fsl. Gunnarsson, Úlfar
Þórðarson. Herdis Biering. Gunn
laugur Snædal. af B-lista Árni
Björnsson, Margrét Guðnadóttir,
Halldór Steinsen. Varamenn: Af
D-lista Ólafur B. Thors, Alda
Halldórsdóttir, Arinbjörn Kol-
beinsson, Ottó Michelsen, af B-
lista Jónatan Þórmundsson, Ólaf
ur Jensson, Björgvin Guðmunds-
son.
Barnaverndarnefnd: Af D- lista
B;jörn Björnsson. Ragnar Júlíus
son, Hulda Valtýsdóttir, Jón
Magnússon, af B-lista Gerður
Steinþórsdóttir, Margrét Margeirs
dóttir, Elín Guðjónsdóttir. Vara
! menn: Af D-lista Jóna Sveinsdótt
ir, Jens Guðbjörnsson, Áslaug
Friðriksdóttir, Bergljót Ingólfs
dóttir, af B-lista Halldóra Svein
björnsdóttir, Magnús Magnússon,
Ingibjörg Júlíusdóttir.
í Stjórn Ráðningai'stofu Reykja
víkurborgar: Af D-lista Sveinbjörn
Hanesson, Magnús Jóhannesson,
af B-lista Alvar Óskarsson. Vara
menn: Af D-lista Guðjón Sigurðs
son. Hilmar Guðlaugsson, af B-
lista Einar Eysteinsson.
í Almannavarnanefnd: Af D-
lista Agúsl Valfells, af B-lista
Þráinn Karlsson.
Forðagæzlumaður: Hjalti Bene
diktsson.
Til að framkvæma millimat:
Gisli Teitsson.
Sáttam:un: Af D-lista Sigurður
Árnason, af B-lista Stefán Jóns
son. Varamenn: af D-lista Hró-
bjartur Lúthersson. af B-lista Jón
Skagan.
í merkjadóm: Á.rni Snævarr.
Varamaður: Stefán Ólafsson.
f Sjó- og verzlunardóm: Af D-
lista Einar Guðmundsson, Garðar
Pálsson, Guðmundur H. Oddsson,
Halldór Sigurþórsson, Hjörtur
Hjartarson. Pétur Sigurðsson,
Sveinn Björnsson, Svérrir Nor
land, Einar Thocoddsen. Af B-
lista Páll Guðmundsson, Jón Rafn
Guðmndsson, Sveinn Jónsson, Æg-
ir Ólafsson, Karl Magnússon, Jón
Axel Pétursson.
fþróttaráð: Af D-lista Gísli Hall
dórsson, Axel Einarsson, af B-
lista Alfreo þorsteinsson.
Umferðanefnd: Af D-lista Þór
Sandholt, Sveinn Björnsson, af
B-lista Kári Jónasson.
Leikvallanefnd: Af D-lista Ás-
geir Guðmundsson, Margrét Ein-
arsdóttir af B-lista Guðrún Flosa
dóttir .Margrét Sigurðaráóttir.
Æskulýðsráð: Af D-lista Pétur
Sveinbjarnarson, Helga Gröndal,
Hinrik Bjarnason, af B-lista Gerð
ur Steinþórsdóttir, Guðrún Helga
dóttir. Varamenn: Af D-lista Karl
Jeppesen. Runólfur Pétursson,
Framhald á bls. 14.